Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.1998, Side 19
FÖSTUDAGUR 21. ÁGÚST 1998
19
I>V
Fréttir
Ferðamenn í
eigin landi
DV.Vík:
Eva Dögg og Katrín Wagfjörð voru meðal þátttak-
enda af hálfu íslands. DV-mynd Njörður
„Þetta hefur ver-
ið mjög gaman. Við
höfum kynnst fólki
frá öðrum löndum
sem býr við allt aðr-
ar aðstæður en við
þekkjum - kynnst
ólíkri menningu,
landslagi og land-
búnaði,“ sögðu Eva
Dögg Þorsteinsdótt-
ir og Katrín Wag-
flörð sem hafa tekið
þátt 1 verkefninu
Ungmenni í Evr-
ópu.
Þær segjast hafa
kynnst vel þeim löndum sem þær
hafa heimsótt með krökkunum sem
hafa tekið þar á móti þeim og hafa
gaman af að sýna erlendum gestum
landið sitt.
„Við vorum að tala um það í
hópnum í dag aö það væri svolítið
skrýtið að vera túristi i eigin landi
því við erum í rútunni með útlendu
krökkunum og horfum kannski á
landið öðrum augum en venjulega.
Þetta er mjög gaman og þeir mjög
spenntir að sjá ísland. Þetta er síð-
asta ferðin sem þessi hópur fer sam-
an í og ekki eru fleiri ferðir ráðgerð-
ar.
Við erum búin að ferðast saman
til þessara fimm landa en ólíklegt er
að við hittumst aftur." -NH
Grípum tækifærið
Árni Böðvarsson, framkvæmda-
stjóri USVS.
DV.Vík:
„Þetta kom þannig til að Jóhanna
hafði samband við okkur eftir að
Andy Warren frá Englandi hafði
hringt í hana að utan og spurt hvort
hún vissi um einhvern hóp sem
mundi vOja taka þátt í þessu. Að
sjálfsögðu gripum við tækifærið feg-
ins hendi,“ sagði Árni Böðvarsson,
framkvæmdastjóri Ungmennasam-
bands Vestur-SkaftafeUssýslu.
USVS hefur verið meðal þátttak-
enda i verkefninu Ungmenni í Evr-
ópu og er nú að taka á móti 40 er-
lendum gestum.
„Við auglýstum eftir þátttakend-
um og kynntum verkefnið og allir
þeir sem voru innan hreyfingarinn-
ar og voru á réttum aldri gátu sótt
um. Við þurftum ekki að hafna
neinum,“ sagði Árni. -NH
Hlutir úr vinnustofu Dieters Roths. Stúlkan á myndinni er ekki hluti af listaverkinu heldur gestur á sýningunni. DV-mynd
Sýning í Hveragerði:
Tileinkuð Dieter Roth
DV, Hveragerði:
Nú stendur yfir sýning á verkum
hóps listamanna sem kallar sig
„Projekt" í Listaskálanum í Hvera-
gerði. í hópnum eru Bjöm Roth,
Daði Guðbjörnsson, Eggert Einars-
son og Ómar Stefánsson. Kristján
Guömundsson sýnir nú með hópn-
um í þriðja sinn.
Projekt-hópurinn hóf samstarf
sitt með sýningu árið 1980 í Rauða
húsinu á Akureyri. Þá sýndi Björn
einþrykk af Þingvöllum, sem hann
hafði prentað þar og flutt prentvél-
ina á staðinn í anda landslagsmál-
ara með trönur.
Eggert sýndi „uppstaskkuð prent
af pylsubréfum með tómat- og sinn-
epsklessum, sem vora leifar af mat-
seðli hans á leiðinni norður" eins
og kom fram í fréttatilkynningu.
Daði sýndi málverk og skúlptúra.
Sýningin í Listaskálanum nú er
með nokkuð öðru sniði, þótt þar
kenni ýmissa grasa. Hún er til-
einkuð Dieter Roth, sem lést í vor,
og á sýningunni er meðal annars
verk þar sem uppistaðan er hlutir
úr vinnustofu þessa þekkta lista-
manns. Sérstakur gestur sýningar-
innar er Hermann Nitch frá Aust-
urríki sem sýnir nú í fyrsta sinn á
íslandi. Sýningin er opin frá kl.
13-18 daglega og henni lýkur sunnu-
daginn 30. ágúst. -eh
IMI55AIM
V....^
Maxima QX
kr. 2.619.000,-
-—Ingvar
siSf! Helgason hf.
zi-rr7 Strvarhóföa 2
Simi 525 5000
U’lVll'. ih. is