Morgunblaðið - 22.12.2002, Síða 49
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. DESEMBER 2002 49
ÞEGAR hér er komið, erég orðinn dálítið þreytt-ur á gasprinu í jóla-sveinunum. Aðallegaþeim, sem eru með
kaupmanninn á bakinu, í pokanum.
Ég á ekki að láta það pirra mig, en
einhvern veginn læðist tilfinningin
samt inn í hugskotið og tekur sér
þar bólfestu og vekur upp þessa
gremju. Og kannski ekkert skrýt-
ið.
Trúlega má rekja þann sið krist-
inna manna, að gefa jólagjafir, til
vitringanna eða stjörnuspeking-
anna eða konunganna í fyrndinni.
Þannig hafa menn viljað minnast
atburðanna í fjárhúsinu, og um leið
endurvekja þann gleðianda, sem
hefur verið þar ríkjandi jólanóttina
fyrstu. Þessi siður mun þó ekki
hafa tíðkast að ráði meðal almenn-
ings á Íslandi fyrr en í lok 19. ald-
ar. Þá voru gjafirnar öllu snaut-
legri en nú þekkist, kerti og spil,
húfa eða trefill. Eða hörpudiskur
og gimburskel, eins og segir í ljóði
Benedikts Gröndal, Magga litla og
jólin hennar.
En þrátt fyrir lítil efni var gleðin
þó til staðar. Í dag, um hundrað ár-
um síðar, er sama hugarfar að baki
gjöfunum: óskin um að gleðja við-
komandi. Og það er gott. En þegar
auglýsingaskrumið er komið á það
stig, að enginn eigi að geta haldið
jól, nema keypt sé allt það nýjasta,
besta og dýrasta á torginu, erum
við komin á miklar villigötur.
Gull, reykelsi og myrra voru
reyndar það, sem öllu tók fram í
slíku á 1. öld e. Kr. og þar um
kring. En þá er rétt að minnast
þess líka, að tilefnið var einstakt í
mannkynssögunni, afmælisbarnið
sjálfur lávarður heimsins. Og gef-
endurnir engir fátækir púlsmenn,
heldur mikil efnastétt.
Við ættum frekar að taka okkur
hirðana til eftirbreytni.
Víst eru auðmenn til á Íslandi
samtímans, og þeir margir; al-
menningur er þó að stærstum
parti í ætt við hina.
En því miður er hægt að æsa
fólk upp í nánast hvað sem er, ef
rétt er að málum staðið. Eða er
ekki enn í fersku minni æðið sem
gekk um landið fyrir einum eða
tveimur áratugum, þar sem bíl-
skúrshurðaopnarar voru í kastljós-
inu? Og hver er búinn að gleyma
fótanuddtækjunum? Og öllu hinu,
sem átti að vera ómissandi hugs-
andi fólki?
Já, sálfræði markaðarins er
slyng.
Mest fer í taugarnar á mér þeg-
ar gengið er út frá því, að við-
skiptavinurinn sé heimskur. Það
má sjá í ýmsum bæklingum sem
inn um lúguna hafa streymt að
undanförnu. Þar eru vörurnar oft-
ar en ekki á 990, 1.990, 2.990
o.s.frv., að ég tali nú ekki um
skömmina, þegar munar einni
krónu í tæsta tug, hundrað eða
þúsund.
Ætli sé ekki hlegið á bak við þil-
ið?
Sjálfur féll ég í þessa gryfju eitt
sinn, var ráðlagt að verðleggja
bók, sem ég ritaði og gaf út, með
þessum hætti, og fylgdi því, enda
kunnáttumenn þar á ferð. En ein-
hvern veginn fannst mér þetta lúa-
legt, var ekki sáttur, og rúnnaði
þetta síðar af. Í dag geri ég mér far
um að kaupa ekki af þeim versl-
unum og fyrirtækjum, sem eru á
þessum buxunum.
Neyslusukk á ekki heima í krist-
inni trú, ef allt er með felldu.
En nú eru flestir að sjálfsögðu
búnir að ganga frá jólagjöfum
þessa árs, hafandi kannski látið
undan einhverjum gylliboðanna
eða öðrum þrýstingi. Þá er bara að
taka því. Jólin koma aftur. Í milli-
tíðinni er hollt að rifja upp tilefnið,
að það var fæðing sonar Guðs á
jörð, veiting yls inn í land kuldans,
ljóss inn í dal skugganna. Og það
sem aldrei má gleymast, er, að ríki
hans er andlegt. Með það í huga
sést glöggt, hvað nútíminn er í
mörgu tilliti kominn langt frá upp-
hafinu. Jólasveinarnir, sem að
hluta til eru komnir af sánkti Niku-
lási biskupi frá Mýru í Litlu-Asíu,
hafa fyrir löngu svikið það mottó,
sem honum var kærast, flestir
a.m.k., og eru orðnir svo margir,
hávaðasamir og glysgjarnir, að
Jesúbarnið líður fyrir það, verður
undir í þeim mammons darraðar-
dansi. Og slíkt auðvitað gengur
ekki.
Það er dálítið merkilegt, að ég
segi ekki táknrænt, að 25. desem-
ber skuli fyrsti jólasveinninn
hverfa úr byggð og svo hinir næstu
daga á eftir. Það er engu líkara en
að þeir átti sig loks á hinu sanna,
að þeim sé hér ofaukið. Að þeir
skynji, að einkasonur Guðs eigi að
vera og sé í brennidepli á þeirri há-
tíð sem framundan er, en þeir ekki;
að hann sé ofjarl þeirra, kóróna
jólanna og höfuðdjásn, einn
stjarna þessara heilögu daga. Og
þeir víkja, einn af öðrum, Grýlu-
synir, og hverfa í myrkrið.
Það sem ég hef verið að reyna að
segja er þetta: Jólin eru hátíð trú-
ar, (skynsamlegra) gjafa og mikils
kærleika, hátíð fæðingar og nýs
lífs, hátíð vonarinnar og gleðinnar
yfir ljósi sem kviknaði, hátíð kon-
ungs, sem lagður var í jötu lágt.
Megi andi þeirra ná að fylla sér-
hvert hjarta, og umvefja það og
blessa héðan í frá og að eilífu.
Gleðileg jól!
Morgunblaðið/Golli
Lávarður heims
Þetta er að bresta á, ljóssins hátíð er innan
seilingar, einungis nokkrir klukkutímar í
aðfangadag. Sigurður Ægisson fagnar því,
að kaupmenn geri senn andartakshlé á
annars látlausum auglýsingum.
sigurdur.aegisson@kirkjan.is
HUGVEKJA
Staður Nafn Sími 1 Sími 2
Akranes Jón Helgason 431 1347 431 1542
Akureyri Skrifstofa Morgunblaðsins 461 1600
Bakkafjörður Stefnir Elíasson 473 1672
Bifröst Bára Rúnarsdóttir 435 0054
Bíldudalur Pálmi Þór Gíslason 456 2243
Blönduós Gerður Hallgrímsdóttir 452 4355 868 5024
Bolungarvík Nikólína Þorvaldsdóttir 456 7441 867 2965
Borgarnes Þorsteinn Viggósson 437 1474 898 1474
Breiðdalsvík María Jane Duff 475 6662
Búðardalur Anna María Agnarsdóttir 434 1381
Dalvík Halldór Reimarsson 466 1039 862 1039
Djúpivogur Sara Dís Tumadóttir 478 8161 847 5572
Egilsstaðir Páll Pétursson 471 1348 471 1350
Eskifjörður Björg Sigurðardóttir 476 1366 868 0123
Eyrarbakki R. Brynja Sverrisdóttir 483 1513 699 1315
Fáskrúðsfjörður Jóhanna Sjöfn Eiríksdóttir 475 1260/853 9437/475 1370
Flateyri Hjördís Guðjónsdóttir 456 7885
Garður Álfhildur Sigurjónsdóttir 422 7310 846 8123
Grenivík Ólína H. Friðbjarnardóttir 463 3131
Grindavík Kolbrún Einarsdóttir 426 8204 426 8608
Grímsey Ragnhildur Hjaltadóttir 467 3148
Grundarfjörður Bjarni Jónasson 438 6858/854 9758/894 9758
Hella Brynja Garðarsdóttir 487 5022 895 0222
Hellissandur/Rif Lára Hallveig Lárusdóttir 436 6889/436 1291/848 1022
Hnífsdalur Auður Yngvadóttir 456 5477 893 5478
Hofsós Bylgja Finnsdóttir 453 7418 893 5478
Hólmavík Ingimundur Pálsson 451 3333 893 1140
Hrísey Siguróli Teitsson 466 1823
Húsavík Bergþóra Ásmundsdóttir 464 1086 893 2683
Hvammstangi Gunnar Þorvaldsson 451 2482 892683
Hveragerði Imma ehf. 483 4421 862 7525
Hvolsvöllur Helgi Ingvarsson 487 8172/893 1711/853 1711
Höfn Ranveig Á. Gunnlaugsdóttir 478 2416 862 2416
Innri-Njarðvík Eva Gunnþórsdóttir 421 3475 862 3281
Ísafjörður Auður Yngvadóttir 456 5477 893 5478
Keflavík Elínborg Þorsteinsdóttir 421 3463 896 3463
Kirkjubæjarkl. Birgir Jónsson 487 4624 854 8024
Kjalarnes Haukur Antonsson 566 8378 895 7818
Kópasker Hrönn Guðmundsdóttir 465 2112
Laugarás Jakop Antonsson 486 8983
Laugarvatn Berglind Pálmadóttir 486 1129 865 3679
Neskaupstaður Sólveig Einarsdóttir 477 1962 848 2173
Ólafsfjörður Árni Björnsson 466 2347 866 7958
Ólafsvík Laufey Kristmundsdóttir 436 1305
Patreksfjörður Björg Bjarnadóttir 456 1230
Raufarhöfn Alda Guðmundsdóttir 465 1344
Reyðarfjörður Guðmundur Fr. Þorsteinsson 474 1488/892 0488/866 9574
Reykholt Bisk. Guðmundur Rúnar Arneson 486 8797
Reykhólar. Ingvar Samúelsson 434 7783
Reykjahlíð v/Mýv. Margrét Hróarsdóttir 464 4464
Sandgerði Sigurbjörg Eiríksdóttir 423 7674 895 7674
Sauðárkrókur Ólöf Jósepsdóttir 453 5888 862 2888
Selfoss Jóhann Þorvaldsson 482 3375 899 1700
Seyðisfjörður Margrét Vera Knútsdóttir 472 1136 863 1136
Siglufjörður Sigurbjörg Gunnólfsdóttir 467 1286 467 2067
Skagaströnd Þórey og Sigurbjörn 452 2879 868 2815
Stokkseyri Kristrún Kalmansdóttir 867 4089
Stykkishólmur Erla Lárusdóttir 438 1410 690 2141
Stöðvarfjörður Sunna Karen Jónsdóttir 475 8864
Suðureyri Tinna Sigurðardóttir 456 6244
Súðavík Ingibjörg Ólafsdóttir 456 4936
Tálknafjörður Sveinbjörg Erla Ólafsdóttir 456 2676
Varmahlíð Ragnar Helgason 453 8134 867 9649
Vestmannaeyjar Jakobína Guðlaugsdóttir 481 1518 897 1131
Vík í Mýrdal Hulda Finnsdóttir 487 1337 869 7627
Vogar Hrönn Kristbjörnsdóttir 424 6535 557 5750
Vopnafjörður Svanborg Víglundsdóttir 473 1289 473 1135
Ytri-Njarðvík Eva Gunnþórsdóttir 421 3475 821 3475
Þingeyri Þór Lini Sævarsson 456 8353
Þorlákshöfn Ragnheiður Hannesdóttir 483 3945 483 3627
Þórshöfn Ragnheiður Valtýsdóttir 468 1249
Dreifing Morgunblaðsins
Hér eru upplýsingar um þá sem dreifa blaðinu á landsbyggðinni
Húfur - um jólin
Brekka húfur frá 1.290 kr.
Brekka vettlingar frá 1.490 kr.
Smáralind - Glæsibæ
Simi 545 1550 og 545 1500
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
TI
1
94
42
12
/2
00
2
Á JÓLADAG verður hægt að kaupa
hádegismat hjá Félagsþjónustunni á
Lindargötu 59 í Reykjavík, en þar er
til húsa félagsmiðstöð, þjónustuíbúð-
ir og síðast en ekki síst öflugt fram-
leiðslueldhús. Þar er seldur heitur
matur í hádeginu alla daga ársins,
frá kl. 11.30 til 12.30. Allir eru vel-
komnir og kostar málsverðurinn 400
til 600 krónur.
Á matseðlinum á jóladag verður
hangikjöt með laufabrauði og til-
heyrandi, eftirréttur og smákökur
og konfekt með kaffinu, segir í
fréttatilkynningu.
Hangikjöt á
jóladag
DREGIÐ hefur verið úr hópi þátt-
takenda sem tóku þátt í gönguverk-
efni Ungmennafélags Íslands ,,Fjöl-
skyldan á fjallið“.
Í byrjun sumars var póstkössum
með gestabókum komið fyrir á
átjan fjöllum um land allt og fjöl-
skyldufólk hvatt til að fara í fjall-
göngu og skrá nöfn í bækurnar.
Landsmenn tóku vel þessari áskor-
un og rúmlega fjögur þúsund
göngumenn skráðu nöfn sín í gesta-
bækurnar.
Langflestir göngugarpanna
gengu á Eldfell í Vestmannaeyjum
og Eyjuna í Ásbyrgi en Búrfell í
Grímsnesi, Súlur í Eyjafirði og
Hekla voru einnig vinsæl. Formað-
ur umhverfissviðs UMFÍ, Ásdís
Helga stjórnaði drættinum og naut
við það dyggrar aðstoðar Helgu
Guðjónsdóttur, varaformanns
UMFÍ og Önnu Möller stjórnar-
manns UMFÍ.
Hinir heppnu göngugarpar sem
dregnir voru úr pottinum eru Börk-
ur Birgisson, Bigir Haraldsson -
Vík í Mýrdal, Ingólfur Pétursson
Hvítafelli, Una Þórey Sigurð-
ardóttir Akureyri, Kristján Ingi
Einarsson Reykjavík, Hjördís Bára
Steingrímsdóttir, Kristín G. Jó-
hannsdóttir - Ólafsvík, Þórey Linda
Haraldsdóttir Ingþór Bjarnason og
Guðbjörn Olsen Jónsson. Vinnings-
hafar hljóta 10.000 króna vöruút-
tekt í versluninni Everest í Reykja-
vík.
Vinningshafar fá gjafabréfið af-
hent í Þjónustumiðstöð UMFÍ í
Reykjavík eða hafi samband við
Þjónustumiðstöð UMFÍ. Fjöl-
skyldan á fjallið er verkefni sem
Ungmennafélag Íslands mun halda
áfram með á næsta ári ásamt verk-
efninu Göngum um Ísland.
Flestir gengu
á Eddufell og
Eyjuna