Morgunblaðið - 09.05.2003, Side 8
FRÉTTIR
8 FÖSTUDAGUR 9. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Þeir verða aftur „sjómenn dáða drengir“ þegar þeir verða komnir með rúllur á bæði borð.
Vorsýningar í Gjábakka og Gullsmára
Félagsstarf í
stöðugri þróun
NÚ UM helginabjóða eldri borg-arar í Kópavogi
fólki að skoða þá fjöl-
breyttu vinnu sem unnin
hefur verið í vetur í fé-
lagsheimilunum Gjá-
bakka, Fannborg 8 og
Gullsmára, Gullsmára 13.
Sýningarnar verða opnar
báða daga helgarinnar frá
14 til 18 og verða smiðjur
í gangi klukkan 15 til 16 á
báðum stöðum á sama
tíma. Aðstandendur fé-
lagsstarfsins í Kópavogi
hafa lagt ríka áherslu á
virkni skjólstæðinga
sinna og hvetja fólk til að
koma og „sjá og sannfær-
ast um að lífið er ekki bú-
ið þegar launavinnu lýk-
ur“ eins og komist hefur
verið að orði. Morgunblaðið
ræddi við Þórhildi Gísladóttur,
leiðbeinanda á handavinnustofu
Gjábakka sem komið hefur að
undirbúningi sýninganna.
– Nú eru liðin tíu ár síðan fé-
lagsstarf aldraðra í Kópavogi hóf
starfsemi sína í Gjábakka, segðu
okkur frá þessum hátíðarhöld-
um.
„Já, það eru liðlega þrjátíu ár
síðan félagsstarf aldraðra í
Kópavogi hóf starfsemi sína en
síðastliðin tíu ár hefur það verið
rekið í félagsheimilinu Gjábakka,
Fannborg 8, og fimm ár eru síð-
an, eða frá árinu 1997, einnig í fé-
lagsheimilinu Gullsmára 13.
Að þessu sinni eru Vorsýning-
ar í félagsheimilunum í tengslum
við Menningardaga í Kópavogi
sem eru frá 3. til 11. mai. Vorsýn-
ingarnar verða í báðum fé-
lagsheimilunum. Í smiðjunum
sem verða í gangi samhliða getur
að líta fjölbreytta nytja- og
skrautmuni sem unnir eru af
hugviti og högum höndum eldra
fólks. Vöfflukaffi verður báða
dagana til sölu í Gullsmára en að-
eins laugardaginn í Gjábakka.
Gjábakki á tíu ára afmæli og
þar verður sölusýning opin frá
klukkan 14 á morgun. Á afmæl-
isdaginn sjálfan, sunnudaginn 11.
maí, verður boðið upp á fjöl-
skyldukaffi í Gjábakka. Starfs-
menn í eldhúsi ætla að baka
þriggja fermetra rjómatertu sem
gestir eru hvattir til að koma og
bragða á.“
– Að hvers frumkvæði hófst
þessi starfsemi á sínum tíma?
„Það var sveitarfélagið sem
hóf félagsstarf fyrir eldra fólk á
sínum tíma og hefur staðið
myndarlega að þessari starfsemi
alla tíð síðan.“
– Hvað hefur breyst í fé-
lagsstarfi aldraðra síðustu tíu ár-
in?
„Félagsstarf eldra fólks í
Kópavogi hefur verið og á að
vera í stöðugri þróun. Fé-
lagsstarfið byggist á hugmynda-
fræði þar sem ýtt er undir frum-
kvæði og virkni einstaklinga og
um leið er forsjá hafnað. Miklar
breytingar hafa orðið
á starfseminni. Nú er
fólk sem kemur inn í
félagsstarfið mun
heilsubetra en var fyr-
ir tíu árum og vill
gjarnan taka virkan
þátt, t.d. að leiða áhugahópa sem
geta starfað utan opnunartíma
félagsheimilanna. Þess vegna er
mun meiri fjölbreytni í starfsem-
inni en áður var, enda margir að
leggja í hugmyndabanka um
starfsemina.“
– Hvað er skemmtilegast við
að vinna með gamla fólkinu?
„Það er alltaf skemmtilegt að
vinna með eldra fólki. Það er
skemmtilegt og gefandi að sjá
hversu miklum framförum fólkið
nær þrátt fyrir háan aldur. Það
er líka mjög skemmtilegt að sjá
hversu fjölbreytt verkefni fólkið
velur sér og fyrir mig, að sjá hve
vandvirknin er mikil og nákvæm
vinna fólksins er í handavinnu-
stofunni.“
– Þú ert leiðbeinandi í handa-
vinnustofunni, hvað eruð þið
helst að bralla þar?
„Ég er ein af þremur leiðbein-
endum í handavinnustofum fé-
lagsheimilanna Gjábakka og
Gullsmára. Við vinnum allar í
hlutastarfi og aðstoðum eldra
fólk við að vinna að listsköpun
sinni, en í handavinnustofunum
er alþýðulistinni gerð góð skil,
svo sem að prjóna, hekla, sauma
t.d. harðangur og klaustursaum,
japanskan pennasaum. Málað er
á postulín og gler, búnir til skart-
gripir úr silfri svo eitthvað sé
nefnt. Vefnaður er einnig mikill
og fjölbreyttur bæði í vefstólum
og einnig listvefnaður í ramma.
Þá eru mörg glerlistaverk einnig
á sýningunni.“
– Hvað er svo fleira á dagskrá
í félagsheimilunum á næstunni?
„Það væri nú kannski rétt að
spyrja forstöðumanninn um það.
Ég veit þó að til stendur að vera
með Ávaxta- og grænmetisdag í
Gjábakka 15. maí þar sem ýtt er
undir neyslu fólks á hollum mat.
Einnig veit ég að sumarfagnaður
er fyrirhugaður í Gullsmára 21.
maí. Nú, svo verður hefðbundin
kynning á sumarstarfseminni 22.
maí í Gjábakka, en sumarstarf-
semin einkennist af útiveru og
ferðalögum. Svo er bara að fylgj-
ast með dagbókunum
og líta á upplýsinga-
töflur í anddyrum fé-
lagsheimilanna og
fylgjast með hvað er á
döfinni hverju sinni.
Það er alltaf eitthvað
að gerast.“
– Þið eigið væntanlega von á
góðri þátttöku í hátíðarhöldun-
um?
„Já, við eigum von á því. Í
fyrra komu liðlega tvö þúsund
manns á sýningarnar og nú er
boðið til afmælisveislu svo við
eigum von á að fjöldi manns líti
inn þessa helgi.
Þórhildur Gísladóttir
Þórhildur Gísladóttir er fædd
á Eyrarbakka 18. mars 1943.
Þórhildur nam hárgreiðslu og
byrjaði að vinna í félagsstarfinu í
því fagi, en hefur unnið sem leið-
beinandi í handavinnu frá 1989,
Hún hefur sótt fjölmörg nám-
skeið í faginu. Þórhildur er gift
Einari Kjartanssyni og eiga þau
fjögur börn.
Félagsstarfið
byggist á því
að ýtt sé und-
ir frumkvæði
STURLA Böðvarsson, samgöngu-
ráðherra og forsvarsmenn sveitarfé-
laganna fimm á Snæfellsnesi, und-
irrituðu í gær samstarfssamning um
umhverfisvænni ferðaþjónustu á
Snæfellsnesi. Samningaviðræður
hafa staðið yfir síðan í haust. Þær
viðræður hafa snúist um þá stefnu
sveitarfélaganna að gera Snæfells-
nes að sjálfbærum og umhverfis-
vænum áfangastað í ferðaþjónustu
og leita eftir umhverfisvottun á hann
frá Green Globe 21, en þau samtök
eru stærstu samtök í heimi sem
votta umhverfisvæna ferðaþjónustu.
Í huga flestra sem að þessu máli
hafa unnið var stórum áfanga náð
þegar samstarfssamningurinn var
undirritaður í gær. Með honum
tryggir samgönguráðuneytið þessu
verkefni ákveðið fjármagn sem mót-
framlag við það fjármagn sem sveit-
arfélögin sjálf leggja fram.
Samgönguráðuneytið styrkir
verkefnið ekki bara með beinu fjár-
framlagi heldur býður jafnframt upp
á faglega ráðgjöf frá Vegagerð og
Ferðamálaráði. Í því tilviki munu
þær rannsóknir sem Ferðamálaráð
hefur unnið koma að góðum notum,
svo og aðstoð og ráðgjöf Vegagerð-
arinnar við merkingar, útsýnisstaði
og ýmislegt fleira.
Sjálfbært Ísland
Samgönguráðherra sagði meðal
annars í ræðu sinni að með þessu
verkefni væri verið að fylgja stefnu
Sjálfstæðisflokksins, sem fyrir þess-
ar kosningar gerði það eitt af helstu
stefnumálum sínum að Ísland yrði á
næstu 20 árum fyrsta sjálfbæra
þjóðfélagið öðrum til fyrirmyndar.
Samgönguráðherra sagði að þar
sem ferðaþjónusta væri ein mest
vaxandi atvinnugrein í heiminum í
dag þyrfti að undirbúa ferðamanna-
svæðin á markvissan máta með
skipulagi og stefnumótun sem fylgt
væri fast eftir. Því væri þetta verk-
efni á Snæfellsnesi kærkomið tæki-
færi til að ýta úr vör undirbúningi að
starfi sem væntanlega ætti eftir að
vera unnið á öllum ferðamannastöð-
um á landinu í komandi framtíð.
Framsýnir
sveitarstjórnarmenn
Þau Benedikt Benediktsson, odd-
viti Helgafellssveitar, Björg Ágústs-
dóttir, bæjarstjóri Grundarfjarðar-
bæjar, Guðbjartur Gunnarsson,
oddviti Eyja- og Miklaholtshrepps,
Kristinn Jónasson, bæjarstjóri Snæ-
fellsbæjar, og Óli Jón Gunnarsson,
bæjarstjóri Stykkishólmsbæjar, líta
á þetta verkefni sem verulegan
stuðning við vaxandi ferðaþjónustu á
Snæfellsnesi. Að minnsta kosti þrjú
þessara sveitarfélaga starfa nú þeg-
ar að Staðardagskrá 21 en hún er
grunnurinn að sjálfbærni í ferða-
þjónustu sem og á öðrum sviðum.
Þau hafa því reynslu af þeim verk-
efnum sem framundan eru.
Forsvarsmenn sveitarfélaganna
eru sammála um að þetta verkefni
nýtist ekki bara ferðaþjónustunni á
Snæfellsnesi, heldur einnig öðrum
atvinnugreinum því vottunin komi til
með að verða gæðamerki fyrir svæð-
ið og þá starfsemi sem þar fer fram.
Jafnframt telja þeir að vottunar-
verkefnið muni bæta ímynd svæðis-
ins sem ferðamannasvæðis og opna
fyrir ýmis ný tækifæri og leiðir í
rekstri sveitarfélaganna sem menn
hafi ekki komið auga á hingað til.
Samstarfsverkefni innlendra
og erlendra aðila
Undirbúningur á þessu verkefni á
Snæfellsnesi verður í höndunum á
erlendum ráðgjöfum sem Green
Globe 21 leggur til og íslensks teym-
is. Það teymi skipa Stefán Gíslason
umhverfisstjórnunarfræðingur, sem
jafnframt er verkefnisstjóri Staðar-
dagskrár 21 á Íslandi, Guðrún G.
Bergmann, ferðamálafræðingur
dipl., og Guðlaugur Bergmann, verk-
efnisstjóri Staðardagskrár 21 í Snæ-
fellsbæ, auk annarra ráðgjafa sem að
því koma. Áætlað er að undirbúning-
ur að verkefninu taki um sex mánuði,
en að því loknu er stefnt á úttekt og
vottun frá Green Globe 21. Því má
reikna með að snemma árs 2004
verði fyrsta sjálfbæra og umhverf-
isvæna ferðamannasvæðið á Íslandi
vottað.
Snæfellsnes verður gert að umhverfisvænum áfangastað
Þykir marka tímamót
í ferðaþjónustunni
Morgunblaðið/Guðrún Bergmann
Forsvarsmenn sveitarfélaganna fimm á Snæfellsnesi og samgöngu-
ráðherra með undirritaðan samstarfssamning, Óli Jón Gunnarsson, Bene-
dikt Benediktsson, Sturla Böðvarsson með samninginn, Björg Ágústs-
dóttir, Kristinn Jónasson og Guðbjartur Gunnarsson.
Hellnum. Morgunblaðið.