Ársritið Gestur Vestfirðingur - 01.01.1849, Blaðsíða 64
64
2. NÁ TTÚR UAFBRIGÐI.
25. rlag Ágústmánaðar rak á land að Kleifum við
Steingrimsfjörð dautt sjóardýr, og lýsir Torfi lirepp-
stjóri Einarsson {>ví þannig: fram úr liöfðiriu lágu
10 halar svo beint frá, að þeir voru allir til sam-
ans ei meiri ummáls en liöfuðið, þar sem halarnir
komu saman við það. 8 af hölum þessum voru frá
2J til 3 álna lángir, og 9 til 12 (mml. digrir upp
við höfuðið; mjókkuðu þeir jafnt frameptirtil enda;
þeir voru sívalir, en þó flatir á einn veginn, og
var flata hliðin tvísett nokkurskonar dínglum, er
héingu á mótlíka taug og hnappar á íveru fötum,
og viðmóta lángt á milli hvers fyrir sig; líkir voru
þeir að lögun eins og útstúngið auga úr landskepnu,
en í stað augnahvarma var beinkynjaður hríngur,
líkur smágjörfum hákarlsskafli; innan í þessum
hríng var líkt og auga í liálfþurru þorskhöfði, en þó
einginn augasteinn, og var það þvi minna, sem
halarnir voru mjórri. Hinir 2 halarnir voru hvor
fyrir sig 9 áln. á leingd, og 6 þuml. digrir ummáls,
sívalir, nema fremst á þeim 1 al. með fleti og dingl-
um samkynja og á hinum. llöfuðið frá hölunum
aptur að búknum eður smokknum var £al., og sitt
auga hvoru megin á því, álika stórt og í fullorðnum
hákarli. Búkurinn aptur frá hausamótum var sí-
valur og 3 álna lángur, nokkuð apturmjór og
snubbóttur fyrir endann, þó var eins og þar mótaði
fyrir lítilfjörlegum skaufugga. Smokkurinn ristur
utan af var 1 al. 22 þuml. víður og l^ þuml. á
þykt. Inniflin voru lik og í skötu, en maginn lá
innan í miðju höfðinu, en framan í því innan undir
hölunum var op, eins og á munnamaga á afhöfðuð-
um þorski, og innan í þessu opi goggur, svartur
fremst, en mógulur efst, og líkastur því, þá hvolft
væri saman 2 efri goggum af lundanefi með litlu