Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.1989, Blaðsíða 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 1989.
Fréttir
Samfestingur þvegiim með terpentínu:
Fékk slæm brunasár er
samfestingurinn brann
„Það er glæpur að þvo samfesting-
ana upp úr terpentínu. Ég var að
rafsjóða og snögglega stóð hluti sam-
festingsins í ljósum logum. Ég komst
ekki úr samfestingnum en sem betur
fer komu tveir menn sem hjálpuðu
mér. Ég hlaut fyrsta og annars stigs
bruna. Ég mun verða frá vinnu á
þriðju viku - að minnsta kosti,“ sagði
Fá greiðslufrest:
Kemur í veg
fyrir 5 prósent
Hækkun inn-
fluttrar vöru
Jón Sigurösson viðskiptaráö-
herra hefur afnumið bann við því
að heildsalar nýti sér þann
greiðslufrest sem erlendir selj-
endur veita. Nú er innflytjendum
heimilt að þiggja greiðslufrest í
allt að þijá mánuði á flestum al-
mennum vörum.
„Við höfum barist fyrir því að
fá að nýta þennan greiðslufrest
síöan á sjötta áratugnum. Þetta
var ein af leifunum af haftatím-
anum og ein sú leiðinlegasta.
Þetta var sú tegund af höftum
sem enginn hefur grætt á,“ sagði
Árni Reynisson, framkvæmda-
stjóri Félags íslenskra stórkaup-
manna, í samtali við DV.
Að sögn Árna mun þessi breyt-
ing leiða til þess að vaxtakostnaö-
ur innflytjenda muni lækka um
allt að 5 prósent Auk þess mun
þessi tilhögun hafa í för með sér
ýxnsa hagræðingu fyrir fyrirtæk-
in.
Ami sagðist búast við að vörur
hækkuöu ekki jafhmikið og ann-
ars hefði orðið sökum þessa. Er-
lendis endurskoðuðu framleið-
endur yfirleitt vöruverð um ára-
mót. Að öllu óbreyttu hefði því
mátt búast við almennri vöru-
verðshækkun. Heimildin til þess
að nýta greiðslufrestinn mundi
hins vegar slá á þessar verö-
hækkanir. -gse
Óshlíöarvegur:
Litið slasaður eft-
ir 50 metra fall
Ökumaður, sem ók út af Ós-
hlíðarvegi, er lítið slasaöur eftir
að hafa hrapaö um 50 metra í bíl
sínum. Talið er að ökumaðurinn
hafi verið á fjórða klukkutima í
ónýtura bíl sínum. Það var lög-
reglumaöur á ísafirði - sem er
búsettur á Bolungarvík - sem tók
eför að bíl hafði veriö ekið út af
Óshlíöarvegi. Lögreglumaðurinn
heitir Guðmundur Páll Jónsson.
Hann var á leið til vinnu
snemma í gærmorgun. Hann sá
hjólför á Óshlíðarvegi sem gáfú
til kynna að ekið heföi veriö út
af veginum. í Ijós kom að slasaöur
maður var í ónýtum bíl um 50
metrum neðar í hh'öinni.
Sá slasaði slapp furðuvel og er
talið að hann sé fótbrotinn auk
annarra smærri meiðsla. -sme
Banaslysið í
Svinahrauni
Konan sem lést í slysinu í
Svínahrauni á nýársdag hét
Helga Þóroddsdóttir. Hún var 78
ára gömul og til heimilis að Hörð-
alandi 2 í Reykjavik. -sme
Kristján Jóhannsson rafsuðumaður.
Kristján varð fyrir þeirri óþægi-
legu reynslu að samfestingur, sem
hann klæddist við vinnu sína, stóð
skyndilega í ljósum logum. Samfest-
ingurinn, sem er úr bómiúlarefni,
var nýkominn úr hreinsun. Komið
hefur í ljós að hann var þveginn með
terpentínu. Kristján sagði að betra
væri að nota slökkvivökva við þrif á
samfestingunum.
„Ég hef starfað við þetta í 36 ár og
slíkt hefur aldrei hent fyrr. Venju-
lega þvæ ég samfestingana sjálfur.
Ég hef verið að hugsa ef þetta hefði
hent mann sem hefði legið undir ein-
hverju tæki og enginn verið til að-
stoðar. Ég fæ ekki séð annað en að
manns við þær aðstæður biði ekkert
annað en að brenna til dauöa. Það
verður aö hætta að þrífa vinnuföt
með eins eldfimu efiú og terpentína
er,“ sagði Kristján Jóhannsson.
-sme
Unnið er að því að setja upp flæðilínu i vinnslusal hjá Haraldi Böðvarssyni.
DV-mynd Sigurgeir
Akranes:
Flæðilína hjá Haraldi Böðvarssyni
Sigurgeir Sveinssan, DV, Akranesi;
Hjá Haraldi Böðvarssyni og Co. á
Akranesi er nú verið að setja upp
nýja vinnslulínu í vinnslusal fyrir-
tækisins, svokallaða flæðilinu. Með
henni er stefnt að hagræðingu því
afkastagetan ætti að aukast miðað
við sama starfsmannafjölda. Þá verð-
ur tekin upp hinn svokallaði flæði-
línubónus þar sem allir bera jafnt
úr býtum.
Stefnt er aö því að vinnsla hefjist
aftur um 12. janúar. Þá hafa tvö af
fiskvinnslufyrirtækjum bæjarins
tekið upp þetta kerfi því Heimaskagi
tók það upp sl. sumar og hefur það
reynst mjög vel.
Ingólfur og Andri hættir hjá Feröaskrifstofimni Útsýn:
Boðin aðild að
Ferðamiðstöðinni
- án íjárskuldbindinga, segir Ingólfur Guöbrandsson
„Við höfum ekki keypt hlut í Rerða-
miðstöðinni en okkur hefur verið
boðin aðild aö henni án fjárskuld-
bindinga og höfum þegið hana. Þar
mun reynsla og þekking Andra Más
Ingólfssonar nýtast og hann hefur
þegar hafið störf fyrir Ferðamiðstöð-
ina,“ sagði Ingólfur Guðbrandsson,
fyrrum eigandi og forsljóri Útsýnar,
í samtali við DV í morgun.
„Þegar ég mætti til starfa í gær-
morgun var búið að skipta um skrá
á skrifstofu minni qg mér meinað að
komast þar inn. Ég gat ekki einu
sinni sótt mína persónulegu muni og
skjöl. Allt sem er á skrifstofunni
minni er í minni einkaeigu. Þá var
mér og meinað að halda fund með
starfsfólkinu og mér tilkynnt að veru
minni hjá Útsýn væri lokið. Fyrir ári
gerði ég þriggja ára starfssamning
við eigendur Útsýnar en mitt afrit
af þeim samningi hvarf úr skrifborði
mínu þegar ég var á ferðalagi erlend-
is fyrr á liðnu ári. Ef haldið verður
fast við það að hleypa mér ekki inn
á skrifstofuna til að sækja þangað
eigur mínar verð ég að fara þangað
inn með fógetavaldi," sagði Ingólfur
Guðbrandsson, fyrrum eigandi og
forstjóri Ferðaskrifstofunnar Útsýn-
ar, í samtah við DV.
Ingólfur Guðbrandsson: leitar hann
eftir aðstoð fogeta?
Andri á Costa del Sol
Andri Már Ingólfsson, sonur Ing-
ólfs, sagði upp starfi sínum sem
framkvæmdastjóri Útsýnar þar eð
hann hafði aldrei fengið starfssamn-
ing sinn staðfestan né fengiö þau
völd í hendur sem starfinu áttu að
fylgja. Andri sagði upp föstudaginn
80. desember. Hann réð sig samdæg-
urs til Ferðamiðstöðvarinnar og er
nú farinn til Costa del Sol á hennar
vegum.
Ingólfur sagðist ekki ætla að stofna
nýja ferðaskrifstofu. Hann hefði,
þegar hann seldi fyrirtækiö, skuld-
bundið sig til að gera það ekki né
vinna að skyldum störfum annars
staðar en hjá Útsýn. Sá samningur
var gerður gegn ákveðnum hlunn-
indum sem Ingólfur átti að njóta. Nú
segir hann að þeim samningi hafi
verið rift með uppsögn sinni og því
telji hann sig hafa ftjálsar hendur
og ætli að láta skoöa réttarstöðu sína
út frá því.
-S.dór
Pósticassafaraldurirm:
Ekkert ráð
sem dugir
gegn þessu
- segir póstmálafulltrúi
„Það er því miöur ekkert ráð
til sem dugir gegn þessu. Því er
ekki að leyna að þetta kemur oft
fyrir. Það hefur þó ekki veriö
mjög mikið um þetta um þessi
áramót. Þaö hefur ekki valdið
okkur þungum áhyggjum," sagði
Rafn Júliusson, póstmálafulltrúi
hjá Pósti og síma.
Um hver áramót koma upp
nokkur tilfelli þar sem flugeldar
eða annað sprengiefni er sett í
póstkassa. Póstur skemmist oft
af þeim sökum og eins skemmast
sjálfir póstkassarnir. Nýlega var
póstkassi í Mosfellsbæ sprengdur
upp og ávisun úr einu bréfi tekin.
I stað ávísunarinnar var sett til-
kynning um jólaball.
„Þetta er afleitt fyrir þá sem
verða fyrir þessu. Það skemmast
oft persónuleg bréf og vinar-
kveðjur. Slíkt er alltaf erfitt að
meta til fjár og það getur enginn
gert. Ef ávisanir eru sendar í al-
mennum pósti eiga þær að vera
þannig að enginn nema réttur
viðtakandi geti notaö þær. Mesta
tjónið, sem af þessu hlýst, eru
skemmdimar á póstkössunum,"
sagði Rafn Júlíusson. -sme
Nýársdagur:
Lögregla lok-
aðiellefu
sjoppum
Lögreglan í Reykjavik yarð að
loka ellefu sjoppum og videoleig-
um á nýársdag en óheimilt er að
hafa opið á þeim degi. Einni
sjoppunni, að Seljabraut 54, varð
aö loka tvivegis þar sem hún var
opnuð eftir að lögregla hafði lok-
að fyrr um daginn. -sme
Akureyri:
Ók á mann
og stakk af
Gylfi Kristjánssan, DV, Akuxeyri:
Rannsóknarlögreglan á Akur-
eyri leitar nú að hvítri fólksbif-
reið sem ekið var á mann aö-
faranótt gamlársdags og stakk
síðan af.
Þetta gerðist á gangbraut á
Glerárgötu skammt frá Sjallan-
um. Maðurinn var fluttur á
sjúkrahús með áverka á höfði
auk annarra meiðsla. Rannsókn-
arlögreglan biöur þá sem gætu
gefið upplýsingar varðandi þetta
mál aö hafa samband við sig.
Akureyri:
79 útköll hjá
slökkviliðinu
Gyifi Kristjánssan, DV, Akureyxi:
Slökkviliðiö á Akureyri fór í 79
brunaútköll á síðasta ári og fækk-
aði útköllum verulega eða um 36
frá árinu 1987. Þar munar mestu
að sinubrunar voru nú mjög fáir
eða 7 á móti 41 áriö áður.
Mestu eldsvoðarnir á árinu
voru í golfskálanum að Jaðri og
að Hólakoti í Eyjafirði en báðir
þessir hrunar voru í upphafi árs-
ins.
Sjúkraútköll voru 1084 á árinu
1988 og voru 185 þeirra utan-
bæjar. Af þessum 1084 útköllum
voru 197 bráðatilfelli.