Þjóðviljinn - 07.12.1991, Page 14
líói aw m móhwiít iams
á eflaust auðvelt
með að lifa mig inn í
texta j ólanna
svona ólétt“
Miðnæturmessa á jólanótt; hátiðin gengin í garð, ljósadýrð
borgarinnar í náttmyrkrinu, orgeltónar, mild birta í
hlýrri kirkju, Iogandi kerti á altarinu, sálmasöngur
drengjakórs, kyrrð og friður. Við þessa mynd má bæta að
unga konan sem þjónar fyrir altari og leggur út af guðspjallinu um
fæðingu frelsarans er komin rúma átta mánuði á leið.
Signín Óskarsdóttir, aðstoðar-
prestur í Laugameskirkju er aðeins
26 ára gömul og nýútskrifuð úr
guðfræðinni. Á miðnætti næstu
jólanótt verður hún með guðsþjón-
ustu í kirkjunni sinni. Við mæltum
okkur mót í kirkjunni til að ræða
um starf prestsins og jólin. Haf-
steinn Birgir Einarsson, tveggja ára
sonur Sigrúnar, var með móður
sinni og á meðan við Sigrún spjöll-
uðum saman, burraði hann með
bílana sína eftir kirkjugólfínu.
Sigrún útskrifaðist úr guðfræð-
inni i júlí síðastliðnum og hlaut
prestsvígslu um miðjan september.
Hvemig skyldi það vera að hefja
störf sem prestur og þurfa að
messa fyrir framan fulla kirkju af
fólki?
- Mér finnst það frábær leið að
byija sem aðstoðarprestur. Hér í
Laugameskirkju starfa ég með séra
Jóni Dalbú Hróbjartssyni sem er
mjög reyndur og veitir mér mikinn
stuðning. Sem aðstoðarprestur ber
ég ekki ábyrgð sóknarprests, en
kynnist samt öllum þáttum í starfi
hans. Nýlega var fjögurra mánaða
starfsþjálfun eða eins konar kand-
ídatsvinna útskrifaðra guðfræðinga
bundin í lög. Það finnst mér mjög
jákvætt.
Síðast liðið sumar var ég sjálf í
svona starfsþjálfun í Ámespró-
fastsdæmi. Þar ferðaðist ég um,
heimsótti prestana og fékk ýmsar
leiðbeiningar. Sérstaklega reyndist
prófasturinn, séra Tómas Guð-
mundsson í Hveragerði,
mér vel. Hann dembdi
mér út í að gera hlutina,
lét mig til dæmis predika
einu sinni eða tvisvar á
hverjum sunnudegi og
sjá um viðtalstíma. Mér
finnst mjög gott að hafa
kynnst þessum prestum,
því nú þekki ég þá og
get leitað til þeirra.
Þegar ég átti að
messa í fyrsta skipti óx
mér allt í augum sem ég
átti að gera og mér
fannst ég varla geta ráð-
ið við þetta. Þegar af stað var kom-
ið leið mér hins vegar bara vel.
Auðvitað er það ekkert einfalt mái
að standa frammi fyrir fullri kirkju
og messa. Jón Dalbú hjálpar mér
mikið og fer með mér í gegnum
alla messuna fyrirfram.
Hvemig er miðnæturmessan á
aðfangadag frábrugðin öðrum
messum?
- Miðnæturmessan verður ein-
faldari og styttri. I stað hins hefð-
bundna hátíðartóns eftir séra
Bjama Þorsteinsson frá Siglufirði,
verður notað gregorískt tón, sem
upprunið er frá gregorískum
munkum. Þetta gregoriska tón er
mjög einfalt, fallegt og hljómar vel
í kirkjum. Það hefur verið að ryðja
sér til rúms undanfarið og til dæm-
is er nú lögð mikil áhersla á það í
guðfræðideildinni.
Ef vel tekst til er svona messa
mjög hátíðleg. Það er sérstök há-
tíðarstemmning yfir því að fara til
messu í náttmyrkrinu með Ijósa-
dýrðina í kringum sig. Fólk sem
ekki er með böm getur til dæmis
sótt þessa messu og notið miklu
meiri kyrrðar en í messunni klukk-
an sex. Undanfarin ár hafa mess-
umar klukkan sex verið svo fjöl-
sóttar að fólk hefur orðið að snúa
frá, jafnvel þótt það hafi komið
mjög snemma. Með miðnætur-
messunni léttir vonandi eitthvað á
fyrri messunni.
Hér í Laugameskirkju er mjög
mikið kórastarf. Kirkjukórinn
syngur við fyrri messuna, en
drengjakór kirkjunnar fær tækifæri
til að spreyta sig við miðnætur-
messuna. í drengjakómum em tíu
til tólf ára strákar sem hafa æfl
mjög stíft undanfarið og em alveg
eins og englar. Eftir áramótin fara
þeir á drengjakóramót í Bandaríkj-
unum.
Hvemig undirbýrðu þig fyrir
guðsþjónustur, til dæmis miðnæt-
urmessuna?
- Núna er mánuður í miðnætur-
messuna, en samt er búið að skipu-
leggja hvemig hún verður, ákveða
alla liðina. Mér finnst gott að lesa
textann sem ég ætla að leggja út af,
talsvert löngu áður en ég byrja að
semja nokkuð. Síðan hugsa ég um
textann þegar ég er að keyra, vaska
upp eða svæfa strákinn. Þannig
leyfi ég textanum að geijast með
mér lengi áður en ég byija að
semja. Þegar að því kemur er ég
yfirleitt mjög fljót að skrifa.
Nú fer Sigrún að hlæja og skýt-
ur inn í: Eg á eflaust auðvelt með
að lifa mig inn í texta jólanna
svona ólétt.
- Mér finnst það mikið atriði að
lifa mig inn í textann og líkt og
gleyma sér alveg í honum. Það er
ótrúlegt hvað textinn getur spurt
mann margra spuminga og hvað
maður sjálfur getur spurt hann.
Þetta virðist alveg endalaust.
Eg þarf hins vegar að æfa mig
mun betur á söngnum fyrir mið-
næturmessuna því ég er ekki alveg
ömgg á honum. Vonandi gefst mér
tími til þess í þessum annasama
mánuði.
Það hlýtur að kosta átak fyrir
ungan óþekktan prest að koma inn
í söfhuð. Hvemig var það?
- Frábært. Þessi söfnuður hér er
svo lifandi og alltaf fullt að gerast.
Við hér í Laugamessókn könnumst
ekki við þessa tómu kirkjubekki
sem allir em að tala um. Á hverj-
um sunnudagsmorgni höfum við
fjölskylduguðsþjónustu og þær em
mjög vel sóttar. Formið á þeim er
þannig að þegar kemur að predik-
uninni, fræðslu fullorðna fólksins,
fara bömin niður í safnaðarheimili
og fá þar sína ffæðslu í sunnudaga-
skólanum. Þegar sálmurinn á und-
an predikuninni hefst löbbum við
niður, ég og hin bömin. Þar syngj-
um við létta söngva, segjum sögur
og forum í leiki.
Nývlgöur aðstoöarprestur I Laugarneskirkju, Sigrún Óskarsdóttir, og Hafsteinn Birgir sonur hennar.
Mynd: Kristinn.
Auðvitað er það
ekkert einfaltmálað
standa frammi fyrir
fullri kirkju
og messa
ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 7. desember 1991
Síða 14