Morgunblaðið - 22.12.2002, Page 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 SUNNUDAGUR 22. DESEMBER 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
AÐSTAÐA fyrir þá sem stunda sjóböð
úti fyrir Seltjarnarnesi var tekin í notk-
un í gær af Jónmundi Guðmarssyni bæj-
arstjóra. Seltjarnarnesbær varð vel við
þeirri beiðni Björns Rúrikssonar,
athafnamanns og sundkappa, sem ásamt
fleirum hefur stundað þarna sjóböð, að
koma upp skýli við ströndina til að
þurrka af sér áður en farið er í heitu
pottana í sundlaug Seltjarnarness.
Björn, annar f.h. á efri myndinni, sagði
við Morgunblaðið að skýlið væri mikið
fagnaðarefni og viðbrögð bæjarins til
mikillar fyrirmyndar. Með Birni eru, f.v.,
Björn Ásgeir Guðmundsson, Jón Otti
Gíslason og Kristinn Magnússon. Síðar
kom Jóhannes Þórðarson til liðs við þá.
Hér til hliðar óska Björn og Jónmundur
hvor öðrum til hamingju með skýlið en
skálað var í nýmjólk í tilefni dagsins.
Morgunblaðið/Kristinn
Sundkappar fá aðstöðu
SAMKEPPNISRÁÐ hefur mælt fyrir
um fjárhagslegan aðskilnað ákveðinna
rekstrarþátta hjá Golfklúbbi Reykjavík-
ur og Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði.
Verða klúbbarnir frá áramótum að skilja
að fjárhag sinn, annars vegar á milli
þeirrar starfsemi sem er í samkeppni við
einkaaðila og hins vegar starfsemi sem
tengist íþróttastarfsemi þeirra.
Úrskurðurinn er kveðinn upp vegna
kvörtunar Garðlistar ehf. til Samkeppn-
isstofnunar um að hún kanni hvort útboð
Innkaupastofnunar Reykjavíkur á garð-
slætti á íþróttavöllum í Reykjavík og
samningar við GR brjóti í bága við sam-
keppnislög. Einnig var vakin athygli á
samningi bæjarsjóðs Hafnarfjarðar og
Keilis um slátt á grasvöllum Hvaleyr-
arholtsvallar í eigu klúbbsins og einnig
um slátt á völlum íþróttafélaganna í
bænum.
Verða golfklúbbarnir m.a. að stofna
sérstaka einingu um rekstur þeirrar
þjónustu sem er og verður á samkeppn-
ismarkaði. Þá skulu öll viðskipti milli
samkeppniseiningarinnar og annarrar
starfsemi golfklúbbanna verðlögð á
markaðsverði eins og um viðskipti milli
óskyldra aðila væri að ræða, en umrædd-
ir golfklúbbar fá einnig styrki frá sveit-
arfélögum.
Stofni
fyrirtæki
um garðslátt
MISJAFNT er hvernig tekið er á um-
sóknum kvenna um fóstureyðingar innan
heilbrigðiskerfisins. Á kvennadeild Land-
spítalans er fylgt þeirri meginreglu að
synja umsóknum um fóstureyðingu ef
meðgangan er komin yfir 12 vikur og
bjóða konum að áfrýja úrskurðinum til
lögskipaðrar eftirlits- og áfrýjunarnefnd-
ar.
Sú nefnd synjar þó ekki umsóknum
milli tólftu og sextándu viku, að sögn
Guðrúnar Ögmundsdóttur, þingmanns og
fulltrúa félagsráðgjafa í nefndinni, sem
einnig er skipuð lækni og lögfræðingi.
Hún segir að með synjuninni á kvenna-
deild sé verið að búa til þröskuld fyrir
konuna, sem knýi hana til frekari um-
hugsunar.
Anna Helgadóttir, kvensjúkdómalækn-
ir á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri,
segir að geti hún stutt umsókn konu, þá
sjái hún ekki ástæðu til að búa til þennan
þröskuld, að vísa umsókninni til nefndar,
þótt meðgangan sé orðin milli 12 og 16
vikur. Ekkert kveði á um það í lögum.
„Þannig að ég styð ekki þetta vinnu-
ferli hjá þeim,“ segir hún.
850 fóstureyðingar voru gerðar hér í
fyrra og vænta má að þær verði um 10%
færri á þessu ári.
Ólík meðferð
umsókna um
fóstureyðingu
Snertir allar/16
ÚTLIT er fyrir að hótelherbergj-
um í Reykjavík fjölgi um 20% á
næstu mánuðum, miðað við þær
framkvæmdir sem eru í gangi og
áætlað er að ljúki fyrir næsta sum-
ar. Í sumar var fjöldi herbergjanna
um 1.560 en fer væntanlega í tæp-
lega 1.900 með vorinu, samkvæmt
upplýsingum frá Samtökum ferða-
þjónustunnar. Er þá ótalin fjölgun
sem orðið hefur á gistiheimilum.
Að sögn Ernu Hauksdóttur,
framkvæmdastjóra Samtaka ferða-
þjónustunnar, hefur framboð á
gistirými hér á landi stöðugt verið
að aukast síðastliðin ár og líklegt að
sú þróun haldi áfram næstu árin.
Ljóst sé að þessi aukning kalli á
gríðarmikla markaðssetningu til að
fá viðunandi nýtingu á gistirýminu.
Samkvæmt bráðabirgðatölum
Hagstofunnar hefur heilsárshótel-
um á landinu fjölgað úr 54 í 58 á
þessu ári, eða um rúm 7% frá síð-
asta ári. Svipuð fjölgun herbergja
hefur átt sér stað, eða úr ríflega
2.600 herbergjum í fyrra í tæp
2.900 herbergi í ár. Framboð á
rúmum hefur hlutfallslega aukist
enn meir, eða um tæp 13%, og er
fjöldi rúma á hótelum nú ríflega
5.800.
Fjölmargt á teikniborðinu
Fjölgun hótelherbergja í
Reykjavík er aðallega tilkomin
vegna stækkunar Hótels Esju úr
172 í 284 herbergi. Þá stefnir Hótel
Plaza við Aðalstræti 4 að opnun í
maí nk. þar sem um 80 herbergi
verða í boði, Hótel Barón hefur
bætt við sig um 40 herbergjum og
svipaður herbergjafjöldi verður í
101 hótel í gamla Alþýðuhúsinu við
Hverfisgötu.
Erna Hauksdóttir minnir á að
fleiri áform um hótelbyggingar séu
komin á teikniborðin fyrir nánustu
framtíð. Má þar nefna hótel yfir
fornminjum sem fundist hafa á
horni Aðalstrætis og Túngötu, fyr-
irhugaða stækkun á Grand hóteli
úr 100 herbergjum í 300, gert er
ráð fyrir stóru hóteli í ráðstefnu- og
tónlistarhúsi á Miðbakka og þá eru
uppi áform um að breyta húsnæði
Kjörgarðs við Laugaveg í ríflega
100 herbergja hótel. Einnig hafa
hugmyndir komið fram um hótel-
byggingu við Kringluna.
Um 20% fjölgun
hótelherbergja JÖRUNDUR hundadagakóngur
Jörundarson skrifaði margt um ævi
sína en ekkert um ástir. Samt komu
konur mjög við hans sögu og þá eink-
um þrjár; ein íslenzk, önnur skozk,
sú þriðja írsk og henni giftist hann.
Í fanganýlendunni Tasmaníu
kynntist Jörundur írskri konu, sem
gerðist fyrst njósnari hans, síðan
ástkona og loks eiginkona.
Hjónabandið var bæði sukk- og
stormasamt, en lafði þó meðan bæði
lifðu, eða sem næst því.
Konur í lífi
hundadaga-
kóngsins
Drottning, mær/B1
VEÐURSTOFAN gerir ráð fyrir
rigningu víða um land um jólin
með suðaustlægri átt, allt að 13
metrum á sekúndu eða stinnings-
kalda. Þó verður úrkomulítið
norðanlands á morgun, Þorláks-
messu, og fram á jóladag. Har-
aldur Eiríksson veðurfræðingur
sagði við Morgunblaðið í gær að
útlit væri fyrir rauð jól um land
allt yfir hátíðirnar. Eftir því sem
liði á vikuna myndi kólna í veðri
en ómögulegt væri að segja til
um hvort snjókoma yrði um ára-
mótin.
Á annan í jólum spáir Veð-
urstofan suðvestlægri átt og
skúrum sunnan- og vestantil en
bjartviðri norðaustanlands. Á
föstudag er útlit fyrir austlæga
átt með vætu um landið sunn-
anvert en annars þurru veðri.
Spá fyrir hitastig er þannig að
milt verði í veðri fram á að-
fangadag, þriðjudag, en síðan
fari heldur kólnandi.
Útlit fyrir rauð jól
♦ ♦ ♦