Morgunblaðið - 03.09.2003, Page 6
FRÉTTIR
6 MIÐVIKUDAGUR 3. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
DJÖRF orðanotkun sakflytjenda
setti svip sinn á réttarhöld í gær yfir
varnarliðsmanninum sem ákærður
er fyrir tilraun til manndráps í
Hafnarstræti í byrjun júní. Óum-
deilt var að í umrætt skipti upphóf-
ust harkaleg áflog milli varnarliðs-
manna og Íslendinga sem lauk með
því að Íslendingur hlaut fimm hnífs-
stungur og hefði beðið bana ef ekki
hefði tekist að koma honum á spítala
strax. Þetta fullyrti læknir sem kom
fyrir dóminn í gær.
Sveinn Andri Sveinsson verjandi
ákærða lýsti kvöldinu sem „aðal-
fundi hnífavinafélagsins“ og vísaði
þar til hins almenna hnífaburðar
sem virtist tíðkast meðal gesta í mið-
bænum þetta kvöld. Vísaði hann til
framburðar vitnis sem sá annan að-
ila en ákærða stinga fórnarlambið,
auk þess sem sama vitni fullyrti að
fórnarlambið sjálft væri alltaf vopn-
að hnífi. Verjandinn sagði fórnar-
lambið hafa hlotið fimm stungur, þar
af hefði ákærði valdið einu. Sagði
verjandinn að engin leið væri að full-
yrða með vissu að ákærði bæri
ábyrgð á fleiri en einni stungu og
einnig hvort hann bæri ábyrgð á
einu þriggja lífshættulegra sára.
Samkvæmt rannsókn Þóru Stef-
fensen réttarmeinafræðings er úti-
lokað að stungurnar fimm sem fórn-
arlambið hlaut séu eftir einn hníf.
Eitt sönnunargagn er í málinu, fjað-
urhnífur, sem ákærði notaði en vís-
aði lögreglu á. Af lögum sárs á lík-
ama fórnarlambsins hefði sá hnífur
ómögulega getað valdið tilteknum
áverka sem var lífshættulegur.
Verjandi ákærða krafðist þess að-
allega að dómurinn sýknaði ákærða
og byggði kröfuna á því hættu-
ástandi sem skapaðist í Hafnar-
strætinu þessa nótt. Við þær að-
stæður hefði ákærði átt yfir höfði
sér yfirvofandi árás og beitt nauð-
vörn. Hefði hann ekki farið út fyrir
leyfileg mörk nauðvarnar eins og
saksóknari hélt fram.
Krafist refsingar
Kolbrún Sævarsdóttir fulltrúi rík-
issaksóknara krafðist hinsvegar
refsingar yfir ákærða þótt hún
drægi ekki í efa að hann hefði fyllst
skelfingu sem leiddi til þess að hann
beitti hnífnum. Þessa nótt hefði fólk
verið drukkið og „dópað“ í miðbæn-
um og úrvinda af þreytu. Þannig
hefði fólk ekki mátt við miklu áreiti,
enda fór það svo að allt fór í bál og
brand. Líkti saksóknarinn ástandinu
í miðbænum við „tívolí“. Hinsvegar
taldi saksóknarinn að varnarliðs-
maðurinn hefði enga heimild haft til
að beita hnífnum í sjálfsvörn og hér
ætti því ekki við 12. gr. almennra
hegningarlaga þar sem segir m.a. að
ekki skuli refsa mönnum ef þeir
vinna verk í neyðarvörn. Sagði sak-
sóknarinn að ákærði bæri sönnunar-
byrðina á því að sanna að um nauð-
vörn hefði verið að ræða. Þá taldi
saksóknari hreinan uppspuna þá
frásögn ákærða að hann hefði verið
sleginn í höfuðið með flösku. Engin
glerbrot hefðu fundist á vettvangi
sem lögreglan girti af við rannsókn
málsins og þá hefði enginn borið um
áverka á höfði ákærða eftir meint
flöskuhögg. Að mati saksóknarans
var atburðarásin sú að hópslagsmál
burtust út og hefðu varnarliðsmenn
tekið fórnarlambið afsíðis og ráðist á
það. Taldi saksóknari upp sjö vitni
sem sögðust hafa séð fleiri en einn
mann ráðast á fórnarlambið. Jafnvel
þótt trúnaður yrði lagður á þá frá-
sögn ákærða að hann hefði verið
barinn með flöskunni, nægði það
ekki til að fullnægja skilyrðum um
nauðvörn að mati saksóknara. Varn-
ir ákærða hefðu verið hættulegri en
sú árás sem hann var að verjast og
eins hefði hann einfaldlega getað flú-
ið af vettvangi, enda hefði enginn
reynt að hindra för hans. Saksóknari
minnti á að hnífar væru stórhættu-
legir í átökum og ætti ákærða sem
atvinnuhermanni að vera það full-
ljóst. Þá minnti saksóknari á það
grundvallaratriði í nauðvörn að
henni væri beint að árásaraðila, en í
þessu tilviki væri óþekktur sá maður
sem átti að hafa lamið ákærða með
flöskunni.
Vísað til eldra sakamáls
Í varnarræðu sinni vísaði verjandi
ákærða í sakamál frá Neskaupstað
frá fjórða áratug síðustu aldar þar
sem lögreglumaður var sýknaður af
ákæru á grundvelli nauðvarnar.
Hann skaut fimm byssuskotum á
nokkra landa á sína á balli, en þeir
höfðu fleygt honum niður af palli og
hótuðu honum lífláti.
Varnarliðsmaðurinn sjálfur sagð-
ist hafa orðið skelfingu lostinn er
hann var barinn með flösku í höfuðið
sem fyrr segir og hefði hann þá grip-
ið til hnífsins. Sortnaði honum fyrir
augum eftir flöskuhöggið og sveifl-
aði hnífnum út í loftið. Sagðist hann
hafa fundið fyrir því að hnífurinn
lenti í manneskju, ekki ólíkt því sem
gerist þegar menn eru í „steikar-
skurði“. Fannst dómara þessi sam-
líking óheppileg.
Dómur verður kveðinn upp innan
fárra vikna.
Réttarhöldum lokið í máli varnarliðsmannsins sem ákærður er fyrir tilraun til manndráps
Deilt um rétt
ákærða til
nauðvarnar
Ljósmynd/Sigurður
Við lok skýrslutöku í gær gengu dómarar málsins, ásamt ákærða og sakflytjendum, á vettvang í Hafnarstræti.
MENNTAMÁLARÁÐHERRA og borgarstjóri Reykja-
víkur undirrituðu í gær á sal Menntaskólans í Reykjavík
samkomulag um að veita 1.250 milljónir króna á næstu
fimm árum til stækkunar á framhaldsskólum sem fyrir
eru í borginni. Hvert ár mun ríkið leggja 150 milljónir
króna til verkefnisins og Reykjavíkurborg 100 milljónir.
Samhliða þessu mun ríkið bera kostnað af öllu við-
haldi á Menntaskólanum í Reykjavík næstu fimm árin og
Reykjavíkurborg leggja 200 milljónir króna til nýfram-
kvæmda að því loknu. Áður á að vinna áætlun um
áfangaskiptingu framkvæmdanna.
Ánægðir með samstarfið
Bæði Þórólfur Árnason borgarstjóri og Tómas Ingi
Olrich menntamálaráðherra sögðust ánægðir með yf-
irlýst samstarf og að tekið væri á vanda framhaldsskól-
anna í heild. Sett verður á laggirnar nefnd um húsnæðis-
mál skólanna þar sem sæti eiga tveir fulltrúar
menntamálaráðuneytisins, tveir fulltrúar borgarinnar
og einn fulltrúi fjármálaráðuneytisins.
Nefndin á að vinna tillögur um forgangsröðun þeirra
verkefna sem brýnast og hagkvæmast er að ráðast í og
annast jafnframt áætlanagerð og undirbúning fyrir sér-
hverja framkvæmd. Þá á hún að fjalla um fjárhagslegar
forsendur eignaskipta milli ríkis og borgar.
Þegar á að hefja undirbúning að stækkun Fjölbrauta-
skólans við Ármúla, Menntaskólans við Hamrahlíð, þar
með talið nýtt íþróttahús, Iðnskólans í Reykjavík og
Fjölbrautaskólans í Breiðholti. Þá á að meta strax með
hvaða hætti húsnæðismálum Menntaskólans við Sund
verður best hagað.
Undirbúningur hefst strax
Þórólfur sagði þetta til farsældar fyrir framhalds-
skólastigið og var ánægður með að viðhald og nýbygg-
ingar væru skildar að. Framkvæmdir verða að byggjast
á fjárveitingum Alþingis og fjárhagsáætlun Reykjavík-
urborgar og sagði Tómas undirbúning fyrir það hefjast
fljótlega. Strax og hægt yrði að hefja framkvæmdir, eft-
ir hönnun húsa og afgreiðslu skipulagsyfirvalda, ætti
fjármagnið í verkin að vera til.
Aðspurður um hvernig kostnaði við nýbyggingar
framhaldsskólanna yrði háttað að þessum tíma liðnum
sagði menntamálaráðherra þennan samning ná til 5 til 7
ára og á meðan ynni nefndin að því að leysa það mál.
Þórólfur benti á að á samningstímanum yrði hugað að
breytingum á lögum um framhaldsskóla og stefnt að því
að fella stofnkostnað sveitarfélaga niður. Um þann þátt
hafa deilur milli ríkis og borgar staðið undanfarin ár en
samkvæmt gildandi framhaldsskólalögum skulu sveit-
arfélög leggja til 40% af stofnkostnaði nýrra skóla.
Samið um stækkun framhaldsskóla í Reykjavík
Yfir milljarður í nýbygg-
ingar næstu fimm árin
Morgunblaðið/Þorkell
Tómas Ingi Olrich og Þórólfur Árnason kynntu sam-
starf um stækkun framhaldsskóla í Reykjavík í gær.
MEÐALHITI aðalsumarmánuðina í
Reykjavík hefur aldrei verið jafnhár
og í ár frá því að mælingar hófust.
Var hann 12,1°C en fyrra
met mánuðina júní til
ágúst er frá árinu 1880
þegar meðalhiti var
11,7°C. Hið fræga hlýin-
dasumar 1939 var meðal-
hitinn 11,6 gráður.
Ágústmánuður var sá
hlýjasti í Reykjavík síðan
samfelldar og saman-
burðarhæfar mælingar
hófust árið 1871. Meðal-
hiti var 12,8°C sem er
2,5°C yfir meðallagi ár-
anna 1961–1990. Á Akureyri var
meðalhitinn einnig 12,8°C en vitað er
um einn hlýrri ágúst fyrir norðan ár-
ið 1947 þegar hitinn var að meðaltali
13,2°C.
Sólskinsstundir í Reykjavík
mældust 158 og er það í meðallagi. Á
Akureyri mældust sólskinsstundirn-
ar aðeins 110 og er það 26
stundum minna en í með-
alári.
Nýtt met á hálendinu
Í Reykjavík var úr-
koma 20% umfram með-
allag en 10% á Akureyri.
Á Hveravöllum var
meðalhitinn í ágúst 9,8°C
og hefur hann ekki orðið
hærri í sama mánuði áð-
ur. Sömu sögu er að
segja frá Stykkishólmi
og Vestmannaeyjum en í Bolungar-
vík var álíka hlýtt í ágúst og árið
1947. Á Raufarhöfn var hlýrra árin
1939 og 1947 og ívíð hlýrra á Dala-
tanga árin 1947 og 1955.
Sumarhitinn
slær öll met
í Reykjavík
!! "
#
$%
%
&
FLOSA Arnórssyni, stýrimannin-
um sem setið hefur í fangelsi í ná-
grenni Abu Dhabi, höfuðborgar
Sameinuðu arabísku furstadæm-
anna, frá 12. ágúst sl. var ekki
sleppt úr fangelsinu í gær.
Systir hans Jóna S. Arnórsdótt-
ir sagði í samtali við Morgunblað-
ið í gærkvöld að svo virtist sem
tæknilegir örðugleikar kæmu enn
í veg fyrir það að honum yrði
sleppt. Vonir standa þó til að
Flosa verði sleppt úr haldi næstu
daga.
Flosi hefur, eins og áður sagði,
verið í fangelsinu frá 12. ágúst sl.
vegna ólöglegs vopnaburðar. Áð-
ur hafði hann setið um fjörutíu
daga í gæsluvarðhaldi. Norska
sendiráðið í Sameinuðu arabísku
furstadæmunum vinnur að því að
finna lausn á málinu, en skv. úr-
skurði dómara átti að sleppa
Flosa í vikunni.
Flosi er enn í haldi