Morgunblaðið - 03.09.2003, Qupperneq 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. SEPTEMBER 2003 11
ALLS voru komnir 220 laxar á land
úr Flekkudalsá í Dölum á hádegi
mánudags og var þá holl að ljúka
veiðum með fjórtán laxa, m.a.
nokkra nýrunna. Þetta var allt fal-
legur smálax og fáir boltar hafa
veiðst í ánni í sumar.
Að sögn veiðimanna sem voru að
koma úr Flekkunni er mikill lax í
henni og heildartalan væri ugglaust
hærri ef ekki hefðu komið til þurrk-
arnir miklu í júlí. Eingöngu er veitt
á flugu í Flekkudalsá og á hluta
veiðisvæðisins, ofarlega í svokallaðri
Tunguá, eru afar nettar aðstæður,
lítið vatn og hyljir sem þarf að
skríða að, og þar hafa menn jafnvel
verið að veiða laxa með silungsveiði-
brögðum, m.a. með því að veiða með
Peacock-púpu andstreymis.
Góð tala í Laugardalsá
Veiði er nú lokið í Laugardalsá
við Djúp samkvæmt fregnum frá
leigutakanum, fyrirtækinu Lax-á,
og var útkoman mjög góð. Alls
veiddust 342 laxar í ánni og var
mikill fiskur í henni er henni var
lokað. 319 laxar veiddust í sjálfri
ánni, en 23 til viðbótar í Laugar-
bólsvatni, sem áin fellur úr. Mjög
góður veiðistaður er einmitt við út-
fall árinnar, nefndur Affall. Í ann-
arri á í Djúpinu, Langadalsá, er enn
veitt. Hún er lakari laxveiðiá en eigi
að síður drjúg í góðu ári. Fyrir
skemmstu voru komnir um 120 lax-
ar á land úr ánni og talsverður lax
víða í henni.
Reykjan lífleg
Á sjötta tug laxa hefur veiðst í
Reykjadalsá í Borgarfirði og er
drjúgur tími eftir, en september
gefur oft vel í ánni. Samkvæmt
fréttum frá Stangaveiðifélagi Kefla-
víkur, sem hefur ána á leigu, er tals-
vert af laxi í ánni og er hann vel
dreifður. Laxinn til þessa er allur
smár, sá stærsti aðeins níu pund, og
þykir mönnum það fúlt því Reykja-
dalsá er þekkt fyrir stóra laxa.
Laxar á silungapúpur
Guðni B. Guðnason með 20 punda hæng úr Presthólma í Laxá í Aðaldal.
ERU
ÞEIR AÐ
FÁ’ANN?
FÉLAGSMÁLARÁÐUNEYTIÐ
telur sig ekki hafa brotið lög um rétt-
indi og skyldur starfsmanna ríkisins
að því er varðar tímabundnar ráðstaf-
anir í embætti ráðuneytisstjóra. Ger-
ir ráðuneytið athugasemdir við þann
málflutning BHM að leggja að jöfnu
embætti ráðuneytisstjóra við ráðn-
ingu í stöðu sérfræðings samgöngu-
ráðuneytisins í Brussel, líkt og fram
kom í Morgunblaðinu á sunnudag.
Telur ráðuneytið að ekki gildi
sömu ákvæði laga um t.d. ráðningu,
lausn, réttindi og skyldur að því er
varðar annars vegar embættismenn
og hins vegar aðra starfsmenn rík-
isins. Berglind Ásgeirsdóttir var
ráðuneytisstjóri félagsmálaráðu-
neytisins þar til í september á síðasta
ári er hún fór til starfa fyrir Íslands
hönd sem einn aðstoðarforstjóra
OECD. Fékk hún leyfi frá störfum
sem ráðuneytisstjóri í ráðningartíma
hennar hjá OECD, eða í tvö ár. Í til-
kynningu ráðuneytisins segir að
tveggja ára leyfi sé undantekning frá
þeirri meginreglu laga um réttindi og
skyldur starfsmanna ríkisins að leyfi
séu að jafnaði ekki veitt lengur en eitt
ár í senn. Fyllilega lögmætar ástæður
séu hins vegar fyrir tveggja ára leyfi í
þessu tilviki.
Hermann Sæmundsson, skrif-
stofustjóri í ráðuneytinu, var settur
ráðuneytisstjóri frá og með 15. októ-
ber 2002 til eins árs, þ.e. til og með 14.
október næstkomandi. Segir í til-
kynningu félagsmálaráðuneytisins að
lög um réttindi og skyldur ríkisstarfs-
manna séu ekki eins afdráttarlaus um
skyldu til að auglýsa embætti laus til
umsóknar eins og ráða megi af frétta-
flutningi af málinu. Í lögunum sé að
finna undantekningar og eigi þær
eingöngu við um embætti en ekki
önnur störf hjá ríkinu.
Ráðuneyti telur sig
ekki hafa brotið lög
BANDARÍSKA sjónvarpsstöðin
3ABN hefur verið í loftinu á Ís-
landi síðan í nóvember. Hjónin
Unnur Halldórsdóttir og Kristján
Friðbergsson hafa haft veg og
vanda af því að færa landsmönnum
þessa stöð og er það þeirra von að
hún nái útbreiðslu um allt land.
„Við byrjuðum að senda út sjón-
varp í nóvember og útvarp í maí
síðastliðnum. Þetta er bandarísk
stöð sem við tökum niður frá
Bandaríkjunum og sendum svo út
á höfuðborgarsvæðinu. Breiðband-
ið sendir út sjónvarpið á rás 8, en
útvarpið er sent út á rás sem við
höfum, FM 103,7. Stöðin er kristi-
leg, en hún er allt öðruvísi en aðr-
ar kristilegar stöðvar sem við höf-
um kynnst hér á landi,“ segir
Kristján.
Hann leggur áherslu á að stöðin
sé menningarstöð, sem sendi út
þætti um margvísleg efni. Þarna
eru þættir um heilbrigt líferni, að-
ferðir til að hætta að reykja, mat-
reiðsluþættir, leikfimi og barna-
tímar, svo fátt eitt sé nefnt. „Síðan
er innan um alltaf kristilegt efni,
en það er í minnihluta.“
Að sögn Unnar kynntist hún
3ABN þegar hún bjó í Bandaríkj-
unum. Þegar hún flutti aftur til Ís-
lands fannst henni hana vanta
stöðina hingað, svo þau sóttu um
leyfi til þess að fá að senda hana út
hér á landi. Hún segist vilja leyfa
öðrum að njóta þessa uppbyggj-
andi efnis með þeim.
„Það voru bláfátæk hjón sem
stofnuðu stöðina árið 1984. Þau
fengu þá hugmynd að stofna sjón-
varpsstöð og hafa unnið að því síð-
an. Hún er nú komin út um allan
heim og er á fjórum gervihnött-
um,“ lýsir Unnur, sem fór í heim-
sókn í höfuðstöðvarnar síðasta
sumar. Hún segir að fjöldi manns
starfi við stöðina og margir þeirra
í sjálfboðavinnu.
Kristján bendir á að félagið Að-
ventsýn standi á bak við stöðina
hér landi. Félagsmenn eru um sex-
tíu, allt áhugafólk um stöðina, og
borgar hver þeirra á bilinu eitt til
fimm þúsund krónur á mánuði til
þess að halda henni úti hér á landi.
„Við höfum áhuga á því að sem
flestir hlusti á það sem fram fer á
stöðinni og reyni að tileinka sér
það sem er þeim til góðs. Miðað við
það sem við höfum heyrt þennan
tíma, efumst við ekki um að stöðin
festist í sessi hér á landi.“
Íslensk hjón standa fyrir útsendingum á bandarískri sjónvarpsstöð
Morgunblaðið/Arnaldur
Hjónin Kristján og Unnur vilja að 3ABN nái útbreiðslu hér á landi.
Vilja leyfa öðr-
um að njóta upp-
byggjandi efnis
RUNÓLFUR Óttar
Hallfreðsson, skip-
stjóri og útgerðar-
maður, andaðist á
Sjúkrahúsi Akraness
laugardaginn 30.
ágúst síðastliðinn,
72ja ára að aldri.
Foreldrar Runólfs
voru Sigurjóna
Magnúsdóttir og
Hallfreður Guð-
mundsson, hafnsögu-
maður á Akranesi.
Runólfur fæddist í
Reykjavík 26. mars
1931, en fjölskyldan
flutti til Akraness þegar hann var
á fimmta ári.
Runólfur byrjaði á trillum 10
ára gamall og 15 ára var hann lög-
skráður á línuveiðarann Ólaf
Bjarnason, sem var í salt- og kola-
flutningum í kringum landið, en
eftir það var hann lengst af á sjó.
Vorið 1947 fór hann á Svein Guð-
mundsson AK sem var byggður
fyrir Harald Böðvarsson og var á
honum í tvö ár, en 1949 réð hann
sig á nýsköpunartog-
arann Bjarna Ólafs-
son, þar sem hann var
í 11 ár að undanskild-
um tveimur vetrum í
Stýrimannaskólanum.
1956 byrjaði Runólfur
sem afleysingaskip-
stjóri og vorið 1959
varð hann skipstjóri
hjá Haraldi Böðvars-
syni. Síðan tók hann
við Jörundi II og fór í
útgerð með Guðmundi
Jörundssyni og voru
þeir saman með rekst-
ur til 1972.
Þá stofnaði hann sitt eigið út-
gerðarfyrirtæki og rak það til
dauðadags, en hann var jafnframt
lengst af skipstjóri á eigin skipum
og mikil aflakló. Bjarni Ólafsson
AK var fyrsta skip hans og átti
hann þrjú skip með því nafni áður
en yfir lauk.
Eftirlifandi eiginkona Runólfs er
Ragnheiður Gísladóttir og eignuð-
ust þau fimm börn, sem öll eru á
lífi.
Andlát
RUNÓLFUR
HALLFREÐSSON
SIGURBJÖRN Sig-
tryggsson, fyrrverandi
aðstoðarbankastjóri
Landsbanka Íslands,
lést laugardaginn 30.
ágúst síðastliðinn, 84
ára að aldri.
Sigurbjörn Sig-
tryggsson fæddist á
Svarfhóli í Laxárdal í
Dalasýslu 17. nóvember
1918, en foreldrar hans
voru hjónin Sigtryggur
Jónsson, hreppstjóri,
og Guðrún Sigur-
björnsdóttir, ljósmóðir.
Að loknu prófi frá
Héraðsskólanum í Reykholti 1937
tók Sigurbjörn kennarapróf 1940 og
sótti síðar námskeið fyrir banka-
menn í Englandi og fór í námsför
til Bretlands, Norðurlanda og
Þýskalands. Hann var virkur fé-
lagsmaður í Oddfellowreglunni um
árabil og á tímabili var hann yf-
irmeistari í sinni
stúku. Auk þess tók
hann þátt í félagsmál-
um bankamanna.
Sigurbjörn var
starfsmaður Lands-
banka Íslands frá
1940. Hann var gjald-
keri útibúsins á Ísa-
firði 1943 til 1945,
gjaldkeri í Reykjavík
1945 til 1950, aðal-
fulltrúi í gjaldeyris-
deild 1951 til 1960,
forstöðumaður Aust-
urbæjarútibúsins
1960 til 1964 og að-
stoðarbankastjóri aðalbankans frá
1964 þar til hann fór á eftirlaun
1988.
Eftirlifandi eiginkona Sigur-
björns er Ragnheiður Viggósdóttir,
en þau gengu í hjónaband 17. nóv-
ember 1943 og eignuðust tvö börn,
sem lifa föður sinn.
SIGURBJÖRN
SIGTRYGGSSON
EFTIR 1. október nk. verða
aurar ekki lengur lögmætur
gjaldmiðill hér á landi og frá og
með þeim tíma eiga heildarfjár-
hæðir sérhverrar kröfu eða
reiknings að vera greindar og
greiddar með heilli krónu.
Seðlabanki Íslands hefur nú
innkallað aura, þ.e. 5 aura, 10
aura og 50 aura myntir, og er
frestur til að afhenda þessar
myntir til innlausnar fram til 1.
október næstkomandi. Allir
bankar og sparisjóðir eru skyld-
ugir að taka við peningunum til
þess tíma og láta í staðinn pen-
inga, sem ekki á að innkalla.
Samkvæmt nýlegri reglugerð
verður engum skylt að inna af
hendi greiðslu í aurum frá og
með 1. október 2003. Eftir sem
áður verður heimilt að nota brot
úr krónu í útreikningi verðs, en
lægri fjárhæð en 0,5 krónur skal
þá sleppt og 0,5 krónur eða
hærri fjárhæð hækkuð í eina
krónu.
Seðlabank-
inn kallar
inn aura
OPINN stjórnmálafundur með
þingmönnum og ráðherrum
Framsóknarflokksins verður
haldinn á Hótel Héraði á Egils-
stöðum á morgun, fimmtudag,
klukkan 14.
Fundurinn hefst með ávarpi
Halldórs Ásgrímssonar, for-
manns Framsóknarflokksins
og utanríkisráðherra, sem
ræða mun stjórnmálaviðhorfið.
Að því loknu munu þingmenn
og ráðherrar flokksins svara
fyrirspurnum fundarmanna.
Allir eru velkomnir meðan hús-
rúm leyfir.
Fundur þessi er haldinn í
tengslum við haustfund þing-
flokks og landsstjórnar Fram-
sóknarflokksins, sem haldinn
verður á Egilsstöðum 4. og 5.
september.
Egilsstaðir
Framsókn
með opinn
stjórn-
málafund