Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.1998, Page 4
4
FÖSTUDAGUR 21. ÁGÚST 1998
Fréttir
Stuttar fréttir i>v
Þvargið um hvalveiðar hefur staðið á Alþingi í áratug:
Sjávarútvegsráð-
herra á bremsunni
líkur á að hvalveiðar hefjist að nýju minnka með hverju árinu
Undai
endalaus vai
verið á Alþingl vegna
hvalveiðimálsins. Á meðan
liggja hvalskipin bundin í
Reykjavíkurhöfn engum
til gagns.
leg rök séu fyrir því.
Ákvörðun um veiðar
megi ekki verða sprott-
in af þörf til að lýsa yfir
sjáifstaeði. Hún segir
komu Keikós vissulega
vera innlegg í það að
láta ógert að veiða.
„Ég hef ekki trú á því
að hvalveiðar verði
hafnar á næstu á rum
og ég sé enga skynsemi í
því,“ segir Kristín.
Á næstu mánuðum
mun Alþingi þurfa að
taka ákvörðun um það í
þeim stjömubjarma
sem umlykur Keikó
hvort eigi að veiða hvali
við íslandsstrendur.
Trúlega verður lending-
in í málinu sú að þæfa
áfram og komast þannig
hjá því að taka afstöðu í
málinu. Á meðan verð-
Sagan endalausa
’S
Ummæli
Þorsteins
Pálssonar
irsteinn Pálsson þann 3. maí 1991:
_ mun leggja áherslu á aö vlö fáum
alþjóölega viöurkenningu á rétti okkar
til aö nýta hvalastofnana.“
þorsteinn Pálsson þann 12, júní 1992:
„Þaö er stefna okkar aö hefja hvalveiöar
aö nýju. Viö höfum miöaö allan okkar
málatilbúnaö viö þaö.“
Þann 12. nóvember:
...forgangsvcrkefni í þessu efnl veröur aö
hefja veiöar á hrefnu.“
hef ekki viljaö lofa því aö veiöar veröi|
heimilaöar í sumar en ég vil heldur ekki
útiloka þaö.“
-Pann 11. maí 1993;
.Viö munum einfaldlega halda áfram aö '
undirbúa þaö aö geta hafiö hvalvelöar og\
geta framfýlgt okkar stefnu.“
í þlngrœöu 1995:
_ er þeirrar skoöunar aö þaö sé mjög
almennur vilji til aö taka upþ hvalveiöar
aö nýju.”
Þann lO. júH 1996:
.Hins vegar hetur veriö seft á stotn nefndl'
sem vlnnur aö undlrbúningi þingsályktunar|
tillögu ... í framhaldi af því veröur trúlega
unnt aö taka ákvaröanir.“
fynr
Þann 5. maí 1997:__________. „ .
.... eSlilegt ab 'Iáta hvaIvei6í’má115”vTkja úi
sinn og bíöa meöan viö værum aö sjá *
endann á þessum umfangsmiklu
verkefnum ...”
Þann 7,.maí.l997:
.Máliö er margslungiö og staöa okkar
gagnvart kröfunni um rétt til veiöa veikist\
eftir því sem lengra líöur."
JÞjann29^QKtáþeU.997j_______________
„Alþjóöahvalveiöiráöiö er aö missa tökin.\
Þaö hefur ekki veriö tekin ákvöröun
um tímasetningu.“
iJanftatlðSSL
Tillaga um aö hvalveiöar veröi hafnar\
væntanlegaefidurflutt.
Hvalveiöum í atvinnuskyni
tímabundiö hætt samkvæmt
ákvöröun Alþjóöa hvalveiöi-
ráðsins.
Fjögurra ára rannsókna-
áætlun um vísindaveiöar
hefst.
1988- 1989; Sighvatur Björgvins-
son og Skúli Alexandersson
leggj a fram þingsályktunar-
tillögu um aö hrefnuveiöar
veröi hafnar strax.
89: í maí: Tillagan sofnar í nefnd.
... ... ö; VísindaveiÖum
og þar meö^öllum hval-
veiöum viö ísland lýkur.
1989- 1990: Sama tillaga endur-
flutt.
Tillagan sofnar í nefnd.
^1990rl991; Enn þingsályktunar-
tillaga um aö veiöar á hrefnu
veröi hafnar. Nú meö þeirri
viöbót aö einnig megi veiöa
langreyöi. Meirihluti beggja
sjávarútvegsnefnda flytja
tillöguna.
,1991;____Um-yoriö; Tillagan sofnar í
nefnd.
Alþjóöa hvalveiöiráöiö
hafnar á ársfundi sínum
tillögu íslendinga um aö
hefja hvalveiöar samkvæmt
stjórnkerfi sem ráöiö haföi
sjálft lagt til.
,1992-1993; Matthías Bjarnason
og Guöjón Guömundsson
leggja til í þingsályktunar-
tillögu aö hvalveiöar hefjist
þegar sumariö 1992.
Islendingar segja sig úr
Alþjóöa hvalveiöiráöinu.
JLaorll; íslendingar,
Færeyingar, Grænlendingar
og Norömenn stofnuöu
NAMMCO, Noröur-Atlants-
hafssjávarspendýraráöiö.
um.vorlö; Tillaga Matthíasar
og Guöjóns sofnar í nefnd.
J október: Sjávarútvegsráö-
herra skipaöinefnd til aö
móta stefnu íslendinga um
hvalamál.
..27..Qktóþer: Utanríkisráö-
herra áréttar þá skoöun
sína á Alþingi aö íslendingar
eigi aö ganga aö nýju í
Alþjóöa hvalveiöiráöiö.
_J994rl995; Enn ein þingsályktunar-
tillaga flutt þar sem skoraö
er á ríkisstjórnina aö gera
ráöstafanir til aö hvalveiöar
geti hafist á ný.
- 25. nóveraber; Ráöherrar
utanríkis-og sjávarútvegs-
mála skipa hóp sem kanna
á hvernig hagsmunum
íslendinga á alþjóöavett-
vangi meö tilliti til hvalveiöi-
mála veröi best borgiö.
'LFjöldi hagsmunaaöila
skorar á alþingi í dagblaös-
auglýsingu aö hefja strax
hvalveiöar.
j'Átta stjórnarþingmenn
leggja fram þingsályktunar-
tillögu um aö hvalveiöar
veröi hafnar þegar óriö 1998.
SiTillagan dagar uppi í sjávar-
útvegsnefnd.
1993;.
1993;
1994;
1994l
r»rai
Allar götur síðan bann Alþjóða hval-
veiðiráðsins við hvalveiðum tók gildi í
ársbyrjun 1986 hefúr árviss vandræða-
gangur verið með málið á þinginu. Til-
tölulega friðsælt var um málið á ára-
bilinu 1986 til 1989 á meðan hvalveiðar
voru stundaðar sem atvinnugrein í
skjóli þess að um vísindaveiðar væri
að ræða. Síðan algjört hvalveiðibann
tók gildi árið 1990 hefur vandræða-
gangurinn á Alþingi íslendinga tekið á
sig ýmsar myndir og ófáar vinnu-
stundir þingmanna hafa farið í það að
leita leiða til að geta hafið nýtingu
hvalastofna hérlendis. Langflest þing
síðan 1989 hafa verið bomar upp
þingsályktunartillögur um að hefja
beri veiðar að nýju. Jafnoft hafa af ein-
hveijum ástæðum tillögumar sofnað í
nefnd og því aldrei náð því flugi og
þeim árangri sem þeim var ætlað. Ein
kynslóð alþingismanna af annarri hafa
tekið upp hvalveiðimálin og borið upp
tillögur með ýmsum blæbrigðum um
að veiðar verði hafnar strax eða sem
fyrst. Matthías Bjamason Vestfjarða-
þingmaður var í upphafi ákafur boð-
beri þeirrar stefnu að hvalveiðar yrðu
hafnar og stóð hann framan af að slík-
um tillögum ásamt fleirum. I seinni tíð
hefúr Guðjón Guðmundsson, þingmað-
ur Sjálfstæðisflokks á Vesturlandi, ver-
ið einn helsti boðberi þess að veiðar
verði hafnar að nýju. Tvö síðustu þing
hefur Guðjón borið upp tillögur í þess-
um anda sem hafa sofnað.
Nú síðast sofnaði tillaga Guð-
jóns og sjö annarra stjómar-
þingmanna í sjávarútvegs-
nefnd. Þar var gert ráð fyrir
að veiðar yrðu hainar þegar
á þessu ári en það var slegið
af. Guðjón og félagar era þó
hvergi bangnir og ætla að
leggja tillögima fram að nýju
í haust.
Hvalaskoðun vinsæl
Sá vandræðagangur sem verið hefur
í kringum málið á sér þær eðlilegu
skýringar að stjómvöld hafa óttast að
með því að hefja hvalveiðar gegn vilja
Alþjóða hvalveiðiráðsins sé meiri
hagsmunum fómað fyrir minni. Fram-
an af var það óttinn við umhverfis-
vemdarsamtök sem hótuðu að
skemma markaði erlendis fyrir íslend-
ingum. Sá ótti vék þó síðar fyrir þeim
rökum sem upp komu varðandi hags-
muni þjóðarinnar af hvalaskoðunar-
ferðum fyrir útlendinga. Ferðimar
hafa verið sívaxandi þáttur í ferða-
þjónustu og hvert fyrirtækið af öðm
hefur sprottið upp allt í
kringum landið. Reiknings-
glöggir aðilar innan þeirrar
greinar hafa lagt fram út-
reikninga þess eðlis að hagn-
aðurinn af þvi að sýna þessar
stærstu skepnur jarðarinnar
sé langtum meiri en að drepa
þær og éta. Þessa útreikninga
hafa hvalveiðisinnar véfengt
og lýst sem hreinni talnaleik-
flmi. Talsmenn feröaþjón-
ustu hafa jafnframt lýst því
að aldrei geti farið saman að sýna
hvali og drepa. Aftur á móti segja
veiðisinnar að slikt sé firra og þessar
greinar geti auðveldlega þrifist hlið við
hlið. Milli þessara hópa standa stjóm-
völd undir ómældum þrýstingi. Þor-
steinn Pálsson sjávarútvegsráðherra
hefur haft það hlutverk með höndum
allar götur að svara þingheimi og fjöl-
miðlum um það hvenær veiðar hefjist.
Hann er væntanlega orðinn þrautþjálf-
aður á því sviði eins og sjá má af graf-
inu hér á síðunni. í öU þessi ár hefur
hann haldið því fram að veiðar væra
alveg að bresta á án þess að neitt hafi
síðan gerst annað en það að þingmenn
hafa haldið áfram að flytja tiÚögur sem
kollegar þeirra hafa svæft jafnóðum. í
árdaga hvalveiðibannsins höfðu menn
ekki uppgötvað þá gullæð sem liggur í
skoðunarferðum á hvalaslóðir. Því var
hvalveiðibann í þann tíma fordæmt af
miklum þorra þingheims. Síðar hafa
stuðningsmenn hvalveiða smám sam-
an verið að týna tölunni þó ljóst sé að
hvalveiðar njóti enn fylgis talsverðs
meirihluta þingheims. Meðal almenn-
ings er enn mikill meirihluti hlynntur
hvalveiðum eins og sjá má af
skoðanakönnun DV fyrr á ár-
inu þar sem um 80 prósent
aðspurðra vildu að veiðar
yrðu hafnar að nýju.
Áfall vegan Keikó
Alvarlegasta seinnitíma
áfall hvalveiðisinna er þó
væntanleg koma hins vestur-
íslenska Keikós til Vest-
mannaeyja. Margir telja að
með komu háhymingsins sé úti um
þann möguleika að veiðar verði
nokkum tímann hafnar á hval við Is-
lendsstrendur. Þetta sjónarmið kom
skýrt fram í leiðara norska blaðsins
Fiskaren þar sem íslensk stjómvöld
era harkalega gagnrýnd fyrir að hlaup-
ast undan merkjum og heimila komu
Keikós hingað. Þar með séu íslending-
ar búnir að svíkja sameiginlegan mál-
stað sinn og Norðmanna. Það er mat
margra að kæmi til þess að leyfðar
verði hvalveiðar hér og áform um að
sleppa Keikó í hafið gengju eftir þá
yrði efnahagslegur voði vís í hvert
sinn sem skepna af svipaðri stærð-
argráðu og Keikó yrði drep-
in. Þjóðin yrði fordæmd fyrir
að drepa með köldu blóði ást-
sælan hval sem í kvikmynd-
um hefur unnið hylli víða
um heimsbyggðina. Þama sé
semsagt komið það vopn sem
dugi til að halda íslendingum
frá hvalveiðum um ófyrirsjá-
anlega framtið.
Engin áhrif af Keikó
Guðjón Guðmundsson al-
þingismaður hafnar þessu sjónarmiði
og telur að koma Keikós hafi engin
áhrif hvað varðar hvalveiðar. Hann
segist sannfærður um að Alþingi muni
taka af skarið á næsta þingi og heimila
veiðar að nýju.
„Ég er algjörlega ósammála því að
Keikó hafi einhver áhrif. Ég skil ekki
hvers vegna við megum ekki veiða
hvali þótt einhver Keikó komi hing-
að,“ segir Guðjón og bætir við að hann
efist um að áhugi heimsbyggðarinnar
á háhymingnum sé eins mikill og fjöl-
miðlar haldi á lofti.
Aðspurður um það hvaða líkur
hann telji vera á því að Alþingi taki af
skarið í haust eða vetur segist hann
vera þess fullviss að sú stund sé að
renna upp. „Þingið mun samþykkja
hvalveiðar, það er enginn vafi á því,“
segir Guðjón.
Kristín Halldórsdóttir, þingmaður
Kvennalistans, er á allt annarri skoð-
un. Hún segist að vísu ekki hafa nein-
ar meiningar um það hvort veiðamar
séu af hinu slæma eða ekki. Hún segir
að skoða verði efnahagslegan þátt
málsins og ekki hafi neina þýðingu að
byija veiðar án þess að nein efhahags-
ur algjört veiðibann í gildi og það eina
sem berst að landi era þeir tugir smá-
hvela sem að næturþeli er landað í
höfnum á landshyggðinni. Þorsteinn
Pálsson mun væntanlega standa áfram
á bremsunni enda er á það bent að nú
auki það enn á erfiðleika hans að vera
fyrsti þingmaður Suðurlands og þar
með Keikós sem væntanlega kemur í
kjördæmi hans eftir nokkrar vikur.
-rt
Kristín
Halldórsdóttir.
Guðjón
Guðmundsson.
Hlutafjárútboð hjá IS
Stjóm íslenskra sjávarafurða hf.
hefur ákveðið að nýta heimild til út-
gáfu nýs hlutafjár að nafnverði 200
milljónir króna. Reiknað er með að
útboðið fari fram í næsta mánuði.
Þetta kemur fram í frétt frá félaginu
í dag. Viðskiptavefur Vísis sagði frá.
Erfið afkoma
Á fyrra helm-
ingi ársins 1998
varð 137,6 millj-
óna króna tap á
rekstri íslenskra
sjávarafurða hf.
og dótturfélaga
þess, en áætlan-
ir gerðu ráð fyr-
ir að reksturinn yrði í jafnvægi.
Framkvæmdastjóri ÍS er Benedikt
Sveinsson. Viðskiptavefur Vísis
sagði frá.
Farið að öllum lögum
Bylgjan segir að vifta á flutn-
ingakassa vörabíls um borð í Norr-
önu hafi ekki veriö í gangi þegar
komið var að bílnum og níu hross-
um sem í honum vora dauðum.
Blaðið Dimmalætting í Færeyjum
skellir skuldinni á íslenskan eftir-
litsmann sem fylgjast átti með
hrossunum um borð.
Kaupþing græddi
Tvö hundruð og sautján milljóna
króna hagnaður varð af rekstri
Kaupþings fyrstu sex mánuði árs-
ins. Þetta er hagnaður fyrir skatta
og jókst hann um tiu prósent frá
fyrra ári. Bylgjan sagði frá.
Skuldadagar
Ríki og sveit-
arfélög þurfa að
greiða nálægt
tveimur millj-
örðum króna í
afskriftir áhvíl-
andi lána á fé-
lagslegum ibúð-
um í landinu.
Sveitarfélögin munu væntanlega
gera þá kröfú að ríkissjóður beri
níutíu prósent af þessum kostnaði
þegar félagslega húsnæöiskerfið
veröur lagt niður um áramótin og
íbúðir, sem staðið hafa tómar,
verða boönar til sölu á almennum
markaði. Páll Pétursson félags-
málaráðherra hafnar því. Stöð 2
sagði frá.
Svört ekkja á íslandi
Náttúrufræðistofnun hefur í
vörslu sinni baneitraða könguló,
svarta ekkju. Þetta er í fyrsta sinn
sem þessi tegund finnst hér á landi
og rannsakar lögregla hvemig hún
hafi komist hingað til lands.
Feröamenn drjúgir
í fréttum Rúv var sagt frá því að
tekjur af erlendum ferðamönnum á
fyrstu þremur mánuðum þessa árs
hefðu verið rúmlega 3,4 milljarðar
króna. Það er 10% aukning frá því
á sama tímabili í fyrra.
Erfitt að selja
Sala á 40% hlut ríkisins í Hóla-
laxi er enn ekki frágengin. Aðeins
barst eitt tfiboð í útboði á dögunum
og þótti það ekki ásættanlegt.
Gagntilboð ganga nú á milli aðila.
Viðskiptavefur Vísis sagði frá
Kannski ekta
Listaverkasali
í Kaupmanna-
höfn segir ekk-
ert hafa komið
fram sem sanni
það að 16 mynd-
ir eftir Svavar
Guðnason sem
hann seldi og
hefur nú endurgreitt séu falsaðar.
Þær séu hins vegar vafasamar og
því hafi hann endurgreitt þær.
RÚV sagði frá.
Uppbætur tii kennara
Réttindakennarar við Flúðaskóla
í Hranamannahreppi fá hundrað
þúsund króna aukagreiðslu í nóv-
ember vegna þess að vinnuaðstaða
kennara í skólanum er léleg og því
þurfi kennarar margir hverjir að
vinna heima til að geta sinnt starfi
sínu. RÚV sagði frá.