Þjóðviljinn - 07.12.1991, Page 12
JÓiAHLAÐ WÓBtW IANS
Guðný Helgadóttir leik-
kona og Geirharður
Þorsteinsson arkitekt.
Þau ætla sér að brjóta
upp hefðbundið jólahald
og gera þennan tíma
eftirminnilegan. Hálfs-
mánaðar göngutúr í
Himalayafjöllunum í
Nepal gleymist varla
fljótt. Mynd: Jim Smart.
Verj a j ólunum á slóðum
Gurkha- stríðsmanna
fjalllendi Nepal
Jólahald í tjaldbúðum við rætur Himalayafjalla í Nepal, þar sem
þjófóttir apar sitja um hátíðarmatinn og jólabaðið verður að fara
fram í köldum fjallalæk, er fremur ólíkt þeim hugmyndum sem
flest okkar hafa um jólin. Samt ætlar litill hópur íslendinga að
verja komandi hátíð við göngur á hálendi Nepal. Meðal þeirra eru
hjón úr Skuggahverfinu í Reykjavík, þau Guðný Helgadóttir, leik-
kona og starfsmaður Hreyfilistahússins, og Geirharður Þorsteinsson
arkitekt.
Hvað eru þau að fara að gera?
„Við erum að fara í göngutúr,“
svarar Geirharður að bragði og
Guðný bætir við að leiðin liggi á
vit ævintýranna.
Þau fara til Nepal 14. desem-
bcr og verða þar til 4. janúar.
„Fyrst dveljum við í Katmandú til
að jafna okkur eftir ferðina en
tímamunurinn er sjö klukkustund-
ir.“ Eflir hvíldina tekur við
tveggja vikna göngutúr og tjald-
búskapur í héraði sem heitir Gur-
ung og liggur norð- vestur af
Katmandú. Gurung-hérað er
heimaslóðir ghurka-hermannanna
sem eru heimsþekktir málaliðar,
börðust meðal annars hjá Bretum í
Indlandi. „Þama er það ævagömul
hefð að efnilcgustu drengimir ger-
ist atvinnuhermenn og af ghurk-
unum fer það orð að þeir séu góð-
hjartaðir heima fyrir en grimmir á
vígvellinum," segir Geirharður.
Nepal er á 28. breiddargráðu
sem þýðir að það er á móts við
miðja Sahara. En þar sem landið
er mjög hálcnt má samt búast við
íslensku haustveðri. 1 göngutúm-
um verður farið hæst í um fjögur
þúsund metra hæð yfir sjávarmál
Það er gott að geta að-
eins lagt frá sér byrðina
og tyllt sér.
en aldrei niður fyrir tvö þúsund
metra. „Við megum eiga von á
rigningu, slyddu, blíðviðri, snjó-
komu eða frosti, jafnvel hörku-
gaddi á nóttunni,"
segir Guðný og
virðist ekki hafa
neinar áhyggju af
veðrinu. Geir-
harður bætir við
að þetta velti auð-
vitað mikið á
hæðinni.
Allan göngu-
túrinn verður gist
í tjöldum, hyemig
sem viðrar. Islendingamir í hópn-
um verða fimmtán talsins en Geir-
harður segir að með innfæddum
burðarmönnum og matreiðslu-
mönnum telji hópurinn líklega um
þrjátíu manns. „Við þurfum að-
eins að ganga undir okkur sjálfum
því heimavanir aðstoðarmenn
bera allan farangurinn," segir
hann.
Ef áætlunin stenst verða Geir-
harður og Guðný í tjöldum við
rætur fjallsins Ganhes Himal þeg-
ar jólahátíðin hefst. Þetta 7111
metra háa fjall, sem er skammt
fyrir sunnan landamæri Tíbets,
heitir eftir einum af guðum
Hindúa, Ganhes með íllshöfuðið.
Ganhes er sonur Shiva og gyðj-
unnar Parvati. Sögur segja að
hann hafi fæðst sem eðlilegur
drengur en fllshöfuðið verið grætt
á hann þegar upprunalega höfuðið
tapaðist í slysi. Ganhes er eins
konar velferðargoð og gott að
heita á hann til farsældar.
„Okkur hefur verið sagt að yf-
ir jólin megi búast við nokkuð
góðu veðri þama undir Ganhes
Himal. Þegar við tjöldum þar
liggur göngutúrinn aftur niður á
við, í átt til borgarinnar Trisuli
Basar,“ upplýsir Geirharður.
Tjaldbúðin verður í skjóli við há-
vaxin tré en hins vegar em þessi
tré full af öpum, „frændum okkar“
bætir Geirharður við og kímir.
Þessir frændur í trjánum geta ver-
ið ágengir og þarf sérstaklega að
passa matinn fyrir þeim.
A aðfangadagskvöld verður
einhver viðhöfn í mat. Eins og
alltaf í ferðinni verður það ein-
göngu matur innfæddra. „Þama
verður ekkert hangikjöt eða ham-
borgarhryggir,“ segir Guðný hlæj-
andi. Geirharður segir að þau
verði bara að sjá til hvort þau
muni sakna þess en hann kveðst
efast um það.
Þau segjast ekki hafa undirbú-
ið sig mjög mikið, „við ætlum að
leyfa þessu að koma bara yfir
okkur," segir Guðný. Þau em
sammála um að túristabæklingar
með staðreyndaupptalningu um
landið séu þreytandi aflestrar. „Eg
las bókina Sjö ár í Tíbet en hún
Qallar um mann sem braust til
Kannski getum við bara skolað
af okkur einu sinni til tvisvar í
viku í einhverjum fjallalækjum
ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 7. desember 1991
Síða 12