Morgunblaðið - 01.03.2002, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 01.03.2002, Qupperneq 10
FRÉTTIR 10 FÖSTUDAGUR 1. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ FRIÐARTILLÖGUR Sádi-Araba í deilum þeim sem geisað hafa í Austurlöndum nær milli Ísraela og Palestínumanna komu til umræðu á Alþingi í gær. Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra lét þá í ljós ánægju sína með þetta skref í frið- arátt og það væri fagnaðarefni að nýjar tillögur hefðu komið fram í deilu Palestínumanna og Ísr- aelsmanna. Hann kvaðst telja að Ísraelsmenn hlytu að taka í útrétta sáttahönd arabaríkja. Þórunn Sveinbjarnardóttir, þing- maður Samfylkingarinnar, vakti at- hygli á þróun mála í þessum heims- hluta við upphaf þingfundar og spurði ráðherra hvort hann hygðist beita sér í þessum málefnum og þá hvernig, enda væri mikilvægt að Ís- land og íslensk stjórnvöld legðu sitt af mörkum til þess að tillögurnar fáist ræddar á alþjóðlegum vett- vangi. „Við þurfum að beita okkur í þessu máli, beint og óbeint,“ sagði Þórunn og benti á að skapast hefði breið og þverpólitísk samstaða á Alþingi um sjálfstæði Palestínu. Halldór Ásgrímsson (B) sagði að Íslendingar mundu beita sér innan alþjóðastofnana til þess að þrýsta á málið. Upplýsti hann að sendiherra Ísraels á Íslandi kæmi til landsins í byrjun mars og að stjórnvöld mundu eiga viðræður við hann um ástandið í Miðausturlöndum. „Það liggja líka fyrir heimboð til utanríkisráðherra, bæði til Ísraels og Palestínu. Það er verið að kanna það hvenær það getur orðið að veruleika,“ sagði utanríkisráð- herra. Hann sagði að það hefði staðið til að af heimsóknum yrði í september sl., en af því hafi ekki orðið og málið sé í athugun. „Við munum leggjast á sveif með öðrum Norðurlandaþjóðum og þrýsta á um að samningar hefjist á nýjan leik. Með þeim hætti getum við best lagt okkar af mörkum til þess að skriður komist á mál. Hins vegar er það alveg ljóst að þeir sem þarna skipta mestu máli eru að sjálfsögðu arabaríkin og Bandarík- in og ekki má gleyma Evrópusam- bandinu. Það eru þessir sterku að- ilar sem koma til með að skipta meginmáli hvernig til tekst í fram- haldi,“ sagði Halldór og benti jafn- framt á hlutverk Ísraela og Palest- ínumanna sjálfra í deilunni. Gesturinn í landinu tortímandinn? Rannveig Guðmundsdóttir (S) sagði málið geysilega þýðingarmik- ið og kvartaði hún undan því að svör ráðherrans hefðu ekki verið nægilega afgerandi. „Vissulega væri að því sómi fyrir okkur Íslend- inga ef Alþingi og stjórnvöld myndu aðhafast í málefnum Palest- ínu,“ sagði þingmaðurinn og bætti því við að ástandið nú fyrir botni Miðjarðarhafs væri með öllu óvið- unandi. „Er ekki kominn tími til þess að þessar þjóðir beiti sér af hörku við stjórnvöld í Bandaríkjunum að reyna að fá stuðning þeirra við þær tillögur sem fram hafa komið og þær aðgerðir sem stjórnvöld í Evr- ópu hafa viljað hafa uppi til þess að leysa deiluna,“ spurði Rannveig og bætti því við að allir vissu, sem vildu það vita að Sharon forsætis- ráðherra Ísraels færi sínu fram í trausti þess að Bandaríkin færu ekki gegn honum. „Við erum öll sek,“ sagði Rannveig ennfremur. „Við höfum horft á það í áratugi án afskipta að þjóð hefur verið undir- okuð og afgirt núna á 220 víggirtum smásvæðum. Nú virðist hægt og sígandi að eiga að tortíma þessari þjóð og það er gesturinn í landinu sem er tortímandinn. Þessu eigum við ekki að una,“ sagði Rannveig. Forsætisráðherra segir afstöðu Íslands afgerandi Ögmundur Jónasson, formaður þingflokks Vinstri grænna, sagðist taka undir hvatningu til íslensku ríkisstjórnarinnar og utanríkisráð- herra um að beita sér í þágu friðar í Austurlöndum. „Það er mikilvægt að við tölum skýrt og höfum sterka, siðferðilega rödd í þessum efnum,“ sagði hann. Davíð Oddsson forsætisráðherra sagði hins vegar ríkisstjórnina, undir forystu utanríkisráðherra, hafa talað með mjög afgerandi hætti í þessu máli og látið rödd Ís- lands heyrast mjög sterkt. Sagði hann utanríkisráðherra fylgja þessu sterkt eftir og með miklum ágætum og starfsmenn utanríkis- þjónustunnar hvarvetna fylgdu því eftir. Það væri þó ekki gert með „básúnuhljómi eða lúðrablæstri“, enda færi ekki vel á því að þjóð eins og sú íslenska stæði þannig að mál- um. Forsætisráðherra kvaðst hins vegar vara mjög eindregið við um- mælum af því tagi sem Rannveig Guðmundsdóttir hefði látið sér um munn fara. „Að gesturinn í landinu hagi sér svona. Í því felst væntan- lega að gesturinn eigi þá að koma sér í burtu og til síns heima, hvar sem það er nú. Ef utanríkisráð- herra talaði með þessum hætti, að Ísraelsmenn væru gestir í þessu landi og ættu að fara brott á haf út, eins og var í tísku að tala um forð- um tíð, þá yrði ekki mikið á hann hlustað. Svona ummæli eru stór- varasöm,“ sagði forsætisráðherra. Össur Skarphéðinsson gerði at- hugasemd við þessi orð forsætis- ráðherra og sagði mikilvægt að þegar svo alvarleg málefni væru til umræðu að umræðan færi ekki nið- ur á „svo lágt plan“. Sagði hann ekki forsætisráðherra sæmandi að koma með þessum hætti inn í um- ræðuna, sem þangað til hefði verið byggð á málefnalegum grunni. Vísaði Össur til þess að eitt af lykilatriðunum í tillögum Sádi- Araba fælist einmitt í því að hinn óboðni gestur, þ.e. Ísraelar, hefðu sig brott af hernumdu svæðunum og hefði þetta m.a. verið kallað „land fyrir frið“. Sagðar kveikja von í brjósti heimsbyggðarinnar Halldór Ásgrímsson undirstrik- aði þá að íslensk stjórnvöld hefðu beitt sér í þessu máli og sú vinna stæði enn. Sagði hann tillögur arabaríkjanna kveikja von í brjósti heimsbyggðarinnar og að fram- gangi þeirra þyrfti að vinna. „Við verðum að leggjast á þá sveif og það munum við gera. Ég veit ekki hvernig á að tala skýrar. Ég hef áð- ur fordæmt atferli Ísraelsmanna í þessu máli, en ég geri mér vonir um það að nú muni þeir snúa við blaðinu vegna þess að nú kemur fram útrétt hönd og einnig vegna þess að ég sé ekki að þeir eigi neinn annan kost.“ Í tilefni þessara orða utanríkis- ráðherra kom Össur Skarphéðins- son aftur í ræðustól og sagði kveða við nýjan tón, talað væri mun skýr- ar en áður og því bæri að fagna. Hvatti hann íslensk stjórnvöld til þess að nýta sér sambönd sín í þessu skyni og vísaði sérstaklega til þeirra „góðu tengsla sem forsætis- ráðherra hefði lýst að hann hefði við háttsetta áhrifamenn í Evrópu- sambandinu.“ Hvort ekki væri ráð að forsætisráðherra nýtti sér þessi tengsl nú, ráðherrann sem „oftar en ekki hefur sýnt áhuga sinn á ut- anríkismálum, jafnvel í þeim mál- um að sumum hefur þótt nóg um“, eins og hann orðaði það. Eftir efasemdum utanríkisráðherra tekið Davíð Oddsson forsætisráðherra kom aftur í ræðustól vegna þessara ummæla formanns Samfylkingar- innar og gagnrýndi hann harðlega fyrirþað sem hann kallaði „galgopa- hátt um alvarleg mál“, sagði mál- flutning hans fremur hæfa því sem gerðist í menntaskólum. „Það sem vekur sérstaka athygli varðandi Ísland, hefðu menn ein- hvern minnsta snefil af þekkingu eða vitsmunum á utanríkismálum og stefnu Íslendinga í þeim fyrr og síðar, er að utanríkisráðherra skuli tala með þeim hætti sem hann ger- ir, með stuðning allrar ríkisstjórn- arinnar á bak við sig til þess,“ sagði Davíð. Vísaði forsætisráðherra til þess að ríkisstjórn Íslands hefði í gegn- um tíðina viljað styðja fast við bakið á Ísrael. Í ljósi sögulegra tengsla landanna og hins mikla stuðnings væri eftir því tekið þegar utanrík- isráðherra léti í ljós efasemdir, án nokkurs hávaða þó eða fyrirgangs, um framgöngu þessa vinaríkis okk- ar. Utanríkisráðherra um friðartillögur Sádi-Araba í deilunni fyrir botni Miðjarðarhafs Segir Ísraelsmenn hljóta að taka í útrétta sáttahönd Morgunblaðið/Golli Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra og Davíð Oddsson forsætisráð- herra tóku báðir þátt í umræðum um friðarumleitanir. ÞRÍR ráðherrar ríkisstjórnarinn- ar með forsætisráðherra í broddi fylkingar mæltu fyrir frumvörp- um til laga um nýskipan mála á sviði vísindarannsókna og tækniþróunar á Alþingi í gær. Forsætisráðherra mælti fyrir frumvarpi um Vísinda- og tækni- ráð, menntamálaráðherra fyrir frumvarpi um opinberan stuðning við vísindarannsóknir og frum- varp til laga um opinberan stuðn- ing við tækniþróun og nýsköpun í þágu atvinnulífsins var flutt af iðnaðarráðherra. Ráðherrar og fjórtán aðilar í ráðinu til þriggja ára í senn Forsætisráðherra vísaði til þess að í samræmi við ákvæði laga um Rannsóknarráð Íslands hefði endurskoðun þeirra staðið yfir að undanförnu í samráði við fjölmarga aðila. Niðurstaða þess- arar endurskoðunar lægi nú fyrir og fæli í sér tillögur um að veru- legar breytingar yrðu gerðar á stjórnskipulagi rannsóknarráðs og tengdri starfsemi. Meðal nýmæla sem í frumvörp- unum felast má nefna að stefna stjórnvalda í vísinda- og tækni- málum verður mótuð af Vísinda- og tækniráði til þriggja ára í senn. Umfjöllun þess á hvoru sviði um sig skal undirbúin af vís- indanefnd og tækninefnd. For- sætisráðherra skipar 14 menn í Vísinda- og tækniráð til þriggja ára í senn og jafnmarga til vara samkvæmt tilnefningum ýmissa aðila. Auk þessara fulltrúa munu forsætisráðherra, fjármálaráð- herra, iðnaðarráðherra og menntamálaráðherra eiga sæti í ráðinu og verður forsætisráð- herra formaður þess. Mennta- málaráðherra mun skipa úr þess- um hópi sjö aðila í vísindanefnd og iðnaðarráðherra sama fjölda í iðnaðarnefnd. Vísaði forsætisráðherra til þess að í ljósi reynslu undanfarinna ára af starfi Rannsóknarráðs, eft- ir sameiningu Rannsóknarráðs ríkisins og Vísindaráðs árið 1994, alþjóðlegri þróun og vaxandi mik- ilvægis þessa málaflokks þyki nú tímabært, að færa samræmda umfjöllun um málefni vísinda og tækni á efri stig stjórnsýslunnar. Hann sagði ljóst að framlög at- vinnulífsins til rannsókna fari ört vaxandi og jafnframt aukist metnaður vísindasamfélagsins í réttu hlutfalli við góðan árangur þess. Síðasta ræða ráðherra tengd breytingunum Björn Bjarnason menntamála- ráðherra mælti væntanlega sín síðustu orð á þingi sem mennta- málaráðherra í tilefni af um- ræðum um frumvörpin þrjú í gær, en meðal þess sem kom þar fram, var að endurskoðunar á skipulagi Stjórnarráðsins er ekki að vænta fyrr en e.t.v. við lok kjörtímabils núverandi ríkis- stjórnar. Svanfríður Jónasdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, vísaði til þess að sömu röksemdir og fælust í nýskipan vísinda- og tæknimála hlytu að eiga um aðra þætti í opinberri stjórnsýslu, t.d. skipulag Stjórnarráðsins. Benti Svanfríður á að algengt álitamál væri til hvaða atvinnu- veganefnda þingsins einstök mál ættu að fara til frekari meðferðar og á síðustu árum væri ekki óal- gengt að sköruðust milli ráðu- neyta einstakir málaflokkar, sér- staklega þegar um nýja atvinnuvegi væri að ræða. Forsætisráðherra svaraði því til að þegar við stjórnarmyndum hefði komið til umræðu uppstokk- un ráðuneyta. Þó væri ljóst að mikilla breytinga væri vart að vænta á næstunni, enda þótt unn- ið væri að málinu og e.t.v. mætti vænta tillagna þar að lútandi fyr- ir lok kjörtímabilsins. Þrjú stjórnarfrumvörp um nýskipan mála á sviði vísindarannsókna og tækniþróunar Umfjöllun um vísindi og tækni færð á efri stig stjórnsýslunnar
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.