Morgunblaðið - 03.09.2003, Page 8
FRÉTTIR
8 MIÐVIKUDAGUR 3. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Af hverju getið þið ekki bara svalað drápsfýsninni eins og við, með því að drepa Íraka, mr.
Mathiesen?
Endurmenntun HÍ 20 ára
Spratt upp af
brýnni nauðsyn
Endurmenntun Há-skóla Íslands átuttugu ára afmæli
um þessar mundir. Kristín
Jónsdóttir forstöðumaður
segir stofnunina fjölmenn-
asta skóla landsins, eða
„mest sótta skólann,“ eins
og hún komst að orði.
Endurmenntun HÍ hefur
þróast í takt við tímann og
kemur víða við eftir því
sem fram kemur í samtali
við Kristínu, en Morgun-
blaðið ræddi við hana á
dögunum.
– Segðu okkur fyrst frá
tildrögum þess að Endur-
menntun HÍ var stofnuð....
„Endurmenntun Há-
skóla Íslands spratt upp
af brýnni nauðsyn í þjóð-
félaginu, en alls fóru fjög-
ur félög af stað, funduðu innbyrð-
is og fóru síðan með sameiginlega
beiðni til Háskóla Íslands þess
efnis að HÍ stæði fyrir nám-
skeiðahaldi fyrir fagfólk. Þetta
voru Bandalag háskólamanna,
Félag framhaldsskólakennara
sem þá hét Hið íslenska kennara-
félag, Tæknifræðingafélag Ís-
lands og Verkfræðingafélag Ís-
lands og fljótlega bættist við
Tækniskóli Íslands sem í dag er
Tækniháskólinn. Síðan hafa Arkí-
tektafélagið og Félag viðskipta-
og hagfræðinga bæst í hópinn.
Háskóli Íslands tók vel á móti
þessum hugmyndum og þessu
var hleypt af stokkunum. Aðal-
lega var þetta á tæknisviðinu í
byrjun, ekki hvað síst í tölvugeir-
anum, en úrvalið breikkaði hratt
og í dag má segja að Endur-
menntun Háskóla Íslands dekki
flest ef ekki öll fræðasvið HÍ.“
– Þessu hefur þá líka verið vel
tekið úti í þjóðfélaginu?
„Eins og ég gat um, þá kom
þetta til af brýnni þörf og þeir
sem nutu Endurmenntunar HÍ
hafa alla tíð litið á námskeiða-
haldið sem kærkomið tækifæri til
að viðhalda menntun sinni og
bæta við hana.“
– Hvernig er starfsemi Endur-
menntnar í dag best lýst?
„Það er óhætt að segja að End-
urmenntun Háskóla Íslands hafi
skellt út öngum hér og þar, en
segja má að lunginn úr starfsem-
inni séu styttri námskeið fyrir
fagfólk, við getum nefnt stjórn-
endur, fjármálaheiminn, lög-
fræðisviðið, heilbrigðisgeirann og
nánast bara allt saman í raun og
veru. Þá höfum við einnig farið út
í lengri námsbrautir, byrjuðum
að þreifa okkur áfram með slíkt
árið 1990 og erum nú að bjóða
upp á tíu slíkar brautir. Við erum
þá að tala um námsbrautir sem
spanna 1-2 ár og eru samhliða
starfi.
Í viðbót við þessar tíu hefjast
þrjár nýjar í vetur og hefði ég
gaman af því að nefna þær. Sú
fyrsta er um stjórnun og rekstur
fyrir sjálfstætt starfandi sérfræð-
inga, t.d. sjúkraþjálfara, augn-
lækna o.þ.h.. Önnur ný braut tek-
ur fyrir stjórnun og
forystu í skólaum-
hverfi og sú þriðja er
stjórnarnám fyrir
stjórnendur innan lög-
reglunnar, en sú braut
er reyndar lokuð.“
– Eitthvað fleira?
„Já, það er af mörgu að taka og
kannski ekki hægt að nefna allt.
Fólk getur skoðað allt sem við
bjóðum upp á á www.endur-
mennt.is, en ég vildi þó nefna að
við bjóðum einnig upp á menning-
arnámskeið, t.d. í heimspeki, tón-
list, leiklist, bókmenntum o.fl.
Þetta eru kvöldnámskeið sem
hafa notið mikilla vinsælda. Þá
erum við að samkenna námskeið
með deildum HÍ, þannig að fleiri
hafi aðgang að viðkomandi námi.
Má nefna hagnýta líftölfræði, sál-
gæslu og fleira. Einnig má nefna
þátt sem farið hefur vaxandi í
starfseminni en það er að bjóða
námskeið sem eru sérsniðin fyrir
fyrirtæki og stofnanir.“
– Hefurðu einhverja tölu yfir
fjölda þeirra sem sækja námskeið
ykkar?
„Það eru á bilinu tíu til tólf þús-
und manns á ári á námskeiðum
okkar og hef ég sagt að við séum
mest sótti skóli landsins.“
– Hvar er þessi stóri skóli?
„Við erum með okkar eigið
húsnæði að Dunhaga 7. Höfum
þar yfir fimm kennslustofum að
ráða.“
– Dugar það?
„Nei, alls ekki. Við dekkum
mest af smærri námskeiðunum á
Dunhaganum, en topparnir hjá
okkur eru svo stórir að Dunhag-
inn ræður ekki við það. Þá höfum
við fengið aðstöðu í Háskólabíói,
Norræna húsinu og í skólastofum
Háskóla Íslands.“
– Hvaðan koma kennararnir?
„Mjög margir þeirra koma frá
Háskóla Íslands. Þeir koma líka
úr atvinnulífinu og eru þá virtir
sérfræðingar á sínum sviðum. Við
höfum alltaf lagt mikið upp úr því
að hafa góða kennara og tryggja
þannig gæði námskeiða.“
– Nú er tuttugu ára afmæli,
stendur ekki eitthvað til?
„Jú, í tilefni af af-
mælinu erum við með
röð örnámskeiða sem
hófust á mánudags-
kvöldið og eru ókeypis.
Þetta eru tveggja
klukkustunda nám-
skeið sem spanna afar breytt
svið. Í kvöld og annað kvöld eru
til dæmis svona örnámskeið sem
fjalla um samskiptatækni, stjórn-
un, heilbrigðismál, bókmenntir
og fleira á almennum sviðum,
einnig námskeið um sjálfstraust í
samskiptum, sjúkdóma kvenna í
bókmenntum og karlmenn og
karlmennsku.“
Kristín Jónsdóttir
Kristín Jónsdóttir er fædd 15.
janúar 1961 í Reykjavík. Hún
lauk M.Ed. námi frá Washington
háskóla í Seattle og B.Ed. námi
frá KHÍ 1985. Hún hefur verið
endurmenntunarstjóri HÍ frá
1998. Áður var Kristín starfs-
mannastjóri Íslenskrar erfða-
greiningar, fræðslustjóri Ís-
landsbanka og Eimskipafélags
Íslands og námsefnishöfundur
hjá Boeing í Bandaríkjunum og
síðar í Bretlandi, samdi þá náms-
efni fyrir flugmenn viðskipta-
vina. Kristín á einn son, Halldór
Arnþórsson, sem er 12 ára.
„…að við
séum mest
sótti skóli
landsins.“
Lágar hurðir
fyrir ruslageymslu
600250
Verð
9.980 kr.
Háar hurðir
fyrir ruslageymslu
600251
Verð
14.980 kr.
Vinnuúlpa Beaver
svört, loðfóðruð
5859248–5859253
Verð
3.995 kr.
Ný vara!Frábært verð
Ruslageymsla
opin og ósamsett
600246
Verð
27.900 kr.
Með fylgihlutum = 32.967 kr.
3.595kr.4.998 kr.
Bita-, toppa- & borasett – 105 stk.
5249143
699kr.1.495 kr.
fyrir haustið
H
ú
sa
sm
ið
ja
n
/ J
B
B
/ 0
3
0
9
0
3