Vísbending - 22.12.2006, Blaðsíða 17
Eg heiti Baldvin, Jón Baldvin
Njósnamál settu sinn svip á árið. Strax í
upphafi árs var þessi tilvitnun í Bjarna
Ben. birt í blaðinu. Hún reyndist óvæntur
fyrirboði þess sem koma skyldi á árinu:
Bjami Benediktsson skrifaði í tilefni af
liálfrar aldar afrnæli Morgunblaðsins árið
1963: „Skilningur á því að óþægilegum
staðreyndum verður ekki eytt með því að
þegja um þær, er nú auðsærri í öllum blöðum
en áður var ... Því rniður ber enn of mikið
á einskisverðum skömmum og skætingi,
jafnvel á stundum beinum ósannindum.
Þessum ófögnuði heldur áfram meðan
menn halda að markaður sé fyrir hann.
En meginhluti lesenda hefur andstyggð á
þvílíkum vamingi. Flestir vilja fá hlutlausar
fréttir, einnig af því sem andstæðingar segja
og gera.“
20.janúar. Ráöa eigendur yfir jjölmiðlum
sínum?
Allt í einu var sem hér á landi hefði
verið samfellt njósnanet allt frá dögum
Hermanns Jónassonar fram á stjórnartíð
Jóns Baidvins Hannibalssonar, scm bæði
virtist gerandi og þolandi:
Ekki má gleynta því að helsti njósnari Breta
og Bandaríkjamanna hér á landi í seinni
heimsstyrjöldinni var Hendrik Ottósson,
en hann hafði útbúið lista um Þjóðverja og
þá sem hann taldi hliðholla þeim. Hendrik
Ottósson var einn þekktasti kommúnisti
landsins og kunnur útvarpsmaður. Líklega
hefur starf Hendriks verið umsvifamesta
leyniþjónusta á íslandi fyrr og síðar.
29. september. Þjóðmál.
Hvað hefðu Jón Baldvin og Steingrímur
gert ef rannsókn þeirra hefði ekki skilað
þeim árangri að hreinsa Svavar af gmn um
njósnir? Hefðu þeir notað upplýsingamar til
þess að klekkja á honum? Hefðu jreir verið
til með að nota aðrar aðferðir en skoðun
á skjalasöfnum erlendis til þess að vera
vissir? Jón Baldvin segist bara hafa gert
það sama og kollegar hans annars staðar
á Norðurlöndum og þess vegna hafi þetta
verið í lagi. Þeir beittu hlerunum. Hvað
gerði Jón Baldvin?
20. október. Hvar var Ólafur Ragnar?
Jón Baldvin Hannibalsson er einn
merkasti stjómmálamaður seinni tíma
hérlendis. A sínum tíma taldi hann
mikilvægara að sinna Grænlendingum en
Simoni Peres sem kont hingað til lands til
jress að ræða við ráðamenn meðan hann
gerði friðarsamninga við Palestínumenn,
samninga sem hann, Rabin og Arafat fengu
allir friðarverðlaun Nóbels fyrir. Peres komst
svo að orði unt þá sem ekki vildu hitta hann:
„I lýðræðisríki hafa menn rétt til að hafa
rangt fýrir sér og sumir nota þann rétt.“
8. desember. Eftirá minningar.
Keflavík Njarðvík Sandgerði Garður Grindavík Vogar
Alhliða
fjármálaþjónusta
fyrir þig og þína
SpK^f
Sparis/óðurinn í Keflavík
www.spkef.is
Með því að selja eignir var til dæmis unnt að
sýna ják væða afkomu árið 2005 á Maggabúð
- eins og Halldór Laxness kallaði Magasin
duNord. „ , , _ , .
11. agust. (juðmundur Magnusson.
Eignarhald atvinnuhúsnceðis.
Auðvitað væri það „hösl“ ársins ef
Dagsbrúnarmenn hættu við að gefa blaðið
út í bili og biðu frekar og sæju hvemig
markaðurinn þróaðist en þeir em sennilega
komnir of langt í vinnslunni til þess að vilja
taka þann kost.
18. ágúst. EIJ: Fríblaðabyltingin.
Æ ofan í æ er bankinn beðinn unt að
fjármagna glæstar spilaborgir og síðan
er honum legið á hálsi að vilja ekki
taka þátt í að styðja við bakið á nýjum
viðskiptahugmyndum. Stundum er eins og
frumkvöðlar haldi að þeir séu yfir það hafnir
að standa við gerða samninga.
Kaupþing hel'ur að mestu tapað því fé
sem það hefur lagt til sprotafyrirtækja. Hið
sama á við um íslenska ríkið, að manni
skilst.
10. nóvember. Sigurður Einarsson: Skortur á
virðingu fyrir samningum ogfjármagni.
Einhver gæti efast um réttmæti þess að bera
saman auglýsingastefnu Bandaríkjamanna
og Islendinga. Þeirn efasemdum er hægt að
svara með því að neysluhættir Islendinga
líkist meira þeim amerísku en þeim
evrópsku. Hin íslenska „eyðslukló" virðist
með öðmm orðum apa flest eftir þeini
amerísku og stenst henni fýllilega snúning
í þeim efnurn.
22. september. Þorsteinn Þorsteinsson: Krafa
um árangur af markaðsstarfi.
Fólk sóar því oft tíma sínurn án þess að gera
sér grein fýrir því hversu mikill hluti tíma
dagsins, vikunnar, ársins og ævinnar fer í
slíka sóun. Afleiðingin er oft sú að fólk hefur
ekki tíma til þess að hugsa, vegna þess að
það er svo upptekið við að gera ekki neitt.
20. október. EÍJ: Evreka.
VÍSBENDING I 17