Morgunblaðið - 09.05.2003, Qupperneq 33
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. MAÍ 2003 33
RSH.is
Dalvegi 16b • 201 Kópavogur
Sími 544 5570 • Fax 544 5573
www.rsh.is • rsh@rsh.is
Fyrir farartæki
VERSLUN • VERKSTÆÐI
Radíóþjónusta Sigga Harðar
Talstöðvar sem þola
nánast allt
Fjarskipti eru
okkar fag
w
w
w
.d
es
ig
n
.is
©
2
0
0
3
urð í kóralnum Nú
héðan á burt í friði’ ég
fer, sem kórinn söng
frábærlega vel.
Resurrexit op. 68
eftir Knut Nystedt er
samið fyrir orgel,
sópran og þríhorn og
er þetta upprisuverk
óttaleg samsuða og
endar á því að sópran
syngur þrástefjaða
textalausa laglínu og
einleikurinn á þrí-
hornið, nokkur slög,
tilheyrir niðurlagi
verksins. Þrátt fyrir
að Rolf Schönstedt
léki verkið mjög vel
fór ekki mikið fyrir upprisu í því og
niðurlagið hljómaði tilgerðarlega.
Fjölradda kórverkið Nýr himinn
og ný jörð eftir Svend-David Sand-
ström er byggt á Opinberunarbók-
inni, mjög vel samið og var frábær-
lega vel flutt. Þar á eftir lék
organistinn Rolf Schönstedt Es-dúr
prelúdíuna og fúguna BWV 552 eftir
J.S. Bach og er ljóst af leik hans, að
næga tækni hefur hann, þótt verkið í
heild væri svolítið órólegt, vegna
þess að sólin skein allan tímann í
augu orgelleikarans og í raun merki-
legt, að hann komst klakklaust í
gegnum verkið. Niðurlag tón-
leikanna var mótettan Singet dem
Herrn ein neues Lied, BWV 225,
sem er líklega samin um 1726 og ber
ýmis merki um formskipan hljóð-
færakonsertsins, hratt-hægt-hratt.
Þetta glæsilega og erfiða verk var
flutt af öryggi en á helst til blæ-
brigðalítinn máta, sérstaklega hröðu
þættirnir, en þar ber fyrir eyru mjög
erfiðar og hraðar tónlínur, sem voru
frekar kraftlitlar og óstöðugar í
hljóman.
Hvað um það, þá var söngur kórs-
ins í heild mjög góður og hann söng
frá sér vorkuldann á Íslandi undir
öruggri stjórn Hildebrand Haake.
Einsöngvarinn Jutta Potthoff er frá-
bær söngvari og hefði verið fróðlegt
að heyra meira til hennar og sama
má segja um orgelleikarann Rolf
Schönstedt, sem lék einkar glæsi-
lega í fjölbreytilegu verki Karg-
Elerts.
KENNARAR og nemendur við
kirkjutónlistarháskólann í Herford
voru í heimsókn hér á landi um sl.
helgi og hafa því kynnst vorkuldan-
um á Íslandi. Það hafði sannarlega
ekki áhrif á söng kórsins, er var heit-
ur og þrunginn af samhljómandi tón-
fegurð. Fyrsta viðfangsefnið var
mótettan Cantate Domino fyrir sex
radda kór eftir Claudio Monteverdi
og er hún í flokki fjögurra mótetta,
sem gefnar voru út í Feneyjum 1620,
sem þó, hvað stíl snertir, benda mjög
til madrígala frá Cremona-árum tón-
skáldsins og minna jafnvel á stílfæri
Luca Marenzio. Falleg tónlist, er var
afburða vel mótuð. Þá var ekki síður
glæsilegur söngurinn í tveimur mót-
ettum eftir Heinrich Schütz, Es ist
erschienen og Die mit Tränen säen,
og var hin síðari, „tárasáningin“, sér-
staklega fallega flutt, enda náði
Schütz oft að túlka trúartilfinningu
sína á einkar áhrifamikinn máta, sem
kórnum, undir stjórn Hildebrand
Haake, tókst að túlka af einlægni.
Der erste Psalm eftir píanósnill-
inginn og orgeleikarann Sigfried
Karg-Elert (1877–1933), sem fyrir
hvatningu frá Grieg hóf að „kompón-
era“, er ekta síðrómantísk tónsmíð
og var hún sérlega vel „registeruð“
og leikin af Rolf Schönstedt. Jutta
Potthoff söng sálminn af öryggi, en
hann er töluvert erfiður og marg-
slunginn að gerð. Mótettan Warum
ist das Licht gegeben eftir Brahms,
frá 1877, er meistarasmíð hvað
snertir raddfærslulist hans, og þótt
stíllinn sé rómantískur er radd-
færslutæknin mjög í anda Bachs.
Mótettan var sérlega vel sungin og
eftir þrunginn kontrapunktískan rit-
hátt fyrri kaflanna ríkti í niðurlagi
verksins einkennilegur friður og feg-
Ljúfir orgeltónar
Nýtt orgel var vígt í Laugarnes-
kirkju hinn 8. desember sl. Orgelið
var smíðað í orgelsmiðju Björgvins
Tómassonar á Blikastöðum í Mos-
fellsbæ. Fullklárað verður orgelið 28
raddir sem skiptast á tvö hljómborð
og fótspil. Pípurnar úr gamla org-
elinu eru nýttar áfram í þessu orgeli
og nýjum röddum og pípum bætt við,
þrjár raddir eru enn ókomnar.
Fyrstu orgeltónleikarnir voru haldn-
ir sl. sunnudagskvöld. Orgelið er
mjög vel heppnað og hefur fallega
mýkt í veiku röddunum, flautu- og
principalkórarnir mynda volduga
fyllingu, mixtúrurnar eru bjartar
með ólíkan blæ í hvoru borði og tung-
uraddirnar hljóma vel sem einleiks-
raddir, blandast einnig vel, bæði
saman innbyrðis og við aðrar raddir
orgelsins.
Guðmundur lék fyrst gamlan
seljasálm úr sænsku dölunum (Gam-
mal fäbodpsalm från Älvdalen) sem
Oskar Lindberg umskrifaði fyrir
orgel. Guðmundur lék sálminn mjög
fallega en kanski ívið of hratt og
taktfast miðað við hefðir og þjóðleg-
an uppruna. Prelúdían í fís-moll
BuxWV 146 eftir Dietrich Buxte-
hude er full af krómatík og hafa
menn velt vöngum yfir hvort hún sé
samin fyrir eitt jafnstillta kerfið sem
kom fram þegar eftir miðja 17. öld.
Þarna sýndi Guðmundur ýmsa
möguleika orgelsins og endaði glæsi-
lega á fullum styrk. Georg Böhm var
organisti við Jóhannesarkirkjuna i
Lüneburg á sama tíma og Buxte-
hude var við Maríukirkjuna í Lübeck
og eru þeir ásamt Bach tvö stærstu
nöfnin í norður-þýskri orgeltónlist á
barokktímanum og höfðu báðir mikil
áhrif á meistara Bach. Eftir Böhm
lék Guðmundur orgelkóralinn Faðir
vor sem á himnum ert (Vater unser
in Himmelreich) með sólóröddum úr
efra tónborði. Í útsetningum á amer-
ísku sálmunum, I love Thee, my
Lord og So fades the lovely blooming
flower, eftir George Shearing kveður
við allt annan tón enda 20. aldar tón-
list, rytmísk og dálítið djössuð á köfl-
um, ekki merkilegar tónsmíðar en
góðar til uppfyllingar. Þá stökk Guð-
mundur aftur til barokktímans og
lék tvo sálmforleiki úr Litlu orgel-
bókinni eftir J.S. Bach, Herr Jesu
Christ, dich zu unz wend BWV 632
(Þú, Kristur, bróðir allra ert) sem
var mjög fallega leikinn með syngj-
andi flautum orgelsins og Alle
Menschen müssen sterben BWV 643
(Allir menn verða að deyja) sem leik-
inn var á mixtúruplenó.
Duke Ellington er ekki höfundur
sem maður tengir við orgeltónlist, en
hann samdi þrjá andlega konserta
(Sacred Concert) og Svíinn Lennart
Andreasson hefur útsett fyrir orgel
þrjú lög úr 2. konsertinum, T.G.T.T.
(Too Good To Title) sem leikið var
með flauturöddum, Almighty God
sem leikið var fallega djassað á
tunguraddir orgelsins, og loks Heav-
en sem var fallega leikið með gömbu
og célestu efra borðs ásamt quinta-
denu fyrsta borðs. Franski bar-
okkdómorganistinn og tónskáldið í
Rheims, Nicolas de Grigny, átti síð-
asta orðið með orgelsvítunni yfir
hymnann Veni Creator Spiritus
(Kom, skapari heilagi andi) sem er
byggð upp á hefðbundinn hátt
franskra barokkverka af þessu tagi
með framsetningu hymnalagsins og
síðan tilbrigðum yfir það. Þarna
sýndi Guðmundur ýmsa nýja mögu-
leika orgelsins og var svítan fallega
leikin og registreruð. Guðmundur
Sigurðsson er góður, vandvirkur og
öruggur organisti og virtist undirrit-
uðum hann njóta sín best í 20. aldar
tónlistinni sem öll var af rytmískari
gerðinni og sérlega vel flutt. Það er
ekki ástæða til annars en að óska
Laugarnessöfnuði til hamingju með
nýja orgelið.
TÓNLIST
Hallgrímskirkja
Kór kirkjutónlistarháskólans í Herford,
undir stjórn Hildebrand Haahe, sópr-
ansöngkonan Jutta Potthoff og orgelleik-
arinn Rolf Schönstedt fluttu kirkjutónlist
frá ymsum tímum.
Sunnudagurinn 4. maí.
KÓRTÓNLEIKAR
Guðmundur
Sigurðsson
Laugarneskirkja
Guðmundur Sigurðsson orgelleikari.
Sunnudagurinn 4. maí kl. 20.00.
ORGELTÓNLEIKAR
Jón Ólafur Sigurðsson
Að syngja frá sér vorkuldann
Jón Ásgeirsson
Hildebrand
Haahe
HALDIN verður ráðstefna í
Norræna húsinu í dag og á
morgun um efnið „Breytingar
á norrænni menningarstefnu“.
Ráðstefnan er í röð norrænna
ráðstefna en eftir er að fara til
Færeyja, Finnlands og Dan-
merkur. Á öllum ráðstefnu-
num verður fjallað um málefni
sem tengist sérstaklega við-
komandi landi eða sjálfstjórn-
arsvæði, málefni sem varðar
beint menningarstefnu við-
komandi lands og málefni sem
tengist samnorrænni starf-
semi.
Ráðstefnuröðin er einkum
ætluð starfsfólki menningar-
stofnana í bæði opinberri eigu
og einkaeign, samtökum,
stjórnmálamönnum sem sinna
menningarmálum, fræðimönn-
um, menningarblaðamönnum,
menningarfulltrúum og lista-
fólki.
Á ráðstefnunni í Norræna
húsinu verður fjallað um þrjú
undirþemu norrænnar menn-
ingarstefnu: Íslenska menn-
ingarstefnu, nýjustu rann-
sóknir og listrænt frelsi í
tengslum við árangurstengda
samninga og kostnaðargrein-
ingu. Bókmenntir verða í
brennidepli.
Menningar-
ráðstefna
í Norræna
húsinu
KOLBRÚN Lilja Antonsdóttir hef-
ur opnað sýningu á verkum sínum á
Café Kristó, Garðatorgi, Garðabæ.
Þar gefur að líta fimmtán vatnslita-
myndir og eru þær allar til sölu.
Kolbrún Lilja lauk námi úr kenn-
aradeild Myndlista- og handíðaskól-
ans 1972 og grafíkdeild 1975. Þá
stundaði hún nám í skúlptúr í Róm
og útskrifaðist þaðan 1982.
Vatnslitir á
Café Kristó
GUÐRÚN Hrönn Ragnarsdóttir og
Pétur Magnússon sýna verk sín í
Galleríi Skugga um þessar mundir.
Á sýningunni gefur að líta 100% næl-
on og lakk. Einnig vínylveggfóður
með blómamótífum, ljósmyndir af
þeim ásamt öðrum ljósmyndum og
stáli. Sýningin stendur til 18. maí.
Gallerí Skuggi er opið þriðjudaga
til sunnudaga frá 13 til 17. Inn-
gangur frá Veghúsastíg að þessu
sinni. Ókeypis aðgangur.
Nælon og
lakk í
Skugga
Verk eftir Pétur Magnússon.
SÍÐASTLIÐINN föstudag efndi
Myndhöggvarafélagið í Reykjavík til
síðdegisfundar í sögufrægum salar-
kynnum SÍM í Hafnarstræti út af
fjárhagssvelti því sem aðstandendur
Nýlistasafnsins og Gallerís Hlemms
telja sig hafa orðið fyrir af hálfu
Reykjavíkurborgar vegna stofnunar
Safns Péturs Arasonar og væntan-
legrar opnunar þess á Laugavegi 37.
Undirritaður komst því miður ekki
á fundinn fyrr en hann hafði verið
settur og var því ekki viðstaddur þeg-
ar Anna Eyjólfsdóttir myndhöggvari
las upp ályktun þar sem hún skoraði
á hann að biðja Hannes Lárusson
myndlistarmann opinberlega afsök-
unar vegna grófra aðdróttana í hans
garð í grein, sem birtist í Morgun-
blaðinu 27. apríl síðastliðinn. Reynd-
ar varð ekki betur skilið en efnt hefði
verið til fundarins gagngert út af
þessum rætnu skrifum undirritaðs.
Við Önnu Eyjólfsdóttur og Hannes
Lárusson vil ég því segja að mér er
ljúft að biðja hann afsökunar á þeim
óréttmætu orðum sem ég lét um hann
falla í áðurnefndri grein, sem aldrei
hefði átt að birtast, vegna þess hve
gróf og ómálefnaleg hún var í hans
garð. Ég get ekki annað sagt en að ég
harma að hafa valdið Hannesi hugar-
angri með þessum óforsvaranlegu
dylgjum, sem hann átti síst skilið af
mér, svo ágætur listamaður sem
hann er.
Því miður breytir afsökunarbeiðni
mín þó litlu um fjárhagsáhyggjur Ný-
listasafnsins og Gallerís Hlemms, og
varla hefur hún áhrif á opnun Safns
Péturs Arasonar, sem veldur mynd-
listarmönnum svo miklu angri.
Reyndar kom fram í máli Tinnu
Gunnlaugsdóttur, formanns Banda-
lags íslenskra listamanna, sú holla
ábending að fundarmenn skyldu var-
ast að skoða fjárveitingar til ákveðins
verkefnis sem svelti fyrir önnur og
mikilvægari. Það væri að æra óstöð-
ugan að stilla mönnum ætíð frammi
fyrir eyrnamerktum sjóði til að láta
þá bítast um ákveðna fjármuni eins
og ekkert frekara væri til skiptanna.
En því miður hefur það viðgengist
alltof lengi innan raða íslenskra lista-
manna að líta svo á sem eins dauði sé
annars brauð. Það hefur þegar valdið
því að nú hamast sumir þeirra gegn
væntanlegu Safni við Laugaveginn
og ata stofnendurna auri. Látið er að
því liggja að listaverkaeignin sé
ómerkileg, þröng og gamaldags, enda
sé eigandinn lítt menntaður galla-
buxnasali sem ekki hafi mikla yfirsýn
yfir list samtímans.
Við þá sem halda slíku fram vil ég
aðeins segja að það er ómaklegt að
ræða málin á þeim nótum enda fjarri
sannleikanum að Safn Péturs sé eitt-
hvert ómerkilegt smælki. Hingað til
hefur mér heyrst að eitt af helstu um-
kvörtunarefnum íslenskra lista-
manna væri einmitt það að ekki fynd-
ust nægilega margir og áræðnir
safnarar hér á landi sem vildu fjár-
festa í list eftir marktæka lifandi
listamenn. Ef þeir fáu sem safna list
mega búast við að vera úthrópaðir
fyrir þá viðleitni sína hvernig ætlast
þá listamenn til að nokkur maður
nenni að auðsýna þeim og verkum
þeirra áhuga?
Í hita leiksins vill það gleymast
sem Marcel Duchamp ítrekaði í fyr-
irlestri sínum á þingi Sambands
bandarískra listamanna í Houston í
Texas vorið 1957, og ætti að vera okk-
ur ærið umhugsunarefni áður en við
förum að níða safnarann. Að vísu
voru ekki allir kollegar hans jafn-
hrifnir af því sem hann sagði, en þar
staðhæfði Duchamp að listaverkið
væri varla fullkomnað án aðnjótanda.
Þar eð listamaðurinn væri ófær um
að fylgja hugarfarslega eftir hverri
athöfn sinni við sköpun verksins – svo
mikið af vinnuferlinu væri ómeðvitað
– væri óhjákvæmilegt að tómarúm
myndaðist milli verksins og skapara
þess. Inn í þetta tómarúm ætti að-
njótandinn greiðan aðgang, tilbúinn
að fullkomna opna og margræða
sköpun listamannsins.
Ef til vill þurfti Tinnu til að gefa í
skyn að listin væri stærra mengi en
svo að hún væri eingöngu málefni
listamannanna sjálfra. Sem leikari
fer hún ekki varhluta af mikilvægum
þætti áhorfandans í sköpunarferlinu.
Þannig er það einnig með listasafnið.
Það er ekki bara hugsað fyrir lista-
manninn og list hans, heldur og gest-
ina sem þangað venja komur sínar.
Við höfum tilhneigingu til að smætta
hlut þeirra í stað þess að stækka. Þó
vitum við innst inni að verði þáttur
aðnjótandans nógu stór getur lista-
maðurinn ekki fundið traustari og
gjöfulli bandamann, því sá banda-
maður er oftar en ekki safnari.
Að loknum ýfingum
Eftir Halldór Björn
Runólfsson
Vaka-Helgafell hefur gefið út tvær nýj-
ar bækur sem tengjast kvikmyndinni
Skógarlíf 2: Mógli og vinir hans og
Góðir vinir. Bækurnar fjalla um strák-
inn Mógla og vini hans. Mógli kemst í
hann krappan þegar hann ákveður að
heimsækja vini sína í skóginum því
þar er einnig grimma tígrisdýrið, Seri
Kan. Þýðendur bókanna eru Svala
Þormóðsdóttir og Bjarni Guðmarsson.
Bækurnar eru prentaðar í Danmörku.
Vaka-Helgafell hefur gefið út tvær
nýjar bækur í bókaflokknum Bubbi
byggir: Selma í fótbolta og Valti í
ógöngum. Bækurnar fjalla um Bubba,
Selmu og vini þeirra sem eru þeir
Valti, Moki, Hringla og fleiri vinnutæki.
Þýðandi bókanna er Hallgrímur H.
Helgason.
Bækurnar eru prentaðar í Singapúr.
Leiðbeinandi útsöluverð er kr. 790.
Barnabækur
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦