Ársritið Gestur Vestfirðingur - 01.01.1849, Blaðsíða 115
115
bantli ab mannfurulum; samkynja silfurpeníng fékk
Jón llelgason, en hinir 2 feingu sína 10 dalina hvor.
jþegar sættanefndir voru stofnaóar hér á landi
meó tilskip. frá 20. Jan. 1797, var Bjarni kjörinn
sættamaöur á Barftaströnd; gegndi hann jrví embætti
ásamt sóknaprestinum í 24 ár með ráðdeild og rök-
semd. Sömuleiöis þá er hin nýa hreppstjórnin hófst,
var hann með amtsbréfi, dagsettu 8. Jún. 1810, sett-
ur hreppstjóri á Barðaströnd, og fékk hann Iausn
frá því eptir 8 ár.
Árið 1835, 22. dag Martsmán., deyði konahans
Sigriður úr aldurdóms hrumleika, komin á 87. ald-
ursár, höfðu þau þá lifað í hjúskap í 44 ár. Var
hjónaband þeirra eitthvert hið ástúðlegasta og hjóna-
legasta í allri sambúð, og létu þau bæði sér antum
að gjöra livort öðru hvern daginn öðrum yndislegri;
en ekki varð þeim barna auðið. Lét þá Bjarni skipta
búi sinu, tóku þá stjúpbörn hans 1 helminginn, en
liinum helmingnum ráðstafaði hann árið eptir, þann
10. Maim., með arfleiðslubréfi, staðfestu af konúngi
1. dag Febr. mán. 1838, þannig: að lögerfíngjar
koriu sinnar skyldu eignast helftina af fjármunum
þeim, er liann léti eptir sig, en hin helftin skyldi
skiptast jafrit milli útarfa hans, og þess er hann
kaus fyrir „Executorem Testamenti“ (arfleiðslustjóra
sinn). Ileiðurspeníng sinn gaf hann með þínglýstum
gjörníngi einum vina sinna eptir sinn dag. Hætti
hann fram af þessu við búskap, og settist að í lrús-
mennsku á Siglunesi; gafhann konu þeirri, ersturul-
aði hann, auk kaupgjalds, 1 hundr. á landsvísu af
eigum þeinr, er hann léti eptir sig.
1) Jiau voru þessi: Gunnlaugur Briem, sýsiuma&ur í Eya-
fjarðarsýslu; Einar prestur að Hjaltahakka, og Sigríður, ekkja
Hjalta prófasts að Stað í Steingrimsíirðí.
8’