Ársritið Gestur Vestfirðingur - 01.01.1849, Blaðsíða 106
106
svari rúmum hálfum þumlúngi hvervetna; það sem
upp á vantar, verður að auka með grenigjörð, er
girt sé utan um neðra steininn innan í járngjörðina.
Jarngjörð þessi, er á að fellast utan um neðra stein-
inn, í kvarnarstokks stað, þarf að vera svo sem
tveggja þumlúnga breið; er þá helft hennar látin
standa upp af neðra steininum, svo sem kvarnar-
stokkur. Séu steinarnir jafnir að stærð, er fjölgað
grenigjörðum, þángað til nóg verður rúmið milli
járngjarðarinnar efra liluta og efra steinsins neðri
brúnar. Séu trégjarðir utan um neðra steininn, er
járngjörðin gjörð blýföst með þunnum eikarfleigum,
svo þéttum, að hvergi sé smuga á milli. Nú er
neðri steinninn eins stór og þarf, og er f)á gjört gat
á járngjörðina niður við efri brún neðra steinsins, er
kaffið á að sópast út um undan járnspaðanum (sóp-
aranum). En verði að auka allan muninn, er vera
þarf á steinunum, með grenigjöröum, þá snýr opið
niður í gegn um grenigjarðirnar. I mishæðir þær, er
óvörum kunna að verða í greni-hrínginn, má drepa
grjónaméls deigi, og fer f>að trautt úr, þegar hart
er orðið. I auga neðra steinsins sé rekið hart tré,
og f>ar í aptur ásinn eður möndullinu; f>ví hvorki
f>arf að létta eður þýngja kvarnir þessar, og á bæði
möndull og löð að vera úr stáli lítið hertu. I neðra
steininn eru höggnar smárennur, en í hinn efra eiga
þær að gjörast dýpri og breiðari, og svo margar, er
þurfa þykir, svo að baunirnar geti geingið vel út und-
ir hann, og út undan honum malaða kaffið. Sé á-
vali eða hæð neðan á undirsteininum, má hola þar
fyrir í þykkva fjöl, og negla hana upp í tréð í aug-
anu, með tveiinur eða þremur nöglum, má þá mala
hvar á, er vill, á kistu eða borði eða hvar annar-
staðar. Undir op þaö, er hið malaða kaffið kemur