Morgunblaðið - 09.05.2003, Blaðsíða 84
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FÖSTUDAGUR 9. MAÍ 2003 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
Buxnadagar
Vinnufatabúðin
NÚ stefnir í einhverja mestu veiði á kolmunna
fyrr og síðar. Ekkert samkomulag er um veiði-
stjórnun á kolmunna, en veiðiþjóðirnar hafa sett
sér einhliða kvóta, Evrópusambandið hyggst
veiða 615.000 tonn, Norðmenn ætla sér 466.000
tonn og að öllum líkindum meira. Kvóti okkar Ís-
lendinga er 318.000 tonn og loks eiga Fær-
eyingar og Rússar eftir að ákveða hve mikið þeir
ætla sér að veiða. Ljóst er að aflinn verður vel á
aðra milljón tonna.
Alþjóðahafrannsóknaráðið hefur talið stofninn
ofveiddan og lagt til mikinn samdrátt í afla og
jafnvel veiðibann, þar sem samkomulag um veið-
arnar hefur ekki náðst.. Nýafstaðinn rannsókna-
leiðangur Norðmanna og Rússa gefur á hinn
bóginn til kynna að stofninn hafi aldrei verið
stærri eða staðið betur síðan mælingar á honum
hófust, þrátt fyrir veiði langt umfram ráðlegg-
ingar undanfarin ár.
Mestu landað í Neskaupstað
Nú hefur verið landað ríflega 53.000 tonnum
af kolmunna hér á landi á vertíðinni. Afli ís-
lenzkra skipa er, samkvæmt upplýsingum Sam-
taka fiskvinnslustöðva, um 34.700 tonn. Leyfileg-
ur heildarafli á vertíðinni er 318.000 tonn og því
óveidd um 283.000 tonn.
Mestu hefur verið landað hjá Síldarvinnslunni
í Neskaupstað, 17.300 tonnum. Loðnuvinnslan á
Fáskrúðsfirði hefur tekið á móti 11.600 tonnum
og er bróðurparturinn af erlendum skipum, eða
9.300 tonn.
Eskja á Eskifirði hefur tekið á móti 8.900
tonnum og Samherji hefur tekið á móti 7.600
tonnum í Grindavík. 4.000 tonn hafa borizt á land
á Akranesi, 2.300 tonn hjá Vinnslustöðinni í
Vestmannaeyjum, 1.200 tonn hjá Síldarvinnsl-
unni á Seyðisfirði og 900 tonn hjá Gautavík á
Djúpavogi.
Stefnir í mestu kol-
munnaveiði sögunnar
Stofninn sterkari en
nokkru sinni þrátt
fyrir veiði langt um-
fram ráðleggingar
FRAMKVÆMDIR við Fáskrúðs-
fjarðargöng eru hafnar eins og
sést á þessari mynd sem tekin var
í Reyðarfirði. Búið er að sprengja
fyrir stafni ganganna og ráðgert
að byrja að bora fyrir þeim á allra
næstu dögum. Samkvæmt verk-
áætlun er stefnt að því að göngin
verði tilbúin haustið 2005. Með til-
komu ganganna styttist Suður-
fjarðavegur um Austfirði um 34
km og verða aðeins 18 kílómetrar
milli Reyðarfjarðar og Fáskrúðs-
fjarðar í stað 54 km í dag. Verk-
taki við gerð ganganna er Ístak
hf. ásamt E. Pihl og Søn AS. Að
sögn Jónasar Th. Lilliendahl
verkstjóra miðar undirbúningi vel
en um tuttugu manns eru að
störfum við gerð ganganna í
Reyðarfirði um þessar mundir.
Áætlað er að hefja framkvæmdir
við göngin Fáskrúðsfjarðarmegin
á miðju sumri.
Morgunblaðið/Helgi Garðarsson
Lokið við að taka stafninn
LÁNIÐ leikur misjafnlega við fólk
og þar er barnalánið ekki undan-
skilið. Að því leytinu er Marta Gunn-
laug Guðmundsdóttir, fædd árið
1917, með þeim lánsömustu, en hún
á um 130 afkomendur og stöðugt
bætast nýir í hópinn. Hún og eig-
inmaður hennar, Haraldur Guð-
jónsson, sem lést árið 1999, áttu tólf
börn og eru tíu þeirra á lífi. Barna-
börnin eru 39, barnabarnabörnin
rúmlega 80 og barnabarna-
barnabörnin 5. „Þegar ég lít yfir
hópinn þá finnst mér að ég hafi verið
einstaklega heppin. Það hafa engin
stórslys orðið og allir vel hraustir,“
segir Marta Gunnlaug. Henni finnst
þó svolítið erfitt að fylgjast með öll-
um afkomendunum, en kveðst vita
deili á öllum. „Ég á bara svo mikið af
þessu að það er ekki nokkur leið að
fylgjast nákvæmlega með því hver á
hvaða barn. Ég hef gert mitt í því að
uppfylla jörðina eins og segir ein-
hvers staðar í Biblíunni.“
Morgunblaðið/Kristinn
Marta Gunnlaug bakar alltaf
pönnukökur á laugardögum þegar
afkomendurnir koma í heimsókn.
„Gert mitt í
því að upp-
fylla jörðina“
Daglegt líf/B2
Marta Gunnlaug
Guðmundsdóttir á um
130 afkomendur
„Á ÉG að þora að fara til Spánar? Er óhætt að fara til
Noregs? Á ég að þora að fljúga um þessa flughöfn eða
hina? Er óhætt að kaupa kínverskar vörur?“ Þetta segir
Haraldur Briem sóttvarnalæknir að sé meðal þeirra fyr-
irspurna sem hafa borist landlæknisembættinu á síðustu
dögum og vikum um HABL-faraldurinn. Haraldur hefur
í öllum tilvikum svarað játandi.
Fyrirspurnirnar eru linnulitlar. Haraldur segir að
bæði fjölmiðlamenn og almenningur vilji fá upplýsingar
um HABL, heilkenni alvarlegrar og bráðrar lungna-
bólgu, og velti ýmsu fyrir sér. Nú hafa þrjú tilfelli verið
staðfest í Svíþjóð og nýlega var staðfest að Finni sem
kom til heimalands síns frá Toronto í Kanada væri með
HABL. Hann er á batavegi. Haraldur segir enga ástæðu
til að bregðast við þessum tilfellum á Norðurlöndunum.
Aðeins hafi örfá tilfelli bæst við í Evrópu sl. þrjár vikur
og ástandið sé stöðugt.
Sérstök viðbúnaðaráætlun er á Keflavíkurflugvelli ef
tilkynning berst um að flugvél sé væntanleg með HABL-
sjúkling um borð. Flugvélinni er ekki ekið upp að flug-
stöðvarbyggingunni heldur fer sjúkrabíll til móts við
hana út á brautina. Læknir frá Heilsugæslustofnun Suð-
urnesja fer um borð og fylgir sjúklingnum út. Honum er
síðan ekið með sjúkrabifreið á Landspítalann í Fossvogi.
Faraldur vekur ugg
MARGIR kennarar eru ugg-
andi um að agi sé á undanhaldi í
skólastofunni. Ekki aðeins
vegna barna sem eiga við miklar
hegðunar- og tilfinningaraskan-
ir að stríða og fá oft ekki viðeig-
andi sérkennslu í skólum lands-
ins heldur líka vegna „eðlilegra“
barna, sem ekki hafi kynnst því
að fara eftir reglum heima fyrir.
Þótt grunnskólakennarar
beri foreldrum yfirleitt vel sög-
una verða sumir varir við að for-
eldrar taka minni ábyrgð á
hegðun barna sinna og hafa
minna eftirlit með þeim en
kennurum þykir tilhlýðilegt.
Þeir kennarar sem rætt er við
eru sammála um að rætur vand-
ans megi rekja til tíðarandans
og vaxandi agaleysis í þjóðfélag-
inu. Sum börn fái of mikla pen-
inga og frjálsræði, foreldrarnir
vinni mikið og hafi ekki tíma til
að vera með börnunum og
kenna þeim venjulegar sam-
skiptareglur.
Samfara breytingum á lífs-
mynstri fólks hvað þetta varðar
væri í æ ríkari mæli ætlast til að
kennarar færu inn á svið sem
væru í verkahring foreldranna
sjálfra og/eða uppeldisfræðinga,
sérkennara, sálfræðinga, geð-
lækna og hjúkrunarfræðinga.
Agaleysið
endur-
speglast
í skóla-
stofunni
Daglegt líf/B4
KÖTTURINN Moli, sem hvarf eftir
að hafa lent í bílslysi á Holtavörðu-
heiði 4. apríl, kom í leitirnar í gær-
kvöldi. Moli, sem er fatlaður á öðrum
framfæti, á mikla hrakfallasögu að
baki. Starfsmenn Kattholts fundu
hann vegalausan á götum Reykja-
víkur í vetur og var nýbúið að finna
honum nýja eigendur þegar bílslysið
varð. Sorg ríkti í Kattholti vegna
Mola og var búið að fara í nokkra
leiðangra upp á heiði til að leita hans.
Vegfarandi sem átti leið um heiðina
sá hann og kom honum til lögregl-
unnar í Borgarnesi. Moli virtist
hraustur en eðlilega nokkuð grannur
eftir mánuð á heiðinni.
Moli fundinn
♦ ♦ ♦