Morgunblaðið - 22.12.2002, Blaðsíða 34
LISTIR
34 SUNNUDAGUR 22. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
SJÁVARSÓLIN og kuldinn er titill
bókar Þorvarðar Hjálmarssonar
þar sem hann fléttar saman heim-
spekilegri og bókmenntalegri hug-
leiðingu um tilvistarheimspeki
franska rithöfundarins Albert
Camus.
„Camus er einn þeirra höfunda
sem maður las ungur að árum og
vakti mann til vitundar um gildi
góðra bókmennta. Honum er erfitt
að gleyma. Á síðari árum hefur leið-
in legið til hans á ný,“ segir Þor-
varður sem leggur eina þekktustu
skáldsögu Camus, Útlendinginn, til
grundvallar umfjöllun sinni.
Grundvallarspurningar
um tilveruna
„Í verkum sínum fæst hann við
grundvallarspurningar um mann,
heim og líf.
Í Útlendingnum fæst hann við
hinn framandi mann sem er bæði
framandi sjálfum sér og öðrum
mönnum. Hann skynjar tilveru sína
sem utanaðkomandi eða ókunnur
maður í heiminum, sem er framandi
siðvenjum, trúarbrögðum og rétt-
lætisboðum þeim sem ríkja í mann-
legu samfélagi. Bókin er skrifuð á
miklum óvissutímum í Evrópu,
heimsstyrjöldin síðari er að skella á
og í hönd fara miklir siðferðilegir
umbrotatímar. Tilvistarstefnan fær
byr undir báða vængi um þessar
mundir, og eitt helsta boðorð henn-
ar er, að þú ert það sem þú gerir.
Athafnir þínar segja alla söguna um
þig, hver þú raunverulega ert. Út-
lendingurinn er öðrum þræði rann-
sókn á þessari staðhæfingu. Það
kemur nefnilega í ljós í sögunni að
annað fólk les sínar eigin hugsanir
inn í athafnir annarra manna. Oftar
en ekki eru þær hugsanir langa
vegu frá sannleikanum og eiga í
raun ekki við nein rök að styðjast.
Við erum hvert og eitt framandi á
okkar eigin hátt, eig-
um okkur okkar eigin
heim sem við veitum
engum aðgang að
nema okkur sjálfum.
Fordómar eru því mið-
ur ríkjandi þáttur í
mannlegum sam-
skiptum og fordómar
brengla dómgreind
okkar. Við hræðumst
það ókunna og dæmum
það hart sem við skilj-
um ekki. Við fellum
dóma um annað fólk
áður en við gerum okk-
ur grein fyrir því að
það eru okkar eigin
fordómar sem ráða ferðinni og for-
dómarnir stjórna þannig dóm-
greind okkar meir en góðu hófi
gegnir. Við verðum að geta sett
okkur í spor annarra manna áður
en við kveðum upp dóma um athafn-
ir þeirra og líf.“
Uppreisnarmaður í eðli sínu
Albert Camus var fæddur af
frönsku foreldri en ólst upp í Al-
geirsborg í Alsír í Norður-Afríku
sem á þeim tíma var frönsk nýlenda.
„Sem ungur námsmaður í Al-
geirsborg las Camus samlanda sinn
heilagan Ágústínus og hann hafði
mótandi áhrif á hugsun hans alla
tíð. Ágústínus fjallar um hin hinstu
rök og um dóminn sem allir menn
hljóta að lokum fyrir líf sitt. En
Camus var í eðli sínu uppreisn-
armaður sem reis upp gegn algild-
um lausnum og skylduboðum. Hann
var af fátæku bergi brotinn, ólst
nánast upp við örbirgð sem átti eftir
að setja svip á hann ævina á enda.
Camus gleymdi aldrei fátækling-
unum á götunni í Algeirsborg og
honum sveið sárt kúgun þeirra og
umkomuleysi. Hann vildi að kirkjan
opnaði dyr sínar fyrir þeim og berð-
ist fyrir samfélagslegu
réttlæti öllum til
handa. Fyrir honum
var þetta fólk rænt
allri náð, en það er
einmitt náð Guðs sem
Ágústínus boðar svo
fallega í verkum sín-
um, einkum í Borg
Guðs sem er eitt af
höfuðritum kristinnar
trúar. Annar trúar-
heimspekingur sem
hafði milkil áhrif á
hinn unga Camus var
Sören Kierkegaard.
Camus var svo heill-
aður af verkum þessa
danska hugsuðar að hann nefndi
hundinn sinn eftir honum.
Nietzsche var honum opinberun
líka og svo Kristur, gríska goðsag-
an og raunar allur hinn forni hug-
myndaheimur Forn-Grikkja.“
Samfélagsleg heimspeki
„Í tilvistarheimspeki Camus er
lífið miðjan. Það er heilagt og ein-
hverskonar frumspekilegt minni í
öllum verkum hans, jafnt ritgerðum
sem sögum,“ segir Þorvarður.
„Camus var harður andstæðingur
afstæðishyggju og í huga hans var
lífið það sem máli skiptir. Við byggj-
um dóma okkar á helgi lífsins. Hver
og einn hefur rétt til að lifa lífinu á
þann veg sem hann kýs, ef hann
brýtur ekki á rétti annarra manna.
Tilvistarspekin er samfélagsleg
heimspeki, fjallar um líf mannsins í
heiminum og í samfélagi manna.
Samfélagslegt réttlæti skiptir höf-
uðmáli. En Camus leitaði að einingu
manns og heims, samræmi heimsins
sem hann kallaði svo. Við erum
hluti af náttúrunni sem við erum
sprottin úr, náttúruverur. Samt er
erfitt að skilgreina tilgang okkar
vegna þess að skynjun okkar gerir
það að verkum að við erum fram-
andi náttúrufyrirbærunum sem um-
lykja okkur á alla vegu. Við erum
náttúruverur með hugann fullan af
spurningum um lífið og tilveruna og
í krafti þeirra spurninga sköpum
við okkur hugmyndaheim og trú
samkvæmt Camus. Við erum ekki
blóm, og við erum ekki sólin heldur.
Að vera eitt með sólinni eins og
blómið gengur ekki upp vegna þess
að við erum ekki ein og stök, við lif-
um í samfélagi við aðra menn og
þörfnumst siðferðis, algildra mæli-
kvarða til að móta líf okkar eftir.
Þessi algildi mælikvarði var lífið
sjálft og hvernig því er lifað í huga
Alberts Camus.“
Liggur enn á fólki
eins og mara
Þorvarður segir bók sína vera
virðingarvott við Albert Camus og
heimspeki hans. „Hann hafði frjó
áhrif á hugsun manns á sinni tíð og
hefur enn, enda eru verk hans ótrú-
lega auðug og vekja mann sífellt til
umhugsunar um þá hluti sem hann
tekur til umfjöllunar. Margt af því
sem stríddi á hann liggur eins og
mara á fólki enn þann dag í dag:
Ólga manna á milli sem aðhyllast
mismunandi trúarbrögð, fordómar
og skilningsleysi fólks af ólíkum
uppruna og menningarlegum bak-
grunni. Hermdarverk og grimmd-
aræði á götum úti og ef til vill yf-
irvofandi styrjöld. Því miður virðist
sem lítið hafi breyst í heiminum á
þeim sextíu árum sem liðin eru frá
því að Albert Camus skrifaði Út-
lendinginn. En það er ástæðulaust
annað en ala þá sömu von í brjósti
og hann gerði: Að einhvern tímann
komi sá dagur að mennirnir láti af
fordómum sínum í garð annarra
manna, og hver og einn maður öðl-
ist það samfélagslega réttlæti sem
hann á skilið.“
Þú ert það sem þú gerir
Þorvarður Hjálmarsson
RITRÖÐIN Norræn sakamál á
sér allnokkra hefð á Norðurlöndum
og kom fyrsta bókin á íslensku út í
fyrra. Nú koma Norræn sakamál út
öðru sinni hérlendis og eru alls 15
sögur í bókinni, þar af 8 íslenskar.
Sögurnar eru mislangar og fjalla
raunar ekki allar um sakamál, en þó
flestar. Frásögn Önundar Jónsson-
ar, yfirlögregluþjóns á Ísafirði, af
snjóflóðunum á Súðavík árið 1995 er
auðvitað engin sakamálafrásögn og
sama er að segja um Ókunna mann-
inn í ísskápnum, sérstæða og laun-
fyndna frásögn Ómars Smára Ár-
mannssonar,
aðstoðaryfirlögregluþjóns í Reykja-
vík. Þessar frásagnir hefðu samt alls
ekki mátt missa sín, þótt enginn
væri bófahasarinn í þeim. Sérstaða
Önundar Jónssonar meðal hinna
höfundanna felst í því hversu langt
hann gengur í að viðra eigin skoð-
anir á söguefninu um leið og frá-
sögninni vindur fram. Ég kunni
þessu alls ekki illa.
Þórhallur Árnason, lögregluvarð-
stjóri á Eskifirði, ríður á vaðið með
frásögn af óðum manni á gaffallyft-
ara sem ógnaði lögreglu og íbúum
þar í bæ fyrir fimm árum. Kraftmikil
og persónuleg frásögn fékk hárin til
að rísa, stundum. Þetta var fín byrj-
un á bókinni. Flaggskip bókarinnar
er þó að mínu mati innlegg Jóhann-
esar Sigfússonar, varðstjóra á Ak-
ureyri, sem heldur manni fast við
efnið með látlausri en áhrifamikilli
frásögn af störfum sínum í Bosníu
og Herzegóvínu sem lögreglumaður
hjá SÞ. Hann fékkst við sakamála-
rannsóknir og annað, keyrði sig út á
vinnu um hríð og lenti svo sannar-
lega í flóknum og erfiðum aðstæð-
um. Af fleiri athyglisverðum sögum
má nefna Morðið á Tom eftir Björn
Th. Vanvik, lögreglufulltrúa í Stav-
anger, og Fjölskylduátök – tifandi
sprengja eftir Hans Strindlund, að-
stoðaryfirlögregluþjón í Stokkhólmi.
Frásögnin af langstærsta málinu,
gríðarstóru alþjóðlegu fíkniefnamáli
sem danska lögreglan lauk rannsókn
á 1998, var hálfmisheppnuð þrátt
fyrir góða spretti, t.d. þegar einn
lögreglumaðurinn greip til þess ráðs
að þykjast vera þroskaheftur þegar
bófarnir voru hársbreidd frá því að
uppgötva að þeir sættu rannsókn.
Ég mæli hiklaust með þessari
bók, hún gefur góða innsýn í marg-
vísleg störf lögreglunnar. Sögurnar
eru vel valdar og sumar ágætlega
skrifaðar. Það er gott að fá eina
„ekta“ lögreglubók í bland við ann-
ars ágætan lögregluskáldskap sem
er svo vinsæll núna. Ekki hef ég les-
ið Norræn sakamál 2001, en sá í rit-
dómi Morgunblaðsins að frágangur-
inn á henni hafi verið slæmur. Það
verður ekki sagt um þessa bók, þótt
fyrirsagnanotkun sé stundum hálf-
skringileg. Kápan er vel gerð og
sumar ljósmyndirnar segja meira en
þúsund orð, eins krassandi og þær
eru.
BÆKUR
Sakamál
Íslenska lögregluforlagið 2002.
Ísafoldarprentsmiðja.
NORRÆN SAKAMÁL 2002 Löggan
í sagnastuði
Örlygur Steinn Sigurjónsson
Bókin um lófa-
lestur eftir Rich-
ard Webster er í
þýðingu Atla
Magnússonar.
Í fréttatilkynn-
ingu segir m.a.:
„Lófalestur er eld-
forn aðferð til að
varpa ljósi á per-
sónuleika fólks og leiða líkur að far-
sæld þess, ævi og örlögum. Með leið-
sögn höfundar getur lesandinn lesið í
lófa, metið hendur annarra, sagt fyrir
um fjármál, ferðalög og barneignir og
séð hvort tveir einstaklingar eigi sam-
an. Bókin er leiðarvísir til að skilja
hvað felst í lögun handanna, lengd
fingranna, húðrákunum, þumalfingr-
unum, fjöllunum og hinum ýmsu lín-
um lófans.“
Richard Webster er Nýsjálendingur
og hefur árum saman ferðast vítt og
breitt um heiminn og flutt fyrirlestra
og stjórnað námskeiðum um lófalest-
ur. Hann hefur ritað meira en þrjátíu
bækur um dulræn efni af margvíslegu
tagi.
Útgefandi er Skjaldborg. Bókin er
176 bls. Verð: 3.980 kr.
Handbók
ÍSLENSK náttúra og þær sagnir
sem hún geymir er óþrjótandi efnivið-
ur í ævintýri. Ingvar Sigurðsson sæk-
ir efnið í sinni
fyrstu bók til
Snæfellsjökuls og
alls þess sem sagt
er að þar búi.
Landnámsmaður-
inn og hálftröllið
Bárður Snæfels-
sás hvarf jú forð-
um í jökulinn en
hann kemur ein-
mitt við sögu aðalpersónanna, systk-
inanna sem bera nöfn sólar og tungls.
Sunna og Máni eru venjuleg nútím-
börn á snjósleða sem lenda inni í jökl-
inum fyrir tilstilli Bárðar. Þau þurfa
að fara um tímagöng og snúa við
gangi (þjóð)sögunnar og í þeirri ferð
takast þau m.a. á við þursa, risa og
jötnadrottningu mjög svo illskeytta.
Þau fá jafnvel að sjá niður til Heljar.
Fyrir börn sem er sú tegund fólks
sem hefur hvað sterkast ímyndunar-
afl er það ekki svo lítið ævintýri að
lenda í öllum þessum ósköpum.
Hvaða barn myndi fúlsa við því að
flakka um í tíma og rúmi?
Þó hugmyndin sé góð að þessari
sögu úr jökulheimum hefði mátt
vinna betur úr henni. Það vantar ein-
hverja fyllingu svo sagan verði sann-
færandi. Sennilega liggur það í per-
sónusköpuninni sem hefði mátt
nostra meira við. Lesandinn fær ekki
nægilega mikla sýn inn í huga Sunnu
og Mána því þau sjást að mestu ut-
anfrá. Æðruleysi þeirra í öllum þeim
áföllum sem þau verða fyrir er ótrú-
verðugt, þó þau séu vissulega hetjur.
Allt virðist þetta frekar lítið mál fyrir
blessuð börnin þó þau lendi í klónum
á dauðu fólki og hverskonar forynjum
og það dregur úr spennunni. Ingvar
hefði mátt staldra við og byggja betur
upp framvinduna í tímaflakkinu og
hlúa að krökkunum. Eins hefði farið
betur á því að hafa innskotin um rún-
irnar aftast í bókinni hjá mjög
skemmtilegum upplýsingum um rún-
ir almennt og aðferðum við að nota
þær.
Bókin er að mörgu leyti mjög fróð-
leg og hún er fallega myndskreytt af
textahöfundi. Hann hefur gert upp-
lýsingavef um bókina og það efni sem
hún fjallar um og er vert að benda
væntanlegum lesendum á hann:
http://www.ljosbra.is
BÆKUR
Barnabók
Ingvar Sigurðsson, Ljósbrá 2002,
bls. 63.
ÆVINTÝRI Í JÖKULHEIMUM
Margt býr
í jöklum
Kristín Heiða Kristinsdóttir
Ingvar Sigurðsson
Skipulag byggðar
á Íslandi er eftir
Trausta Valsson.
Bókin er fyrsta
rit sinnar teg-
undar um mann-
gert umhverfi á Ís-
landi, segir í
fréttatilkynningu.
Þróunin er rakin
allt frá landnámi til líðandi stundar.
Fjallað er um náttúruna sem hið mót-
andi afl í þróun byggðarinnar, byggð-
armótun, skipulagsþróun bæja og
svæða, þróun kerfa á landsvísu og
loks um þróanir seinni tíma. Þar er
hugmyndahræringum við upphaf 21.
aldar lýst og hvernig þær breyta þró-
un stærstu bæjanna og byggð-
arsvæðanna í landinu. Bókinni fylgir
fjöldi skráa og skipulagsmanntal auk
1250 mynda og uppdrátta.
Trausti Valsson lauk námi af skipu-
lagslínu TU í Berlín 1972. Starfaði
við Þróunarstofnun m.a. við Grænu
byltinguna og gerð aðalskipulags fyr-
ir Úlfarsfellssvæðið. Hann lauk dokt-
orsnámi í umhverfisskipulagi við UC
Berkeley 1987. Fékk hlutadósents-
stöðu við HÍ 1988. Var skipaður í
fyrstu stöðu prófessors í skipulags-
fræði við HÍ árið 2000.
Trausti hefur skrifað fjölda greina
og bóka, og er þessi bók sú tíunda.
Hann hefur hlotið verðlaun í mörg-
um samkeppnum og margskonar
aðrar viðurkenningar.
Útgefandi er Háskólaútgáfan. Bók-
in er 480 blaðsíður innbundin og
kostar 6.900 kr.
Fræði
Saga um máf og
köttinn sem
kenndi honum að
fljúga er eftir Lu-
is Sepúlveda í
þýðingu Tómasar
R. Einarssonar
og Kristínar
Svövu Tóm-
asdóttur hefur
komið út víða um heim.
Kötturinn Zorbas hefur það eitt í
hyggju að liggja í leti á meðan fjöl-
skylda hans er í sumarfríi. En þau
áform breytast skyndilega þegar
deyjandi máfur lendir á svölunum
hjá honum og verpir þar eggi sem
hann biður Zorbas fyrir. Kötturinn
játar þeirri bón en verkefnið reynist
ekki vandalaust. Þá er gott að hafn-
arkettirnir í Hamborg standa saman
og með hjálp ítalska liðþjálfans,
Ritarans og Þesssemalltveit – að
ekki sé minnst á Alfræðibókina –
tekst Zorbasi að komast áleiðis að
settu marki. En hvernig á að kenna
máfsunganum að fljúga?
Útgefandi er Mál og menning.
Bókin er 126 bls., prentuð hjá
Gutenberg. Kápu hannaði Anna
Cynthia Leplar. Verð: 2.490 kr.
Unglingar
Vængjaþytur vors-
ins hefur að
geyma ljóðaúrval
Ásdísar Jóhanns-
dóttur. Hún var
fædd árið 1933
og lést árið 1959,
26 ára gömul.
Ásdís byrjaði að
yrkja 15 ára göm-
um og hélt því áfram til dauðadags.
Hún lét eftir sig nokkurt safn ljóða
sem Sigríður systur hennar varðveitti.
Skólafélagi Ásdísar, Helgi Hall-
grímsson, náttúrufræðingur, valdi úr
safninu 40 ljóð og vísur og bjó til prent-
unar. Hann skrifar einnig eftirmála að
bókinni með æviágripi höfundar.
Ljóðunum er skipt í þrjá hluta eftir
tímaröð: Æskuljóð höfundar frá Hvera-
gerði eru í fyrsta hluta, í öðrum eru ljóð
sem hún orti í Menntaskólanum á Ak-
ureyri og í síðasta hlutanum eru ljóð
frá háskólaárum hennar í Göttingen í
Þýskalandi.
Útgefandi er Félag ljóðunnenda á
Austurlandi með styrk frá Búðahreppi í
Fáskrúðsfirði og Menningarsjóði Aust-
urlands. Bókin er til sölu hjá formanni
Félags ljóðunnenda, Magnúsi Stef-
ánssyni á Fáskrúðsfirði. Einnig er
hægt að panta bókina bréflega eða
með tölvupósti á netfangið: mstef@li.-
is. Verð: 2.350 kr.
Ljóð
♦ ♦ ♦