Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.1987, Síða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.1987, Síða 5
FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 1987. Einstæð og eftírminnileg saga, sem oft hefur verið líkt við fræga ævisögu Martín Gray, Ég lifi, enda vekur hún sömu tílfinningar hjá lesendum. Mögnuð og átakanleg lýsing á grimmum og miskunnarlausum örlögum og mannlegri þjáningu, saga sem grípur lesandann heljartökum og heldur honum föngnum frá upphafi til enda. Þetta er saga manns sem er hrakinn út í ógæfuna af eigin ástríðum og örvæntingu, sjúkur á sál og líkama. Eitt sinn var hann elskaður og dáður um allan heim- inn, en nú er hann flestum gleymdur. Eftir tuttugu ára bið fær hann loks eitt einasta tækifæri til að sýna hvað í honum býr. En er það of seint? Hefur hann þegar steypt sjálfum sér og öðrum í glötun? Ögnvekjandi saga sem lýsir skuggahliðum mann- lífsins og örlagaþrungnum atburðum vægðarlaust en þó af djúpum skilningi og samkennd. Sá sem hér segir frá hlífir engum, hvorki sjálfum sér né lesendum, við afdráttarlausri játningu sinni. Bók scm lætur engan ósnortinn - engan.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.