Morgunblaðið - 22.12.2002, Blaðsíða 57
STÆRSTA rokksveit í heimi stend-
ur á vissum tímamótum um þessar
mundir. Hún gerir upp fortíð sína,
leggur á borðið það vinsælasta sem
hún hefur sent frá sér og býður okk-
ur að vega það og meta, lög sem öll
eiga það sameiginlegt að vera flest-
um kunn, eru svo fjarri okkur í tíma
en nærri í minningunni.
Í haust kom út önnur safnplata
sveitarinnar sem inniheldur vinsæl-
ustu lög U2 á árunum 1990–2000 og
líkt og hefð er nú að verða þá fylgdi
mynddiskur, svo til með sömu lög-
um, ekki langt á eftir. Hluti af því
sem haldið hefur svo lengi lífi í U2
eru hinar stöðugu endurnýjanir, sem
fyrst og fremst eru tilkomnar vegna
listræns rótleysis Bono og Edge.
Þessa rótleysis, þessara stöðugu
breytinga, ekki bara á tónlistinni,
heldur öllum öðrum áherslum eins
og klæðnaði, stíl og ímynd er hvað
best að greina á myndböndum sveit-
arinnar. Öll hafa þau verið unnin af
nokkrum af þeim virtustu í faginu,
eins og Kevin Godley, Stephane
Sednaoui, Maurice Linnane og hirð-
stílista þeirra, ljósmyndaranum Ant-
on Corbijn en einnig hafa U2 menn
orðið þess heiðurs aðnjótandi, eða öf-
ugt, að hafa fengið Wim Wenders til
að gera fyrir sig myndband („Stay
(Faraway So Close)“). Þótt þau séu
misjafnlega vel heppnuð, eru inn á
milli nokkur af þeim eftirminnileg-
ustu frá umræddum áratugi, eins og
t.d. ofureinfalt en áhrifaríkt mynd-
band Corbijns við „One“ þar sem
buffalóar hlaupa í hægmynd allan
tímann. Aukalega eru síðan nokkrar
stuttar heimildarmyndir og umsagn-
ir frá leikstjórum myndbandanna.
Bestu lög U2 1990–2000 á mynddiski
Meðlimir U2 hafa löngum þótt hafa auga fyrir hinu myndræna eins og tón-
leikar þeirra gefa glöggt til kynna.
Svo fjarri svo nærri
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. DESEMBER 2002 57
Laugavegi 54, sími 552 5201
ÓL Í FLASH
Hálfsíðar
ullarkápur
áður 12.990
nú 9.990
Stærðir 36-48
Listhúsinu, Engjateigi 17-19 Síminn er: 552 5540
bokabud@simnet.is
LANG ÓDÝRASTA
BÓKABÚÐIN
Opið til 22 í kvöld
og 23 annað kvöld.
RÚNAR Freyr Gíslason er einn
hinna sex leikara, sem eiga eftir að
svipta sig klæðum annan í jólum
þegar söngleikurinn Með fullri
reisn verður frumsýndur á Stóra
sviðinu í Þjóðleikhúsinu.
Já, þeir ætla að fara úr hverri
einustu spjör enda leika þeir at-
vinnulausa stálsmiði frá tilbúna
landsbyggðarþorpinu Hafnarvík,
sem fá þá hugmynd að slá karl-
strippurum að sunnan við og halda
eigin nektarsýningu. „Þeir grípa til
þessa örþrifaráðs enda búnir að
vera lengi atvinnulausir,“ segir
Rúnar Freyr.
Hann leikur hinn fráskilda Gunn-
laug Leifsson í leikritinu, sem á 12
ára son er hann getur ekki umgeng-
ist eins mikið og hann vill því hann
getur ekki greitt meðlagið.
En hvernig skyldi hafa gengið
hjá leikurunum og tilvonandi nekt-
ardönsurum í líkamsræktinni? „Við
erum meira eins og í myndinni. Við
erum þarna, förum í pottinn og
slökum á. Það er ekki síður mikil-
vægt að vera alveg rólegur og vel
upplagður þegar maður fer úr öll-
um fötunum á Stóra sviðinu,“ út-
skýrir hann og segir að andlegi
þátturinn sé nokkur hindrun í
strippferlinu.
„Þegar við vorum að æfa þetta í
fyrsta skipti var ekki búið að æfa
ljósin þannig að við stóðum þarna
berir í algjörri dagsbirtu,“ segir
Rúnar Freyr.
Hann segir þó að sexmenning-
arnir hafi framan af verið í nærbux-
unum á æfingum en ekki farið úr
öllu. „Svo kom að þessu í vikunni.
Við þurftum að fara að kýla á þetta.
Starfsfólk Þjóðleikhússins hefur
fengið að sjá þetta hingað til. Svo
komast almennir áhorfendur í her-
legheitin annan í jólum.“
Hann segir þetta ennþá erfitt og
finnur hraðan hjartslátt við að fara
úr fötunum. „En fyrsta skiptið er
alltaf erfiðast.“
Einnig er dansað í söngleiknum.
„En þetta eru allt stálsmiðir. Þeir
mega alveg vera lélegir. Það var
dálítið annað í Syngjandi í rigning-
unni þegar ég átti að vera Gene
Kelly og þurfti að læra að steppa.
Dansinn á að vera heimatilbúinn.
Þeir semja dansinn sjálfir.“
Sexmenningarnir standa því á
sviðinu eins og þeir koma til dyr-
anna. „Við erum þarna, feitir og
mjór, hvítir og brúnir, bara eins og
við erum. Við förum í líkamsrækt til
að ná upp þoli. Þessir menn eiga
ekki að vera nein vöðvabúnt eins og
strippararnir að sunnan,“ segir
Rúnar Freyr.
Hann óttast ekki svefnlausar næt-
ur yfir jólin af ótta við fyrirhugaða
nekt. „Ég held ég verði tiltölulega
rólegur þegar ég borða jólasteik-
ina. Það gengur líka allt vel. Þetta
er svo skemmtilegt handrit.“
Rúnar Freyr segist ekki halda að
konur hafi endilega meira gaman af
nektarsýningunni í leikritinu en
karlar. „Ég held að karlarnir eigi
allavega eftir að hlæja meira að
okkur. Við erum eins og fífl þarna,“
segir hann og bætir við hlæjandi:
„Fólk verður ekki fyrir von-
briðgum,“ og má ætla að strákarnir
geti staðið fyrir sínu.
Söngleikurinn er eftir Terrence
McNally og David Yazbek og er að
sjálfsögðu byggður á hinni vinsælu
kvikmynd The Full Monty.
Æfingar standa yfir á Með fullri reisn í Þjóðleikhúsinu
Morgunblaðið/Golli
Strákarnir rækta bæði sálina og líkamann í Planet Reykjavík. Sexmenn-
ingana leika Rúnar Freyr Gíslason, Baldur Trausti Hreinsson, Kjartan
Guðjónsson, Ólafur Darri Ólafsson og Atli Rafn Sigurðarson en á myndina
vantar Arnar Jónsson.
Úr hverri
spjör
Söngleikurinn Með fullri reisn verð-
ur frumsýndur á Stóra sviðinu í
Þjóðleikhúsinu annan í jólum.
TVÆR af ástsæl-
ustu myndum
Ágústs Guð-
mundssonar
kvikmyndagerð-
armanns voru á
dögunum gefnar
út á mynddiskum
í fyrsta sinn. Eru
þær hans nýjasta,
verðlaunamyndin
Mávahlátur og
hans vinsælasta,
metaðsókn-
armyndin Með
allt á hreinu.
Mávahlátur
fékk góðar viðtökur er hún var sýnd
hérlendis á síðasta ári og sópaði að
sér helstu Eddu-verðlaununum. Hún
hefur einnig hlotið allnokkur verð-
laun á erlendum hátíðum; Ugla Eg-
ilsdóttir valin besta leikkonan á Kar-
lovy Vary hátíðinni tékknesku og nú
á dögunum hlaut myndin dómnefnd-
arverðlaun á Norrænu kvik-
myndahátíðinni í Lübeck í Þýska-
landi. Búið er að selja myndina í
myndbanda- og mynddiskadreifingu
til Bandaríkjanna og helstu sjón-
varpsstöðvar í Evrópu hafa að auki
keypt sýningarrétt á henni.
Á mynddiskinum er auk mynd-
arinnar ítarefni á borð við ónotuð
atriði, svipmyndir frá tökum, sýn-
ishorn og ljósmyndir.
Í ár eru liðin 20 ár síðan með allt á
hreinu var frumsýnd og þótti því við
hæfi að fagna áfanganum með veg-
legri mynddiskaútgáfu.
Auk myndarinnar er þar að finna
ítarefni á borð við hreint óborg-
anlega fyndnar viðræður helstu að-
standenda um myndina, tilurð henn-
ar og allar þessa ódauðlegu frasa,
ljósmyndaalbúm, gagnrýni og síðast
en ekki síst nýja heimildarmynd eft-
ir Ragnar Bragason sem kallast Óð-
ur til Með allt á hreinu, en þar reyn-
ir Ragnar að varpa ljósi á snilldina á
bak við myndina og þau djúpu áhrif
sem hefur haft á landsmenn í gegn-
um tíðina. Ef að líkum lætur eru
margir sem telja útgáfu þessa tíma-
bæra mjög því á ófáum heimilum er
til útjaskað myndband sem löngu er
komið á síðasta snúning enda mynd-
in fræg fyrir að vera ein af þesssum
örfáu sem virðist vera hægt að horfa
endalaust á.
Með allt á
hreinu og
Mávahlátur á
mynddiski
Stuðmannamyndin
eina og sanna er
komin á mynddisk.
Ugla Egilsdóttir
sló í gegn fyrir
túlkun sína á Öggu.