Morgunblaðið - 03.09.2003, Síða 32
MINNINGAR
32 MIÐVIKUDAGUR 3. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Birgitta ÍrisHarðardóttir
fæddist á Akureyri
24. febrúar 1981. Hún
lést í Reykjavík 25.
ágúst síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru Hörður Róbert
Eyvindsson, baader-
maður frá Seyðisfirði,
f. 31. desember 1944,
d. 19. júní 1994, og
kona hans Guðrún
Víglundsdóttir,
verkakona frá Akur-
eyri, f. 11. mars 1950,
d. 18. október 1993. Systkini Birg-
ittu eru: Vilhjálmur Jóhannes
Bergsteinsson, f. 21. ágúst 1968,
kona hans er Sigurlaug Harðar-
dóttir, f. 22. júlí 1972,
börn þeirra Bjarki
Már, f. 24. mars 1992,
Guðrún Kristín, f. 8.
mars 1994, og Daníel
Smári, f. 10. ágúst
2000, Jóhann Freyr
Frímannsson, f. 27.
maí 1971, og Helena
Ósk Harðardóttir, f.
25. desember 1977,
sonur hennar og
Magnúsar Ewalds
Péturssonar, f. 30.
desember 1978, er
Bjartur Ewald Magn-
ússon, f. 8. febrúar 2001.
Útför Birgittu verður gerð frá
Landakirkju í Vestmannaeyjum í
dag og hefst athöfnin klukkan 14.
Elsku Birgitta.
Við gleymum seint þeim degi, þeg-
ar Lella kom til okkar og sagði okkur
að þú værir dáin. Þetta er svo ósann-
gjarnt en þó því miður hluti af þessu
blessaða lífi, þú sem ert svo ung, ekki
nema 22 ára, og við skiljum ekki til-
ganginn með að þeir sem eru svona
ungir, í blóma lífsins, skuli fara svona
snemma frá okkur. Þeir deyja ungir
sem guðirnir elska, stendur einhvers
staðar og kannski er þér ætlað annað
og mikilvægara hlutverk annars stað-
ar þar sem þú getur nýtt þína blíðu og
fallegu lund.
Þú varst stóra stelpan okkar í alltof
stuttan tíma en við reyndum eins og
við gátum að leiðbeina þér sem ein-
staklingi út í þetta erfiða líf og gera
þig að sjálfstæðri persónu til þess að
takast á við lífið og tilveruna. Þú
misstir foreldra þína svo ung og varst
ekki tilbúin til þess að sætta þig við
þessi örlög á svo stuttum tíma. Það er
erfitt að missa föður sinn og móður
ekki nema með níu mánaða millibili
og skiljum við það vel að þú varst
aldrei sátt við þennan sára missi. Þú
varst hjá okkur þegar þú fórst í fyrsta
fermingarfræðslutímann og fórum
við með þér þangað og var mikið horft
á okkur því við vorum mjög ung. Var
þá sagt við okkur: Á nokkuð að fara að
ferma ykkur?
Elsku Birgitta, alltaf varst þú dug-
leg að passa litlu frændsystkinin þín,
Bjarka Má og Guðrúnu Kristínu, og
hefðum við viljað að Daníel Smári
hefði fengið að kynnast þér betur, en
nú ert þú komin til foreldra þinna og
þar mun þér líða vel. Við munum aldr-
ei gleyma þér og þú munt lifa í okkar
hjörtum.
Leiddu mína litlu hendi,
ljúfi Jesús, þér ég sendi
bæn frá mínu brjósti, sjáðu,
blíði Jesús, að mér gáðu.
(Ásmundur Eiríksson.)
Þín elskandi bróðir og mágkona
Vilhjálmur og Sigurlaug.
Mig langar að segja nokkur orð um
Birgittu litlu systur mína sem farin er
á fund foreldra okkar, alltof ung.
Ég man þegar þú fórst í fimleika,
mömmu til mikillar ánægju, því hún
sat í stjórn fimleikaráðsins. Svo er
ekki hægt að gleyma köstunum sem
litla dúllan fékk ef ég vildi ekki leyfa
þér að vera inni í herbergi hjá mér en
því lauk fljótt, því mamma kom þá og
tók í taumana og þú fékkst þitt fram
og byrjaðir strax að brosa. Ég varð
bara að sætta mig við þetta því við vit-
um báðar hver stjórnaði dúllan mín. Á
Þjóðhátíðinni 1986 vorum við í jakka-
fötum sem mamma saumaði sérstak-
lega á okkur og við stálum senunni í
öllum tjöldum í dalnum. Það mynd-
aðist stór vinahópur í kringum okkur
báðar því ég man að mamma, Lella og
Didda voru að verða gráhærðar á öll-
um skaranum sem var alltaf heima.
Það var alltaf gott að búa með þér
elskan því þú vildir hafa svo fínt í
kringum okkur og þoldir ekki fulla
taukörfu og lést eldri systur þína
stundum heyra það, elskan mín.
Með þessum fátæklegu orðum
kveð ég Birgittu litlu systur með sorg
og söknuð í hjarta mínu.
Þín systir að eilífu,
Helena Ósk Harðardóttir.
Elsku Birgitta.
Mikill er söknuðurinn og sár er
sorgin sem nístir hjarta okkar, þú
svona ung og falleg deyrð í blóma lífs-
ins. Við spyrjum okkur hver er til-
gangurinn í þessu lífi þegar ung sál er
tekin frá okkur, afhverju leika örlögin
okkur svona okkur grátt? Er þetta
það sem við eigum að ganga í gegn-
um, einhver sagði að það er ekki
meira lagt á ykkur en þið getið borið.
Litli ljósgeislinn okkar, hún Birgitta
gaf okkur mikið á sinni stuttu ævi.
Hún var brosmild, greiðvikin og
þægileg í umgengni. Verkin hennar
sögðu sitt, hún hafði lært vel af sinni
móður og föður að umgangast fólk,
hluti og hugsa um þá fallega. Birgitta
gat verið ákveðin svo um munaði þeg-
ar yngri hún var, og gaf hún ekkert
eftir ef hún var búin að ákveða eitt-
hvað, var útilokað að breyta því. Sagt
er þeir deyja ungir sem Guðirnir
elska og verðum við að reyna að
hugga okkur við það.
Elsku Villi, Jóhann, Helena,
Bjarki, Guðrún, Daníel og Bjartur,
sár er ykkar sorg. Við biðjum góðan
Guð að styrkja ykkur og leiða, von-
andi munum við geta verið saman í
sátt og samlyndi í gegnum lífið.
Þínar frænkur
Ragnheiður og Jóhanna
og fjölskyldur.
Nú er lítil prinsessa komin í hlýjan
faðm mömmu og pabba eftir langa og
mikið erfiða göngu, en það er bara
bjart framundan svo núna líður henni
vel.
Sofðu rótt, sofðu rótt,
nú er svartasta nótt.
Sjáðu sóleyjarvönd
geymdu’ hann sofandi í hönd.
Þú munt vakna með sól
Guð mun vitja um þitt ból.
Góða nótt, góða nótt,
vertu gott barn og hljótt.
Meðan yfir er húm
situr engill við rúm.
Sofðu vært, sofðu rótt
eigðu sælustu nótt.
(Jón Sigurðsson frá Kaldaðarnesi.)
Elsku Birgitta. Góða nótt og
dreymi þig vel, guð og englarnir
geymi þig.
Elsku Helena og Bjartur Villi, Sig-
urlaug og börn, Jóhann Freyr, Sverr-
ir, Lella frænka og fjölskylda.
Guð gefi ykkur styrk í þessari
miklu sorg.
Okkar innilegustu samúðarkveðj-
ur.
Kolbrún (Kolla), Jón
(Jonni) og fjölskylda.
Elsku Birgitta.
Þegar Helena mín hringdi í
mömmu og sagði að þú værir dáin og
mamma sagði mér og Ævari það, brá
mér mjög mikið og vissi ekki hvernig
ég átti að bregðast við, ég vildi bara
ekki trúa því. Ég talaði við Helenu
kvöldið eftir og ætlaði að vera svo
sterkur en svo grét ég bara í símann,
þá sagði hún við mig að þér liði vel og
værir komin til mömmu þinnar og
pabba þar sem þú vildir helst vera og
ég trúi að þér líði vel, því ég hef líka
verið í fanginu á þeim.
Elsku Birgitta mín, ég kveð þig
með söknuði, en ég á margar góðar
minningar um þig frá Faxastígnum,
Hrísalundi og Akurgerði sem munu
fylgja mér um alla framtíð.
Elsku Helena mín og Bjartur Villi,
Sigurlaug og börn, Jóhann Freyr,
Sverrir, Lella frænka og fjölskylda,
mínar innilegustu samúðarkveðjur.
Ykkar
Gunnar Sigurbjörn
(Gunnar Gurrustrákur).
Elsku Birgitta frænka.
Þú varst alltaf sem stóra systir
okkar og okkur brá mjög mikið þegar
mamma og pabbi sögðu okkur að þú
værir dáin, við vitum að þú ert hjá afa
og ömmu og þér líður vel. Við systk-
inin geymum ennþá sætið þitt við eld-
húsborðið okkar og munum alltaf
minnast þess þegar þú varst hjá okk-
ur. Þú ert í okkar augum stóra systir
okkar og við hefðum viljað hafa þig
miklu lengur hjá okkur.
Ég man þegar þú hélst á mér og ég
pissaði yfir þig alla þegar ég var lítill.
Við minnumst gleðilegra stunda með
þér í húsbílnum í sumar þegar við vor-
um að fara á ættarmótið, við vorum að
æfa okkur að syngja lög fyrir það. Og
allar góðu minningarnar um þig
munu lifa.
Vertu, Guð faðir, faðir minn,
í frelsarans Jesú nafni,
hönd þín leiði mig út og inn,
svo allri synd ég hafni.
(Hallgr. Pétursson.)
Þín frændsystkini,
Bjarki Már, Guðrún Kristín
og Daníel Smári.
Mig langar að segja dálítið um
stóru frænku mína, hana Birgittu.
Hún var alltaf svo góð og blíð við mig
og passaði mig ætíð þegar mamma
var að vinna og hún var dugleg að
syngja fyrir mig og mömmu þegar við
vorum bara þrjú heima og þá var svo
gaman.
Mamma segir að þú sért komin til
stjarnanna þar sem Gurra amma og
Robbi afi eru. Ég mun sakna að hlæja
ekki meira með þér besta frænka
mín, og mig langar að fara með bæn-
ina sem þú fórst með fyrir mig þegar
þú svæfðir mig á kvöldin.
Komin ég í hvílu mína,
kaunin snerta engin pína,
ó, Guð, sendu englana þína,
allt í kring sængina mína.
Láttu nú ljósið þitt
loga við rúmið mitt.
Hafðu þar sess og sæti,
signaði Jesús mæti.
(Höf. ók.)
Þinn litli frændi,
Bjartur Ewald.
Ég sit hér ein að velta því fyrir mér,
hver er tilgangur lífsins? Ég skil ekki
afhverju lífið þurfti að vera svona erf-
itt fyrir litlu frænku mína sem er búin
að þurfa að upplifa það, hvernig það
sé að missa báða foreldra sína á unga
aldri. Hvað þarf ég að horfa á marga
yfirgefa mig, unga sem aldna og hvað
þarf ég að upplifa mikla sorg, bitur-
leika og finnast ég svo máttlítil gagn-
vart lífinu, ég er ekki nema 24 ára
gömul, mér finnst ég alltof ung til að
upplifa svona mikla sorg á þessum
fáum árum sem ég hef lifað.
Ég og Birgitta frænka vorum mikið
saman frá unga aldri, því mæður okk-
ar eru systur, þær Didda og Gurra
einsog þær eru kallaðar og man ég vel
að mamma þín passaði oft mig og
Daða bróðir þegar mamma mín var
að vinna. Við lékum okkur oft saman
heima í Foldarhrauni og síðan þegar
þið fjölskyldan fluttuð á Faxastíg 11.
Þær eru margar stundirnar sem við
áttum saman og hvað við gátum enda-
laust dundað okkur uppi á efri hæð-
inni á Faxastígnum. Við sátum stund-
um með systur þinni, Helenu, að
fylgjast með henni að gera sig fína
þegar hún var að fara út, okkar fannst
svo spennandi að fylgjast með henni.
Þó svo þú ættir stóran systkinahóp,
þau Villa, Jóhann og Helenu, varst þú
alltaf litla dekurrófan í fjölskyldunni.
Við vorum oft spurðar hvort við vær-
BIRGITTA ÍRIS
HARÐARDÓTTIR
LEGSTEINAR
Mikið úrval af legsteinum
og fylgihlutum
Sendum myndalista
MOSAIK
Hamarshöfði 4, 110 Reykjavík, sími 587 1960
Marmari
Granít
Blágrýti
Gabbró
Líparít
Elskulegur faðir minn, tengdafaðir og afi,
MAGNÚS RAGNAR ÞÓRARINSSON,
Eyjabakka 5,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum Landakoti fimmtu-
daginn 28. ágúst.
Útför hans fer fram frá Fossvogskapellu
fimmtudaginn 4. september kl. 15.00.
Jón Arnar Magnússon, Jónína Pálsdóttir,
Þorkell Diego Jónsson,
Bryndís Diego Jónsdóttir,
Magnús Páll Jónsson.
Elskulegur eiginmaður minn og faðir,
JÓN SIGURÐSSON
frá Syðri-Gegnishólum,
Gaulverjabæjarhreppi,
Sigtúni 32,
Selfossi,
lést á Sjúkrahúsi Suðurlands sunnudaginn 31. ágúst.
Kristjana Þorgrímsdóttir
og fjölskylda.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi
og langalangafi,
THEODÓR LAXDAL
fyrrverandi bóndi í Túnsbergi
á Svalbarðsströnd,
Melasíðu 2c,
Akureyri,
verður jarðsunginn frá Svalbarðskirkju föstu-
daginn 5. september kl. 14.00.
Freydís Laxdal, Ævarr Hjartarson,
Sveinberg Laxdal, Guðrún Fjóla Helgadóttir,
Helga Laxdal,
Svavar Páll Laxdal, Arlene Reyes Laxdal,
Lilja Laxdal,
Pétur Ásgeirsson, Kristín Alferðsdóttir,
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma,
GUÐRÚN EINARSDÓTTIR,
Birkigrund 9a,
Kópavogi,
lést á Landspítalanum í Fossvogi þriðjudaginn
2. september.
Jón Loftsson, Berit Helene Johnsen,
Einar Loftsson, María Sigurðardóttir,
Yngvi Þór Loftsson, Jóna Björg Jónsdóttir
og barnabörn.
Elskuleg systir mín,
GUÐFINNA SIGURÐARDÓTTIR
frá Hálsi, Skógarströnd,
lést á Sjúkrahúsinu í Stykkishólmi mánudaginn
25. ágúst síðastliðinn.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar
látnu.
Sigurbjörg Sigurðardóttir.