Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.1989, Blaðsíða 5
ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 1989.
5
Fréttir
2,3 prósent kjararýmun í þjóðfélaginu:
Verkafólkið ber nær
alla kjararýrnunina
- minnkandi yfirvinna skerðir kaupmáttinn um rúm 5 prósent
Samkvæmt nýutgefnu fréttabréfi
Kjkrararmsóknamefndar, hafa
verkamenn og verkakonur borið
nær alla þá 2,3 prósent kíararým-
un sem orðið hefur frá þriöja árs-
íjórðungi 1987 til sama ársfjórð-
ungs 1988. Kaupmáttur heiidar-
launa annarra starfsstétta hefur
rýmaö minna eða jafnvel vaxið.
Kaupmáttur tímakaups verka-
kvenna jókst um 0,3 prósent á
þessu timabili. Vinnustundum
verkakvenna Dækkaöi hins vegar
um rúma tvo tíma og rýmaði því
kaupmáttur heildartekna þeirra
um 5,7 prósent. Meðaltekjur þeirra
em nú 63 þúsund krónur á mánuði
Kaupmáttur timakaups verka-
manna jókst um 1,8 prósent á tíma-
bilinu. Þeir skiluðu hins vegar
rúmlega þremur færri eftirvinnu-
stundum og rýmaöi því kaupmátt-
ur heildarlauna þeirra um 5,5 pró-
sent. Verkamenn hafa að 'meðaltali
um 79 þúsund krónur í mánaðar-
laun.
Kaupmáttur heildariauna iðnað-
armanna og afgreiðslufólks breytt-
ist lítið. Hins vegar jókst kaup-
máttur heildarlauna skrifstofu-
fólks um rúm 3 prósent þrátt fyrir
að það skilaði eixmi eftirvinnu-
stund minna.
Kvenfótk mun lægra
launað
Á þessu tímabili jókst kaupmátt-
ur tímakaups skrifstofukvenna um
9,2 prósent, skrifstofukarla um 6,7
prósent, afgreiðslukarla um 4,7
prósént og iðnaðarmanna um 3,9
prósent. Eins og áður sagði jókst
Brcytingar á kaupmatlí mánjtóartekja
<»* 3. to*lií.«uo8l 1387 ta 3. M83
Á þessu súluriti má sjá þróun
kaupmáttar heíldartekna frá þriðja
ársfjórðungi 1987 til sama tímabils
á árinu 1988. Kaupmáttur heildar-
launa verkafólks skerðist mest
bæði vegna þess að tímakaup
þess hækkaði minna en annarra
stétta og eins vegna þess að yfir-
vinna verkafólks dróst meira sam-
an en annarra stétta.
kaupmáttur tímakaups verka-
kvenna ekki nema um 03 prósent
á sama tíma, verkakaria um 1,8
prósent og afgreiðslukvenna um 3
prósent.
Iðnaðarmenn hafa aö meðaltali
hæst laun þeirra sem taka þátt í
úrtaki Kjararannsóknarnefhdar
eða um 111 þúsund krónur. Skrif-
stofúkarlar fylgja fast á eftir með
um 105 þúsund krónur. Afgreíðslu-
karlar eru með um 85 þúsund krón-
ur á mánuði, verkamenn með um
79 þúsund, skrifstofukonur með
um 72 þúsund, verkakonur með um
63 þúsund og afgreiðslukonur með
um 62 þúsund krónur á mánuði.
Verkafólk dregst aftur úr
Frá árinu 1980 hefur kaupmáttur
heildarlauna skrifstofukarla auk-
ist um 19 prósent, iðnaðarmanna
um 17,9 prósent, afgreiðslukarla
um 16,6 prósent, skrifstofúkvenna
um 10,5 prósent, afgreiðsiukvenna
um 8,3 prósent og verkakvenna um
0,7 prósent. Kaupmáttur verka-
karla hefur á sama tíma rýmað um
0,1 prósent.
Eins og áður sagði var mestur
samdráttur í yfirvinnu hjá verka-
fóiki frá þriðja ársíjóröungi 1987 til
sama tímabils á árinu 1988. Ef sá
samdráttur heldur áfram má búast
viö aö þessar starfsstéttir dragist
enn aftur úr öðrum stéttum.
Um þriðjungur af heildarlaunum
verkamanna eru fyrir yfirvinnu.
Iönaðarmenn hafa svipað hlutfall
en yfirvinnan vegur mun minna i
heildarlaunum annarra stétta.
-gse
Búnaöarbankinn:
Þjófurinn
er í gæslu-
varðhaldi
Búiö er að úrskurða manninn, sem
stal peningum í afgreiðslusal Búnað-
arbankans föstudaginn 30. desember,
í gæsluvarðhald þar til um miöjan
janúar. Maðurinn hefur áður reynt
svipaðan þjófúað. Hann vakti fyrst á
sér athygli er hann hljóp nakinn inn
á Laugardalsvöll skömmu fyrir
landsleik íslendinga og Sovétmanna
í sumar.
Það var klukkan rúmlega ellefu á
föstudagsmorgun sem maðurinn
stökk yfir afgreiðsluborö í Búnaðar-
bankanum og hrifsaði til sín um 400
þúsund krónur. Manninum tókst að
komast undan á flótta. Hann var
handtekinn í Flugstöð Leifs Eiríks-
sonar um fjórum klukkustundum
eftir þjófnaðinn. Þá var hann með 375
þúsund krónur á sér. _sme
Lögreglan á Keflavikurflugvelli á tvo Chevy Van bíla frá árinu 1978 og 1981.
Mun viðhaldskostnaður vegna þeirra vera mikill enda um að ræða dýra bila.
DV-mynd Ægir Már
Mikill viögeröarkostnaður á Keflavikurflugvelli:
Reikningarnir
haf a lækkað mikið
- segir lögreglustjórinn á Keflavíkurflugvelli
„Ég er nú orðinn vanur svo mörgu
að ég er hættur að kippa mér upp
við svona lagað,“ sagði Þorgeir Þor-
steinsson, lögreglustjóri á Keflavík-
urflugvelli, en í nýútkominni skýrslu
Ríkisendurskoðunar er embætti lög-
reglustjóra á Keflavikurflugvelli
gagnrýnt ‘harðlega fyrir árið 1987.
Það er sérstaklega viðgerðarkostn-
aður á bíium embættisins sem er
gagnrýndur enda sagður vera um 3,7
milljónir á þá þrjá bila sem viðhalds-
frekastir voru.
Þorgeir sagði að alvarleg villa hefði
verið í samantekt Ríkisendurskoð-
unar. Þar heföi kostnaður vegna
kaupa á nýrri Saab bifreið verið
færður til viðgerðarkostnaðar og þvi
væri hægt að lækka þessar 3,7 millj-
ónir um 700.000 krónur.
„Við vorum með gamla bíla sem
við höfum losað okkur við þannig að
viðgerðarkostnaður hjá embættinu
fyrir 1988 verður mun lægri en 1987.“
Þorgeir sagði að embættið hefði sjö
bíla til umráða sem væri ekki mikið
þar sem þetta væri annað stærsta
lögregluembætti landsins.
Samkvæmt upplýsingum blaðsins
hefur mikið verið keypt af bílum til
embættisins fi*á varnarliðinu. Þor-
geir sagði það ekki rétt nema hvað
þeir heföu keypt einn bíl frá Sölu-
nefúdvamarliðseigna. -SMJ
OKKAR LANDSFRÆGA
UTSALA
HEFST A MORGUN
- MIÐVIKUDAG -