Morgunblaðið - 22.12.2002, Blaðsíða 41
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. DESEMBER 2002 41
okkar og færa okkur ró og frið
ásamt óendanlega miklu þakklæti
fyrir að hafa fengið að njóta nær-
veru hennar.
Að leiðarlokum viljum við þakka
þér, elsku amma Sella, fyrir hlý-
hug og vináttu alla okkar ævi.
Blessuð sé minning þín.
Kristín Björk,
Friðbert, Njáll Trausti
og Jóhann Grímur.
Mamma hringdi í mig föstudag-
inn 13. desmber sl. og sagði mér
að Sella frænka væri orðin alvar-
lega veik. Þegar við hjónin komum
að sjúkrabeði hennar fór hugurinn
strax að fljúga aftur í tímann.
Hún og Mummi maður hennar
(hann var þó oftar kallaður Gvend-
ur Gríms af vinum og kunningjum)
voru nýflutt í nýtt hús við Fax-
askjól. Hinum megin götunnar
blasti fjaran og sjórinn við; sann-
kallaður ævintýraheimur fyrir
ungan dreng.
Allar götur í hverfinu voru ómal-
bikaðar, olíukynding í húsinu sem
húsbóndinn einn hafði lag á. Á bak
við íbúðarhúsið var stórt autt
svæði sem lá upp að Sörlaskjóli og
þar var nú auðvelt að fá útrás fyrir
leikgleðina. Ekki var síðra sjáv-
armegin þar sem hægt var að fela
sig í ósnortnum gróðrinum eða bak
við bát einhvers grásleppukarl-
anna sem áttu útræði úr fjörunni.
Gamlárskvöldin eru sömuleiðis
eftirminnileg þegar kveikt var í
stórri brennu við götuna og sjá
mátti himininn loga yfir sjónum.
Þarna bjó hún móðursystir mín
allt þar til hún gat ekki séð um sig
sjálf.
Mummi maður frænku átti gam-
alt fjós og hlöðu sem var á bakk-
anum neðan heimilis þeirra. Þar
gat hann sinnt bílaviðgerðum og
alls konar smíðum. Þarna í hlöð-
unni smíðaði Mummi í félagi við
aðra 12 tonna frambyggðan bát en
frambyggðir bátar voru þá algjör
nýlunda hér á landi. Báturinn var
síðan sjósettur í fjörunni við Faxa-
skjólið.
Annars var aðalstarf Mumma að
aka vörubíl milli Reykjavíkurhafn-
ar og Keflavíkurflugvallar. Í ná-
grenni við þau bjuggu aðrir vöru-
bílstjórar sem óku sömu leið.
Á þessum árum sáu menn sjálfir
um viðhald bíla sinna sem oft var
tímafrekt.
Þá var gott að eiga bóngóðan
nágranna og geta farið með bil-
aðan vörubíl í hlöðuna til viðgerðar
eða smíðað nýjan pall. Gestrisin
hjónin buðu þá oft í mat eða kaffi
handan götunnar. Var þá húsmóð-
irin ævinlega tilbúin með góðar
veitingar en hún starfaði ekki utan
heimilis eftir giftingu. Fyrir hjóna-
band starfaði hún í nokkur ár á
prjónastofunni Malín.
Ég var svo heppinn að fá að
dveljast langdvölum hjá þeim hjón-
um. Aldrei sagði Sella styggð-
aryrði við óþekktaranga sem oft
fór ansi mikið fyrir og var örugg-
lega ekki neitt „mynsturbarn“. Ég
vil nota tækifærið og þakka gott
atlæti.
Mummi maður Sellu lést árið
1973, tæplega 55 ára. Eins og áður
sagði bjó hún áfram í húsinu eftir
lát hans.
Árið 1997 flutti Sella á dval-
arheimilið Skjól og fékk þar frá-
bæra umönnun og skal hún þökk-
uð. Fyrstu árin á Skjóli var Sella
við þolanlega heilsu og undi sér vel
í herberginu sínu með sjávarsýn.
Síðustu ár barðist hún við alzheim-
er-sjúkdóminn sem smám saman
tók völdin og var hún komin með
hugann á einhvern annan stað en
við hin.
Sella frænka hefur nú örugglega
hitt aftur fólkið sitt sem á undan
er gengið. Sál hennar nýtur þess
nú að svífa um, laus við líkamann
sem hún var orðin fangi í.
En handan við fjöllin
og handan við áttirnar og nóttina
rís turn ljóssins
þar sem tíminn sefur.
Inn í frið hans og draum
er förinni heitið.
(Sn.Hj.)
Jóhann G. Guðjónsson.
✝ Kristbjörg Hall-dórsdóttir fædd-
ist í Austurkoti í
Reykjavík 25. mars
1919. Hún lést á
Hjúkrunarheimilinu
Eir 17. desember
síðastliðinn. For-
eldrar hennar voru
Halldór Halldórs-
son, f. 6. júní 1868
að Austurvelli í
Kjalarneshreppi, d.
26. maí 1943, bóndi
á Jörfa á Kjalarnesi
og síðar útvegs-
bóndi í Austurkoti í
Reykjavík, og kona hans Guð-
laug Jónsdóttir, f. 1. október
1876 í Norðurgröf í Kjalarnes-
hreppi. Systkini Kristbjargar
eru: Elínbjörg, f. 30. apríl 1897,
d. 19. janúar 1970; Marteinn, f.
24. nóvember 1898, d. 28. júní
1963; Þorgeir, f. 10. október
1900, d. 31. júlí 1921; Jónfríður
Kristbjörg, f. 17. júlí 1902, d. 12.
desember 1986; Kristín Magnea,
f. 23. ágúst 1905, d. 12. október
1967; Sigurður Jóhann, f. 25.
mars 1907, d. 20. janúar 1980;
Ásta Gísla, f. 24. mars 1907, d.
5. júlí 1997; Björn, f. 27. mars
1911, d. 11. október 1965; Ólafía
Laufey, f. 19. ágúst 1912; og
Gísli, f. 12. ágúst 1914.
Kristbjörg bjó í
Reykjavík alla sína
ævi, fyrst í for-
eldrahúsum í Aust-
urkoti við Faxa-
skjól, síðan í
nokkur ár á Lauga-
vegi 54 og í Rauða-
gerði 20 með eig-
inmanni sínum
síðustu 40 árin.
Í ágúst 1948 gift-
ist Kristbjörg eftir-
lifandi eiginmanni
sínum Leifi Jóhann-
essyni rakarameist-
ara, f. 14. desember
1918. Hann er sonur hjónanna
Jóhannesar Lárusar Lynge Jó-
hannssonar, f. 14. nóvember
1859, d. 6. mars 1929 prests að
Kvennabrekku í Dölum og Guð-
ríðar Helgadóttur, f. 9. nóvem-
ber 1873, d. 21. febrúar 1958.
Kristbjörg var heimavinnandi
húsmóðir en vann að auki að
verslunarstörfum, fyrst í Herra-
búðinni við Skólavörðustíg og
síðar í Verslun Guðsteins Eyj-
ólfssonar í um 30 ár eða þar til
hún hætti störfum vegna aldurs
1988.
Útför Kristbjargar verður
gerð frá Bústaðakirkju á morg-
un, mánudaginn 23. desember,
og hefst athöfnin klukkan 10.30.
Á morgun, 23. desember, verður
kvödd hinstu kveðju móðursystir
mín, Kristbjörg Halldórsdóttir.
Kristbjörg, eða Bíbí eins og hún
var alltaf kölluð, lést södd lífdaga á
Hjúkrunarheimilinu Eir 17. des. sl.
þar sem hún hafði dvalið í góðu yf-
irlæti við einstaka umönnun og
hlýju alls starfsfólks í rúmt ár.
Heilsu hennar hafði þá hrakað svo
mjög að Leifi Jóhannessyni, eig-
inmanni hennar, var um megn að
annast hana lengur.
Vil ég nota tækifærið og þakka
öllu starfsfólki á 2N fyrir alla
hjúkrun og hjálpsemi við hana þann
tíma sem hún dvaldi á Eir.
Bíbí tók heilsuleysi sínu með því
æðruleysi sem henni einni var lagið,
en það sem angraði hana mest í
sambandi við það, var að hún var
ekki lengur fær um að taka al-
mennilega, eins og hún orðaði það,
á móti gestum. Gestrisni Bíbíar var
við brugðið og hafði hún yndi af því
að bjóða til sín frændfólki og vinum
og var hvergi betra að koma en til
hennar, hvort heldur er varðaði við-
mót eða viðurgjörning.
Bíbí frænka var elskuð og dáð af
öllu sínu frændfólki og vinum ung-
um sem öldnum, enda umvafði hún
alla með hlýju sinni og hugsunar-
semi og mátti aldrei neitt aumt sjá.
Bíbí var alin upp í hópi tíu systk-
ina en missti einn bróður sinn, Þor-
geir, er hann var aðeins 21 árs, en
hann lést af slysförum í Kaup-
mannahöfn á stríðsárunum og var
hann mikill harmdauði öllu sínu
fólki.
Mikill og einlægur vinskapur var
milli systkinanna, en þau bjuggu í
Austurkoti við Faxaskjól í Reykja-
vík þegar Bíbí fæddist. Þar hjálp-
uðust allir að við vinnuna sem bæði
var búskapur svo og vinna við fisk-
verkun, en Halldór afi reri til fiskj-
ar, því Austurkot var alveg við
fjöruborðið. Öll fjölskyldan hjálp-
aðist því að við að afla lífsviðurvær-
is þó að smám saman fækkaði svo á
bænum eftir því sem eldri börnin
fluttu að heiman. En alltaf var líf
og fjör í Austurkoti og jafnan mikill
gestagangur frændfólks og vina af
Kjalarnesinu og víðar.
Ég man eftir Bíbí frænku frá því
ég var smástelpa því að um leið og
mamma þurfti á hjálp að halda var
Bíbí mætt með hlýjan faðminn og
brosið bjarta sem yljaði öllum um
hjartarætur, jafnt börnum sem full-
orðnum. Eins var með önnur systk-
ini hennar; Bíbí kom alltaf til hjálp-
ar og uppörvunar þar sem þörf var
á slíku.
Hún elskaði börn, og þar sem
henni og Leifi Jóhannessyni eig-
inmanni hennar varð ekki barna
auðið, úthellti hún elsku sinni og
hlýju yfir systkinabörn sín og börn
þeirra, sem syrgja nú uppáhalds-
frænku sína og vin.
Hún giftist Leifi í ágúst 1948 og
bjuggu þau fyrstu hjúskaparárin í
kjallaranum á Laugavegi 54. Þar
var alltaf stöðugur gestagangur, því
Laugavegurinn var þá ein aðal-
verslunargatan í Reykjavík og á
vísan að róa með móttökur hjá Bíbí.
Síðar byggðu þau sér íbúð þá sem
þau hafa búið í sl. 40 ár, í Rauða-
gerði 20.
Þau hjónin voru mjög samhuga
um að að búa sér fallegt heimili og
var Bíbí einstaklega lagið að gera
umhverfi sitt fallegt og fágað, enda
mikill fagurkeri og var tiltekið
hversu öllu var smekklega fyrir
komið á heimili þeirra og hver hlut-
ur valinn af alúð.
Samband þeirra hjóna var ein-
staklega fallegt og má segja að þau
hafi lifað fyrir hvort annað og með
hvort öðru. Leifur er t.d. mikill
hestamaður og reyndi Bíbí mikið að
fá bakteríuna líka. Þau keyptu
handa henni hest og hún fór í út-
reiðartúra með Leifi, en allt kom
fyrir ekki. Hún var alltaf hálf-
hrædd, bæði við hestana og svo að
detta af baki, þannig að sú tilraun
misheppnaðist. Hún samgladdist í
staðinn Leifi og studdi hann í þessu
áhugamáli hans. Þau höfðu hins
vegar bæði mikla unun af ferðalög-
um og ferðuðust mikið bæði innan-
lands og utan og fóru t.d. oft til
Danmerkur þar sem þau áttu góða
vini en Leifur lærði rakaraiðn í
Danmörku og varð innlyksa þar öll
stríðsárin.
Nú síðustu árin hefur Leifur svo
stutt og hlúð að Bíbí og heimsótt
hana á hverjum degi upp á Eir og
borðað með henni hádegismat.
Missir Leifs er mikill og söknuður-
inn sár, en það linar sorgina að vita
að nú er Bíbí búin að fá hvíld frá
veikindum sínum og hvílir í friði hjá
Guði. Um leið og ég þakka frænku
minni allan hennar umvefjandi kær-
leika bið ég góðan Guð að styðja og
styrkja Leif í sorginni og að blessa
minningu Kristbjargar Halldórs-
dóttur.
Helga Guðmundsdóttir.
KRISTBJÖRG
HALLDÓRSDÓTTIR Faðir okkar,
FRIÐRIK JÓNASSON
kennari,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstu-
daginn 27. desember kl. 15.00.
Fyrir hönd ættingja,
Björk Helga Friðriksdóttir,
Jóhanna Arnljót Friðriksdóttir.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug og studdu okkur við andlát
og útför elsku mannsins míns, föður, tengda-
föður, afa og langafa,
BJÖRNS A. BJARNASONAR,
Funalind 13,
Kópavogi.
Helga Axelsdóttir,
Drífa Björnsdóttir, Ingimundur Þ. Guðnason,
Dröfn Björnsdóttir, Árni Árnason,
Helga B. Björnsdóttir, Guðmann Elísson,
Axel J. Björnsson, Ragnheiður Ólafsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Við sendum hjartans þakkir til þeirra fjölmörgu
sem sýndu okkur einstaka hlýju og samúð við
andlát og útför ástkærs sonar okkar,
SÍMONAR ÁSGEIRS GRÉTARSSONAR.
Hlýhugur ykkar var okkur mikill styrkur. Góður
guð blessi ykkur, gefi ykkur gleðileg jól og far-
sælt komandi ár.
Grétar Símonarson, Guðbjörg Sigurðardóttir
og fjölskyldur.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við
andlát systur minnar,
JÓHÖNNU ÞORLEIFSDÓTTUR,
Boðagranda 7,
Reykjavík.
Kristín Þorleifsdóttir
og fjölskylda.
Elskuleg eiginkona mín,
KRISTBJÖRG HALLDÓRSDÓTTIR,
Rauðagerði 20,
lést þriðjudaginn 17. desember.
Jarðarförin fer fram frá Bústaðakirkju mánu-
daginn 23. desember kl. 10.30.
Leifur Jóhannesson.
Þökkum innilega samúð, vináttu og stuðning
vegna andláts og útfarar ástkærrar eiginkonu
móður okkar, tengdamóður, ömmu og lang-
ömmu,
LILJU MATTHILDAR FRANSDÓTTUR
frá Króki,
Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólki
dvalarheimilisins Lundar á Hellu.
Guð veri með ykkur.
Ingólfur Guðmundsson frá Króki,
Hólmfríður Rannveig, Ólafur Sigfússon,
Ingólfur Magnússon, Þorbjörg Fjóla Sigurðardóttir,
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabörn.