Morgunblaðið - 09.05.2003, Qupperneq 52
UMRÆÐAN
52 FÖSTUDAGUR 9. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
EINS og mús sem læðist vinnur
Samfylkingin (SF) að innlimun Ís-
lands í Evrópubandalagið (EB). Póst-
kosning gaf foryst-
unni tæpt umboð til
EB-umsóknar: að-
eins 21% flokks-
manna samþykkir!
Höfum ekki hátt um
það! Ljóst er að for-
sætisráðherraefnið
vill keyra málið í gegn, komist hún til
valda. Réttlætingin á að heita sú að
þjóðin fái að ákveða sig!
Munu SF og Framsókn fórna sjálf-
stæðinu „þegar vel viðrar“, þ.e. tízku-
vindar skv. skoðanakönnun? – eða
með tilstyrk Frjálslyndra, sbr. Guð-
jón A. Kristjánsson sem hafnar ekki
EB-aðild í Ómega-viðtali. Verðum við
leiksoppar sömu vélráða og Ungverj-
ar? Áróðursmenn innlimunar fengu
þar ómælda styrki, en andstæðingar
fjársveltir.
Er úrslit voru birt í prófkjöri SF
ræddi Bryndís Hlöðversd. um EB í
Útvarpi Sögu. Ég hjó eftir, að þing-
flokksformaðurinn kvað Íslendinga
eina ríkustu þjóð heims og bætti við:
„Og við munum alveg örugglega lifa
ágætu lífi áfram utan EB.“ Ef hún er
viss um að okkur vegni vel í framtíð-
inni án EB, er þá ekki ráð að una glöð
við það sem við höfum, öflugt hag-
kerfi og samfélag, í stað þess að
stofna sjálfsforræðinu í hættu?
Í EB eru meðallífskjör mun lakari
en hér, hagvöxtur minni, atvinnuleysi
þrefalt meira. Fjölgun fátækra aðild-
arlanda jók útgjöld ríkari þjóða
vegna styrkjakerfa. Við finnum það
sjálf í þreföldun EES-gjalda.
EB stefnir hraðbyri í að verða
Bandaríki Evrópu með eigin stjórn-
arskrá, forseta, gjaldmiðil og her,
sameiginl. ríkisborgararétt, afnumið
neitunarvald einstakra aðildarríkja
(það vilja þau voldugustu), sameiginl.
fiskveiðirétt allra upp að 12 mílna
landhelgi (sbr. Möltu) og – það sem er
afdrifaríkast – eigið fullveldi löggjaf-
arvalds EB til að breyta öllum
ákvörðunum sem teknar hafa verið
um grundvallarmál eins og sjávar-
útveg. Að afhenda EB forræði okkar
er að skrifa upp á óútfylltan víxil
handa þeim sem þar ráða eftir nokk-
ur ár, nokkra áratugi og á næstu öld!
Aðild Íslands gæfi hverjum sem er
í EB jafnan rétt á við Íslendinga til
vinnu, bótagreiðslna og ótakmark-
aðrar dvalar á landi okkar. Ef vilji
sumra ræður (t.d. SF-þingmannsins
Þórunnar Sveinbjarnard.) fá Tyrkir
aðild. Skv. núverandi fjölgunarstuðli
yrðu þeir um 2050 langstærsta þjóð
EB, margfalt fleiri en Þjóðverjar. Þá
verður tímaspursmál hvenær moskur
verða fleiri en kirkjur á Íslandi. Þær
eru það nú þegar í París.
Sögufróðir menn gera sér grein
fyrir því að óvæntir atburðir geta
skyndilega gerzt af miklu afli og hrif-
ið með sér þjóðir þangað sem þær
vildu ekki.
Hallgr. Thorsteinsson tók SF-
manninn, EB-þjóninn Eirík Berg-
mann Einarsson í viðtal og spurði
hvort vinstristjórn mundi ganga í
EB. Sá gat ekki leynt hug sínum:
„Það þarf ekki annað en að Fram-
sókn og SF nái meirihluta, þá er þetta
komið!“
Er það þetta sem við viljum?
Af öðrum EB-lista
Dapur tónn var í Guðna Ágústssyni
á Útv. Sögu 6.5. – jafnvel hann orðinn
linur gagnvart EB, galopinn fyrir rík-
isstjórn með SF.
Það var rétt hjá Guðna í öðru við-
tali að Framsókn hefur notið stuðn-
ings þéttbýlisfólks einmitt vegna
landbúnaðarstefnunnar, því að marg-
ir eiga rætur sínar eða önnur tengsl
við sveitirnar og vilja bændum vel.
Nú ríður á að menn átti sig á hvað
gagnist landsbyggðinni. Á að leggja
landbúnað í auðn, gera bændur að
bónbjargarmönnum á spena hjá EB
(skammgóður vermir þó – styrkja-
kerfið hverfur í framtíðinni)? Eigum
við að halda seglum og sjálfsvirðingu
og kosta nokkru til að viðhalda skyn-
samlegri byggð landsins? Auðug þjóð
á ekki að fara á mis við þann ávinning
sem hlýzt af blómlegri byggð í flest-
um sýslum þar sem hver atvinnu-
grein styður aðra og þjóðleg menn-
ingarhefð varðveitist í verkmennt og
samfélagslífi.
Ofurást utanríkisráðherra á EB
dylst ekki. Margir efast þó um að hér
verði snögg umskipti, andstaða sé við
málið í flokknum. En þar sem er
reykur, þar er eldur. Menn skulu ekki
vanmeta klókindi Halldórs. Hann
sankar að sér þægum fylgd-
arsveinum á lista sína í Reykjavík, en
reyndum varaþingmanni, Vigdísi
Hauksdóttur, var bolað burt. Þá var
engin stoð í því að vera undan góð-
bændum, baráttumaður, mágkona
landbúnaðarráðherra. Nei, tækni-
kratarnir, unga Evruliðið, á að kom-
ast áfram. Og þingmenn eins og Siv
og Valgerður beygja sig undir EB-
áráttu Halldórs. Víðar en í Reykjavík
fór hreinsun fram, t.d. var Kristni H.
Gunnarssyni þokað niður lista í NV-
kjördæmi. Suma munar ekki um að
losa sig við hæfileikafólk ef þeir að-
eins fá komið Íslandi undir forræði
EB. Allt með bros á vör.
Sem utanríkisráðherra var Halldór
farsæll í mörgu, enda mikilhæfur. En
mistök hans leynast ekki: dýrkeypt
ævintýri (Schengen og sendiráð í
Japan, Þýzkalandi, Kanada, Nami-
bíu!), jafnvel misbeiting valds (ráðu-
neytisstyrkur til EB-vilhallra rann-
sókna). Þá er það honum sízt til hróss
að hafa haft forgöngu um fóstureyð-
ingastefnuna og varið hana, en hún á
sinn þátt í að við tímgumst ekki nægi-
lega til að afstýra fækkun í framtíð-
inni. Velferðarkerfið mun ekki þola
öfugsnúin áhrif þessa á kyn-
slóðaskiptingu þjóðarinnar og skatt-
heimtu á næstu áratugum. En inn-
limun í EB, þar sem jafnvel
Þýzkaland býr við hrörnandi efnahag
og frjósemin dottin úr mönnum, verð-
ur sízt til bjargar.
Vinir bændamenningar efla ekki
heilbrigða framsóknarstefnu með því
að kjósa EB-taglhnýtinga í þéttbýl-
inu. Velgerningur við flokkinn er að
sniðganga framboðslista Halldórs í
Reykjavík – já, að stuðla þannig að
hallarbyltingu innanflokks og koma
dyggum þjóðvarnarmönnum þar til
æðstu metorða.
Málið mesta:
sjálfstæði þjóðar
Eftir Jón Val Jensson
Höf. er guðfræðingur, forstöðumaður
Ættfræðiþjónustunnar.
Í FRÉTT í Morgunblaðinu 29. apríl 2003 er haft eftir Ingibjörgu
Sólrúnu Gísladóttur að óperustarfsemi eigi meiri samleið með leikhúsi
en tónlist og því sé hún fylgjandi því að Íslenska óperan verði flutt í
Borgarleikhúsið. Það eru óneitanlega merkileg tíðindi
að talsmaður Samfylkingarinnar og fyrrverandi borg-
arstjóri skuli taka að sér að endurskilgreina eðli ein-
stakra listgreina og ganga með því í berhögg við
reynslu og þekkingu þeirra sem að listgreininni starfa,
að ekki sé minnst á mörghundruð ára hefð í tónlistar-
sögunni. Hitt er þó miklu alvarlegra að skilgreining
Ingibjargar virðist hafa þann tilgang einan að vera af-
sökun fyrir því að flytja Íslensku óperuna nauðuga í Borgarleikhúsið
til að leysa þar tímabundna rekstrarerfiðleika.
Íslenska óperan er ekki aðili að þeirri könnun sem nú fer fram á
vegum ríkis og borgar um hugsanlega aðstöðu fyrir Íslensku óperuna
í Borgarleikhúsinu, enda telja sérfræðingar hennar að ekki sé á því
neinn skynsamlegur flötur. Íslenska óperan hefur hins vegar óskað
eftir því við stjórnvöld að kannaðir verði möguleikar á aðild Óp-
erunnar að fyrirhuguðu tónlistarhúsi í miðborg Reykjavíkur. Við telj-
um í raun með öllu óhugsandi að ekki eigi að syngja í þessari miklu
tónlistarhöll. Óperan telur að um sé að ræða svo mikilvægt mál varð-
andi tónlistarlífið í landinu að hún undrast það fullkomna tómlæti sem
ráðamenn sýna þessari málaleitan. Það er öllum ljóst sem málið skoða,
að fyrirhuguðu tónlistarhúsi muni ætlað að þjóna íslensku tónlistarlífi
um langa framtíð og að með byggingu þess skapist einstakt tækifæri
til að búa öllum greinum tónlistar góða aðstöðu, einnig óperulistinni
og annarri söngtónlist.
Það er almennt viðurkennt að faglegar forsendur eru fyrir því að
reka óperuhús á Íslandi, enda hefur löng söngelska þjóðarinnar og
mikil gróska í tónlistarmenntun undanfarna áratugi skilað okkur tug-
um óperusöngvara á heimsmælikvarða. Íslenska óperan hefur tekið að
sér að leiða uppbyggingu þessarar atvinnugreinar á Íslandi og heldur
nú þegar uppi öflugri og vaxandi starfsemi. Þótt aðstandendur Óp-
erunnar séu stórhuga og framtíðaráformin glæst, þá gera þeir sér vel
grein fyrir þeirri staðreynd að við búum í fámennu samfélagi og nauð-
synlegt er að sníða sér stakk eftir vexti. Því hefur Óperan m.a. lagt
áherslu á hagkvæmni þess að vera undir sama þaki og Sinfón-
íuhljómsveitin, sem er og verður Óperunni um langa framtíð eðlilegur
og nauðsynlegur samstarfsaðili, enda sömu hljóðfæraleikararnir sem
leika hjá báðum. Óperan hefur óskað eftir að fá afnot af minni tónlist-
arsalnum í húsinu og hefur fengið stuðning við þá ósk frá allri tónlist-
arhreyfingunni í landinu.
Áður ívitnuð ummæli Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur vekja upp al-
varlegar spurningar um íslenska menningarpólitík. Er það raunveru-
lega stefna íslenskra stjórnmálaflokka að endurskrifa tónlistarsöguna
til þess að geta úthýst óperustarfsemi úr fyrirhuguðu tónlistarhúsi og
flutt Íslensku óperuna nauðuga í Borgarleikhúsið?
Af hverju má Óperan ekki
vera í tónlistarhúsinu?
Eftir Jón Ásbergsson
Höfundur er formaður stjórnar Íslensku óperunnar.
HÁSKÓLI Íslands þarf að vera
alþjóðlega viðurkenndur rann-
sóknaháskóli og bakhjarl rann-
sókna við aðra ís-
lenska háskóla.
Þessi stefna var
samþykkt á lands-
fundi sjálfstæð-
ismanna árið 2001.
Davíð Oddsson for-
sætisráðherra sagði
í opnunarræðu á nýliðnum lands-
fundi að vaxandi samkeppni á há-
skólastiginu muni vafalaust efla
Háskóla Íslands og verða þannig
öllum til góðs. Þessi jákvæða af-
staða til Háskólans hefur víða ver-
ið áréttuð í ræðu og riti. Hún við-
urkennir sérstöðu elsta og stærsta
háskóla þjóðarinnar í háskólastig-
inu. Hún gerir jafnframt þær
kröfur til Háskóla Íslands að hann
styðji við bakið á nýrri og óreynd-
ari háskólum með samvinnu um
rannsóknir, eins og ætlast má til
af rannsóknaháskóla í eigu al-
mennings. Þetta útilokar vissulega
ekki samkeppni milli háskólanna
um rannsóknastyrki. Það er stefna
Sjálfstæðisflokksins að sterkir
samkeppnissjóðir eigi að styrkja
öflugar rannsóknir þar sem gæðin
eru fyrir hendi, en gera jafnframt
nýjum rannsóknahópum kleift að
byggja slíka færni upp. Auk þess
er mikilvægt að háskólastigið, op-
inberar rannsóknastofnanir og
einkafyrirtæki efli samstarf sitt,
einkum á sviði rannsóknamennt-
unar. Síðast en ekki síst verður
Háskóli Íslands að vera raunveru-
legur valkostur á sem flestum
sviðum þegar íslenskir eða erlend-
ir nemendur kjósa sér framhalds-
nám að lokinni grunnmenntun,
hvar sem hún er fengin.
Á fundi fulltrúa stjórn-
málaflokkanna í Háskóla Íslands
nýverið kom fram skýr vilji Tóm-
asar Inga Olrich mennta-
málaráðherra að standa einarðlega
við þessa stefnumörkun flokksins.
Menntamálaráðherra viðurkennir
sérstöðu Háskóla Íslands í verki
með því að gerður hefur verið sér-
stakur rannsóknasamningur við
hann. Hlutverk rannsóknasamn-
ings menntamálaráðuneytisins við
Háskóla Íslands er að skerpa á
gagnkvæmum skyldum samnings-
aðila og skýra markmið vísinda-
starfs við Háskólann. Í því felst
meðal annars að auka rann-
sóknavirkni og tryggja að gæði
rannsókna og framhaldsnáms upp-
fylli kröfur sem gerðar eru til
sambærilegra háskóla erlendis.
Auk þess er verið að yfirfara fjár-
veitingar til rannsókna og æðri
menntunar í landinu og kanna
hvort ástæða sé til að gera breyt-
ingar á þeim. Í því samhengi má
minna á ályktun landsfundar sjálf-
stæðismanna á dögunum, sem
hvetur til samkeppni einstakra há-
skóladeilda án tillits til rekstr-
arforms og uppruna um beina
rannsóknasamninga við ríkið sam-
kvæmt alþjóðlegum gæðakröfum.
Hæfustu háskóladeildir hverju
sinni muni þannig njóta opinberra
fjárveitinga til rannsókna. Vafa-
laust þarf Háskóli Íslands ekki að
óttast slíkt fyrirkomulag, en ef svo
er veitir það honum öflugt aðhald
á sviðum þar sem hann þarf að
bæta sig. Krafa skattgreiðenda
hlýtur að vera að rannsóknir
greiddar af almannafé séu í hæsta
gæðaflokki.
Í reynd er farsæl menntastefna
í sátt við atvinnulíf besta byggða-
stefnan til langs tíma. Reynsla
Finna sem stofnað hafa fjölda
tækniskóla og háskóla víða um
land er afdráttarlaus, háskólar
sem njóta náinna tengsla við at-
vinnulíf og rannsóknastofnanir
stuðla að eflingu byggða. Slíkar
þekkingarmiðstöðvar eru fimm
talsins vítt og breitt um Finnland
og þar er fólksfjöldi í jafnvægi.
Þetta á einnig við um Háskóla Ís-
lands. Hann verður að vera kjöl-
festa í íslenskri byggðastefnu
gagnvart útlöndum. Honum er
nauðsyn að öflugur þekking-
argarður rísi sem fyrst í Vatns-
mýrinni og að hann hafi fram að
færa rannsóknir og sérþekkingu
sem laðar fyrirtæki og rann-
sóknastofnanir til samstarfs. Það
er verður sífellt algengara að fyr-
irtæki sæki þangað sem menntað
vinnuafl er fyrir hendi. Á hinn
bóginn er fátt sem heldur slíkum
starfskröftum á stöðum þar sem
enga vinnu við hæfi er að fá. Það
var því fagnaðarefni að heyra
Tómas Inga Olrich mennta-
málaráðherra lýsa því yfir á dög-
unum að hann muni beita sér fyrir
því af fremsta megni að opinber-
um rannsóknastofnunum yrði gert
kleift að flytja starfsemi sína eftir
föngum og þar sem við á í þekk-
ingargarð Háskólans. Þetta myndi
efla og styrkja rannsókna- og þró-
unarstarf við Háskólann og laða
fyrirtækin að háskólasvæðinu.
Þannig fengi Háskólinn tækifæri
til að rækta hlutverk sitt við aðra
háskóla, atvinnulífið og þar með
þjóðlífið allt enn betur en nú.
Háskóli Íslands
og Íslendinga
Eftir Hafliða Pétur Gíslason
Höfundur er prófessor
við Háskóla Íslands.
HVAÐA flokk ætlar þú að kjósa í
vor? Hefurðu kynnt þér stefnur stjórn-
málaflokkanna, og skoðað efndir þeirra
síðastliðin ár? Til
dæmis hvernig sjáv-
arbyggðunum hefur
hnignað undanfarið.
Hvar eru frystihúsin
þar sem börnin okkar
unnu í sumarfríum til
að fá vasapening fyrir
skólann? Eða vélsmiðjan og rafverk-
stæðið þar sem þau byrjuðu sinn feril?
Þetta er allt fokið burt með kvótanum.
En hverjum er það að kenna að kvót-
inn fór úr byggðarlaginu?
Það skyldu þó ekki vera núverandi
stjórnvöld, þegar menn ætluðu að fara
að hagræða og græða. Þegar nokkrir
útvaldir fengu fiskinn á silfurfati.
Menn áttuðu sig ekki á hvað var að
gerast fyrr en of seint, eða þegar leyfið
til að róa var horfið burt úr sveitarfé-
laginu. Sonurinn og dóttirin sem vilja
fá sér trillu og sækja sjóinn komast
ekki að lengur. Þeim er bannað að
bjarga sér á sama hátt og afi þeirra
gerði í gamla daga. Sama er að gerast í
landbúnaði, ungu fólki er fyrirmunað
að byrja að búa, það þarf fleiri milljónir
til að kaupa kvóta.
Það getur verið að einhverjir séu
orðnir leiðir á öllu tali um sjávarútveg.
En það vill svo til að líf okkar, velsæld
og stöðugleiki hefur einmitt orðið til
fyrst og fremst vegna þess afla sem
barst frá sjónum. Auðvitað viljum við
að börnin okkar fari í skóla og læri það
sem hugurinn stendur til. En und-
irstöðuna er í mörgum tilfellum búið að
taka frá okkur. Það var rætt um að
færa ríkisstörf út á land, en hefur þeim
ekki frekar verið fækkað og færð suð-
ur? Hvernig getur hinn almenni borg-
ari þessa lands kosið Sjálfstæðisflokk,
eða Famsóknarflokk, sem hafa einmitt
staðið fyrir þessari aðför að lífi okkar
og undirstöðu?
Sem betur fer eru menn smám sam-
an að átta sig á því hvað þessir flokkar
standa fyrir. Auglýsingar þeirra sýna
svo ekki verður um villst, að það eru til
nógir peningar þar. En hver skyldi
borga brúsann? Það verður ekki gefið
upp. Kannast einhver við að vilja selja
húsið sitt, og enginn vill kaupa? Kann-
ast einhver við þá tilfinningu að rætt sé
um að leggja niður fyrirtækið á staðn-
um og flytja það annað, því einhver
hefur keypt réttin til að nýta það?
Við erum föst í kyrrstöðu, sem við
komumst ekki út úr nema að rifta
þessari hringrás kvótakerfisins núver-
andi. Ég ákvað fyrir fjórum árum að
styðja Frjálslynda flokkinn og ég sé
ekki eftir því, þar er kraftmikið fólk
sem vill vel og er í sterkum tengslum
við samfélagið. Þar er engin spilling og
fólkið, sem hefur boðið fram krafta
sína til að láta gott af sér leiða, er fólk
sem virkilega vill breyta þessu sam-
félagi til hins betra.
Í Reykjavík búa nú margir af þeim
sem hafa orðið að hverfa frá lands-
byggðinni, ekki endilega sáttir, en hafa
enga aðra leið. Og þegar slíkt gerist þá
þrengir að því fólki sem fyrir er. Það
bætast við börn í skólana, biðlistinn
lengist á leikskólana og bílaflotinn
stækkar. Reykvíkingar tala gjarnan
um að landsbyggðarfólkið sé baggi á
þeim. En málið er, að ef fólkið fengi
vinnu við hæfi heima hjá sér, þá vildu
margir mjög gjarnan vera þar. Og ef
fólkið hefði vinnu í heimahögunum, þá
myndi landsbyggðin styrkjast, og
styrkari landsbyggð skapar sterkari
höfuðborg. Einfaldasta lausnin er oft-
ast líka árangursríkust.
Ég ætla ekki að segja neinum hvað
hann á að kjósa, en ég hvet fólk til að
kynna sér stefnumál og efndir flokk-
anna og gera upp hug sinn að því
loknu. Það er alveg kominn tími til að
hugsa málið upp á nýtt og kjósa eftir
því hvað kemur fólkinu sjálfu best í
bráð og lengd, og hvernig framtíð
barnanna okkar er best tryggð. Hvað
finnst þér?
Þú íslenska móðir
Eftir Ásthildi Cesil Þórðardóttur
Höfundur er í 11. sæti Frjálslynda
flokksins í Norðvesturkjördæmi.
ATVINNA mbl.is