Ársritið Gestur Vestfirðingur - 01.01.1849, Blaðsíða 38
38
mikaelismessu, þegar sumarhlýindin voru fyrst kom-
in ; sá eg þetta sjálfur á tveimur bæum skamt frá
Haga á Barðaströnd.
Jiess er áður getið, hversu heyafeingur manna
hafi orðið, fénaðar arður, og sjáfarafli í verstöðum.
Dúnár mun hafa orðið í góðu meðallagi, vegna þess
að nýting hans varð svo góð; fuglatekja næsta mis-
jöfn, sumstaðar i bezta lagi, en sumstaðar meö lak-
asta móti. Hrognkelsaveiðin er áður nefnd, og vor-
kópaveiöin; vil eg því einu við bæta, að hin síðar
greinda fer að mun í vöxt, siðan nokkurr hemill
fór að verða á selaskotunum, og menn tóku það upp,
að fjölga nótunum. Útselaaflinn, sem er næsta ó-
víða, varð á einstaka stað frábærlega mikill, en apt-
ur lítill sumstaðar. Hafselaveiðin á rá í Isafjarðar-
sýslu er alt af þessi árin minni, en áður var hún.
Mun það nú sjaldgæft, að nokkurr bátur afli þar á
vetri meira en frá 10 til 20, og, ef til vill,
30 seli bezt1. Sagt hefir mér verið, að 1 maður,
fyrir nokkrum árum, hafi á Isafirði feingið um vetr-
artímann við 3. mann á vöðubát 148 hafseli, og varð
úr þeirn 52 tunnur lýsis og 960 ® af velverkuðum
selskinnum; þegar þessu var skipt í 4 staði, má
meta hlutinn 200 dala virði. í nætur, sem nokkrir
Ísfirðíngar eru teknir að kosta til hafselaveið-
innar, öfluðu fáeinir nokkuð með landi fram; bezt
aflaðist 19 selir í tvítuga nót.
J>að er eins og hvalaveiði liafi lagzf frá Vestfjörð-
um í nokkur undanfarin ár; varþað þó opt áður að
Vestfirðíngar höfðu mikil not hvalrekanna, sem voru
bæði skíðisfiskar og tannfiskar. í mörg ár hafa reyöar-
livalir komiö inn á Arnarfjörð seint á sumrum með
kálfa sína. Reyðar þessar meta Arnfirðíngar sér
1) Á Arnarfirði atlaðist bezt í fyrra vetur 40 selir á I báti.