Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.1989, Qupperneq 26
26
ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 1989.
Sviðsljós
Ólyginn
sagði...
Jane
Fonda
Sportistinn og prýöisleikkonan
Jane Fonda lenti í því nýlega að
nefbrotna. Hún var þó ekki í
slagsmálum eins og einhver gæti
haldiö. Jane var úti að hjóla viö
upptökur á síðustu kvikmynd
sinni þar sem verið var að æfa
atriði þar sem statisti getur ekki
komið í stað leikkonunnar. Þetta
hafði þær afleiðingar að leikfimi-
konan mikla lenti í árekstri við
annan hjólreiðamann með áður-
nefndum afleiðingum.
Jamie Lee
Curtis
Þessi fullkomna leikkona úr
myndinni Perfect er svo fullkom-
inn að hún segist hata líkama
sinn - og meira að segja svo mik-
ið að hún segist ekki hafa komið
á baðströnd í átta ár. Þetta fmnast
nú einhverjum skrýtnar fréttir.
Einhver lét þau orð falla að hann
vonaðist til þess að hún héldi sig
fjarri baðströndum í önnur átta
ár - þá ætlaði sá hinn sami að
pakka saman og fara heim.
Iinda
Kozlowsky
Mótleikari og alvöruvinkona
Paul Hogans úr Krókódíla-
Dundee leikur um þessar mundir
í sjónvarpsþáttum sem nefnast
Favorite Son. Þar er mótleikari
hennar Harry Hamlin, sá mynd-
arpiitur úr Lagakrókum á Stöð
2. Favorite Son fjallar um baráttu
bandarísks þingmanns fyrir að
ná völdum í Hvíta húsinu. Og
Linda leikur eina af fallegu kon-
unum sem þurfa til að svona
þættir verði gjaldgengir fyrir
augum áhorfenda.
þjónn hægir
á umferðinni
Á eyjunni Amager, þar sem Kas-
trupflugvöllur er, stendur þögull lög-
regluþjónn og hreyfir sig ekki úr
sporunum allan daginn - segir ekki
orð. Samt hefur honum tekist að
minnka umferðarhraðann þar sem
hann hefur staðið upp á endann ná-
lægt lögreglustöðinni í Tárnby. Það
er ekki fyrr en maður kemur í návígi
við löggumanninn að í ljós kemur
að þetta er bara pappalögga.
Að sögn alvörulögreglumanna á
Amager hefur þetta uppátæki þeirra
leitt til þess að nú eru 50% færri tekn-
ir á þessum slóðum fyrir of hraðan
akstur. Ökumenn halda að þetta sé
virðulegur lögreglumaður að líta eft-
ir umferðinni og bera því virðingu
fyrir honum. Auk þess halda margir
að radarmæling sé fram undan á
götunni.
Pappalöggan er sett upp á mismun-
andi stöðum svo ekki sé hægt að
reikna með henni á sama stað - ann-
ars héldu bílstjóramir bara áfram
„ligeglad". Lögreglumaðurinn Jorg-
en Stenvinkel er fyrirmynd dúkk-
unnar og er hann þegar orðinn fræg-
ur, a.m.k. á Amager.
Lögregluþjónninn Jorgen Stenvinkel er fyrirmynd að þögla lögreglumannin
um sem hefur fengið margan danskan ökumanninn til að hægja á sér.
Það var verið að tilkynna i beinni sjónvarpsútsendingu hver hefði hreppt
titilinn ungfrú Frakkland. Peggy Zlotkowsky, sautján ára, frá Montflanquin,
fylgdist spennt með. Þegar hún var útnefnd sigurvegari féll hún hreinlega
í gólfið - það leið yfir hana. Hún var þó fljót á fætur og krýningarathöfnin
hélt áfram. Á annarri myndinni sést ungfrú Moskva (sú fyrsta), sem var
gestur við athöfnina, óska Peggy, nýstaðinni á fætur, til hamingju með titil-
inn. - Svo eru ekki einu sinni felld tár þegar ungfrú heimur er krýnd.
Reuter
Þessar myndir eru frá fullveldisfagnaði íslendingafélagsins í Árósum sem
haldinn var 2. og 3. desember. Á föstudagskvöldið steig fullorðna fólkið
dans fram á nótt þar sem diskótekið Dísa sá um tónlist og skemmtiatriði.
Þarna voru um 70 manns samankomnir. Daginn eftir var svo haldin barna-
skemmtun með ýmsum íslenskum leikjum. Grænlendingar voru svo vinsam-
legir að eftirláta íslendingunum hús sitt til afnota endurgjaldslaust. Auk
þess var ekkert gjald tekið fyrir diskótekið af hálfu „Dísumanna“.
Díana slær
jólasveinimim
við í vinsældum
Desember er aðalmánuður jóla-
sveinsins og sá tími ársins sem hann
nýtur óskiptrar athygli, fullorðinna
jafnt sem barna. Þegar jólasveinninn
var á ferð í Englandi stuttu fyrir jól
varð hann í fyrsta sinn fyrir því að
falla í skuggann af öðrum. Sveinki
kom i fylgd Díönu prinsessu í heim-
sókn á barnasjúkrahús í Lundúnum.
Börn og fullorðnir nánast því snið-,
gengu jólasveininn en hópuðust um
prinsessuna sem átti hug þeirra all-
an. Haft var éftir jólasveininum að
þetta væri í fyrsta sinn sem hann
yrði aö láta í minni pokann fyrir
annarri persónu, en kannski er
merkilegra að vera prinsessa en jóla-
sveinn.
Jólasveinninn varð að sætta sig við að falla í skuggann af prinsessunni.