Morgunblaðið - 09.05.2003, Side 72
DAGBÓK
72 FÖSTUDAGUR 9. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Hanseduo kemur og
fer í dag. Mánafoss fer í
dag.
Mannamót
Aflagrandi 40. Bingó í
dag kl. 14.
Árskógar 4. Kl. 13–
16.30 opin smíða- og
handavinnustofan. Kl.
13.30 bingó.
Bólstaðarhlíð 43. Kl.
8–16 hárgreiðsla, kl.
8.30–12.30 bað, kl. 9–16
handavinna, kl. 9–17
fótaaðgerð, kl. 13–16
spilað í sal.
Eldri borgarar, Álfta-
nesi. Handverkssýning
verður haldin í Hauks-
húsi laugardaginn 10.
maí frá kl. 13–17. Sýnt
verður fjölbreytt úrval
handverks sem eldri
borgarar á Álftanesi
hafa verið að vinna í
vetur s.s. útsaumur,
glermálun, málverk,
tréútskurður o.fl. Heitt
kaffi á könnunni. Allir
velkomnir.
Félagsstarfið, Dal-
braut 18–20. Kl. 9 bað
og opin handavinnu-
stofa.
Félagsstarfið, Dal-
braut 27. Kl. 8–16 opin
handavinnustofan, kl.
9–12 applikering, kl.
10–13 opin verslunin.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9–12
bað, kl. 9–16.30 opin
vinnustofa, myndlist,
gifs o.fl., kl. 9.30 göngu-
hópurinn Gönuhlaup
leggur af stað, kaffi á
eftir göngunni.
Opnuð sýning á mál-
verkum Ólafar Guð-
jónsdóttur kl. 14 í dag.
Léttsveit Reykjavíkur
mun heiðra Ólöfu með
söng. Allir velkomnir.
Brids og spilamennska
fellur niður í dag.
Korpúlfar, Grafarvogi,
samtök eldri borgara.
Vatnsleikfimi er í Graf-
arvogslaug á föstudög-
um kl. 14.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8. bað, kl. 10
hárgreiðsla, kl. 10–12
verslunin opin, kl. 11
leikfimi, kl. 13 „opið
hús“, spilað á spil.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist
spiluð í Fannborg 8
(Gjábakka) kl. 20.30.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Pútt á
Hrafnistuvelli kl. 14–
16, brids kl. 13, biljard
kl. 13.30.
Gerðuberg, félagsstarf.
Kl. 9–16.30 vinnustofur
opnar, m.a. fjölbreytt
föndur, frá hádegi
spilasalur opinn, kór-
æfing fellur niður. S.
575 7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 9.30 málm- og silf-
ursmíði, kl. 13 bók-
band.
Gullsmári. Fundur í
Bókmenntaklúbbi Gull-
smára kl. 20. Frjálst
efni.
Hraunbær 105. Kl. 9
bað, handavinna, út-
skurður, fótaaðgerð og
hárgreiðsla, kl. 11 spurt
og spjallað. Kl. 14
bingó. Kaffiveitingar.
Allir velkomnir.
Norðurbrún 1. Kl. 9–13
tréskurður, kl. 9–17
hárgreiðsla, kl. 10–11
boccia.
Vesturgata 7. Kl. 9–16
fótaaðgerð og hár-
greiðsla, kl. 9.15–14.30
handavinna, kl. 10–11
kántrýdans, kl. 11–12
stepp, kl. 13.30–14.30
sungið við flygilinn, kl.
14.30–16 dansað í aðal-
sal.
Vitatorg. Kl. 8.45
smíði, kl. 9 hárgreiðsla
og myndlist, kl. 9.30
bókband og morgun-
stund, kl. 10 leikfimi og
fótaaðgerð, kl. 12. 30
leirmótun, kl. 13.30
páskabingó.
Bridsdeild FEBK, Gjá-
bakka. Brids kl. 13.15 í
dag.
Hana-nú, Kópavogi.
Laugardagsgangan á
morgun. Lagt af stað
frá Gjábakka kl. 10.
Gott fólk, gott rölt.
Gengið frá Gullsmára
13 kl. 10 á laugar-
dögum.
Ungt fólk með ungana
sína. Hitt húsið býður
ungum foreldrum með
börnin sín á fimmtud.
kl. 13–15 á Loftið í
Hinu húsinu, Pósthús-
stræti 3–5. Opið hús og
kaffi á könnunni, djús,
leikföng og dýnur fyrir
börnin.
Kvenfélag Grensás-
sóknar verður með sína
árlegu kaffisölu sunnu-
daginn 11. maí kl. 15.
Tekið verður á móti
tertum og öðru meðlæti
frá kl. 10–14 sama dag.
Síðasti fundur kven-
félagsins verður mánu-
daginn 12. maí kl. 20.
Allar konur velkomnar.
Gönguklúbbur Hana-
nú. Lagt af stað kl. 10
frá Gjábakka á kosn-
ingadagsmorgun og
kosningaskrifstofur
flokkanna í miðbænum
heimsóttar.
Minningarkort
FAAS, Félag aðstand-
enda alzheimersjúk-
linga. Minningarkort
eru afgreidd alla daga í
s. 533 1088 eða í bréfs.
533 1086.
Minningarkort Sam-
taka sykursjúkra fást á
skrifstofu samtakanna,
Tryggvagötu 26,
Reykjavík. Opið virka
daga frá kl. 9–13, s.
562 5605, bréfasími
562 5715.
Í dag er föstudagur 9. maí, 129.
dagur ársins 2003. Orð dagsins:
Faðir, gjör mig nú dýrlegan hjá
þér með þeirri dýrð, sem ég hafði
hjá þér, áður en heimur var til.
(Jóh. 17, 5.)
Stefán Jón Hafstein,formaður fram-
kvæmdastjórnar Sam-
fylkingarinnar, birti yfir-
lýsingu í Morgunblaðinu í
gær, þar sem hann er á
harðahlaupum frá þeirri
hugmynd sinni að réttlát-
ara sé að bjóða út fisk-
veiðiréttindi við Ísland á
heimsvísu en að viðhalda
núverandi kerfi í sjávar-
útvegi. „Þetta er rangt.
Þetta hef ég aldrei sagt,“
segir Stefán Jón í yfirlýs-
ingunni og bætir við að
hann sé alls ekki þeirrar
skoðunar að auðlindin
hafi verið sett í einka-
eign, heldur byggist nú-
verandi kerfi Íslendinga á
sameign þjóðarinnar.
Hinn 1. maí skrifaðiþessi sami Stefán Jón
pistil á vefinn Heimur.is.
Þar segir: „Þeir í Írak eru
með olíufyrirtæki í ríkis-
eign, andstætt fiskiskipa-
flota okkar sem er í
einkaeign. En það breytir
engu um að The Econom-
ist telur auðlindina sjálfa
– olíuna – „sameign þjóð-
arinnar“ alveg á sama
hátt og við höfum talað
um fiskinn.
Og blaðið leggur til
uppboð. Alveg eins og við
sum höfum gert um fisk-
inn við mikla andstöðu
„markaðshyggjumanna“
á Íslandi. Rétt eins og The
Economist vill alþjóðleg
samkeppnisboð í olíu-
vinnsluna í Írak teljum
við mörg að efna eigi til
samkeppnisboða í fisk-
veiðar við Ísland. […]
Í Írak var olíuvinnsla í
höndum þeirra sem fengu
til þess ríkisleyfi, alveg
eins og fiskveiðar á Ís-
landi eru í höndum þeirra
sem fá ríkisleyfi.“
Stefán Jón helduráfram: „Þeir sem vilja
innkalla kvóta til að bjóða
upp á ný geta aflað raka
hjá The Economist. Því
hér heima var aðgangi að
auðlindinni úthlutað á
vafasömum forsendum til
forréttindamanna.
Fyrningarleið er því
bæði eðlileg og auðskilin.
Í Írak eins og á Íslandi.
Svona talar nú The
Economist um „sameign
þjóðarinnar“ í Írak.
Blaðið viðurkennir
reyndar að hugmyndirn-
ar verði illa séðar af
„þjóðernissinnum“ í hag-
speki. En blaðið varar við
því að hagsmunahópar fái
sérstakan aðgang að af-
rakstri auðlindarinnar í
Írak. Slík varnaðarorð
hafa menn lengi haft uppi
um sameiginlega auðlind
Íslendinga.
Gilda ekki sömu rök á
Íslandi og Írak?“
Þurfa menn lengur aðvelkjast í vafa um
hvað Stefán Jón vill?
Hann telur að auðlindinni
hafi verið úthlutað með
vafasömum hætti til for-
réttindamanna. Í staðinn
vill hann samkeppnisút-
boð á veiðiheimildum,
sem verður illa séð af
þjóðernissinnum í hags-
peki - þ.e. alþjóðlegt út-
boð. Af hverju varð
manninum svona illa við
að sagt værifrá hans eigin
hugmyndum í fjölmiðl-
um?
STAKSTEINAR
Alþjóðlegt samkeppnis-
útboð á kvóta
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI er ákaflegaánægður með buddubúð-
irnar, eins og hann vill kalla
þær, en sumir kalla þær lág-
vöruverðsverzlanir. Þar hefur
til þessa verið hægt að fá mat-
vöru á lágu verði og að undan-
förnu hefur Europris auglýst
verkfæri á verði, sem er miklu
lægra en Víkverji sér í venju-
legum byggingavöruverzlun-
um. Þessar auglýsingar hafa
vakið áhuga Víkverja, því að
hann er stundum sjálfur að
dútla í viðhaldi á húsinu sínu og hef-
ur reynt að sanka að sér nauðsynleg-
ustu verkfærum.
Í auglýsingu frá Europris í Morg-
unblaðinu í gær voru auglýst nokkur
rafmagnsverkfæri á hlægilegu verði,
til dæmis borvél á 2.590 krónur,
fræsari á 4.995 krónur, rafmagns-
hefill á 2.990 krónur, slípirokkur á
1.490 krónur og höggborvél á 2.990
krónur. Víkverja vantar einmitt
slípirokk og hann vantar líka hjól-
sög, þannig að hann var ánægður að
sjá að Europris auglýsti hjólsög á
4.250 krónur. En Víkverja rak í
rogastanz þegar hann sá að undir
myndinni af hjólsöginni stóð „vönd-
uð“. Hvað er þá slípirokkurinn, sem
Víkverja langar í? Óvandað drasl?
x x x
KANNSKI borgar sig að hlaupaekki á eftir allra ódýrustu til-
boðunum. Kannski fer það líka eftir
því hvað maður vill að hluturinn end-
ist lengi – í eina slípun eða svo lengi
að hann verði erfðagripur. Víkverji
þekkir fólk, sem kaupir helzt aldrei
nema dýrustu og vönduðustu heim-
ilistækin, með þeim árangri að þau
endast von úr viti. Ameríski ísskáp-
urinn hefur enzt hátt í 40 ár, þýzka
þvottavélin gaf sig ekki fyrr en eftir
34. Á sama tíma væru sumir áreiðan-
lega búnir að endurnýja ódýr-
ari tæki tvisvar eða þrisvar.
Helzti ókosturinn við að eiga
svona vönduð og endingargóð
tæki er að útlitið á þeim getur
dottið úr tízku. Þá er skásta
vonin að það komi aftur í tízku,
eins og t.d. gerðist með amer-
ísku ísskápana.
x x x
SVO er sú hætta fyrir hendiað maður verði bara hreint
út sagt hallærislegur með gam-
alt, endingargott tæki. Þannig á Vík-
verji gamla, alhandvirka myndavél
af vönduðustu gerð, sem hann held-
ur mjög upp á. Um daginn var hann
að taka myndir af fimm ára dóttur
sinni, sem sat fyrir af innlifun og
brosti út að eyrum, kom svo val-
hoppandi til pabba síns og sagði:
„Lof mér að sjá myndina.“ Víkverji
reyndi að útskýra að þetta væri ekki
svona stafræn myndavél eins og afi
hennar ætti, heldur hefðbundin
myndavél með filmu, sem þyrfti að
fara í framköllun. „Kemur myndin
þá aldrei út?“ spurði sú stutta með
skeifu. Henni þykir ekki mikið til
ljósmyndagræja föður síns koma.
Morgunblaðið/Þorkell
Ódýr borvél og dýr borvél.
Hver segir satt?
Í kosningaumræðum und-
anfarnar vikur hefur mikið
verið rætt um málefni aldr-
aðra, kvótakerfið, skatta-
mál o.fl.
Frambjóðandi A stað-
hæfir í fjölmiðlum að sinn
flokkur sé með bestu og
réttlátustu lausnina í
skattamálum fyrir lág-
launafólk. Síðan kemur
frambjóðandi B og fullyrðir
með miklum áhersluþunga
að útreikningur A sé rang-
ur og muni einmitt skerða
hag láglaunfólks, en bæta
hag hálaunafólks. Hvað er
rétt?
Frambjóðandi D fullyrð-
ir að fiskkvótinn, sameign
þjóðarinnar, hafi verið af-
hentur fáeinum einstak-
lingum ókeypis og þeir hafi
í leyfisleysi selt hann öðr-
um með hagnaði. Sameign
þjóðarinnar sé því komin í
eign fárra einstaklinga.
Frambjóðandi E bendir á
að D hafi með sínum eigin
dugnaði og útsjónarsemi
eflt sitt útgerðarfyrirtæki
og aukið verðmæti kvótans.
(Hvað græddi ég á því?)
Frambjóðandi F segist
vilja að kvótinn verði smám
saman færður frá stóru fyr-
irtækjunum yfir til eigenda
smábáta sem ekki eyðileggi
fiskbotninn með stórvirk-
um veiðarfærum. Fram-
bjóðandi G segir að þar
með sé verið að rústa stór-
fyrirtækjunum sem einmitt
hafi skilað hagnaði. (Ekki
til mín!)
Frambjóðandi H segir að
stóreigandinn hafi aukið
verðgildi fiskimiðanna með
eigin útsjónarsemi, en með
tillögu G sé ætlunin að búa í
staðinn til annan séreigna-
hóp. (Hvað með mig?)
Ég hef aldrei átt bát eða
eigið fyrirtæki. Ég er bara
hinn almenni borgari þessa
lands sem fæ ekki enda til
að ná saman. Samt er mér
sagt að fiskurinn í sjónum
sé sameign landsmanna.
(Hver segir satt?)
Hvað á ég að kjósa? Á ég
virkilega fiskinn í sjónum,
en fæ ekki af honum arð?
Ráðvilltur kjósandi.
Far vel frans
ÉG fer oft á Grandann og
þá kem ég oft við í Nóatúni
og þar hitti ég stundum
gamla Vesturbæinga og við
tölum þá saman. En núna
er ekki hægt að tala við þá
því þeir eru svo æstir út af
Ellert.
Að gamall KR íhalds-
maður skuli vera á lista hjá
hentikrötum er meira en
hægt er að hugsa sér að
gæti skeð.
Gamla KR íhaldið þekkir
bara einn staf og það er D,
sem er fallegasti stafurinn í
stafrófinu, enda er það staf-
ur flokksins og líka for-
mannsins.
Gamla vesturbæjaríhald-
ið mun því ekki leggja hon-
um og krötum lið og ekki
bætir úr skák að þar er Sól-
rún sem svindlaði sér inn í
Reykjavík á síðasta ári sem
borgarstjóri og sveikst
undan merkjum eftir
nokkra mánuði.
Nei, vesturbæjaríhaldið
mun nú sem fyrr halda sig
við D-ið nú eins og alltaf því
D-ið er eini rétti stafurinn í
þessum kosningum.
Því segja þeir bara við
Ellert, far vel frans. Sels-
móri má vera í ykkar liði.
Þannig var það.
Guðmundur Bergsson,
Sogavegi 178.
Tapað/fundið
Bíllyklar týndust
BÍLLYKLAR týndust fyr-
ir utan Ölduslóð 28–30 eða
32. Skilvís finnandi hafi
samband í síma 555 0608.
Mjótt armband
týndist
MJÓTT gullarmband týnd-
ist nýlega. Skilvís finnandi
hafi samband í síma
554 1313.
Barnaúlpa týndist
BRÚN barnaúlpa týndist í
mars/apríl annaðhvort í
Mosfellsbæ eða í Reykja-
vík. Skilvís finnandi hafi
samband í síma 847 4685.
Dýrahald
Kettlingur fæst
gefins
8 VIKNA svartur kettling-
ur fæst gefins. Einstaklega
blíður og fallegur. Mamm-
an er blandaður skógar-
köttur. Upplýsingar í síma
860 1626.
Hamstrar óskast
ÓSKA eftir að fá gefins
hamstra eða dverg-
hamstra. Upplýsingar í
síma 867 0797.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
HVERS vegna heitir hún
það? Jú, hún stjórnast af
auglýsingum og sápu í
sjónvarpi, sískiptandi um
stöðvar, skiptir um bíl,
hús, húsgögn og það sorg-
lega maka, börn og nú
ríkisstjórn. Skipta, bara
til að skipta. Ég bið og
vona að svo verði ekki.
Ríkisstjórnarflokkarnir
hafa staðið sig vel og eiga
þakkir skilið. Alltaf má
gera betur. Sjálfstæð-
isflokknum treysti ég
best.
Maðurinn er auðurinn.
Börnin og barnabörnin
framtíðin. Við erum ekki
lengur meðal skuldugustu
þjóða heims. Þeir stóðu
sig vel. Horfum fram á
veginn. Áfram Ísland.
S.G.
Skiptimarkaðskynslóðin
LÁRÉTT
1 vaðfugl, 8 ungir hestar,
9 ræfla, 10 ýlfur, 11 hafa
fyrir sið, 13 ávinningur,
15 kátur, 18 dreng, 21
skynsemi, 22 byggja, 23
verur, 24 liggur á melt-
unni.
LÓÐRÉTT
2 ávöxturinn, 3 rudda, 4
stallur, 5 jakaburður, 6
styrkt, 7 brumhnappur,
12 hrúga, 14 legil, 15
ástand, 16 gestagangur,
17 dökkt, 18 vísa, 19
dóna, 20 bæla sig.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 hnika, 4 fussa, 7 rorra, 8 mágum, 9 rúm, 11
anna, 13 garð, 14 pilla, 15 hopa, 17 traf, 20 stó, 22 gjóta,
23 mætur, 24 skaft, 25 ránið.
Lóðrétt: 1 herða, 2 iðrun, 3 afar, 4 fimm, 5 sigla, 6 af-
máð, 10 útlit, 12 apa, 13 gat, 15 hagls, 16 prófa, 18 rætin,
19 fárið, 20 satt, 21 ómur.
Krossgáta 6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16