Morgunblaðið - 09.05.2003, Síða 71
ÞAÐ er að moka í botnlausa tunnu að
afhenda núverandi kvótaeigendum ný
viðbótar 30 þúsund tonn í þorskveiði-
heimildum fyrir
ekki neitt eins og
gera á. Ný stjórn
ætti að láta leigu-
tekjur af þessum
30 þúsund tonnum
gera gagn með því
að láta kvótaleig-
una af þessum
nýju 30 þúsund
tonnum renna til
barnanna okkar, þ.e. þeirra sjálfra.
Það er alveg vonlaust verk að moka
áfram peningum og gjafaþorski í nú-
verandi skuldasúpu stórútgerðar. Op-
inberar skýrslur segja að útgerðar-
skuldin sé samtals 200 miljarðar í dag
og hafi tvöfaldast á nokkrum síðustu
árum. Fyrir kvótakerfi töluðu menn
um „sjóðasukk“. Ýmsar útgerðir
fengu þá fé úr þessum sjóðum sér til
hjálpar í tapútgerð.
Með gjafakvóta átti að laga þetta en í
staðinn fyrir „sjóðasukk“ kom risasala
á gjafakvóta og risaskuldir kvótakaup-
enda eða „skuldasukk“ kaupenda.
Óviðráðanlegar risaskuldir þeirra sem
óðir hafa keypt síðustu árin meiri og
meiri kvóta með erlendu lánsfé að
mestu eru að sliga bankana. Öllu er
haldið á floti með því að veðsetja svo
kvótann og fiskimiðin við landið útlend-
um bönkum. Útlendingar eiga því fiski-
miðin orðið óbeint að miklu leyti. Það er
orðið hreint brjálæði í dag að halda
„skuldasukki“ kvótakaupenda áfram
gangandi lengur og það verður að
stoppa. Þessir 200 milljarðar hækka ár
frá ári stjórnlaust og útlendum bönkum
er veðsett meira og meira. Í dag eign-
ast útlendingar líka húsin okkar með
kaupum húsbréfa. Bandaríski dollarinn
er á útsölu í Reykjavík og kostar 76
krónur vegna sölu húsbréfa til útlanda
nánast daglega.
Ríkisstjórnin hagar sér eins og
Bakkabræður ef hún mokar þessum
nýju 30 þúsund þorsktonnum í botn-
lausa tunnu stórútgerðarskuldanna.
Er hreint glapræði.
Bréfritari leggur til að þessi 30 þús-
und nýju þorsktonn verði leigð hæst-
bjóðanda á kvótamarkaði. Leigutekj-
urnar gengju til að bæta hlut allra
barna í þjóðfélaginu og til þeirra
beint. Þetta fé myndi gjörbreyta til
góðs hag margra barna okkar. Þau
fengju þetta sjálf í eigin nafni sem
einstaklingar. Þjóðfélagið væri ekki
alvont lengur.
Sérstaklega myndi fátækari börn
mikið muna um þetta. Þeim er sýnd
virðing. Eru ekki alveg gleymd. Gætu
borðað góðan mat svo sem fisk og kjöt
sem kvótagróðinn borgaði fyrir þau.
Börnin eiga fiskimiðin eins og ég og
þú. Svo gætu þau tekið þátt í tóm-
stundum sem og aðrir, t.d. íþróttum.
Jafnvel farið í tónlistarnám sem allt
kostar peninga. Þannig má telja
áfram. Þessi nýju 30 þúsund tonn til
barnanna væru besta verk þessa árs
eða áratuga ef nýi kvótinn er leigður
út á uppboði og tekjurnar færu í heild
til að bæta hlut allra barnanna okkar.
Að gefa þetta allt stórútgerð í dag upp
í „skuldasukkið“ er svipað og verk
Bakkabræðra þegar þeir mokuðu í
botnlausu tunnuna.
Betra er að börnin okkar öll njóti
þessara nýju kvótapeninga af 30 þús-
und tonnum en tekjunum sé ekki í
þess stað í raun hent í botnlaust
„lánasukk“ sem er í dag vonlaust
dæmi fjárhagslega hvort sem er.
LÚÐVÍK GIZURARSON,
Grenimel 20,,
107 Reykjavík
Börnin fái nýju
30.000 tonnin
Frá Lúðvík Gizurarsyni, hrl:
Lúðvík Gizurarson
BRÉF TIL BLAÐSINS
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. MAÍ 2003 71
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna alþingiskosninganna
10. maí er hafin. Kosið er hjá sýslumönnum og hreppstjórum
um land allt, sendiráðum og mörgum ræðismönnum erlendis.
Í Reykjavík er kosið í Skógarhlíð 6, alla daga frá kl. 10-22.
Utankjörstaðaskrifstofan veitir allar upplýsingar og aðstoð við
kosningu utan kjörfundar. Einnig er hægt að nálgast upplýs-
ingar á heimasíðu Sjálfstæðisflokksins www.xd.is og á upplýs-
ingavef dómsmálaráðuneytisins www.kosningar2003.is.
Sjálfstæðisfólk! Látið okkur vita um
stuðningsmenn sem ekki verða heima á kjördag,
t.d. námsfólk erlendis.
Utankjörstaðaskrifstofa
Sjálfstæðisflokksins
Valhöll, Háaleitisbraut 1, 3. hæð,
105 Reykjavík – Símar 515 1735 og 515 1736
Bréfasími 515 1739 – Farsími 898 1720
Netfang: oskar@xd.is
Í SJÓNVARPSÞÆTTI sem ég sá í
vikunni tók Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir sig til og útskýrði fyrir við-
mælendum sínum fyrningu kvóta og
bar saman við fyrningu véla hjá fyr-
irtæki. Ég tók ekki eftir öðru en að
hún gerði þetta til að sýna fram á,
að um nákvæmlega samskonar hluti
væri að ræða. Ekki vildi mitt gamla
bókhaldarahjarta slá í takt við
þetta.
Þó að „vitringarnir“ sem gerðu
tillögu til sjávarútvegsráðherra um
auðlindagjaldið og svokallaða fyrn-
ingarleið hafi ekki hugleitt hvað orð-
ið „fyrning“ merkir í því sambandi
mætti ætla að fyrrum borgarstjóri í
Reykjavík ruglaði þessu ekki sam-
an. Að fyrna vél er bókhaldsleg að-
gerð, sem þýðir að tiltekin upphæð
er dregin frá upphaflegu verði og af-
gangurinn færður til eignar á efna-
hagsreikningi. Ekki er tekinn burtu
úr fyrirtækinu sá hluti vélarinnar
sem fyrndur var, heldur er verið að
mæta sliti og afföllum vegna notk-
unar og færa eignina til sannara
verðs. Þegar svokölluð fyrning afla-
heimilda er gerð er það ekki fyrning
í sama skilningi og með vélina, held-
ur er um brottnám að ræða, tiltek-
inn hundraðshluti er tekinn frá fyr-
irtækinu og fluttur annað. Þannig
virðist mér túlkun stjórnmálaflokka
vera á svokallaðri fyrningarleið.
Þetta er meira en málvilla, þetta
er algjör kórvilla og barnalegur út-
úrsnúningur, sem stjórnmálamenn
ættu líka að skilja og vara sig á.
MARTEINN FRIÐRIKSSON,
Naustahlein 26, Garðabæ.
Fyrning og fyrning
Frá Marteini Friðrikssyni:
UNDANFARIÐ höfum við almenn-
ir þegnar þessa lands fylgst með
deilum forsætisráðherrans og for-
vígismanna Baugs. Þar hafa stór
orð fallið sem ekki verða rakin hér.
Mig langar aðeins að vekja athygli á
einni hlið hins íslenska veruleika
sem við íslenskir launamenn þurfum
að etja við. Það er hátt matvælaverð
á Íslandi og hverjir hafa komið til
móts við þær þarfir að lækka það?
Þannig er það nefnilega að mat-
vælaverð hér á þessu blessaða landi
hefur lengi verið með því hærra
sem þekkist í Vestur-Evrópu. Það
er held ég engu logið um þau mál.
Heildsalaklíkan hefur séð til þess.
Fyrir rúmum áratug eða svo kom
svo fram á sjónarsviðið verslunin
Bónus og þar voru Jóhannes Jóns-
son kaupmaður og sonur hans Jóns
Ásgeir á ferðinni. Þeir, með dugnaði
og útsjónarsemi, byggðu sitt fyr-
irtæki upp. Sönnuðu að einkafram-
takið og einstaklingsfrelsið getur
vel virkað. Þetta einstaklingsfrelsi
sem Sjálfstæðisflokkurinn stóð
lengi vel fyrir en gerir ekki lengur.
Þessir feðgar, sem forsætisráð-
herrann okkar hefur kallað opinber-
lega spillta og þaðan af verra. Hann
hefur á opinberum vettvangi talað
um þá eins og glæpamenn og vænt
þá um glæpsamlegt athæfi, t.d. sagt
að þeir hafi boðið sér fé, með öðrum
orðum mútað sér. Hann má vart
vatni halda af vandlætingu yfir að
til séu menn sem bjóða honum birg-
inn og hefur úthrópað þá sem
spillta.
Nú er það svo að við, venjulegur
almúginn, höfum þurft síðari ár að
búa við þá erfiðu staðreynd að bilið
milli rástöfunartekna og útgjalda
heimilisins hefur verið að vaxa, þar
á ég við allt hækkar hraðar en
kaupið. Þar inni glímum við óbreytt-
ir almennir borgarar við ýmiss kon-
ar „mafíur“, t.d. tryggingafélögin,
sem passa sig á því að vera alltaf
samstiga um verðlagningu. Flest
þekkjum við hvernig búið er að okk-
ur bíleigendum, við getum ekkert
farið til að fá betri kjör á bílatrygg-
ingum, því að munurinn á milli fé-
laganna er enginn. Ekki tekur betra
við ef við víkjum að bensínverðinu,
þar er samkeppnin engin og ríkið
kemur þar til skjalanna, með sín
70% álögð vegargjöld af hverjum
bensínlítra. Ekki eru valdsmenn
þessa lands að huga að því að rekst-
ur bifreiðar sé hluti af lífskjörum.
Nei, þeir skamma bara Baugsfeðga.
En við lifum á því að borða er það
ekki? Jú, og til þess að borða verð-
um við að kaupa inn matvæli og þá
verðum við að hafa efni á að greiða
fyrir þau. Engin verslun hefur kom-
ið meira til móts við okkur lands-
menn í lágu matarverði en Bónus,
það vitna margar og síendurteknar
verðkannanir um. Það er ekki of-
mælt að Bónus hafi fært hundruð-
um og þúsundum Íslendinga kjara-
bætur með lágu vöruverði, en hvað
hefur ríkisstjórn Davíðs Oddssonar
gert til að verja neytendur gegn
okri og fákeppni? Jú, þeir hafa
skammað Baugsmenn og lýst því yf-
ir að þeir séu að misnota markaðs-
ráðandi stöðu sína. En hvað með ol-
íufélögin og tryggingafélögin?
Ekkert, ekki orð um þau, en samt
skaða þau lífskjör okkar neytenda
margfalt, margfalt meira en nokk-
urn tíma Baugur og Bónus. Svo
reyna þessir sömu menn að slá ryki
í augu okkar kjósenda með mál-
skrúði og loðnum loforðum um
skattalækkanir í fjarlægri framtíð.
Ef málum er stillt upp á einfaldan
hátt; og spurt hvort Baugsfeðgar
eða ríkisstjórn Davíðs Oddssonar
hafi bætt lífskjör mín og margra
annarra meira, þá er ekki hik í huga
mínum að svarið er Baugsfeðgar,
þeir hafa fært okkur lægra vöru-
verð meðan Davíð Oddsson og rík-
isstjórn hans hefur ekkert gert til
að stuðla að heilbrigðari viðskipta-
háttum hér. Í skjóli valdsins vex
einokunin eins og illgresi í bakgarði.
Þegar við völd sitja menn sem
markvisst vinna gegn lífsafkomu
venjulegs launafólks með okri og
bruðli í ríkisrekstri, þá er orðið illt í
efni. Þá er vissulega orðin þörf á að
kjósa til breytinga. Ef ég mætti
kjósa Baugsfeðga í næstu ríkis-
stjórn frekar en Davíð Oddsson í
næstu kosningum er ekki til vafi í
huga mér. Ég myndi kjósa Baugs-
feðga.
DANÍEL SIGURBJÖRNSSON,
Kársnesbraut 135,
200 Kópavogur.
Hverjir færa almenningi
kjarabætur og hverjir ekki?
Frá Daníel Sigurbjörnssyni:
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
MÉR er ánægja að svara fyrirspurn
Jóns Sigurðssonar á Hánefsstöðum í
bréfi til blaðsins sl. miðvikudag, en
Jón spyr vegna þess að í viðtali við
mig í útvarpinu var talað um sauð-
trygga og upplýsta kjósendur.
Í stjórnmálafræði er gjarnan talað
um fjóra hópa kjósenda. Í einum
þessara hópa eru kjósendur sem
hafa bæði áhuga og þekkingu á
stjórnmálum og fylgja einum stjórn-
málaflokki. Um þennan hóp kjós-
enda er notað enska orðið cognitive
partisans og ég hef stundum kallað
upplýsta flokksmenn. Í öðrum hópn-
um eru þeir sem hvorki hafa áhuga
né þekkingu á stjórnmálum, en
styðja samt flokkinn sinn ár eftir ár.
Um þá er notað hugtakið ritual part-
isans, sem kalla mætti (óupplýsta)
flokksmenn venjunnar eða tryggðar-
innar, en ég hef stundum kallað
sauðtrygga kjósendur og þóst vera
að tala mannamál. Í þriðja hópnum
eru þeir sem hafa bæði þekkingu og
áhuga á stjórnmálum en styðja eng-
an flokk, upplýstir flokksleysingar
(apartisans). Fjórða flokknum til-
heyra svo þeir sem hvorki hafa þekk-
ingu né áhuga á stjórnmálum og
styðja heldur ekki neinn flokk
(apoliticals), sem kalla mætti óupp-
lýsta flokksleysingja.
Þessi flokkun (sem auðvitað er
einföldun) felur í sér að sumir trygg-
ir flokksmenn eru upplýstir og sumir
eru óupplýstir. Sumir flokksleys-
ingjar eru upplýstir og sumir eru
óupplýstir.
Víða á Vesturlöndum hefur kjós-
endum í öðrum flokki (sauðtryggum
kjósendum), fækkað undanfarna
áratugi, en kjósendum í þriðja flokki
(upplýstum flokksleysingjum) fjölg-
að. Þessi breyting er ein undirrót
þess að sveiflur í kosningum hafa
aukist í mörgum löndum. Til þessa
var ég að vísa í viðtalinu.
ÓLAFUR Þ. HARÐARSON,
prófessor í stjórnmála-
fræði við HÍ
Um „sauðtrygga“ og
„upplýsta“ kjósendur
Frá Ólafi Þ. Harðarsyni:
Í SUNNUDAGSÚTGÁFU Morg-
unblaðsins rak ég augun í heilsíðu-
auglýsingu Sjálfstæðisflokksins. Þar
er falleg mynd af brosandi ungri
konu sem býður á kosningahátíð. Og
þar eru í boði veitingar og alls konar
barnaskemmtun. Eins og þetta
skipti máli! Skyldi virkilega vera
hægt að kaupa sér atkvæði með
slíkum uppákomum? Er hægt að
kaupa fjölda Íslendinga með ein-
hverju húllumhæi rétt fyrir kosn-
ingadaginn? Er þjóðin búin að
gleyma öllum hneykslismálum sem
núverandi ríkisstjórn var flækt í?
Er hún búin að gleyma umdeildum
ákvörðunum sem ráðamennirnir
tóku án þess að spyrja? Trúa menn
virkilega öllum röngum fullyrðing-
unum um bætt lífskjör sem núver-
andi ríkisstjórn ætlar að monta sig
með? Ríkisstjórn sem hefur í sinni
valdatíð rústað velferðarkerfinu,
sett heilbrigðiskerfið á annan end-
ann og gert efnahagslífið háð er-
lendum stóriðjufyrirtækjum?
Við viljum ekki nammi og blöðrur.
Við viljum ekki falleg loforð fyrir
eitthvað sem Sjálfstæðisflokkurinn
og Framsókn hefðu getað gert fyrir
löngu að raunveruleika. Valdatíð
þeirra var nógu löng og skilyrði
voru góð til að bæta hag almenn-
ings. Ég skora á alla hugsandi
landsmenn að gefa þessum mönnum
frí frá stjórn landsins, þeir eiga ekki
skilið að sitja áfram.
ÚRSÚLA JÜNEMANN,
kennari
Pylsur og hoppukastali
Frá Úrsúlu Jünemann:
Skólavörðustíg 8
Sími/fax 511 3555
Myndlistarsýning
Bjarni Ragnar