Morgunblaðið - 03.09.2003, Qupperneq 19
SUÐURNES
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. SEPTEMBER 2003 19
! !
" !
# $% &'#
# $% '
()
*& *+* #
&& && *+ & #
Aðalfundur Vigra hf.
verður haldinn miðvikudaginn 10. september 2003
kl. 10.00 að Týsgötu 1, Reykjavík.
Aðalfundur Ögurvíkur hf.
verður haldinn miðvikudaginn 10. september 2003
kl. 14.00 að Týsgötu 1, Reykjavík.
Aðalfundur Ögra hf.
verður haldinn miðvikudaginn 10. september 2003,
að loknum aðalfundi Ögurvíkur hf. að Týsgötu 1, Reykjavík.
DAGSKRÁ fjölskyldu- og menning-
arhátíðarinnar ljósanætur í Reykja-
nesbæ, verður formlega sett annað
kvöld við upphaf hnefaleikakeppni
sem fram fer í Íþróttahúsi Keflavíkur
við Sunnubraut. Um kvöldið fara
fram sjö viðureignir félaga úr Hnefa-
leikafélagi Reykjaness og tveimur
dönskum boxklúbbum.
„Reykjanessbær er höfuðvígi
hnefaleika á Íslandi í dag. Hnefaleika-
kappar sem æft hafa fimi sína í BAG,
Hnefaleikafélagi Reykjaness, hafa
sýnt það og sannað í keppnum að und-
anförnu að þar slær boxhjartað og er
því mjög viðeigandi að þessi rómaða
menningarhátíð hefjist með þungum
höggum,“ segir í fréttatilkynningu frá
BAG.
Hnefaleikafélagið hefur fengið
danska hnefaleikamenn til að taka
þátt í keppninni en þeir eru félagar úr
hnefaleikafélögunum í Ballerup og
Naskov. Guðjón Vilhelm Sigurðsson
hnefaleikaþjálfari segir að dönsku
boxararnir séu engir aukvisar. Hann
gerir þó þá kröfu að sínir menn vinni
alla bardagana. „Það yrði stórsigur ef
við næðum því,“ segir hann.
Skúli og Þórður
fá verðuga andstæðinga
Tveir af þekktustu hnefaleikaköpp-
um landins mæta verðugum keppi-
nautum. Skúli „Tyson“ Vilbergsson
fær sennilegast sinn erfiðasta and-
stæðing til þessa. Er það Dennis Røn-
berg, danskur harðjaxl sem tekið hef-
ur þátt í 45 áhugamannabardögum
með góðum árangri og er talinn lík-
legur til meiri afreka, að því er segir í
fréttatilkynningu frá BAG. Þórður
„Doddy“ Sævarsson, sem álitinn er
einn hæfileikaríkasti boxari landsins,
fær heldur ekki neinn aukvisa til að
glíma við, Danann Kenneth Namm-
ing sem vann silfurverðlaun á skand-
inavíska meistaramótinu. Það er þó
langt því frá að hann geti gengið að
því vísu þar sem Þórður er sagður í
sínu besta formi frá upphafi. Fimm
aðrar viðureignir verða í keppninni,
meðal annars keppni á milli danskra
tólf ára stráka.
Guðjón Vilhelm segir að mikið sé
lagt í umgjörð keppninnar vegna þess
að hún sé upphafsatriði ljósanætur.
Fyrir utan Íþróttahúsið við Sunnu-
braut verður fornbílasýning, mótor-
hjólamenn mynda heiðursvörð og vík-
ingur verður við iðju sína. Húsið
verður opnað klukkan 19 á morgun,
fimmtudagskvöld, en klukkan 20
hefst keppnin með setningarávarpi
Steinþórs Jónssonar formanns ljós-
anæturnefndar. Sýnt verður mynd-
band um Reykjanesbæ og hnefaleika
og á milli viðureigna í hringnum sýna
eldgleypar listir sínar og rapparinn
Iceberg treður upp.
Guðjón Vilhelm vonast til að fá nýja
gesti í húsið af þessu tilefni, fólk sem
ekki hafi áður sótt slíka viðburði. „Við
erum þakklátir fyrir þetta tækifæri.
Það sýnir hvað menn hérna eru víð-
sýnir enda hafa þeir alltaf tekið því
vel sem við erum að gera,“ segir Guð-
jón Vilhelm.
Hnefaleikakeppni verður í Íþróttahúsinu við Sunnubraut á fimmtudagskvöld
Ljósanótt hefst
með þungum
hnefahöggum
Reykjanesbær
Ljósmynd/Hilmar Bragi
Skúli „Tyson“ Vilbergsson í erfiðri viðureign við sænska landsmeistarann,
John-Erick Kack, í hnefaleikakeppni sem fram fór í Stapanum í Njarðvík.
„ÉG ætlaði nú að fara að slaka á en
þvert á móti sýnist mér nú næg verk-
efni vera framundan,“ sagði Ingi-
björg Sólmundardóttir í samtali við
Morgunblaðið, en hún og systir henn-
ar, Sigurborg, festu nýlega kaup á
elstu keramiksmiðju á landinu og
hafa flutt hana í Garðinn. Þær eru um
þessar mundir að standsetja nyrsta
hluta frystihússins Kothúsa fyrir
starfsemina en formleg opnun verður
föstudaginn 5. september. Að sögn
Ingibjargar er aðalvertíðin fram-
undan, jólaföndrið.
Ingibjörg á 25 ára verslunarafmæli
á þessu ári, en hún hafði rekið versl-
unina Ársól þar til breytingar urðu á
rekstrinum undir lok júlí. „Ég breytti
versluninni í handverkstæði fyrir
tveimur árum og hafði nú áhuga á því
að bjóða upp á keramik með glerinu
og leirnum. Ég sneri mér til Lista-
smiðjunnar Keramikhúss og komst
þá að því að hún var til sölu. Án þess
að hugsa nánar út í það vorum við
systurnar búnar að festa kaup á
henni. Smám saman fórum við að
koma mótunum, sem eru yfir 1.700,
fyrir í húsnæði Ársólar en það var
auðvitað enginn vegur að koma allri
smiðjunni þar inn, enda húsnæðið lít-
ið. Þegar stór hluti hennar var ennþá
í gámi fyrir utan sáum við ekki annað
fært en að leita að nýju húsnæði. Við
höfðum augastað á þessu og þannig
fór að við skiptum á húsnæði,“ sagði
Ingibjörg í samtali við blaðamann.
Keramikmálun hentar öllum
Fyrirtækið heitir nú Listasmiðjan
– keramik- og glergallerí en Ingi-
björg hefur sl. tvö ár kynnt sér gerð
glerlistaverka og numið hana og sú
starfsemi verður eftir sem áður í
hennar höndum. „Ég ætla að vera
með smáhorn hérna inni þar sem ég
verð með glerið en auk þess verður
hér einnig boðið upp á leir og ker-
amik.“ Vinnuaðstaða verður í hús-
næðinu bæði fyrir hópa og ein-
staklinga og sagði Ingibjörg að það
væri kjörið fyrir fjölskyldur, ekki síð-
ur en hópa, að koma saman og föndra.
„Keramikmálun hentar fyrir alla ald-
urshópa. Þeir sem koma hingað að
mála hafa aðgang að litum gegn vægu
gjaldi og þurfa því ekki að koma sér
upp litalager til að byrja. Hér verður
líka aðstaða til að fá sér kaffi og ekki
spillir þessi frábæra staðsetning, al-
veg niðri við sjóinn.“
Í framtíðinni verður boðið upp á
námskeið bæði í gerð leir- og gler-
muna og í keramikmálun. Á staðnum
eru sex keramikofnar og tveir gler-
bræðsluofnar og getur fólk keypt að-
gang að þeim eingöngu, auk þess sem
í húsnæðinu verður einnig verslun
með íslenskt handverk
„Ég ætlaði satt að segja að fara að
hætta í verslunarrekstri, enda á ég
aldarfjórðungs verslunarafmæli á
þessu ári. En það er svona, enginn
veit sinn næturstað og mér sýnist ég
hafa nóg af verkefnum enda er aðal-
vertíðin framundan. Stór hluti af
starfsemi Listasmiðjunnar er pönt-
unarþjónusta og við sendum ker-
amikverk út um allt land. Aðal-
vertíðin er kringum jólin og sú vertíð
er að fara að byrja, þótt föndrað sé til
jóla allt árið. Mér sýnist hér verða
starf fyrir 4 til 5 þegar mesta álagið
verður,“ sagði Ingibjörg og er rokin
til starfa, enda nóg að gera við að
koma öllu í stand fyrir föstudaginn.
Elsta keramiksmiðja landsins flutt í Garðinn og sett upp í frystihúsi Kothúsa
Næg verkefni eru enn fram-
undan hjá stórhuga systrum
Garður
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Ingibjörg Sólmundardóttir ásamt eiginmanni sínum, Lofti Sigvaldasyni, í jólahorni Listasmiðjunnar – keramik- og
glergallerý. Jólavertíðin er stór hluti starfseminnar og hefur jólamununum verið fundinn góður staður í smiðjunni.
„ÉG lít á þetta sem mikla við-
urkenningu á því sem við höf-
um verið að berjast fyrir og
hvatningu til frekari dáða,“
segir Tómas J. Knútsson,
stofnandi umhverfissamtak-
anna Bláa hersins, sem til-
nefnd hafa verið til norrænu
náttúru- og umhverfisverð-
launanna.
Í Bláa hernum eru kafarar
sem útskrifast hafa úr Sport-
köfunarskóla Íslands, sem
Tómas rekur í Keflavík. Þetta
eru frjáls félagasamtök sem
sagt hafa draslinu stríð á
hendur. Byrjuðu þeir fyrir
sex árum að herja á rusl í
höfnum Hafnasamlags Suður-
nesja sem þá var og hreins-
uðu þar vel til neðansjávar.
Nú hefur víglínan færst upp á
land. Þannig hreinsuðu liðs-
menn Bláa hersins ströndina
og sjóinn í Ósabotnum milli
Hafna og Sandgerðisbæjar.
Tómas segir ánægjulegt
hvað þetta framtak hafi smit-
að út frá sér. Þannig hafi
Reykjanesbær staðið fyrir
miklu hreinsunarátaki í sam-
starfi við fyrirtæki og félaga-
samtök, meðal annars Bláa
herinn, og fleiri sveitarfélög
fetað í þeirra fótspor.
Dómnefnd norrænu nátt-
úru- og umhverfisverð-
launanna tilnefndi tíu samtök
til verðlaunanna í ár.
Síðar í mánuðinum verður
tilkynnt hver hlýtur verðlaun-
in, sem nema liðlega fjórum
milljónum króna. Þau verða
síðan afhent á þingi Norð-
urlandaráðs í Osló í lok októ-
ber.
„Hvatning
til frekari
dáða“
Reykjanesbær
Blái herinn
tilnefndur til
verðlauna