Morgunblaðið - 09.05.2003, Blaðsíða 12
FRÉTTIR
12 FÖSTUDAGUR 9. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra
gerði minnkun fylgis Sjálfstæðis-
flokksins í könnunum Gallup að
umræðuefni á hverfisfundi flokks-
ins í Rimaskóla í gærkvöldi. Davíð
sagði að flokkurinn þyrfti bersýni-
lega á meiri stuðningi að halda til
að öruggt væri að að vinstri stjórn
tæki ekki við völdum. „Það er mikið
í húfi eftir tvo daga.“
Fundurinn hófst með því að
myndband var sýnt af uppbyggingu
Grafarvogs á þeim tíma er Davíð
Oddsson var borgarstjóri í Reykja-
vík. Davíð sagðist hrærður yfir
myndbandinu, talaði á nokkuð per-
sónulegum nótum í framhaldinu og
sagði frá tíðum sunnudagsbíltúrum
í þetta nýja hverfi.
Davíð vakti máls á minnkandi
skuldum ríkisins, á meðan skuldir
Reykjavíkurborgar hefðu hækkað
að hans sögn. Hann sagði að þar
sem svo vel hefði gengið að greiða
niður skuldir erlendis væri Ísland
nú komið með jafngott lánstraust
og Bandaríkin. Hann sagði ríkis-
sjóð hafa verið rekinn með afgangi
mörg ár í röð auk þess sem vinnu-
friður hefði batnað þar sem verk-
föll væru ekki eins tíð og áður, að
hans sögn vegna hagstæðari samn-
inga og fleiri langtímasamninga.
„Níu ár í röð hefur kaupmáttur
aukist,“ sagði Davíð.
Hann ræddi um öll þau loforð
sem allir flokkar hefðu gefið í kosn-
ingabaráttunni. Hann sagði að eng-
inn maður gæti séð fram í tímann
og óvæntir atburðir kæmu alltaf
upp. Þá væri mikilvægt að við
stjórnvölinn væru menn sem gætu
brugðist sæmilega við þeim. „Þið
fáið aldrei algóða menn í framboð,
en þið fáið alltaf einhverja vitleys-
inga,“ sagði hann.
Núverandi stjórn betri en
þriggja flokka stjórn
Davíð var að lokum spurður út í
stjórnarmyndunarviðræður. „Sam-
starfið hefur gengið vel. Ég tel að
Íslandi sé betur borgið með áfram-
haldandi ríkisstjórn heldur en
þriggja flokka stjórn,“ sagði Davíð.
Hann sagði þó alla flokka ganga
óbundna til slíkra viðræðna. Að lok-
um lagði Davíð áherslu á ábyrgð
fólks á kjördag. „Það er mikil-
vægur dagur framundan. Kosning-
arnar eru kannski ekki upp á líf og
dauða, en þær geta haft áhrif fyrir
hvert og eitt okkar.“
Davíð Oddsson forsætisráðherra á kosningafundi í Rimaskóla í gærkvöldi
Mikið
í húfi
Morgunblaðið/Kristinn
Ásta Möller alþingismaður og Davíð Oddsson svöruðu fyrirspurnum á kosningafundi í Rimaskóla í gærkvöldi.
UM sex þúsund manns höfðu kosið
utan kjörfundar hjá embætti sýslu-
mannsins í Reykjavík í gær. Kosið er
á skrifstofu sýslumanns í Skógarhlíð
6 og verður hægt að kjósa utan kjör-
fundar þar á kjördag frá kl. 10 til 18
síðdegis. Skrifstofan er einnig opin í
dag, föstudag, frá kl. 10 til 22.
Þórir Hallgrímsson, aðstoðar-
deildarstjóri hjá sýslumanninum í
Reykjavík, hvetur fólk til að kjósa
tímanlega sjái það fram á að vera í
burtu á kjördag.
Kjörstaðir opnaðir kl. 9
Kjörstaðir verða opnaðir kl. 9 á
laugardag og verða opnir til kl. 22. Í
litlum sveitarfélögum má kjörstjórn
ákveða að opna kjörfund síðar, en
ekki síðar en kl. 12. Kjörfundi má
slíta ef átta stundir eru liðnar frá
setningu og að lágmarki sé hálf
klukkustund liðin frá því að kjósandi
gaf sig síðast fram. Einnig má slíta
kosningu ef allir á kjörskrá hafa
greitt atkvæði og eftir fimm klukku-
stundir ef öll kjörstjórnin og um-
boðsmenn eru sammála um það.
Að sögn Gunnars Eydal, starfs-
manns yfirkjörstjórnar í Reykjavík,
er kjósanda heimilt að strika yfir öll
nöfn frambjóðenda nema eitt á þeim
lista sem hann kýs. Þá er kjósanda
jafnframt heimilt að númera fram-
bjóðendur á listanum upp á nýtt en
Gunnar segir að það verði þó að vera
skýrt, þ.e. að ekki séu tveir fram-
bjóðendur með sama númer. Ekki er
leyfilegt að breyta öðrum lista en
þeim sem x-að er við á seðlinum.
Gunnar segir að við talningu at-
kvæða séu teknir til hliðar þeir seðl-
ar sem breytt hefur verið, með yf-
irstrikun eða númeringu,
vafaatkvæði og auðir seðlar. Yfir-
kjörstjórn skoðar hvern og einn seðil
sem vafi leikur á um.
Á vefsíðu á vegum dómsmálaráðu-
neytisins um þingkosningarnar má
nálgast hagnýtar upplýsingar.
Morgunblaðinu í dag fylgir kosn-
ingahandbók, þar sem eru m.a. upp-
lýsingar um nýju kosningalögin,
ásamt töflum þar sem lesendur geta
skráð hjá sér tölur á kosninganótt.
Hægt að
kjósa utan
kjörfundar
á kjördag
Kosningahandbók/B
TENGLAR
.....................................................
www.kosning2003.is.
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
dæmdi í gær bræðurna Kristján
Markús og Stefán Loga Sívarssyni í
fangelsi fyrir stórfellda líkamsárás á
Skeljagranda hinn 2. ágúst í fyrra.
Sá fyrrnefndi hlaut þriggja og hálfs
árs fangelsi og bróðir hans tveggja
ára fangelsi. Dómurinn taldi sannað
að þeir hefðu veist í félagi að rúm-
lega tvítugum manni, margsinnis
slegið hann í andlit og líkama með
krepptum hnefum og bareflum,
stungið hann og skorið með egg-
vopnum og misþyrmt honum með
öðrum hætti. Urðu afleiðingarnar
þær að fórnarlambið hlaut tólf
stungu- og skurðsár í andliti og lík-
ama, gat á vinstra eyra, sem ákærði
Stefán Logi veitti honum með belt-
isgatara, brot í ennisbeini og nefrót,
fjóra skurði á höfði, blóðsöfnun undir
höfuðleðri og lífshættulega blæðingu
milli heilahimna.
Dómurinn taldi ljóst að atlagan
hefði staðið lengi yfir og af áverk-
unum mætti ráða að hún hefði verið
hrottafengin.
Ákærðu voru einnig sakfelldir fyr-
ir aðra líkamsárás sama morgun
með því að hafa ráðist á þrítugan
mann við Eiðistorg. Stefán Logi var
hins vegar sýknaður af ákæru um að
hafa sparkað í manninn. Voru
ákærðu dæmdir til að greiða honum
95 þúsund kr. í skaðabætur.
Kristján Markús var ennfremur
sakfelldur fyrir tilraun til þjófnaðar í
fyrravor en sýknaður af ákæru fyrir
þjófnað og Stefán Logi sakfelldur
fyrir hylmingu um svipað leyti.
Bræðurnir hafa báðir verið dæmd-
ir áður fyrir ýmis brot, s.s. líkams-
árásir, þjófnað og fleira. Annar
bræðranna rauf með brotum sínum í
fyrra skilorðsdóm sem hann fékk
sumarið 2001 og var honum gerð
refsing í einu lagi í gær. Gæsluvarð-
haldsvist beggja frá 3. ágúst í fyrra
var dregin frá refsingu þeirra. Allur
sakarkostnaður féll á ákærðu.
Málið dæmdu Guðjón St. Mar-
teinsson dómsformaður, Friðgeir
Björnsson dómstjóri og Valtýr Sig-
urðsson héraðsdómari.
Verjendur ákærðu voru Ómar
Stefánsson hdl. fyrir Kristján Mark-
ús og Brynjar Níelsson hrl. fyrir
Stefán Loga. Ragnheiður Harðar-
dóttir saksóknari hjá ríkissaksókn-
ara sótti málið.
Dæmdir í 3½ árs og 2 ára fangelsi fyrir líkamsárás á Skeljagranda
Atlaga bræðranna talin
löng og hrottafengin
HALLDÓR Ásgrímsson, formaður Framsóknarflokks-
ins og oddvitinn í Reykjavíkurkjördæmi norður, brá
sér ásamt Birni Inga Hrafnssyni, sem er í 2. sæti fyrir
flokkinn í Reykjavík suður, á kappleik í íþróttahúsinu í
Austurbergi í gærkvöldi. Þar áttust við ÍR-ingar og
Haukar í úrslitakeppninni í handknattleik og urðu þeir
Halldór og Björn Ingi vitni að glæstum sigri heima-
manna. Guðmundur Valdimar Valdimarsson, heitur
stuðningsmaður ÍR, sat hægra megin við Halldór og
veitti honum innsýn í leikinn.
Morgunblaðið/Kristinn
Meðal kjósenda á kappleik
HÁKON EA var, fyrstur íslenskra
skipa, kominn með 500 tonn af síld í
gær þegar Morgunblaðið náði sam-
bandi við skipið í Síldarsmugunni
svokölluðu. Veiðarnar í ár hefjast því
í fyrra lagi.
Oddgeir Jóhannsson, skipstjóri á
Hákoni, sagði að þeir væru búnir að
fá samtals fimm hundruð tonn í
þremur hollum. Fyrst fengu þeir
hundrað tonn, þá tvö hundruð og
loks aftur tvö hundruð tonn. Síldin
væri blönduð, þeir væru eingöngu að
vinna stærsta flokkinn um borð, en
hún nýttist alveg. Hann sagði að þeir
væru einir þarna í „bongóblíðu“ en
að Guðmundur Ólafur ÓF væri
væntanlegur á hverri stundu. „Við
tökum það rólega núna í dag ... það
er komið það mikið að við erum að
vinna aðeins upp úr þessu,“ sagði
Oddgeir en þeir vinna síldina og
frysta um borð.
Að sögn Inga Jóhanns Guðmunds-
sonar, framkvæmdastjóra Gjögurs
hf., útgerðarfélags Hákons EA, er
síldin komin út úr norsku lögsögunni
og er á „einhverju róli þarna“ um
miðja Síldarsmuguna, nálægt sjö-
tugustu gráðu norður og fjórðu til
fimmtu gráðu austur. Hann sagði að
menn væru ánægðir með að veiðarn-
ar væru hafnar. Það virtist um ágæt-
is síld að ræða, millisíld sem hentaði
vel til vinnslu og frystingar í svoköll-
uð „butterfly“-flök eða samflök.
Hákon EA getur tekið um 650
tonn í frystilest og annað eins fer í
aðra lest og nýtist í mjöl og lýsi. Ekki
er enn ljóst hvar aflanum verður
landað, hérlendis eða í Noregi, það
ræðst af því hvert síldin stefnir.
Hákon með 500 t
í Síldarsmugunni
=E-
=E
E
- $ ./
01 #%