Morgunblaðið - 09.05.2003, Side 75
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. MAÍ 2003 75
GUÐJÓN Þórðarson,
fyrrverandi þjálfari
Stoke og íslenska lands-
liðsins, segist ekki vita
hvað taki við hjá sér eftir
tímabilið en hefur und-
anfarna mánuði verið í
starfi hjá enska úrvals-
deildarliðinu Aston Villa
sem svokallaður „njósn-
ari“.
„Það hefur ekkert ver-
ið ákveðið með framhald-
ið hjá mér hvað þetta
varðar. Aston Villa leitaði
til mín og bað mig að
hjálpa sér og ég hef verið
að skoða leikmenn fyrir
félagið á nokkrum stöð-
um í Evrópu eins og í Hol-
landi, Þýskalandi og
Belgíu og Danmörku. Ég
hef leitað að ákveðnum
mönnum í ákveðnar stöð-
ur og svo er bara spurn-
ing hvort hægt sé að
nálgast þá,“ sagði Guðjón
í samtali við Morgun-
blaðið.
Guðjón, sem var sem
kunnugt er sagt upp
störfum hjá Stoke síðast-
liðið sumar, segist ekki
hafa fengið nein tilboð
um að þjálfa upp á borð
hjá sér. „Þetta er bara
mjög erfiður og grimmur
markaður og þá sérstak-
lega í Englandi um þessar
mundir,“ segir Guðjón.
Guðjón í hlutverki
„njósnara“
ABE Pollin, eigandi NBA-
liðsins Washington Wizards,
fundaði í fyrradag með Mich-
ael Jordan og á þeim fundi
fékk Jordan þær fregnir að
hann fengi ekki að starfa
áfram hjá félaginu.
Jordan keypti hlut í Wiz-
ards fyrir þremur og hálfu
ári, og í kjölfarið tók hann
við starfi sem framkvæmda-
stjóri leikmannamála hjá fé-
laginu. Jordan hóf að leika
með liðinu árið 2001 og
þurfti að selja sinn hlut í fé-
laginu. Í fréttatilkynningu
sem Jordan sendi frá sér í
gær segir hann m.a. að
ákvörðun Pollins hafi komið
sér á óvart því hann hafi gef-
ið mikið af sér fyrir félagið
sem leikmaður undanfarin
tvö ár. „Ég vil þakka stuðn-
ingsmönnum liðsins fyrir
stuðninginn og ég mun aldr-
ei gleyma þeim hlýhug sem
ég upplifði hér sem leik-
maður,“ segir Jordan. Hann
er nú nefndur til sögunnar
sem meðeigandi í liði sem
sett verður á laggirnar í
Charlotte á næstu misserum.
Fjölmiðlar vestanhafs eru
undrandi á ákvörðun Pollins
þar sem Wizards var lítt
þekkt lið áður en Jordan
kom til sögunnar og er því
spáð að liðið muni falla í
sama farið á næstu miss-
erum.
Jordan mun ekki
starfa hjá Wizards
Það var greinilegt strax í byrjunleiksins að Júlíus Jónasson,
þjálfari ÍR, hafði talað hressilega við
sína menn fyrir leik-
inn og gert þeim
skýra grein fyrir því
hvað tap að þessu
sinni myndi þýða,
baráttan um Íslandsmeistaratitilinn
væri nær því sem töpuð. Allt annað
var að sjá til leikmanna ÍR, sem
börðust sem ljón frá upphafi til enda,
báru enga virðingu fyrir andstæð-
ingum sínum og tóku fast á þeim í
framliggjandi vörn. Ólíkt síðasta
leik, gekk leikmönnum Hauka verr
að brjóta vörn ÍR á bak aftur og kom
það aðallega til af því að varnarmenn
ÍR voru mun hreyfanlegri en í fyrri
leiknum, voru á tánum allan tímann,
fljótir að loka hlaupaleiðum sóknar-
manna Hauka.
Leikurinn í Austurbergi var ekki
besti handboltaleikur leiktíðarinnar
enda var það sennilega ekki ætlun
leikmanna. Baráttan var í algleym-
ingi enda var að duga eða drepast
fyrir leikmenn ÍR. Þeir höfðu frum-
kvæðið lengst af fyrri hálfleiks en
Haukar fylgdu þeim sem skugginn
og náðu nokkru sinnum að jafna og
loks að komast yfir, 12:11, áður en
flautað var til loka fyrri hálfleiks.
ÍR-ingar byrjuðu síðari hálfleik,
eins og þann fyrri, af miklum eldmóð
og baráttugleði. Þeir skoruðu þrjú
fyrstu mörkin og komust yfir á ný,
14:12. Eftir það var forystan þeirra í
þrígang þrjú mörk, 16:13, 17:14 og
22:19.
Haukar voru alltaf að elta ÍR-inga,
sóknarleikurinn gekk brösulega og
ekki bætti úr skák að dómarar leiks-
ins voru á tíðum dómharðari í garð
Hauka en ÍR-inga með þeim afleið-
ingum að Haukar voru oft einum
færri. Þegar 20 mínútur voru til
leiksloka fékk Robertas Pauzuolis
sína þriðju brottvísun og kom því
ekki meira við sögu í leiknum sem
svo sannarlega kom niður á leik
gestanna það sem eftir lifði leiks.
Tíu mínútum fyrir leikslok voru
ÍR-ingar þremur mörkum yfir,
22:19. Þá hertu Haukar róðurinn,
Bjarni varði allt hvað af tók í mark-
inu og með þremur mörkum gegn
einu á sex mínútna kafla munaði ekki
nema einu marki, 23:22, ÍR í vil.
Sóknarleikur ÍR var stirðbusalegur
og svo virtist sem taugar leikmanna
væru að bila. Andri Stefán jafnaði
metin fyrir Hauka, 23:23, þegar 1,25
mínútur var eftir. ÍR-ingar komust
yfir á ný 25 sekúndum fyrir leikslok
með marki Bjarna Fritzsonar úr
vítakasti sem hann vann sjálfur.
Haukar tóku leikhlé og skipulögðu
sóknarleik sinn, en allt kom fyrir
ekki, sóknin endaði í hægra horninu
þar sem Ásgeir Örn Hallgrímsson
skaut en Hallgrímur varði eitt átján
skota sinna og við tók stríðsdans á
gólfi íþróttahússins í Austurbergi.
Sóknarleikur ÍR var mun skárri
en í fyrri leiknum, fleiri leikfléttum
brá fyrir og allir sóknarmenn liðsins
voru virkir, en á móti kom að mörg
opin færi, þar á meðal fjögur víta-
köst, fóru í súginn í hjá heimaliðinu.
Haukar léku ágæta vörn lengst af,
bæði sína hefðbundnu 6/0 vörn og
eins um tíma 5/1. En líkt og hjá ÍR
fóru mörg góð færi forgörðum og
eins tókst þeim lítt að nota sitt skæð-
asta vopn, hraðaupphlaupin. Sóknar-
leikur Hauka var einnig ekki eins
skarpur og oft áður og kom það m.a.
til af baráttugleði ÍR-inga í vörninn.
Eftir að hafa átt stórleik í fyrstu
viðureigninni þá sat Birkir Ívar Guð-
mundsson, markvörður á bekknum
að þessu sinni og Bjarni Frostason
stóð vaktina. Bjarni byrjaði vel, en
dalaði síðan og átti góða spretti af og
til.
ÍR flaut áfram á gríðarlegri bár-
áttu, leikmenn gáfust aldrei upp,
ólíkt því sem var í fyrri leiknum.
Fremstur jafningja fór Júlíus þjálf-
ari sem sló hvergi af og var sínum
mönnum svo sannarlega sú fyrir-
mynd sem þeir þurftu á að halda.
Hallgrímur var
hetja á ögurstund
Morgunblaðið/Kristinn
Robertas Pauzuolis nær skoti á mark ÍR þrátt fyrir góða varn-
artilburði hjá Einari Hólmgeirssyni og Bjarna Fritzsyni.
„ÉG vissi að Ásgeir myndi
skjóta fast og því var bara málið
að standa í fæturna og bíða eftir
skotinu og það kom þar sem
gamli karlinn stóð, flóknara var
það nú ekki,“ sagði hetja ÍR-
inga, Hallgrímur Jónasson,
markvörður eftir að hann hafði
varið síðasta skot Hauka og
komið þar með í veg fyrir að þeir
jöfnuðu leikinn á síðustu sek-
úndu leiksins. ÍR-ingar fögnuðu
sigri, 24:23, á heimavelli í Aust-
urbergi eftir að hafa verið marki
undir í hálfleik, 12:11. ÍR inn-
siglaði þar með fyrsta sigur sinn
í kapphlaupi liðanna um Ís-
landsmeistaratitilinn. Sig-
urmarkið skoraði Bjarni Fritz-
son úr vítakasti þegar tæp hálf
mínúta var til leiksloka. Þar með
hafa liðin unnið einn leik hvort.
A !
9 +$$B$
9
,
< $ 2$! 1
0
%
0
4
4
%
0
'
'
0
'
%
< $ 2$! 1
9
?
0A
A/
4
/
4
(B
)(B
01
A/
44
/&
42
7
Ívar
Benediktsson
skrifar
ANDRI Berg Haraldsson, hand-
knattleiksmaður, hefur ákveðið að
leika með Víkingi á næstu leiktíð.
Andri er 20 ára gamall og hefur leik-
ið með FH. Áður hafði Reynir Þór
Reynisson, markvörður, gengið til
liðs við Víking frá Aftureldingu.
Víkingar hafa ráðið Gunnar Magn-
ússon sem þjálfara.
RAGNAR Hauksson, knatt-
spyrnumaður, getur ekki leikið með
Víkingunum í 1. deildinni í sumar.
Heimasíða Víkings greinir frá því að
Ragnar þurfi vegna fjölskyldu-
ástæðna að flytjast norður í land og
geti því ekki leikið með Víkingi.
Ragnar, sem gekk til liðs við Víking í
vetur, er Siglfirðingur sem lék með
KS á síðustu leiktíð og varð marka-
kóngur 2. deildarinnar, en þar áður
var hann í herbúðum ÍA.
HREINN Hringsson, helsti
markaskorari KA í knattspyrnunni,
hefur samið við félagið til tveggja
ára. Hreinn var samningslaus og á
tímabili leit útfyrir að hann myndi
ekki leika með Akureyrarliðinu í
sumar.
PATRICK Kluivert segist aldrei
samþykkja launalækkun hjá Barce-
lona þótt forvígismönnum félagsins
sé heimilt að gera það samkvæmt
samningi. Ný stjórn Barcelona verð-
ur kjörin á næstunni og er reiknað
með að hún freisti þess að draga
nokkuð úr kostnaði hjá félaginu.
KLUIVERT hefur um hálfan millj-
arð í laun á ári og getur félagið lækk-
að laun hans um helming en um leið
opnast fyrir ákvæði í samningi hans
við félagið þess efnis að hann geti
leitað sér að öðru félagi til að leika
með. Kluivert segist engan áhuga
hafa á að fara frá Barcelona, heldur
standa við samning sinn við félagið
sem gildir í tvö ár til viðbótar, hann
vilji hins vegar halda óbreyttum
launum út samningstímann.
STEVE Finnan, varnarmaður
Fulham, verður sennilega fyrsti leik-
maðurinn sem Liverpool kaupir þeg-
ar opnað verður á ný fyrir kaup og
sölu á leikmönnum í Englandi eftir
að leiktíðinni lýkur. Talið er að Liv-
erpool borgi um 450 milljónir króna
fyrir Finnan.
ÞÁ er fullvíst talið að Liverpool og
Manchester United berjist hart í
sumar um að klófesta Damien Duff
frá Blackburn.
GIORGI Kinkladze hefur leikið
sinn síðasta leik með Derby. Hann
hefur afþakkað boð félagsins um nýj-
an tveggja ára samning. Kinkladze,
sem á árum áður lék með Manchest-
er City og Ajax, segist ekki vita með
hvaða liði hann leiki á næstu leiktíð,
en hann viti af áhuga margra félaga
og því verði hann vart á flæðiskeri
staddur þegar næsta keppnistímabil
hefst.
FÓLK
GERÐUR Beta Jó-
hannsdóttir hand-
knattleikskona er
gengin til liðs við Val
á nýjan leik og hefur
skrifað undir tveggja
ára samning við fé-
lagið. Gerður Beta,
sem er 27 ára gömul,
rétthent skytta, hefur
leikið með Víkingi
undanfarin þrjú ár.
Hún var annar
markahæsti leik-
maður liðsins í vetur,
skoraði 105 mörk í
26 leikjum í 1. deild-
inni.
Gerður
Beta aft-
ur í ValBJARNI Guðjónsson var í gær leystur
undan samningi sínum við enska knatt-
spyrnufélagið Stoke City, eftir að hafa
leikið þar í ríflega þrjú ár. Stjórn Stoke
tilkynnti í gær að fimm leikmönnum yrði
ekki boðinn nýr samningur við félagið en
auk Bjarna voru það fyrirliðinn Peter
Handyside, markvörðurinn Steve Banks
og þeir Lee Mills og Mark Williams, sem
komu til félagsins frá Coventry og
Wimbledon í vetur.
Brynjar Björn Gunnarsson hefur hins-
vegar fengið boð um nýjan samning, sem
og þeir James O’Connor, Clive Clarke,
Peter Hoekstra, Marcus Hall og Brian
Wilson. Vangaveltur voru í fjölmiðlum í
Stoke í gær um að Pétri Marteinssyni yrði
boðinn starfslokasamningur en hann er
samningsbundinn félaginu út næsta tíma-
bil.
Bjarni laus frá
Stoke City