Morgunblaðið - 09.05.2003, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. MAÍ 2003 43
nnfæring mín að aðgerðir á
tismála eigi fyrst og fremst
ð því að skapa kynjunum
ri í samfélaginu. Þá er einnig
að standa fyrir opinskárri
stuðla að aukinni fræðslu og
ið skulum jafnframt varast
k fyrst og fremst út frá kyn-
eldur eigum við að láta sér-
kling njóta sannmælis.
ðingarorlof beggja
ynja var bylting
narflokkurinn hefur lagt á
í ríkisstjórninni að aðgerðir
éttismála beinist að því að
num jöfn tækifæri. Eitt mik-
fnréttismál síðustu ára er án
um fæðingar- og for-
em samþykkt var á liðnu
Í raun er sú breyting sem
ðið með því að feður eiga
garorlofi en ekki aðeins
ng í jafnréttismálum á Ís-
nhugsunin á bak við þessi lög
yrgð á uppeldi barnanna okk-
víla jafnt á báðum foreldr-
unum. Foreldraorlof beggja foreldra á
fyrstu átta æviárum barns er sömu ætt-
ar.
Eyðum launamun kynjanna
Mörg verk eru enn óunnin í jafnrétt-
ismálum. Þar ber vitaskuld hæst launa-
mun kynjanna sem er alvarlegur ljóður
á jafnri stöðu karla og kvenna. En
launamun kynjanna verður ekki eytt
með einni stjórnvaldsaðgerð, hér er um
að ræða verkefni samfélagsins alls. Við
skulum heldur ekki gleyma því að á síð-
ustu árum hefur náðst verulegur árang-
ur í þessum efnum. Sá árangur á að
vera okkur hvatning til að gera enn bet-
ur og búa þannig í haginn fyrir framtíð-
arkynslóðir Íslendinga að þeir þekki
ekki annað en að bæði kynin fái sömu
laun fyrir sömu vinnu og eigi jöfn tæki-
færi til starfsframa.
Framsóknarflokkurinn er stoltur af
árangri sínum í jafnréttismálum, hvort
sem litið er til innra starfs flokksins eða
starfa okkar í ríkisstjórn. Við byggjum á
þeirri hugsjón að setja eigi einstakling-
inn og velferð hans í öndvegi. Þessi
kjarni stefnu okkar framsóknarmanna
hefur reynst okkur farsælt leiðarljós í
baráttunni fyrir jafnrétti kynjanna. Á
grundvelli þessarar hugsjónar munum
við áfram vinna að þessu mikilvæga rétt-
lætismáli.
nú hefur orðið
á fæðingarorlofi
í jafnréttismál-
Höfundur er alþingismaður og skipar fyrsta
sæti á lista Framsóknarflokksins í Reykjavík-
urkjördæmi suður.
javíkurflugvöll niður, sem
lag fyrir ferðaþjónustuna á
i. Af þessum sökum spurðu
aþjónustu okkur þingmenn
t við vildum stytta leiðina til
r eins mikið og kostur er.
ini, sem var afdráttarlaus í
Skrýtið!
menn á listum flokkanna
svörum í Aksjón á miðviku-
nn B. Jónsson bæjarfulltrúi
t við vildum vinna að því að
rtæki risi við Eyjafjörð. Ég
afdráttarlaust játandi. Það
egt til þess að treysta at-
völlinn.
benti ég á, að slíkur vinnu-
fnt fyrir konur og karla og
aunar í meirihluta í stjórn-
m í álverinu við Straumsvík.
því, að ekki hefur verið unn-
ið nógu vel að undirbúningi stóriðjuvers
á Norðurlandi. Aðrir frambjóðendur
voru daufir í þessu máli og höfðu allt á
hornum sér. Það var helst Valgerður
Sverrisdóttir sem tók undir með mér,
en sagði samt að hlutirnir myndu ekki
gerast hratt.
Nú er þetta mikið umhugsunarefni
fyrir kjósendur hér á Akureyri og á
Norðausturlandi. Frambjóðendur allra
flokka nema Sjálfstæðisflokksins segja,
að ekki megi leggja veg stystu leiðina
til Reykjavíkur til þess að færa iðnfyr-
irtækin nær markaðinum þar og út-
flutningsfyrirtækin nær Reykjavík-
urhöfn og Keflavíkurflugvelli. Ég talaði
um matvælafyrirtækin áðan. Hvað um
fyrirtæki eins og Sæplast eða Sand-
blástur og málmhúðun? Hverju skyldi
hraðbraut sérstaklega hönnuð fyrir
þungaflutninga, sem er 81 km styttri í
þokkabót, muna fyrir slík fyrirtæki? Og
svo staðfestu svörin í Aksjón að það er
Sjálfstæðisflokkurinn einn sem vill
vinna að því af alefli að fá stóriðju. Það
verður ekki betur séð en að framtíð-
arsýn Framsóknarflokks, Samfylkingar
og Vinstri grænna fyrir Akureyri sé öll
í þoku og mistri.
ir nýjum leiðum
en að framtíð-
Samfylkingar
reyri sé
Höfundur er 1. þingmaður Norðurlands eystra.
ÞEGAR Framsóknarflokkurinn tók sæti
í ríkisstjórn árið 1995 var mikið atvinnu-
leysi í landinu. Mikill ófriður var í sam-
félaginu vegna niðurskurðar í heilbrigð-
ismálum og menntamálum. Hugmyndir
um breytingar á lögum um Lánasjóð ís-
lenskra námsmanna höfðu kallað fram
hörð viðbrögð allra námsmannasamtaka
í landinu. Kosningarnar 1995 snerust um
að endurreisa atvinnulífið og bjarga vel-
ferðarkerfinu frá róttækum niðurskurði
og skertri þjónustu við almenning.
Stöðugleiki
Mikið hefur breyst. Í kosningabarátt-
unni, sem nú er að ljúka, hafa vinstri
flokkarnir í stjórnarandstöðunni haft
áhyggjur af tvennu. Í fyrsta lagi að
vegna þeirra miklu umsvifa sem fram-
undan eru í íslensku atvinnulífi þurfi að
gæta aðhalds við stjórn ríkisfjármála og í
öðru lagi er það áhyggjuefni stjórn-
arandstöðunnar hvernig verja skuli
auknum tekjum ríkissjóðs á næsta kjör-
tímabili. Það blasir því við að „vandamál“
stjórnmálanna í dag eru auknar tekjur
þjóðarbúsins, þensla í atvinnulífinu,
hækkun launa og aukin neysla almenn-
ings.
Bættur hagur
Í augum okkar framsóknarmanna eru
þetta hins vegar ekki vandamál heldur
umfram allt stórkostleg tækifæri til að
bæta enn hag fólksins í landinu og fyr-
irtækjanna sem veita fólki atvinnu. Við
viljum að auknar tekjur ríkissjóði nýtist
til þess að lækka skatta á almenning og
bæta kjör ákveðinna hópa en einnig til
þess að efla íslenska velferðarkerfið.
Við viljum lækka tekjuskatt ein-
staklinga úr 38,55% í 35,2%. Við viljum
koma sérstaklega til móts við þá, sem
tekjulágir eru og hagnast minna en aðrir
á lækkun tekjuskatts. Við viljum efna
samkomulag heilbrigðisráðherra við Ör-
yrkjabandalag Íslands og hækka bætur
til öryrkja, einkum þeirra sem verða ör-
yrkjar ungir að árum. Við viljum greiða
36.500 krónur með hverju barni að 16 ára
aldri og 73.000 krónur með börnum und-
ir 7 ára, ótekjutengt, í formi barnakorta.
Við viljum einnig hækka frítekjumark
barnabóta. Við viljum kanna kosti þess
að fella niður virðisaukaskatt af barna-
fötum.
Velferðarstefna
Við viljum einnig halda áfram kröft-
ugri uppbyggingu í húsnæðismálum,
hækka lánshlutfall íbúðasjóðslána í 90%
og einnig styrkja leigumarkaðinn.Við
viljum skilgreina gleraugu sem hjálp-
artæki þegar um börn er að ræða og að
ríkið taki þátt í niðurgreiðslu með sama
hætti og þegar um heyrnartæki er að
ræða. Við viljum að ríkið taki þátt í
kostnaði við tannlækningar líkt og aðra
heilbrigðisþjónustu.
Við leggjum ekki síður áherslu á hitt
að gæta hófs og vernda stöðugleikann.
Án aðhalds í ríkisfjármálum er hætta á
þenslu, sem teflt getur stöðugleika í
efnahagslífinu í tvísýnu. Aukist verðbólg-
an munu heimilin í landinu og atvinnu-
lífið fara á mis við ávinning af auknum
umsvifum.
Á næsta kjörtímabili bíða fjölmörg erf-
ið verkefni. Mótun samfélags lýkur aldr-
ei. Það skiptir máli hverjir taka þátt í því
starfi. Framsóknarflokkurinn hefur skil-
að sínum verkum í höfn á síðastliðnum
átta árum. Þau verk eru undirstaða
þeirrar vaxandi velmegunar sem ein-
kennt hefur íslenskt samfélag síðustu ár.
Þau verk eru forsenda þeirrar bjartsýni
sem nú ríkir á Íslandi. Þegar kemur að
kosningum hljóta kjósendur að horfa til
þess hvernig flokkarnir hafa staðið sig.
Ef verkin skipta engu, hver er þá hvatinn
til að gera betur? Framsóknarflokkurinn
þarf stuðning kjósenda til að starfa
áfram í ríkisstjórn. Kjósendur ráða þar
för. Mikilvægt er að gera sér grein fyrir
því að það skiptir miklu máli hverjir eru
við stjórnvölinn.
Teflum ekki í tvísýnu
Eftir Björn Inga Hrafnsson „Framsóknarflokkurinn hefur skilað sínum
verkum í höfn á síðastliðnum átta árum.
Þau verk eru undirstaða þeirrar vaxandi vel-
megunar sem einkennt hefur íslenskt sam-
félag síðustu ár.“
Höfundur er frambjóðandi Framsóknar-
flokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður.
m Unnur lét mér í té.
rgarstjóri í Reykjavík,
nandi á því tímabili
tt, hefur mörg orð um
og Samfylkingarinnar
eirra sem verst hafa
rúa því ættu að hafa
ar R. Jóhannesdóttur í
ákveða hvernig þeir
æðum sínum næsta
. Þrátt fyrir ótta um
ðingar fyrir sig og fjöl-
ði hún eftir að koma
þessari grein. Hún
að tapa.
klu“
9.419
n átta
ddi hún
lagsbú-
gmaður Sjálfstæðisflokks-
g situr í 5. sæti framboðs-
eykjavík norður.
UMRÆÐUR um sjávarútvegsmál hafa
orðið meiri nú í aðdraganda Alþing-
iskosninganna en oft áður. Það er þó
einn hlutur varðandi bolfiskveiðarnar
sem mér finnst mönnum sjást yfir og
gleyma, en skiptir þó langmestu máli
þegar upp er staðið. Á undanförnum
tólf árum hafa stjórnvöld talið sér skylt
að fara í einu og öllu að tillögum Hafró
um það hversu mikið magn af bolfiski
sé leyfilegt að veiða. Þetta hefur haft í
för með sér gífurlegan niðurskurð
þannig að allan þennan tíma höfum við
aðeins verið að veiða milli 40% og 50%
af þeim bolfiski sem við veiddum áður.
Þetta hefur verið sjávarbyggðunum
gríðarlega erfitt og þrengt óskaplega
hag allra – bæði fólks og fyrirtækja.
Ef við lítum nánar á þorskveiðar okk-
ar Vestfirðinga þá eru þær núna u.þ.b.
14% af þeim þorski sem veiddur er á
landinu og hafa áratugum saman sveifl-
ast þetta í kringum 14–16% af heildar-
aflanum. Þannig hefur þetta hlutfall
verið bæði meðan sóknin var frjáls og
núna í seinni tíð eftir að opinber stjórn-
un fiskveiða hófst.
Það er magnið sem skiptir máli
Það er í sjálfu sér ekkert óeðlilegt í
lýðfrjálsu landi þótt menn deili um það
hvernig fiskveiðistjórnunin er fram-
kvæmd. Og trúlega verða menn seint á
eitt sáttir um hvaða leið sé best að fara.
En þegar öllu er á botninn hvolft er
það magnið sem leyfilegt er að veiða
sem skiptir langmestu máli. Það skiptir
að sjálfsögðu öllu máli hvort 14% af
þorskaflanum eru af 175 þúsund tonn-
um bolfisks eins og nú – eða af t.d. 350
þúsund tonnum. Hið sama gildir um
þorskveiðar annars staðar við strendur
Íslands.
Ég hef lengi efast um fiskveiðiráðgjöf
Hafró. Það þjónar kannski engum til-
gangi að deila við slíka einokunar-
stofnun.
En ég er alveg sannfærður um að
það er lífsnauðsynlegt að breyta fyr-
irkomulagi þessara rannsókna. Við
megum ekki gleyma að drifkrafturinn í
hinum miklu framförum í náttúruvís-
indum sem átt hafa sér stað í hinum
vestræna heimi á síðustu árhundruðum
er hin vísindalega rökræða. Ekkert er
því eins mikilvægt fyrir sjávarbyggð-
irnar og að koma hafrannsóknum okkar
inn í líffræðistofnanir háskólanna (og
þá að minnsta kosti til tveggja háskóla,
t.d. Háskóla Íslands og Háskólans á
Akureyri) og tryggja með öllum ráðum
að aðgangur að vísindagögunum sé öll-
um frjáls.
Frumkvæði Árna Mathiesen
Í tillögum Árna Mathiesen sjáv-
arútvegsráðherra um líffræðilega
stjórnun fiskveiðanna, sem hann setti
fram á nýliðnum vetri, kemur fram
skynsamlegasta hugsunin sem komið
hefur frá nokkrum íslenskum sjáv-
arútvegsráðherra í langan tíma. Mér
finnst það því mikið fagnaðarefni
hversu heilshugar landsfundur Sjálf-
stæðisflokksins núna í vor tók undir til-
lögur hans. Það hlýtur að varða miklu
hvernig við veiðum, hvar við veiðum og
hvenær við veiðum. Aðeins frjálsar
rannsóknir á náttúrunni – á hafinu í
kringum Ísland – geta leitt okkur úr
þeim mikla vanda sem íslenskur sjávar-
útvegur og sjávarbyggðir landsins eru
í. Við verðum að trúa því – og eigum að
trúa því – að Íslandsmið geti gefið af
sér meiri veiðar bolfisks en nú er leyft.
Ekkert annað getur tryggt á var-
anlegan hátt framtíð sjávarbyggða
landsins.
Vandamál fiskveiða og sjávarbyggða
Eftir Einar Odd
Kristjánsson
„Ég hef lengi efast um fiskveiðiráðgjöf Hafró.
Það þjónar kannski engum tilgangi að deila
við slíka einokunarstofnun. En ég er alveg
sannfærður um að það er lífsnauðsynlegt að
breyta fyrirkomulagi þessara rannsókna. “
Höfundur er alþingismaður.
KOSNINGABARÁTTA stjórnarflokk-
anna hefur öðru fremur einkennst af
linnulitlum hræðsluáróðri um að hrika-
leg kollsteypa bíði okkar allra ef rík-
isstjórnin verður felld í alþingiskosning-
unum á laugardaginn. Það hefur veitt
mér nýja innsýn í gangverk Sjálfstæðis-
og Framsóknarflokksins að fylgjast með
því á umliðnum vikum hvernig þeir hafa
kosið að heyja kosningabaráttu sem
byggist ekki á því að þeir verði dæmdir
af verkum sínum og verðleikum, heldur á
gegndarlausum yfirboðum ellegar árás-
um á andstæðinga sína í stjórnmálum.
Flokkar án fortíðar?
Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn-
arflokkurinn hafa setið saman í rík-
isstjórn í átta ár. Báðir þessir flokkar
hafa setið í ríkisstjórnum áratugum sam-
an síðan að Ísland varð sjálfstætt ríki.
Þeir hafa með öðrum orðum haft mý-
mörg tækifæri til þess að hrinda góðum
málum í framkvæmd. Sum tækifærin
hafa þeir vissulega notað en alltof mörg-
um hafa þeir glutrað niður og því ekki
nema von að kjósendur spyrji hvað valdi
því að ýmis þjóðþrifamál hafi verið látin
bíða í heil tvö kjörtímabil en séu svo
dregin fram í dagsljósið nokkrum vikum
fyrir kosningar. Stjórnarflokkarnir hafa
haft átta ár til þess að sýna sig og sanna.
Hræðsluáróður og heimsendaspár munu
ekki ná að breiða yfir lítinn árangur
þessara tveggja flokka við að tryggja
jöfnuð, réttlæti og velferð í samfélaginu
og sanngirni í stjórnarháttum hér á
landi.
Við kjósendum blasir sú staðreynd að
með stuðningi við Samfylkinguna gefst
kostur á grundvallarbreytingum til hins
betra á Íslandi. Í fyrsta skipti í rúm 70 ár
er það raunhæfur kostur að annar flokk-
ur en Sjálfstæðisflokkurinn nái stuðningi
30% kjósenda í alþingiskosningum. Í
fyrsta skipti í sögu lýðveldisins eiga kjós-
endur þess kost að fela breiðfylkingu
jafnaðar- og félagshyggjufólks að vera
kjölfestan í nýrri ríkisstjórn. Í fyrsta
skipti í sögunni getum við Íslendingar
gert konu að forsætisráðherra þjóð-
arinnar. Stuðningur við Samfylkinguna
er stuðningur við framþróun, jöfnuð og
raunverulegt einstaklingsfrelsi. Hann er
stuðningur við breytt gildismat í sam-
félaginu sem lýsir sér m.a. í því að stjórn-
málamenn lýsi sig til þjónustu reiðubúna
við þjóðina, að meðferð valds einkennist
af virðingu og framsýni, að leikreglur
samfélagsins séu skýrar og tryggi jafn-
ræði og jafnrétti borgaranna.
Samfylkingin ein getur tryggt nauð-
synlegar breytingar í átt til aukins jafn-
aðar og réttlætis hér á landi. En til þess
að svo megi verða þarf Samfylkingin á
stuðningi þínum að halda í alþingiskosn-
ingunum. Ég hvet þig, kjósandi góður, til
þess að stíga skrefið fram á við með Sam-
fylkingunni á laugardaginn. Tökum
höndum saman og gerum 10. maí 2003 að
tákni um þáttaskil til hins betra í íslensk-
um stjórnmálum.
Stígðu skrefið fram á við
Eftir Þórunni
Sveinbjarnardóttur
„Samfylkingin
ein getur tryggt
nauðsynlegar
breytingar.“
Höfundur er þingkona Samfylkingarinnar.