Þjóðviljinn - 07.12.1991, Blaðsíða 15
„Mérfinnst það mikið atriði að lifa mig inn (textann og Ifkt og gleyma sér alveg ( honum." Mynd: Kristinn.
I þessari sókn er mjög mikið af
bömum og því stundum ys og þys
í fjölskylduguðsþjónustunum. Þess
vegna emm við með rólegri auka-
messu einu sinni í mánuði. Þá fer
nita að heimilum aldraðra og sækir
þá sem áhuga hafa.
í hádeginu hvem fimmtudag
höfum við kyrrðarstund hér í kirkj-
unni. Ég held að með þeim sé
kirkjan að gera alveg
frábæran hlut f þessu
þjóðfélagi þar sem er sí-
felldur ys og þys og allir
að flýta sér. A firruntu-
dögum koma yfirleitt
saman um og yfir þijátíu
manns á öllum aldri til
að hlusta á tónlist,
syngja sálma, ganga til
altaris og biðjast fyrir.
Yfir allri athöfninni rikir
mikil kyrrð og friður. A
eftir fara svo þeir sem
vilja niður í safnaðar-
heimili og fá sér léttan
hádegisverð. Margir
þeirra sem sækja þessar
kyrrðarstundir hafa sagt
mér að kyrrðin og sálar-
róin fylgi þeim út í þjóðfélaginu á
eftir. Eftir að ég vandist því að
stýra þessum stundum finn ég að
ég er farin að þrá kyrrðina sem þær
veita.
Ég sé líka um mömmumorgna
á föstudögum. Þá koma heima-
vinnandi mæður úr hverfinu saman
í safnaðarheimilinu. Við sitjum og
drekkum kaffi og spjöllum og
stundum fáum við fyrirlesara. A
meðan fá bömin að leika sér héma,
enda finnst þeim kirkjan vera líkt
og heimili þegar þau koma til fjöl-
skylduguðsþjónustunnar á sunnu-
dögum. Á þessum mömmumorgn-
um emm við lika með stutta bæna-
stund þar sem bömin sjálf fá að
velja söngvana.
Þar sem við Sigrún sátum og
töluðum saman komu nokkrir ung-
Ég hef smá
áhyggjm af því þegar
ég er að æfa mig heima
að sonur minn grípi
eitthvað upp og fari að
nota furðuleg orð í
leikskólanum
ir strákar með borð og fóm að
stilla upp fyrir bjöllukórsæfingu í
kirkjunni. Þeir gengu um eins og
heima sér og heilsuðu prestinum
sínum kumpánlega. Á meðan var
Hafsteinn Birgir, sonur Sigrúnar,
að leik uppi við altarið. Þetta kom
af stað vangaveltum um hvort böm
sem alast upp í og við kirkjuna á
þennan hátt hljóti ekki að líta
kirkjur allt öðmm augum en aðrir.
Blaðamaður minntist ópersónulegs
og þrúgandi andrúmslofts.
- Okkur finnst mikilvægt að
gera hátíðarblæ kirkjunnar eðlileg-
an og ftjálslegan, líkari þeirri há-
tíðarstemmningu sem getur ríkt
innan fjölskyidu. Syni mínum
fmnst mjög gaman að koma hér og
hann hleypur um allt. Hins vegar
er hann á þeim aldri að hann herm-
ir eftir öllu sem hann heyrir. Ég hef
smá áhyggjur af því þegar ég er að
æfa mig heima að sonur minn grípi
eitthvað upp og fari að nota furðu-
leg orð i leikskólanum.
Nú em ekki nema þijár vikur
til jólanna. Hver er boðskapur
þeirra?
- Öll aðventan, undirbúningur-
inn að sjálfri jólahátíðinni, ein-
kennist af gleði og fagnaðarboð-
skap. Við upplifum efiirvæntingu,
svolítið líkt og eftirvænting mann-
anna fyrir um 2000 ámm eftir
frelsaranum. Við syngjum „Kon-
ungur þinn kemur til þín, hann
stendur við dymar og knýr á.“ Við
undirbúum því jólin þannig að við
séum tilbúin að opna. Hann kemur
ekki að lokuðum dyrunum. Við
hleypum inn þessari gleði yfir að
Jesú skyldi fæðast.
Ef við lifum í gleði og fognuði
þá skynjum við þessa nálægð sem
alltaf er til staðar, en við hleypum
ekki alltaf að okkur. Ég upplifi
þetta svo persónulega. Það er knú-
ið dyra hjá ÞÉR. Allir fá þetta
tækifæri.
-ag
Ævisaga Maríu
Þorsteinsdóttur
Iðunn hefur gefið út bókina
SkUmálarnir hennar Maríu, sem
er ævisaga Maríu Þorsteinsdótt-
ur, skráð af Nönnu Rögnvaldar-
dóttur.
í kynningu útgefanda segir:
,Ævisaga Maríu Þorsteinsdóttur er
sagan af því hvemig ung kona vex
og þroskast í kreppu og stríði og
heitir því að vinna friði og bræðra-
lagi manna það gagn sem hún má;
hvemig hún kynnist mörgum
þekktustu einstaklingum samtím-
ans með þátttöku sinni í alþjóðlegu
friðarstaifi; hvemig henni tekst,
þrátt fyrir þungar sorgir og mikinn
missi, að vera alltaf sönn og heil.
Þótt örlögin hafi greitt Mariu
Þorsteinsdóttur þung högg lætur
hún aldrei bugast, heldur beinir
öllum kröftum sínum í baráttu fýrir
þeim hugsjónum sem hún trúir á
og telur dýrmætastar.“
GLÆSILEGT
JÓLAHLAÐBORÐ
A GÓÐU VERÐI
Nú, þegar jólin eru í nánd, færist
jólastemmninginyfirSkrúð. Þar
er gestum og gangandi boðið
upp á stórglæsilegt jólahlaðborð, heitt
og kalt, á hagstæðu verði. Jólahlaðborð-
ið er á boðstólum í hádeginu frá
kl. 12-14 á 1.590 kr. og á kvöldin frá
kl. 18-22 á 2.100 kr. Að sjálfsögðu er
jólaglögg svo alltaf til reiðu.
Ath.: Við bjóðum upp á jólaglögg og
jólahlaðborð í einkasölum - fyrir
starfsmannahópa og hvers konar
jólagleðskap.
Skrúður kemur öllum í jólaskapið!
In.dlreí/
-lofargóðu!
Síða 15
ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 7. desember 1991
NCIKJÖT POTTB