Vísbending - 22.12.2006, Blaðsíða 6
FORSENDUR
FRJÁLSHYGGJUBYLTINGARINNAR
HANNES HÓLMSTEINN GISSURARSON
Hannes H. Gissurarson varð helsti frumkvöðullfrjálshyggjunnar á Islandi kornungur. Hér lýsir hann óvœgnum átökum um hana
fyrstu árin. Mynd: Geir Olafsson.
ísland skiptir ham
Síðustu fimmtán árin hefur ísland skipt um ham. Fyrir 1991 var
verðbólga miklu meiri en í grannríkjunum og atvinnulíf óstöðugt,
þandist út og dróst saman á vúd. I sjávarútvegi var feikilegum
fjármunum sóað í of mikla sókn í fiskstofna. Þá var oftast halli
á fjárlögum. Hið opinbcra safnaði skuldum, og hér var rekinn
pilsfaldakapftalismi, svo að illa rekin fyrirtatki gátu jafnan treyst á
aðstoð ríkisins. Háir skattar á fyrirtæki komu í veg fyrir eðlilegan
vöxt þeirra. Ríkið rak fjölda fyrirtækja, ferðaskrifstofu, pientsmiðju,
síldarvinnslu, banka og ýmsar aðrar lánastofnanir og síma. Vextir
skömmtuðu ekki fjármagn, heldur misvitrir bankastjórar, sem iðulega
voru undir áhrifum stjómmálamanna, en þeir vildu auðvitað frekar
fjárfesta í atkvæðum en arðsemi. Landsframleiðsla á mann var að
vfsu veruleg á fslandi, en þegar horft er um öxl, sést, að ósjaldan var
skýringin á því ýmist stríðsgróði eða rányrkja. íslendingar höfðu fram
til 1940 verið hálfdrættingar á við Dani, en komust þá upp fyrir þá
vegna stríðsgróðans. f kalda stríðinu munaði mjög um framkvæmdir
vamarliðsins. Fyrir útfærslu fiskveiðilögsögunnar í fjómm áföngum
veiddu útlendingar helming heildaraflans á íslandsmiðum, en eftir
hana féll hann óskiptur í hlut Islendinga. Sfldarstofninn hvarf um
miðjan sjöunda áratug, og þorskstofninn var kominn að hmni í lok
hins áttunda. Velmegun Islendinga var því sýnd veiði, en ekki geftn.
Þeir höfðu haldið misjafnlega á málum sínum. Það var ekki út í
bláinn, að hagfræöingar spáðu því um 1990, að íslendingar yrðu í
aldarlok í röð fátækustu þjóða í Norðurálfunni.
Nú er öldin önnur. Verðbólga hefur ffá 1991 verið svipuð og í
grannríkjunum. Halli á fjárlögum snerist í afgang, sem notaður
var til að greiða upp skuldir ríkisins, sem nú má heita skuldlaust,
ef tekinn er með í reikninginn gjaldeyrisforði Seðlabankans. í skjóli
kvótakerfisins spratt upp fjöldi öflugra útgerðarfyrirtækja, sem njóta
þess, að takmarkaður aðgangur er að takmörkuðum auðlindum,
eins og hagfræðin kveður nauðsynlegt. íslenskur sjávarútvegur er
miklu betur rekinn en gerist víðast annars staðar. Atvinnurekendur
treysta ekki lengur á aðstoð ríkisins, heldur vita, að þeir standa og
falla með eigin gerðum. Ríkið hefur selt fjölda fyrirtækja fyrir um
150 milljarða íslenskra króna að minnsta kosti að núvirði, þar á
meðal viðskiptabankana tvo og Símann. Vextir ráðast nú á frjálsum
markaði, svo að bankar hafa breyst úr skömmtunarskrifstofum
f þjónustufyrirtæki, sem keppa um viðskiptavini. Lífeyrissjóðir
íslendinga eiga vel fyrir skuldbindingum ólíkt sambærilegum
stofnunum erlendis, og þar hefur myndast mikill spamaður, sem
skilað hefur sér í fjármagni á markaði. Leystur hefur verið úr læðingi
ótrúlegur kraftur, eins og sést á fslensku útrásinni. Nú veifa íslenskir
víkingarekki sverði, heldur verði. Hin góðu lífskjör íslendinga hvíla
ekki lengur á rányrkju eða stríðsgróða, heldur á bættri afkomu og
bjartsýni um ffamtíðina. Þótt einstaklingar og fyrirtæki skuldi að
vísu talsvert, er þjóðin ung og hraust. Mengun og ofnýting ógna ekki
auölindum íslendinga. Umfram allt hefur hugarfar breyst: Gróði er
ekki lengur skammaryrði, heldur keppikefli. Nú lítur æskan upp til
athafnamanna, eins og rithöfunda og skálda áður.
Þessi lýsing á hamskiptum Islands er ekki skáldleg sýn, heldur
studd traustum gögnum. Fraser-stofnunin í Vancouver í Bresku
Kólumbíu hefur tekið saman vísitölu atvinnufrelsis í heiminum
að frumkvæði hins heimskunna hagfræðings Miltons Friedmans.
Samkvæmt þeirri vísitölu var Island með einkunnina 4,1 af 10
mögulegum árið 1975, en 7,9 árið 2004. Vísitalan er mæld í 124
ríkjum, og var ísland 53. ríkið í röðinni árið 1975, en hið níunda
árið 2004, og má ætla, að landið haft þokast citthvað áfram upp eftir
sölu Sfmans árið 2005. Samkvæmt annarri vfsitölu atvinnufrelsis,
sem Heritage Foundation í Washington-borg tekur saman, er Island
enn ofar á lista, í fimmta sæti. Hvað olli þessum snöggu umskiptum?
Auðvitaðerein skýringin fólgin í aðstæðum. Vemleikinn knúði menn
til vitundar um það, að víðtækara atvinnufrelsi væri nauðsynlegt.
6 IVÍSBENDING