Morgunblaðið - 22.12.2002, Blaðsíða 43
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. DESEMBER 2002 43
Inger Steinsson,
útfararstjóri,
s. 691 0919
Ólafur Ö. Pétursson,
útfararstjóri,
s. 896 6544
Bárugötu 4, 101 Reykjavík.
S. 551 7080
Vönduð og persónuleg þjónusta.
Blómastofa Friðfinns,
Suðurlandsbraut 10,
sími 553 1099, fax 568 4499.
Opið til kl. 19 öll kvöld
Kransar • Krossar • Kistuskreytingar
Davíð Osvaldsson
útfararstjóri
Sími 551 3485 • Fax 568 1129
Áratuga reynsla
í umsjón útfara
Önnumst alla þætti
Vaktsími allan sólarhringinn
896 8284
ÚTFARARSTOFA
HAFNARFJARÐAR
Flatahrauni 5A, sími 565 5892
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Símar 581 3300 - 896 8242
Allan sólarhringinn - Áratuga reynsla
Suðurhlíð 35 — Fossvogi — www.utforin.is
Sverrir Olsen,
útfararstjóri.
Sverrir Einarsson,
útfararstjóri.
Kistur - Krossar
Prestur - Kirkja
Kistulagning
Blóm - Fáni
Val á sálmum
Tónlistarfólk
Sálmaskrá
Tilk. í fjölmiðla
Erfisdrykkja
Gestabók
Legstaður
Flutningur kistu á
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Bryndís Valbjarnardóttir,
útfararstjóri.
milli landa og
landshluta
Landsbyggðar-
þjónusta
Baldur Frederiksen,
útfararstjóri.
Þú komst í hlaðið á
hvítum hesti,
þú komst með vor í
augum þér.
Ég söng og fagnaði
góðum gesti
og gaf þér hjartað í
brjósti mér.
Ég heyri álengdar hófadyninn,
ég horfi langt á eftir þér.
Og bjart er alltaf um besta vininn
og blítt er nafn hans á vörum mér.
Þó líði dagar og líði nætur,
má lengi rekja gömul spor.
Þó kuldinn næði um daladætur,
þá dreymir allar um sól og vor.
(Davíð Stefánsson.)
Elsku Feri, fallegi vinur minn,
þegar ég hugsa til þín birtir yfir mér
og ég minnist þess hve stór og hlýr
faðmur þinn var. Ég gæfi mikið fyrir
að fá eitt faðmlag enn. Það tekur mig
sárt, Feri minn, að þurfa að kveðja
þig og fá ekki að líta aftur í fallegu
augun þín í þessari jarðvist. Okkar
leið lá fyrst saman ’97 á Akureyri, og
fljótlega eftir að við hittumst urðum
við mjög góðir vinir.
Við gátum talað saman um allt og
engin umræða féll í slæman jarðveg,
mér fannst sálir okkar vera skyldar,
oft var líka þá stutt í grínið. Þú
reyndir einhverntímann að undirbúa
mig undir það að þú myndir kveðja
þetta líf. Ég sagði við þig að ég
myndi fara í fýlu og ekki mæta í jarð-
arförina þína. Ég trúði því líka ekki
að þú myndir yfirgefa okkur. Ekkert
gat undirbúið mig undir þann missi
KRISTÓFER
MATTHEW
CHALLENDER
✝ Kristófer Matth-ew Challender
fæddist í Keflavík 26.
nóvember 1976.
Hann lést 9. desem-
ber síðastliðinn og
var útför hans gerð
frá Víðistaðakirkju
20. desember.
sem ég upplifi nú. Ég
óska einskis frekar en
að fá að fylgja þér síð-
asta spölinn.
Við sátum saman og
síðast í sumar á björt-
um og sólríkum degi.
Þar gáfum við hvort
öðru loforð um að hitt-
ast fljótlega aftur. Við
ræddum um þá gleði
sem við fengum að
njóta að verða foreldr-
ar og sátum glöð hvort
með sitt barnið í fang-
inu.
Elsku Sigga og
Embla litla, ég votta ykkur mína
dýpstu samúð, ég bið Guð um að
bera ykkur í gegnum þunga göngu
sorgarinnar, og elsku Erla, Guð veri
með þér og fjölskyldu þinni.
Drottinn er minn hirðir, mig mun
ekkert bresta.
Á grænum grundum lætur hann mig
hvílast,
leiðir mig að vötnum,
þar sem ég má næðis njóta.
Hann hressir sál mína,
leiðir mig um rétta vegu
fyrir sakir nafns síns.
Jafnvel þótt ég fari um dimman dal,
óttast ég ekkert illt,
því að þú ert hjá mér,
sproti þinn og stafur hugga mig.
Þú býr mér borð
frammi fyrir fjendum mínum,
þú smyr höfuð mitt með olíu,
bikar minn er barmafullur.
Já, gæfa og náð fylgja mér
alla ævidaga mína,
og í húsi Drottins bý ég
langa ævi.
(23. Davíðssálmur.)
Elsku Feri, ég kveð þig nú, ég veit
að þú elskaðir mig sem vin og þú
verður alltaf minn elskaði vinur.
Þín vinkona,
Emma Agneta
Björgvinsdóttir.
Hinn 23. desember
er nákvæmlega eitt ár
liðið frá einum minn-
isstæðasta en jafn-
framt sorglegasta degi
í lífi mínu, en það er sá
dagur sem Gilla amma
mín dó. Það fyrsta sem mér dettur í
hug eftir eitt ár án hennar er gíf-
urlegur söknuður og svo óteljandi
minningar sem berjast um í huga
mínum þegar ég hugsa um hana
ömmu, hver öðrum ánægjulegri, því
það er hægt að segja með sanni að
Gilla amma hafi verið engum lík.
Allt mitt líf hafði hún verið inni á
Urðarteigi, frá því að ég var lítill
polli að fara með Benna afa eða
mömmu og bjóða henni í bíltúr, þar
til ég hafði aldur til þess að geta
boðið henni sjálfur og alltaf sagði
amma mér söguna frá því þegar
fyrsti bíllinn kom á Norðfjörð.
Gilla amma var höfðingi Gilluætt-
arinnar svokölluðu og á hverju ári
kom saman hópur síðustu helgina í
júlí og gerði sér glaðan dag. Það
var sama hvar við hittumst og sama
hvað var verið að gera, alltaf var
amma miðdepillinn, eldhress að
vanda. Síðasta árið sem ég um-
gekkst Gillu ömmu er mér einna
minnisstæðast. Að koma heim eftir
mánaðardvöl á sjó, færa henni fisk,
fá okkur kaffi og kleinur saman var
svo þægilegt. Ég gat spjallað við
Gillu ömmu um alla hluti, hún gat
GÍSLÍNA INGIBJÖRG
SIGURJÓNSDÓTTIR
✝ Gíslína IngibjörgSigurjónsdóttir
fæddist á Norðfirði
5. júlí 1913. Hún lést
þar 23. desember
2001 og fór útför
hennar fram frá
Norðfjarðarkirkju 5.
janúar.
sagt mér sögur frá líf-
inu í gamla daga og
svo líka sett sig í spor
unga fólksins og skilið
líf þess og raunir. Gilla
amma vissi svör við
öllu.
Eftir að hafa farið
til hennar með hugann
fullan af flækjum og
spurningum fór ég út
eftir klukkutíma heim-
sókn og lífið virtist
ekki geta verið ein-
faldara. Svo þegar ég
var að kveðja hana og
þakka fyrir kaffið sá
ég að alltaf smáglott myndast í and-
liti hennar, því það sem virtist vera
algjörlega ómögulegt fyrir 20 ára
gamlan mann að svara var hið allra
léttasta verk fyrir hana, enda lifað
tímana tvenna.
Ég hef oftar en einu sinni og oft-
ar en tvisvar séð fólk sem ég um-
gengst reka upp stór augu þegar ég
segi því að Gilla amma hafi verið
eins og mín besta vinkona þegar ég
hef verið að miðla því af visku henn-
ar. Og þótti mér það ólýsanlega
skemmtilegt að eiga langömmu,
sem komin var á níræðisaldur, sem
gat sett sig í spor mín eins og ekk-
ert væri.
Gilla amma kunni að lifa lífinu og
njóta þess til fullnustu. Til marks
um það fór hún í rúm 20 ár til
Kanaríeyja og dvaldi þar yfir
dimmustu vetrarmánuðina, en
henni var illa við snjó og vond vetr-
arveður. Tók hún bara potta sína og
pönnur og lét sér líða vel með tærn-
ar upp í loft í sól og hita meðan allt
var á kafi í snjó heima á Norðfirði,
kom svo heim þegar sumarlitirnir
voru byrjaðir að myndast og þurfti
þá að fara að sinna vorverkum hjá
henni, mála pallinn og taka fram
sólbekkina hennar.
Nú þegar jólin nálgast finn ég
hvað það vantar mikið að hafa
ömmu ekki hjá sér, því þrátt fyrir
að líka ekki við veturinn var hún
mikið jólabarn í sér. Á árum áður
var alltaf haldin jólaseríuskreyt-
ingakeppni innan Gilluættarinnar
og auðvitað kom í hlut höfðingja og
höfuðs hennar að dæma um hver
ætti sigur skilið. Endaði þessi
keppni svo með því að eitt árið var
Gillu ömmu boðið í bíltúr og á með-
an tóku nokkrir synir, tengdasynir
og barnabörn sig til og skreyttu
húsið hennar hátt og lágt og ætlaði
Gilla amma vart að þekkja sitt eigið
hús þegar hún kom aftur. Hélt hún
titlinum fyrir best skreytta húsið
eftir það. Svona eru hjarta mitt og
hugur full af ljúfum, fallegum og
yndislegum minningum um merk-
ustu manneskju sem ég hef kynnst
og þekkt.
Elsku amma mín, hvíldu í friði
meðal englanna. Þú átt aðeins besta
stað skilið og minning þín mun
varðveitast alla ævi í sálu minni.
Þitt barnabarnabarn
Helgi Freyr.
AFMÆLIS- og minningargreinum er hægt að skila í tölvupósti (net-
fangið er minning@mbl.is, svar er sent sjálfvirkt um leið og grein hefur
borist), á disklingi eða í vélrituðu handriti. Ef greinin er á disklingi þarf
útprentun að fylgja. Nauðsynlegt er að símanúmer höfundar og/eða
sendanda (vinnusími og heimasími) fylgi með. Bréfsími fyrir minning-
argreinar er 569 1115. Ekki er tekið við handskrifuðum greinum.
Um hvern látinn einstakling birtist ein aðalgrein af hæfilegri lengd á út-
farardegi, en aðrar greinar séu um 300 orð eða 1.500 slög (með bilum) en
það eru um 50 línur í blaðinu (17 dálksentimetrar). Tilvitnanir í sálma
eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar eru beðnir
að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
Minningargreinum þarf að fylgja formáli með upplýsingum um hvar og
hvenær sá sem fjallað er um er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um for-
eldra hans, systkini, maka og börn og loks hvaðan útförin verður gerð og
klukkan hvað. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum.
Frágangur afmælis-
og minningargreina
Ástkær faðir okkar, bróðir, tengdafaðir og afi,
HÖRÐUR BIRGIR VIGFÚSSON
kennari,
Bogahlíð 14,
Reykjavík,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans föstu-
daginn 20. desember.
Harpa Rut Harðardóttir, Sigurður H. Einarsson,
Ása Sigurlaug Harðardóttir, Pétur Thomsen,
Þórhildur Vigfúsdóttir,
Guðmundur Vigfússon,
Agnes Vigfúsdóttir,
Baldur Jón Vigfússon,
og barnabörn