Morgunblaðið - 09.05.2003, Blaðsíða 56
UMRÆÐAN
56 FÖSTUDAGUR 9. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ALLIR sem til þekkja innan-
búðar í Frjálslynda flokknum vita
hvers vegna Nýtt afl kom til.
Stefnumál Nýs afls
eru svo lík frjáls-
lyndra að þarna er
verið að dreifa
kröftunum og
skjóta framhjá
markinu og þar
með vinna þjóðinni
tjón.
Athugið góðir Íslendingar. Verði
kvótadraugurinn ekki lagður að
velli núna hinn 10. maí mun und-
irritaður draga fána skips síns í
hálfa stöng og það mun verða gert
í hverri höfn á ströndinni. Ný afls-
sinnar! Styðjið frjálslynda í bar-
áttu okkar allra sem vilja leitast
við að lyfta þjóðlífi voru á æðra
plan. Svo setjumst við öll við varð-
eldinn og tökum lagið.
Það er
athyglisvert
Undirritaður saknar þess að
enginn af hinum ágætu umbóta-
sinnum hefur sett eftirfarandi inn í
stefnuskrá sína. Takið nú vel eftir.
Á hinni háæruverðugu löggjaf-
arsamkundu Íslendinga hefur und-
anfarin ár starfað fjöldi fólks sem
á beinna einkahagsmuna að gæta í
sjávarútvegi. Leggið eftirfarandi á
minnið. Þetta er eitt af þeim
þungavigtaratriðum sem lögmenn-
irnir í Vatneyrarmálinu hafa á sínu
borði. Vegna vanhæfi löggjaf-
arsamkundunnarhrynur kvótakerf-
ið líkt og spilaborg eftir átta til
fjórtán mánuði. Það gengur ein-
faldlega ekki upp að semja gild lög
með þeim hætti sem gert hefur
verið varðandi sjávarútveginn.
Kvótakerfið í sjávarútvegi er því
sá mesti glæpur sem settur hefur
verið á svið hjá nokkurri sið-
menntaðri þjóð. Því þarf eftirfar-
andi að koma fram í stefnuskrá
umbótaflokkanna. Það er að þeir
sem hafa beinna einkahagsmuna
að gæta í hverju máli, sem rætt er
á Alþingi, skuli víkja úr salnum
meðan umræða þeim tengd fer
fram og skuli þeir ekki hafa at-
kvæðisrétt.
Ísland í dag –
Ísland sem var
Á gullárunum 1930 til 1967
þurfti enginn vinnandi maður við
sjávarsíðuna að sofa allt sumarið.
Á vetrarvertíðinni lögðu menn nótt
við dag við róðra, beitingu, söltun
og frystingu. Á þessum árum var
byggt upp besta heilbrigðiskerfi í
heimi, sem nú er að hrynja í nú-
tímagóðærinu. Besta þjóðlíf jarð-
kúlunnar var jafnframt byggt upp
á þessum árum. Þá var, þótt mikið
væri að gera, tími til að ræðast við
og hlæja saman. Þá var ekki rífist
um peninga og ójöfnuður þegn-
anna óþekkt fyrirbæri. Hvað er
nú? Nýríku stuttbuxnajónarnir eru
nú í óða önn að selja það sem við,
sem komin erum um og yfir miðj-
án aldur, höfum þrælað okkur út
fyrir samfélagið. Þetta gera hinir
mjúkhentu drengir, sem aldrei
hafa unnið neitt, til að halda uppi
gervistöðugleika í þjóðfélaginu. Nú
er svo komið að við, sem erum
veðurbitnir eftir vosbúð og þræl-
dóm, megum ekki lengur setja
færið okkur í sjó, því nú er Eim-
skip eigandi fiskimiðanna okkar
við ströndina.
Góðir, sannir Íslendingar.
Stöndum saman um frjálslynda.
Veljum frelsi, jafnrétti og bræðra-
lag. Setjum frjálslynda á flug,
náum inn 20 þingmönnum.
Nýtt afl
Eftir Garðar H. Björgvinsson
Höfundur er útgerðarmaður og
bátasmiður og framkvæmdastjóri
Framtíðar Íslands.
HVAÐ á maður að kjósa? Er
þetta ekki spurning sem við mörg
höfum velt fyrir okkur síðustu vik-
ur og daga? Í kjör-
klefanum 10. maí
verður svarið að
liggja fyrir ef við
viljum á annað borð
nýta okkur kosn-
ingaréttinn. – „Æ,
þeir eru allir eins,“
segja gjarnan þeir sem ekki nenna
að setja sig inn í stefnumið flokk-
anna eða hugleiða hvort verk
þeirra stór og smá séu í einhverju
samræmi við það sem þeir sögðust
ætla að gera. Að sitja heima og
neyta ekki kosningaréttar síns
jafngildir því að afhenda öðrum
ákvörðunarvaldið yfir eigin lífs-
afkomu og mótun samfélagsins.
Málefni jörðuð
með Samfylkingunni
Ég kvaddi Framsóknarflokkinn
ungur að árum og gekk til liðs við
Alþýðubandalagið við stofnun þess.
Þar fannst mér að mín hjartans
mál, sjálfstæðismál þjóðarinnar í
víðri merkingu, ættu bestu mál-
svarana. Það var ekki alveg án
trega sem ég sagði mig úr Alþýðu-
bandalaginu í júlí 1998 þegar leiðir
skildi og hluti félaga minna í þeim
flokki var að undirbúa kosninga-
bandalag við Alþýðuflokkinn, sem
síðar leiddi til myndunar Samfylk-
ingarinnar. Mér finnst nú, tæpum
fimm árum síðar, að allt það helsta
sem ég óttaðist að þetta leiddi til
hafi gengið eftir: Enn vottar Sam-
fylkingin NATO og Bandaríkjunum
hollustu sína og virðist ekki sjá
neitt athugavert við það að Ísland
eigi áfram „öryggi sitt“ undir þeim
sömu hersveitum og réðust á Írak,
og nú stunda þar daglega mann-
dráp á saklausu fólki. – Enn stefn-
ir Samfylkingin að því að Ísland
gerist aðili að Evrópusambandinu
með tilheyrandi skerðingu á sjálfs-
ákvörðunarrétti. – Samfylkingin
styður stóriðjustefnu núverandi
ríkisstjórnar, gerð Kárahnjúka-
virkjunar og álvers í Reyðarfirði
og þá herför að hálendi Íslands
sem af þessum risaframkvæmdum
leiðir. Allt tal Samfylkingarinnar
um umhverfisvernd og fjölþætta
atvinnustefnu er ótrúverðugt með-
an flokkurinn heldur fast við stór-
iðjustefnuna.
Uppskeran er
miðjuflokkur
Ég er ekki með neitt sam-
viskubit yfir því að hafa ekki fylgt
fyrrverandi félögum mínum í Al-
þýðubandalaginu yfir í Samfylk-
inguna. Ég geri mér æ betur grein
fyrir því – og byggi það m.a. á við-
tölum við ýmsa góða vini mína í
þessum hópi – að þeir gerðu þetta
„í góðri trú“. Með því að ganga til
liðs við Alþýðuflokkinn telja þeir
sig vera að leggja lóð á vog-
arskálar gamalla hugmynda um
samstarf „verkalýðsflokka“, jafnvel
samfylkingarhugmynda Einars Ol-
geirssonar sem tilheyra löngu liðn-
um tíma. – En hver verður fram-
vindan? Ég vil ekki vera hér með
neinar hrakspár gagnvart Samfylk-
ingunni. En ég gæti ímyndað mér
að barátta þess ágæta fólks sem í
einlægni vill að Samfylkingin þró-
ist yfir í öflugan vinstriflokk megi
sín lítils andspænis hugmyndum
þeirra sem vilja gera flokkinn að
„breiðum“ miðjuflokki þar sem
rúm verði fyrir fólk með mjög ólík-
ar stjórnmálaskoðanir. Hvaða sjón-
armið yrðu ofan á í hugsanlegum
samningum slíks flokks við aðra
flokka um aðild að ríkisstjórn? Það
þarf varla að eyða að því orðum að
ef fólkið sem myndar flokkinn hef-
ur ekki sameiginleg viðhorf til
helstu mála sem varða heill og
framtíð þjóðarinnar er bara tíma-
spursmál hvenær hópurinn riðlast.
Þetta ætti sagan að hafa kennt
okkur.
Látum ekki villa
um fyrir okkur
Ég gekk í Vinstrihreyfinguna –
grænt framboð af því að mér
fannst að viðhorf mín og hugsjónir
féllu vel að stefnumiðum sem sá
flokkur setur á oddinn. En ég lít
ekki á mig sem neinn „flokksþræl“.
Ég áskil mér rétt til að gagnrýna
stefnu og áherslur flokksins ef mér
finnst hann vera að víkja af þeirri
leið sem ég tel réttasta. – Nú þeg-
ar kosningar standa fyrir dyrum
finnst mér að fólk eigi að skoða
málin með opnum huga en ekki
láta flokkana villa um fyrir sér
með auglýsingaskrumi og persónu-
dýrkun sem minnir á kosningar í
einræðisríkjum. – Ég væri ekki
samkvæmur sjálfum mér ef ég færi
að skora hér á fólk að kjósa endi-
lega Vinstri græna. En ég get þó
með góðri samvisku ráðlagt fólki
að hlusta eftir eigin hjartslætti og
kanna síðan hjá hvaða flokki það
finnur samhljóm við eigin hug-
myndir. Þá fyrst er tímabært að
taka sér blýantinn í hönd í kjör-
klefanum.
Að hlusta eftir
eigin hjartslætti
Eftir Gunnar Guttormsson
Höfundur er vélfræðingur og
félagi í Vinstrihreyfingunni –
grænu framboði.
Á UNDANFÖRNUM árum hafa
borgarbúar verið svo lánsamir að
hafa vinstri-græna fulltrúa í borg-
arstjórn Reykjavík-
ur. Í borgarstjórn
hafa vinstri-grænir
haldið á lofti um-
hverfissjónarmiðum
og jöfnuður meðal
borgarbúa er skær-
asta leiðarljósið.
Mér þykir rétt að benda á þetta hér
þar sem af fjölmiðlaumræðu að und-
anförnu hefur mátt halda að ein-
ungis ein manneskja hafi stjórnað
borginni á undanförnum níu árum.
Því fer fjarri að ég vilji halla á Ingi-
björgu Sólrúnu Gísladóttur, fyrrver-
andi borgarstjóra, en það má öllum
vera ljóst að hún ein hefur ekki
stjórnað borginni.
Vistvænar samgöngur
í vistvænni borg
Ein af þremur meginstoðum í ný-
samþykktu aðalskipulagi Reykjavík-
ur til ársins 2024 er vistvæn borg.
Aðalskipulagið var unnið á síðasta
kjörtímabili þegar Árni Þór Sigurðs-
son var formaður skipulagsnefndar.
Hann vann ötullega að því að al-
menningssamgöngur fengju þann
sess sem almenningssamgöngum
ber í vistvænu borgarskipulagi. Nú
er verið að vinna að endurskoðun
leiðakerfis Strætó bs. og unnið er að
skipulagi sem gerir ráð fyrir for-
gangi almenningssamgangna. Þá
hafa fulltrúar VG í borgarstjórn m.a.
viljað vernda tjörnina og lagt sitt af
mörkum til að sporna gegn bygg-
ingu bílastæðakjallara undir tjörn-
inni. Við höfum þó langt í frá bara
verið á móti – við höfum bent á aðra
kosti sem nú eru til skoðunar. Það
hefur verið okkar hlutverk að setja
upp umhverfisgleraugun því við
þurfum að búa þannig um hnútana
að við séum í sátt við landið og líf-
ríkið. Það koma nýjar kynslóðir
borgarbúa á eftir okkur.
Jöfnuður og velferð í öndvegi
Til að tryggja öllum borgarbúum
sem best og líkust skilyrði er nú
unnið samkvæmt þeirri hug-
myndafræði að blanda byggð. Fé-
lagslegar leiguíbúðir eiga að vera í
bland við sérbýli og almenn fjölbýli.
Með slíku fyrirkomulagi er tryggt að
börn með fjölbreyttan félagslegan
bakgrunn alast upp hlið við hlið og
bæta við hvert hjá öðru. Við þurfum
öll að skilja kjör og aðstæður ann-
arra hvort sem þau eru betri eða
verri en okkar eigin. Því á Reykjavík
að reka frábæra skóla fyrir öll börn
og sjá til þess að börnum sé ekki
mismunað. Liður í því er að vinna að
því að gera leikskólann ókeypis og
greiða niður uppbyggilegt tóm-
stundastarf fyrir börn.
Þó svo hér hafi einungis verið
stiklað á stóru má sjá að vinstri-
grænar áherslur hafa náð inn í
stjórn borgarinnar. Það þarf marga
við stjórnvölinn svo vel sé – einn
fulltrúi getur hvorki stýrt né haft þá
heildarsýn sem þarf. Árangur
Reykjavíkurlistans í jafnrétt-
ismálum, umhverfismálum og upp-
byggingu samfélagsþjónustunnar er
okkur öllum sem stöndum að
Reykjavíkurlistanum að þakka.
Vinstri grænir í
borgarstjórn
Eftir Björk Vilhelmsdóttur
Höfundur er borgarfulltrúi og vara-
formaður Vinstrihreyfingarinnar –
græns framboðs í Reykjavík.
Fæst í apótekum
og lyfjaverslunum
ER NEFIÐ STÍFLAÐ?
STERIMAR
Skemmir ekki slímhimnu
er náttúrulegur
nefúði sem losar stíflur
og léttir öndun.
Fyrir 0-99 ára.
DILBERT
mbl.is