Morgunblaðið - 03.09.2003, Page 36
36 MIÐVIKUDAGUR 3. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Í ÁRDAGA lýðveldisins, nóvember
1944, var í Reykjavík haldin bygg-
ingamálaráðstefna.
Verkefni ráðstefnunar var að finna
út úr því, hvernig byggja mætti við-
unandi húsnæði yfir Íslendinga, sem
þá voru í miklu húsnæðishraki. Fjár-
málafrömuðurinn Aron Guðbrands-
son flutti erindi á ráðstefnunni. Aron
setti fram þá hugmynd, að stofnað
yrði í Reykjavík byggingafélag, sem
keypti upp léleg hús við götur eins og
Grettisgötu, Njálsgötu og Lindar-
götu, þar sem léleg hús væru á
stórum lóðum. Eigendur húsanna
fengju greitt fyrir eign sína með eins
konar húsbréfum, sem hægt væri að
nota til að kaupa íbúðir í nýtísku hús-
um, sem reist yrðu á svæðinu. Ekki
voru allir sem sættu sig við það, að
„hið opinbera“ leysti þeirra húsnæð-
isvanda. Á kreppuárunum hafði „hið
opinbera“ úthlutað ræktunarlöndum í
grjóturðum jarðanna Kópavogs og
Digraness.
Þarna höfðu risið garðskúrar og
sumarbústaðir, þar sem þeir huguð-
ustu af þeim húsnæðislausu höfðu bú-
ið sér samastað. Þessir landnemar
stofnuðu Framfarafélag, sem bauð
fram lista til sveitarstjórnar í kosn-
ingum 1946. Úrslit þessara kosninga
urðu svolítið skrýtin, því listinn fékk
fleiri atkvæði en þeir sem kosninga-
rétt höfðu í Kópavogi og þar með
meirihluta í sveitarstjórn Seltjarnar-
neshrepps. Digur sveitarsjóður var í
vörslu ráðdeildarsamra íhaldsmanna,
sem áttu heima vestur á nesi.
Þangað sótti oddviti Framfara-
félagsins, Finnbogi Rútur Valdimars-
son, peningana.
Á heimleið um kvöldið kom Finn-
bogi við í sölunefnd setuliðseigna þar
sem hann keypti trukk, loftpressu og
skurðgröfu. Þegar í stað var byrjað að
grafa fyrir holræsum og vatns-
leiðslum. Ráðdeildarmennirnir á Sel-
tjarnarnesi hringdu í Ólaf Thors for-
sætisráðherra og sögðust ekki vilja
vera í neinum fjármálatengslum við
villimenn. Ólafur brá við skjótt, lét
hann skipta hreppnum í tvennt og
sendi Seltirningunum 60% af sjóðn-
um digra til baka aftur. Með þessu
var kominn Kópavogshreppur. Ein-
hver draugagangur sem var í kring-
um sveitarstjórnarkosningarnar 1954
varð þess valdandi að enn á ný var
leitað til Ólafs ráðherra. Til að losna
við leiðindi lét Ólafur breyta þessum
hrepp í kaupstað, með eigin sóknar-
presti, héraðslækni, lögregluliði og
byggingafulltrúa. Byggingafulltrúinn
átti teikningasafn og seldi húsnæðis-
lausu fólki ljósrit úr safninu, á vægu
verði. Af öllu baslinu voru nokkrir af
landnemunum komnir með nokkurs
konar byggingaáráttu. Byggðu og
byggðu, blokkir, raðhús, einbýlis- og
verslunarhús, seldu hverjum sem
kaupa vildi. Einn byggði verslunar-
miðstöð svo langt úti í auðninni að
íbúðarbyggðin náði ekki þangað fyrr
en hálfum öðrum áratug seinna. Á
meðan beðið var eftir kúnnunum voru
bara framleidd húsgögn í verslunar-
miðstöðinni. Nú er byggðin í Kópa-
vogi farin að nálgast Elliðavatn og
með því allt nothæft byggingarland
að verða búið. Þessir ofureflismenn
munu ekki hætta að byggja. Þeir
munu framlengja Kársnesið út í
Skerjafjörðinn. Kópavogur verður í
framtíðinni tengdur úthafinu með
skipaskurði eins og Rotterdam.
GESTUR GUNNARSSON,
tæknifræðingur,
Flókagötu 8,
105 Reykjavík.
Kópavogur
Frá Gesti Gunnarssyni
tæknifræðingi:
ÞESSA dagana er vetrarstarfsemi í
félagsheimilum eldra fólks í Kópa-
vogi, Gjábakka, Fannborg 8 og Gull-
smára, Gullsmára 13 að fara af stað. Á
morgun, fimmtudaginn 4. sept. kl.
14.00 munu þeir hópar sem hyggjast
verða með starfsemi í Gjábakka
kynna sína starfsemi. Þá mun fé-
lagsstarfið, sem verður á vegum
Kópavogsbæjar, einnig kynna starf-
semina svo og Félag eldri borgara í
Kópavogi, en félagið hefur aðstöðu
fyrir félagsstarfið í félagsheimilunum.
Kynntir verða ýmsir nýir möguleikar
til þátttöku í gefandi og skapandi
starfi þar sem lögð er áhersla á sjálf-
stæða hugsun og félagsheimilin verða
áfram opin frá kl. 9.00 til 17.00 alla
virka daga en margir áhugahópar
hafa starfað utan þess tíma, enda
markmiðið að þar sé sem oftast ljós í
glugga.
Miðvikudaginn 10. sept. kl. 14.00
verður kynning á vetrarstarfsemi í
Gullsmára með svipuðu sniði og í Gjá-
bakka.
Það verða sífellt viðurkenndari vís-
indi að félagsleg þátttaka einstak-
linga er þáttur í lýðheilsu og hefur fé-
lagsstarfið í Kópavogi þótt afar
fjölbreytt og henta vel einstaklingum
til að viðhalda starfsemi líkama og
sálar og /eða til endurþjálfunar. Svo
sýnist að verði einnig á komandi vetri
og má rekja þessa þróun að verulegu
leyti til áhuga fólksins sjálfs, því allt
félagsstarf takmarkast af áhuga
þeirra sem það skapa, þ.e. þátttak-
endunum sjálfum. Einnig hafa þær
ytri aðstæður sem Kópavogsbær hef-
ur búið félagsstarfinu, tvö vel búin fé-
lagsheimili, ásamt stefnu bæjaryfir-
valda að ýta undir frumkvæði og
hafna forsjá, haft afgerandi áhrif á
þann aukna áhuga einstaklinga sem
orðið hefur á starfseminni.
Heitt verður á könnunni báða dagana
í félagsheimilunum og er fólk hvatt til
að koma og kynna sér hvað í boði
verður í vetur. Þessar kynningar eru
öllum opnar. Heitt verður á könnun-
um og hægt að gæða sér á heimabök-
uðu meðlæti að hætti félagsheimil-
anna.
Dagskrár fyrir starfsemina liggja
frammi í Gjábakka og Gullsmára í
vikunni eftir kynningarnar. Sjáumst!
SIGURBJÖRG
BJÖRGVINSDÓTTIR,
forstöðumaður félagsstarfs
aldraðra í Kópavogi.
Vetrarstarfsemin í
Gjábakka og Gullsmára
Frá Sigurbjörgu Björgvinsdóttur: