Þjóðviljinn - 07.12.1991, Page 4
Pistlar Ellerts
B. Schrams
út er komin hjá Frjálsri
fjölmiðlun hf. bókin „Eins og
fólk er flest" eftir Ellert B.
Schram ritstjóra. Efni bókar-
innar er pistlar og smásögur,
svipaðs efnis og Ellert hefur
skrifað í helgarblað DV und-
anfarin ár.
í bókarkynningu segir m.a.:
„Þar er fjallað um hinar
margvislegu hliðar mannlífsins,
æskuna og (jölskylduna, íþrótt-
ir, þingmennsku, dagdrauma og
sjálfsímynd okkar allra; ein-
stæðinga ellinnar, ruglað fólk
og óruglað og hvunndagslífið
hátt og lágt. Samtals eru 36
sjálfstæðir kaflar í bókinni.
Engum er hlíft í háði og skopi
og allra síst höfundi sjálfum. En
bak við glettnina er alvaran og
veruleikinn og undirtónninn í
bókinni er einlægni og hrein-
skíini.
„Eins og fólk er flest“ er
prýdd myndum eftir Ama Elfar
myndlistarmann. Bókin er 176
síður að stærð. Hún kostar kr.
2.480,- í smásölu.
Skáldsaga eftir
Guðmund
Andra Thorsson
Út er komin hjá lVláli og
menningu skáldsagan íslenski
draumurinn eftir Guðmund
Andra Thorsson.
Höfundur kveður margar
persónur til sögunnar, sem ger-
ist á mörgum sviðum og ólíkum
tímum. Bók hans er þó öðru
fremur saga um vináttu, ást -
og svik, allt skoðað í tengslum
við hugmyndir íslendinga um
sjálfa sig, íslenska drauminn. Er
íslenski draumurinn frægð,
frami og skjótfenginn auður eða
vinna, strit og þegnskylda í
þágu fóstuijarðarinnar? Er það
sjálfselska í öðru veldi eða
metnaður fyrir hönd þjóðarinn-
ar? Að sýna hugsjón sína með
hvítum kolli 17. júní, undir
rauðum fána í Keflavíkurgöngu
eða í hlaupagalla í Reykjavíkur-
maraþoni?
Guðmundur Andri Thors-
son er fæddur árið 1957. Hann
hefur áður sent frá sér skáld-
söguna Mín káta angist (1988).
Islenski draumurinn er 200
bls. Ingibjörg Eyþórsdóttir
gerði kápu.
'Tr/ENNING
Líf og starf kínverskrar alþýðu
Kínversk-íslenska menn-
ingarfélagið og ki'nverska
sendiráðið á Islandi
standa að ljýsmyndasýn-
ingu í Listasafni ASI sem verður
opnuð á morgun. Sýningin er
haldin í tilefni 20 ára stjórnmála-
sambands Kínverska alþýðulýð-
veldisins og Lýðveldisins Islands.
Ljósmyndasýningin, sem ber
yfirskriftina Líf og starf kínverskr-
ar alþýðu, er þverskurður úr kín-
versku þjóðlífi nú á dögum. Mynd-
imar syna fjölbreytileika kínversk?
mannlífs til borga og í sveitum. I
fréttatilkynningu frá Kínversk-ís-
lenska menningarfélaginu segir að
myndimar beri „vott um þann þrótt
sem er í uppbyggingu og þróun
kínversks þjóðfélags á sama tíma
og veldi kommúnista í Austur-
Evrópu er að hrynja.“ Fjöldi
mynaa er úr atvinnulífi lands-
manna, aðrar sýna skemmtanir
fólks og enn aðrar þjálfun i kín-
verskri bardagalist, svo fátt eitt sé
nefnt.
Kínversk-íslenska menningar-
félagið var stofhuð um tveimur ár-
um eftir að stiómmálasambandi var
komið á milli landanna. Markmið
félagsins er,að efla menningasam-
skipti milli Islands og Kína. Fyrsti
formaður þess var dr. Jakob Bene-
diktsson, en núverandi formaður er
Ragnar Baldursson rithöfundur,
túlkur og fréttamaður sem stundað
hefur nám bæði i Peking og Tokyo.
Þá má þess geta að Kínverska
vináttustofnunin í, Peking heldur
myndasýningu frá Islandi í desem-
ber, þar sem land og þjóð em kynnt
fyrir þarlendum almenningi.
Ljósmyndasýningin í Listasafni
ASI við Grensásveg verður opnuð
nú um helgina og ffá 14. til 22.
desembers. Virka daga verður opið
ffá kl. 16-20, en frá 14-20 um helg-
ar.
Ein þeirra fjölmörgu mynda sem verða til sýnis á kínversku Ijósmyndasýningunni í Listasafni AS( sem verð-
ur opnuð (dag. Eftirtaka: Jim Smart.
Á rauðum hjólbörum
um Eyðilandið
Bókvitið verður ekki í ask-
ana Iátið og þessi uppá-
koma verður ekki í jóla-
pakkana látin, sagði Viðar
Eggertsson leikari spekingslega
pm Ijóðadagskrána i Listasafni
Islands Á rauðum hjólbörum um
Eyðilandið. - Þetta er án efa eina
uppákoman á þessum árstíma
sem ekki tengist útgáfu af nokkru
tæi, hvorki er verið að kynna ný-
útkomna plötu né bók, og það er
ekki verið að selja fólki eitt né
neitt, sagði Viðar. Þetta er
skemmtun og upplyfting í
skammdeginu.
Tveir þýðendur, þtjú ljóðskáld
og þrír lesarar. Á morgun kl. 15.30
veroa flutt ljóð bandarísku skáld-
anna, Ezra Pounds, Williams Carlos
Williams og T. S. Elliots í þýðingu
þcirra Áma Ibsens og Sverris Hólm-
arssonar. Þýðandinn og leikskáldið
Ámi lbsen mun lesa ljóð Williams,
Viðar Eggertsson les ljóð Elliots og
Amór Benónýsson ljóð Pounds.
Hinn landskunni harmoníkuleikari
Reynir Jónsson mun leika fyrir ljóð-
elskagesti.
Listasafh Islands, Menningar-
stofnun Bandaríkjanna og Rokk-
skógar hafa samvinnu um þessa
dagskrá. Hvemig ætli standi á þvi?
Amór Benónýsson sagði þetta
vissulega skrítna og skemmtilega
blöndu. - Rokkskógar em óformleg
samtök listamanna sem eru til í
hvað sem er, ekki bara rokk. Það
voru Rokkskógamir sem höfðu
frumkvæði að þessari uppákomu.
Þeir Viðar og Amór segja sig
vera mjög handgengna höfundum
þeirra ljóða sem þeir lesa upp, en
þeir hafa leikið þá báða. - Þessi
skáld em hluti af okkar tilvem,
sagði Viðar. Við létum Áma Ibsen
William eftir, en hann hefur þýtt
ljóð skáldsins.
- Ljóðskáldin þijú vora öll sam-
tíðarmenn. Pound tengist báðum
skáldunum, hann er eins konar
milliliður þeirra. Elliot og Pound em
fulltrúar hinna rótlausu bandarísku
skálda. Þeir eiga það sameiginlegt
að þeir þeystu um gjörvalla Evrópu
á fyrri hluta aldarinnar í leit að rot-
um sínum. Hins vegar má segja að
Williams sé fyrst bandarískra skálda
til að yrkja ljóð heima fyrir um dag-
legt líf þar í landi, sagði Viðar í
stuttu spjalli um ljóðadagskrána.
Eins og áður sagði er dagskráin
á sunnudag og hefst kl. 15.30, miða-
Viðar Eggertsson og Arnór Benónýsson. Tveir af þremur hógværum
lesurum hinna lítið hógværu bandarísku skálda, T. S. Elliots, Ezra Po-
unds og Williams Carlos Williams. Mynd: Kristinn.
Frank Lacy
á Púlsinum
og Selfossi
Bandaríski básúnu-
leikarinn Frank Lacy er
kominn til íslands. Hann
Iék með hljómsveit Tóm-
asar R. Einarssonar á
Púlsinum í gær við góðar
undirtektir gesta þar.
Frank er ekki farinn enn
og ætlar sér að endurtaka
leikinn í kvöld á Púlsinum
og hefst hann stundvíslega
kl. 21.30. Annað kvöld
munu hins vegar Sunnlend-
ingar njóta góðs af heim-
sókn kappans, en þá mun
hann skemmta mönnum á
Hótel Selfossi.
íslendingar hafa áður
kynnst Frank, en hann kom
hingað til lands í byijun
ársins og hljóðritaði við
það tækifæri geisladiskinn
Islandsfor ásamt Tómasi R.
og félögum.
í ágúst sl. hlotnaðist
Frank sá heiður að vera
kosinn annar efnilegasti
básúnuleikari djassheims-
ins.
Þeir sem troða upp með
þessum mikla hljóðfæra-
leikara hér em, auk Tómas-
ar á bassann, Sigurður
Flosason á saxófón, Kjartan
Valdemarsson á píanó og
Einar V. Scheving á tromm-
ur.
BE
Nú ætla ég, aldrei þessu vant, aö
tala hreint út um alla bestu vini
mína. Þetta eru allt mestu sóma
menn, eöa hitt þó heldur.
Lengi vel hélt ég að kar-
finn á Vestfjörðum væri
langhali, en svo sýndi
hann sitt rétta eðli,
leigði sér leigupenna
og reyndist eftir allt J
verajbévítansjcarfj ^
s
ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 7. desember 1991
Síða 4