Morgunblaðið - 03.09.2003, Qupperneq 18
AKUREYRI
18 MIÐVIKUDAGUR 3. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Síðumúla 13, sími 588 2122
www.eltak.is
VOGIR
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum eitt mesta úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
Hafðu samband
REKSTUR Sjafnar hf. á Akureyri
gekk vel á fyrri hluta þessa árs og
skilaði þá 72 milljóna króna hagnaði,
skv. fréttatilkynningu frá félaginu.
Fyrir skatta var hagnaðurinn 88
milljónir króna. Eigið fé félagsins
30. júní 2003 var 422 milljónir, heild-
arskuldir þess voru 83 milljónir
króna, þar af var tekjuskattsskuld-
binding 29 milljónir króna. Eigin-
fjárhlutfall Sjafnar hf. er 84% og
veltufjárhlutfall samkvæmt árs-
reikningi 3,7.
Áætluð velta Sjafnar og tengdra
félaga á þessu ári er 3,5 milljarðar
króna. Eigið fé Sjafnar hf. hefur
vaxið úr 100 milljónum árið 2000 í
422 milljónir og hefur á tímabilinu
verið greiddur út arður að upphæð
70 milljónir króna.
Á árinu 2003 hefur rekstur Sjafn-
ar hf. þróast úr því að vera efna-
verksmiðja í að vera fjárfestinga- og
eignarhaldsfélag þar sem lögð er
áhersla á breytingastjórnun og
verðmætasköpun.
Í apríl á þessu ári keypti Sjöfn hf.
hlutabréf Kaldbaks hf. í Nýju kaffi-
brennslunni ehf., Akva ehf. og Fjár-
stoð ehf. Jafnframt keypti Sjöfn hf.
eignarhluti Baldurs Guðnasonar og
Steingríms Péturssonar í Stíl ehf. og
Ferðaskrifstofu Akureyrar ehf.
Í lok apríl keypti Sjöfn hf. 37,5%
eignarhlut í SBA Norðurleið hf. og
gerði jafnframt hluthafasamkomu-
lag við Gunnar M. Guðmundsson,
framkvæmdastjóra félagsins, sem á
37,5% hlut, um stefnumörkun og
framtíðarsýn félagsins og áherslur í
rekstri þess.
Í maí sameinaði Sjöfn hf. hrein-
lætisframleiðslusvið Mjallar hf. og
Friggjar hf. undir nafninu Mjöll
Frigg hf. Eignarhlutur Mjallar hf. í
Mjöll Frigg hf. er 50% og Sjöfn hf. á
65% eignarhlut í Mjöll hf.
Í júní keypti Sjöfn hf. nær 100%
eignarhlut Skeljungs hf. í Hans Pet-
ersen hf. og tók við eignarhaldi og
rekstri félagsins þegar í stað.
Í sama mánuði keypti Stíll ehf.
rekstur Vinnandi manna ehf. og
sameinaði rekstri Stíls ehf. frá og
með 1. júlí sl. Jafnframt opnaði Stíll
ehf. verslun á Akureyri í samstarfi
við Odda hf. í Reykjavík.
Í ágúst keypti Mjöll hf. öll hluta-
bréf í þvottahúsinu og efnalauginni
Slétt og fellt ehf. á Akureyri og sam-
einaði rekstri Mjallar hf. frá 1. ágúst
2003.
Í síðustu viku sameinaði Sjöfn hf.
rekstur Stíls ehf. og Ásprents ehf.
undir nafni og merki Ásprents –
Stíls hf. Sameinað fyrirtæki hóf
rekstur 1. september. Sjöfn hf. á
50% í Ásprenti – Stíl hf.
Með framangreindum kaupum á
hlut í félögum hefur Sjöfn hf. fylgt
eftir nýrri stefnumörkun um að fjár-
festa í fyrirtækjum með það að
markmiði að auka verðmæti og há-
marka arðsemi, auk þess sem lögð
verður áhersla á að ná fram sam-
legðaráhrifum í rekstri núverandi
fyrirtækja og keyptra fyrirtækja,
segir í frétt frá félaginu.
Hagnaður Sjafnar 72 millj-
ónir fyrstu sex mánuði ársins
Eftirfarandi fyrirtæki eru nú í
samstæðu Sjafnar hf:
Hans Petersen hf. – nær 99,9%
eignarhlutur.
Mjöll hf. – 65% eignarhlutur.
Mjöll hf. á 50% hlut í Mjöll
Frigg hf. og 33,3% hlut í P/F
Kemilux Industri í Færeyjum.
Nýja kaffibrennslan ehf. - 50%
eignarhlutur.
AKVA ehf. – 100% eign-
arhlutur.
Fjárstoð ehf. – 45% eign-
arhlutur.
Ferðaskrifstofa Akureyrar ehf.
– 70% eignarhlutur.
SBA Norðurleið hf. – 37% eign-
arhlutur.
Ásprent - Stíll ehf . – 50% eign-
arhlutur.
Gólflausnir ehf. – 65% eign-
arhlutur.
Fjöldi starfsmanna hjá Sjöfn hf.
og tengdum félögum á þessu ári
er yfir þrjúhundruð og starfar
bróðurpartur þeirra á Akureyri.
Hluthafar Sjafnar hf. eru: Kald-
bakur hf. – 50%, Eyfirðingur ehf. í
eigu Baldurs Guðnasonar – 41,7%,
Eignarhaldsfélagið Stíll ehf., sem
er í eigu Baldurs Guðnasonar og
Steingríms Péturssonar – 8,3%.
Sjafnar-samstæðan
ÞESSI föngulegi hópur kylfinga úr Golfklúbbi Ak-
ureyrar kom saman í golfskálanum að Jaðri í vikunni
til að halda upp á góðan árangur í sumar, en GA eign-
aðist tvenna Íslandsmeistara í sveitakeppni á dögunum
auk þess sem tvær stúlknanna urðu einnig Íslands-
meistarar einstaklinga.
Drengirnir sigruðu í flokki 12-15 ára og stúlkurnar í
flokki 12-18 ára. Í aftari röð eru, frá vinstri: Samúel
Gunnarsson, Björn Guðmundsson, Jón Svavar Árnason,
Árni Jónsson þjálfari, Elvar Örn Hermannsson, Óskar
Jónasson og Hafþór Ingi Valgeirsson. Í fremri röð eru,
frá vinstri: Íris Guðmundsdóttir (sem einnig varð Ís-
landsmeistari einstaklinga 13 ára og yngri), Guðlaug
Linda Harðardóttir, Sunna Sævarsdóttir og María Ósk
Jónsdóttir, en hún varð einnig Íslandsmeistari ein-
staklinga í flokki 16-18 ára.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Akureyrskir golfmeistarar
GRÝTUBAKKAHREPPUR hefur
opnað heimasíðu á vefslóðinni
www.grenivik.is og hefur síðan að
geyma ýmsar upplýsingar um sveit-
arfélagið, nefndir þess og störf.
Allar fundargerðir sveitarstjórnar
og nefnda verða nú aðgengilegar
íbúum í gegnum netið. Þá er á
heimasíðunni mögulegt fyrir íbúa að
koma á framfæri smáauglýsingum,
skrá þjónustuupplýsingar um fyrir-
tæki, skrá viðburði og netföng.
Á þennan hátt er síðunni bæði ætl-
að að vera upplýsingamiðill sveitar-
félagsins og mannlífsspegill Grýtu-
bakkahrepps. Umsjón með gerð
heimasíðunnar hafði Athygli ehf. á
Akureyri. Galdur ehf. á Höfn í
Hornafirði framleiddi vefkerfi og sá
um hönnun síðunnar.
Grýtubakka-
hreppur með
heimasíðu
TEKIN er til starfa bílaleiga á Ak-
ureyri undir nafninu Hasso-Akur-
eyri ehf. Þetta er fimmta bílaleigan
sem stofnuð er á Íslandi undir nafni
Hasso.
Í tengslum við Hasso-Akureyri
hefur einnig verið opnuð afgreiðsla á
Akureyrarflugvelli en þar er hægt að
fá bíla við komu til Akureyrar og
skila við brottför, án aukakostnaðar.
„Bílaleigan býður nokkrar gerðir
fólksbíla og jeppa á viðráðanlegu
verði, en eins og kunnugt er hafa
bílaleigur Hasso verið brautryðjend-
ur í lágu verði sem allir hafa tekið
fagnandi,“ segir í fréttatilkynningu
frá fyrirtækinu.
Eigendur bílaleigunnar eru Frið-
rik Guðmundsson, Sigurður S.
Bjarnason og Sigurður Guðmunds-
son.
Aðalskrifstofa Hasso-Akureyri er
í Hafnarstræti 99-101 og síminn er
894-3039. Netfang: hasso@kaupa.is.
Hasso-bílaleiga
á Akureyri
KOMINN er út geisladiskurinn Í
faðmi mínum með lögum íslenskra
lagahöfunda við texta Önnu Soffíu
Halldórsdóttur á Húsavík. Hann er
gefinn út til styrktar Hetjunum, sem
er félag aðstandenda langveikra
barna á Akureyri og nágrenni og eru
tvennir tónleikar á dagskrá á Norð-
urlandi í tilefni útgáfunnar.
Anna Soffía gaf á sínum tíma út
ljóðabók til minningar um son sinn,
Pétur Davíð Pétursson, sem lést úr
krabbameini árið 1999, aðeins níu ára
gamall, og seldist sú ljóðabók í stóru
upplagi.
Anna Soffía lét ekki staðar numið
og hélt áfram að semja ljóð um
reynslu sína. Hún fékk til liðs við sig
nokkra góða lagahöfunda sem sömdu
lög við þessi ljóð. Fengnir voru lands-
þekktir söngvarar til flutnings og
geisladiskurinn Í faðmi mínum er af-
raksturinn.
Þess má geta að listamennirnir
gáfu vinnu sína og mun allur ágóði af
sölu disksins renna til styrktarsjóðs
Hetjanna, félags aðstandenda lang-
veikra barna á Akureyri og nágrenni.
Félagið Hetjurnar var stofnað 2.
október árið 1999. Að stofnun félags-
ins stóðu aðstandendur langveikra
barna á Akureyri og í nágrenni með
stuðningi Umhyggju og barnadeildar
Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri.
Tvennir tónleikar verða haldnir í
vikulokin með þátttöku þeirra tónlist-
armanna sem að vinnslu geisla-
disksins komu. Hinir fyrri verða á
Hótel Húsavík á morgun, fimmtu-
dagskvöldið 4. september kl. 21, og
eru þeir minningartónleikar um Pét-
ur Davíð Pétursson.
Síðari tónleikarnir eru eiginlegir
útgáfutónleikar geisladisksins og
verða þeir í tónlistarhúsinu Laug-
arborg í Eyjafjarðarsveit á föstu-
dagskvöld, 5. september, kl. 20.30.
Miðaverð á tónleikana verður kr.
1500 og rennur allur ágóði til styrkt-
arsjóðs Hetjanna.
Meðal listamanna sem fram koma
eru: Aðalsteinn Júlíusson, Anna Kar-
ín Jónsdóttir, Hera Björk Þórhalls-
dóttir, Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir,
Kristján Halldórsson, Lára Sóley Jó-
hannsdóttir, Stefán Jakobsson og
Svava Steingrímsdóttir.
Kynnir á tónleikunum verður
Laufey Brá Jónsdóttir og tónlistar-
stjóri Borgar Þórarinsson.
Tónleikar og geisladiskur til styrktar langveikum börnum
Öll ljóðin eftir móður sem
missti ungan son úr krabbameini
ÞORSTEINN Gunnarsson
rektor Háskólans á Akureyri
undirritaði samsstarfssamn-
inga við tvo háskóla í Alaska í
opinberri heimsókn Ólafs
Ragnars Grímssonar þangað á
dögunum.
Annars vegar er um að
ræða samning milli Háskólans
í Alaska, Anchorage (Univers-
ity of Alaska, Anchorage), og
Háskólans á Akureyri. Samn-
ingurinn fjallar einkum um
samvinnu háskólanna um
nemenda- og kennaraskipti og
rannsóknarsamstarf.
Það var Lee Gorsuch, rekt-
or háskólans í Anchorage sem
undirritaði samninginn fyrir
hönd skólans.
Alaskaháskólinn í Ancho-
rage er fjölmennasti háskóli
ríkisins með u.þ.b. 14.000
nemendur og miklir sam-
starfsmöguleikar eru á milli
þessara háskóla, einkum á
sviði sjávarútvegs- og um-
hverfisfræða, að sögn Þor-
steins Gunnarssonar. Þess má
geta að Bjartmar Sveinbjörns-
son, prófessor við háskólann,
er ræðismaður Íslands í
Alaska og tók hann virkan
þátt í að skipuleggja heimsókn
forseta Íslands til Alaska.
Einnig var undirritaður annar
samningur milli Kyrrahafshá-
skólans í Alaska (Alaska Pacif-
ic University) og Háskólans á
Akureyri. Samningurinn var
undiritaður af Þorsteini Gunn-
arssyni og Douglas M. North
rektors Kyrrahafsháskólans.
Kyrrahafsháskólinn er
einkaháskóli sem getið hefur
sér gott orð fyrir rannsóknir
og fræðastörf um málefni
norðurslóða en Háskólinn á
Akureyri hefur sem kunnugt
er einnig lagt áherslu á þau
viðfangsefni, eins og Þorsteinn
orðar það.
Forseti Íslands Ólafur
Ragnar Grímsson og Walter
Hickel fyrrverandi ríkisstjóri í
Alaska voru meðal þeirra sem
voru viðstaddir undirritunina.
Nemendaskipti milli þessara
háskóla í Alaska og Háskólans
á Akureyri eru þegar hafin.
Samstarfs-
samningar
við háskóla
í Alaska
♦ ♦ ♦
Moggabúðin
Íþróttataska, aðeins 2.400 kr.
mbl.is
STJÖRNUSPÁ