Morgunblaðið - 03.09.2003, Side 16
ERLENT
16 MIÐVIKUDAGUR 3. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Skrifstofutækni
250 stundir!
Markmið námsins er að þjálfa nemendur til starfa á skrifstofum
og er áhersla lögð á tölvugreinar og bókfærslu. Námið er mjög
hagnýtt og byggist að verulegu leyti á verklegum æfingum.
Námið eykur samkeppnishæfni nemenda og býr þá undir krefj-
andi störf á vinnumarkaði.
Helstu námsgreinar eru:
Handfært bókhald
Tölvugrunnur
Ritvinnsla
Töflureiknir
Verslunarreikningur
Glærugerð
Mannleg samskipti
Tölvubókhald
Internet
STARFSMENNTUN
fjárfesting til framtíðar
Mig langaði að vera vel samkeppnisfær í
öllum almennum skrifstofustörfum og eftir
vandlega umhugsun valdi ég Tölvuskóla
Íslands. Þar bætti ég kunnáttuna í Word-
ritvinnslu og Excel-töflureikni og lærði
hand- og tölvufært bókhald, glærugerð,
verslunarreikning ásamt undirstöðuatriðum
í mannlegum samskiptum og Interneti.
Námið er vel skipulagt og kennsla frábær.
Nú finnst mér ég vera fær í flestan sjó!.
Steinunn Rósq, þjónustu-
fulltrúi,
Íslenska Útvarpsfélaginu
Öll námsgögn innifalin
Tölvuskóli Íslands
B í l d s h ö f ð a 1 8 , s í m i 5 6 7 1 4 6 6
Opið til kl. 22.00
www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli
Árni Stefánsson viðskiptafræðingur og lögg. fasteignasali
FASTEIGNASALAN
GIMLI GRENSÁSVEGI 13,SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810
Traust þjónusta í 20 ár
Með kveðju.
Grétar, sími 696 1126.
EFTIRTALDAR
EIGNIR ÓSKAST
Ég hef verið beðinn um að útvega fyrir
ákveðinn kaupanda 3ja-4ra herbergja íbúð í
Breiðholti eða Kópavogi. Verð allt að 12,0
millj. Áhugasamir vinsamlegast hafi
samband við mig í síma 696 1126.
Hafðu samband - það kostar ekkert!
FJÖLSKYLDUR þeirra sem létu
lífið þegar frönsk farþegaþota var
sprengd yfir Afríku 1989 munu fá
meiri fjárhagsstuðning en áður
hafði verið heitið frá mannúðar-
stofnun í Líbýu en stjórnvöld í
landinu neita sem fyrr að gangast
við að hafa staðið á bak við hryðju-
verkið. Sonur Muammars Gaddafis
Líbýuleiðtoga, Saif al-Islam,
stjórnar umræddri mannúðar-
stofnun sem ber nafn einræðis-
herrans.
Líbýska stofnunin er sögð
styrkja þá sem hafa orðið fórn-
arlömb hryðjuverka en með
frönsku þotunni fórust 170 manns.
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna
mun á næstunni ræða hvort aflétta
beri efnahagslegum refsiaðgerðum
gegn Líbýu sem hafa verið í gildi í
11 ár vegna stuðnings Gaddafis við
hryðjuverkamenn víða um heim.
Frakkar höfðu mótmælt því að öll-
um refsiaðgerðum gegn Líbýu yrði
aflétt eftir að samkomulag náðist
fyrir skömmu um bætur til að-
standenda fórnarlamba Lockerbie-
tilræðisins 1988. Þá fórst hátt á
þriðja hundrað manns með banda-
rískri Pan Am-þotu er sprengd var
yfir bænum Lockerbie í Skotlandi.
Sex Líbýumenn voru dæmdir að
sér fjarverandi í lífstíðarfangelsi í
Frakklandi fyrir að hafa staðið á
bak við tilræðið 1989 en Líbýu-
stjórn hefur neitað að framselja
mennina. Enn er óljóst hvort mála-
miðlun verður fundin um þann
hluta deilunnar.
Sumir aðstandendur eru enn
ósáttir og vilja að sexmenningarnir
og Gaddafi sjálfur verði dregnir
fyrir rétt. „Réttlætinu hefur ekki
verið fullnægt vegna þess að þessir
menn ganga enn lausir,“ sagði
Claire Julhiait, dóttir eins af þeim
sem fórust, í fyrradag.
Líbýumenn hafa einnig boðist til
að greiða bætur til ættingja fólks
sem missti ástvini í sprengjutilræði
í næturklúbbnum La Belle í Berlín
árið 1986. Þrír fórust í tilræðinu,
tveir bandarískir hermenn og einn
Tyrki og er talið að útsendarar
Líbýustjórnar hafi skipulagt árás-
ina. Talsmaður utanríkisráðuneyt-
isins í Berlín, Walter Lindner,
sagði í vikunni að menn biðu enn
eftir að heyra nánar hvað fælist í
tilboðinu. En Þjóðverjar myndu
fagna því ef bætur yrðu greiddar.
Vilja bætur frá Ísraelum
Egypska blaðið Al-Ahram sagði í
gær að fólk sem missti ástvini sína
þegar Ísraelar skutu niður líbýska
farþegaflugvél yfir Sínaí-skaga í
febrúar árið 1973 krefjist nú
skaðabóta. Með vélinni fórust alls
106 manns. „Egypskt blóð er ekk-
ert ódýrara en bandarískt, breskt
eða franskt,“ hafði blaðið eftir Mo-
hammed Sherif sem missti annað
foreldri sitt. Vélin var á leið frá
Tripoli í Líbýu til Kaíró og segja
Ísraelar að flugmennirnir hafi vís-
að á bug kröfum um að lenda. Sína-
ískaginn var á þessum tíma her-
numinn af Ísraelum.
Tilræði sem grandaði farþegaþotu árið 1989
Líbýumenn bjóða
Frökkum bætur
Einnig rætt um
bætur fyrir
sprengingu í
Berlín 1986
Berlín, Tripoli. AP, AFP.
Reuters
Muammar Gaddafi Líbýuleiðtogi.
BANDARÍSKIR vísindamenn við
Wisconsin-Madison-háskóla hafa
komist að því að fólk sem hneigist
mjög til neikvæðra hugsana er
viðkvæmara fyrir sjúkdómum en
annað fólk, að sögn BBC. Sagt er
frá niðurstöðum þeirra í ritinu
Proceedings of the National Aca-
demy of Sciences.
Talið er að heilastarfsemi í svo-
nefndu hægra ennisblaði heila-
barkarins tengist neikvæðum
hugsunum en aftur á móti tengist
vinstra ennisblaðið jákvæðum
hugsunum. Gerð var fyrst rann-
sókn á fólki með mikla virkni í
hægra ennisblaðinu en áður var
vitað að eindregnir bölsýnismenn
sýna yfirleitt meiri virkni þar en
annað fólk.
Til að greina á milli hópanna
voru þátttakendurnir, sem voru
52 og á aldrinum 57-60 ára, fyrst
beðnir að minnast einhvers sem
gerði þá mjög ánægða og síðan
einhvers sem gerði þá dapra,
hrædda eða reiða. Síðan var fólkið
dregið í dilka eftir því hve kröftug
viðbrögðin voru í hvoru ennis-
blaði.
Dælt var í fólkið venjulegu
bóluefni gegn inflúensu. Slíkt
bóluefni kemur af stað ósjálfráð-
um viðbrögðum í frumunum sem
framleiða þá mótefni er geta varið
fólk fyrir sýkingu ef það kemst í
snertingu við hættulegar örverur.
Næstu sex mánuði var fólkið
rannsakað til að athuga hve mikið
af mótefnum hefði orðið til. Í ljós
kom að bölsýnismenninir brugð-
ust verr við en hinir, framleiddu
minna af mótefninu.
„Tilfinningar leika mikilvægt
hlutverk í þeim hluta líkamsstarf-
seminnar sem hefur áhrif á heilsu
okkar,“ sagði dr. Richard Dav-
idson sem stýrði rannsókninni.
Bölsýni heilsu-
spillandi?
Ný rannsókn sýnir að neikvæðir
eru viðkvæmari fyrir sjúkdómum
INDÓNESÍSKUR dómstóll dæmdi í
gær múslímaklerkinn Abu Bakar
Bashir í fjögurra ára fangelsi fyrir
landráð og brot á innflytjenda-
löggjöf. Fyrr í gær sýknaði dóm-
stóllinn hins vegar Bashir af ákæru
um að hafa lagt á ráðin um tilraun
til valdaráns og um að stjórna
hryðjuverkasamtökum en fann
hann sekan um aðild að samsæri
um valdarán.
Stjórnvöld í Indónesíu reyndu að
færa sönnur á að Bashir væri í raun
leiðtogi íslömsku hryðjuverka-
samtakanna Jemaah Islamiyah,
sem talin eru vera Asíuarmur al-
Qaeda-samtakanna. Sjálfur hefur
Bashir hins vegar sagt að þessi
samtök séu ekki til og ber af sér all-
ar sakir. Réttarhöldin voru álitin
vera prófsteinn á vilja Indónesa til
að berjast gegn hryðjuverkum.
AP
Stuðningsmenn Bashirs hrópa vígorð fyrir utan dómhúsið þar sem réttað var yfir klerknum í Jakarta í gær.
Umdeildur múslímaklerkur dæmdur í Indónesíu
Bashir hlaut fjögur ár
Jakarta. AFP, AP.
ÖFLUGUR jarðskjálfti upp á
5,9 stig á Richter-kvarðanum
skók Xinjiang-hérað í norðvest-
urhluta Kína í gærmorgun.
Upptök skjálftans voru um 25
km frá landamærunum að Tad-
jikistan, að sögn opinberu
Xinhua-fréttastofunnar í Kína.
Ekki er vitað til að slys hafi
orðið á fólki vegna skjálftans en
héraðið er afskekkt og því gæti
liðið nokkur tími áður en
traustar fréttir berast þaðan.
Jarð-
skjálfti
í Kína
Peking. AFP.