Morgunblaðið - 03.09.2003, Qupperneq 38
DAGBÓK
38 MIÐVIKUDAGUR 3. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Morraborg og Mána-
foss koma í dag. Libra,
Selfoss og Polar Star
fara í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Eridan og Morraborg
koma í dag. Selfoss fer
í dag.
Fréttir
Mæðrastyrksnefnd
Reykjavíkur. Skrif-
stofa s. 551 4349, opin
miðvikud. kl. 14–17.
Matvælaúthlutun í
dag.552 5277
Mannamót
Árskógar 4. Kl. 9–12
bað. Handavinnustofan
opin. Púttvöllur opinn
mánudag til föstudags
kl. 9–16.30.
Bólstaðarhlíð 43. Kl.
8–13 hárgreiðsla, kl. 8–
12.30 bað, kl. 9–12 gler-
list, kl. 9–16 handa-
vinna, kl. 9–17 fótaað-
gerð, kl. 10–10.30
bankinn, kl. 13–16.30
bridge/vist, kl. 13–16
glerlist.
Félagsstarfið, Dal-
braut 18–20. Kl. 9 að-
stoð við böðun og hár-
greiðslustofan opin, kl.
10 leikfimi, kl. 14.30
bankaþjónusta, kl.
14.40 ferð í Bónus, kl.
9–16.30 púttvöllurinn
opinn.
Félagsstarfið Dalbraut
27. Kl. 8–16 opin
handavinnustofan, kl. 9
silkimálun, kl. 13–16
körfugerð, kl. 10–13
opin verslunin, kl. 11–
11.30 leikfimi, kl. 13.30
bankaþjónsuta.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9–16 op-
in vinnustofa, kl. 9–12
hárgreiðsla, kl. 9–16.30
fótaaðgerð. Púttvöll-
urinn opinn frá kl. 14.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 bað, kl. 9.30
hjúkrunarfræðingur á
staðnum, kl. 10 hár-
snyrting, kl. 10–12
verslunin opin, kl. 10
guðsþjónusta, kl. 13
föndur og handavinna,
Félag eldri borgara
Kópavogi. Skrifstofan
er opin í dag frá kl. 10–
11.30, viðtalstími í Gjá-
bakka kl 15–16.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Glerlist
kl. 13, pílukast og bilj-
ard kl 13.30.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Söngfélag
FEB kóræfing kl. 17.
Söngvaka kl. 20.45 um-
sjón Sigurbjörg Hólm-
grímsdóttir. S.
588 2111.
Gerðuberg, fé-
lagsstarf. Kl. 9–16.30
vinnustofur opnar, frá
hádegi spilasalur op-
inn. S. 575 7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Handavinnustofan op-
in, leiðbeinandi á
staðnum kl. frá kl. 9–
17, kl. 9.30 og kl. 13
glerlist, kl. 13 fé-
lagsvist, kl. 17. bobb.
Gullsmári, Gullsmára
13. Félagsþjónustan er
opin frá kl. 9–17 virka
daga, heitt á könnunni.
Hraunbær 105. Kl. 9
almenn handavinna,
útskurður, hárgreiðsla,
fótaaðgerð og banki,
kl. 13 bridge.
Hvassaleiti 58–60. Kl.
10.30 ganga. Fótaað-
gerðir og hársnyrting.
Norðurbrún 1. Kl. 9–
16.45 opin vinnustofa,
kl. 9–16 fótaaðgerð, kl.
13–13.30 bankinn, kl.
14 félagsvist, kaffi og
verðlaun.
Vesturgata 7. Kl. 8.25–
10.30 sund, kl. 9–16
fótaaðgerð og hár-
greiðsla, kl. 12.15–
14.30 verslunarferð í
Bónus, kl. 13–14 spurt
og spjallað. Vetr-
arnámskeiðin eru að
hefjast: Mánudaginn 1.
sept. leikfimi, verður á
mánudögum kl. 11–12
og fimmtudögum 13–
14. Mánudaginn 8.
september kóræfingar
verða á mánu- og
fimmtudögum kl.13–
16, nýir kórfélagar vel-
komnir. Miðvikudag-
inn 10. september,
myndmennt, verður
miðvikudaga. 9.15–16
og tréskurður verður
miðvikudaga kl. 13–16.
Mánudagur 15. sept-
ember mósaík, verður
mánudaga kl. 9.15–12,
ef næg þátttaka fæst.
Þriðjudaginn 16. sept-
ember postulínsmálun
verður þriðjudaga kl.
9.15–12, skinnasaumur
verður þriðjudaga kl.
9.15–12 og bútasaum-
ur, verður þriðjudaga
kl.13–16.
Þriðjudaginn 30.sept-
ember enskukennsla ef
næg þátttaka fæst
verður þriðju- og
fimmtudaga kl. 10.15–
11.45.
Vitatorg. Kl. 9 hár-
greiðsla, kl. 10 morg-
unstund, fótaaðgerð,
kl. 12.30 verslunarferð.
Vinahjálp, brids spilað
á Hótel Sögu í dag kl.
13.30.
Sjögrensfélagar Hitt-
umst á Café Mílanó í
kvöld klukkan 20:00 til
þess að ræða vetr-
arstarfið
Hafnargönguhóp-
urinn. Kvöldganga kl.
20 alla miðvikudaga.
Lagt af stað frá horni
Hafnarhússins norð-
anmegin.
Minningarkort
Slysavarnarfélagið
Landsbjörg, Stang-
arhyl 1, 110 Reykjavík.
S. 570 5900. Fax: 570
5901.
Í dag er miðvikudagur 3. sept-
ember, 246. dagur ársins 2003.
Orð dagsins: Hver, sem gjörir
vilja Guðs, sá er bróðir minn,
systir og móðir.
(Mk. 3, 35.)
Arna Hauksdóttir segir,á tíkinni.is, baráttu já
og nei fylkinga í Svíþjóð,
þar sem kjósa á um upp-
töku evrunnar 14. sept-
ember, harða og flokks-
félaga skiptast harkalega
á skoðunum í fjölmiðlum.
Í þessari umræðu er af-skaplega áhugaverður
sá kynjamunur sem fram
kemur í skoðanakönn-
unum þar sem konur
virðast vera meira á móti
evrunni en karlar,“ segir
Arna. „Þessum konum
finnst að Evrópusam-
bandslönd séu lélegar
fyrirmyndir í jafnrétt-
ismálum þar sem konur
sinna öllum umönn-
unarstörfum, hafi minni
atvinnumöguleika og
minni möguleika á dag-
vistun fyrir börn sín.
Talsmenn evrunnarbenda hins vegar á að
síðan Svíþjóð varð hluti
af Evrópusambandinu
1994 hefur fæðingarorlof
í Svíþjóð verið lengt og
komið hefur verið á há-
marksgjöldum fyrir dag-
vistun.
Kynjamunurinn í skoð-anakönnunum hefur
þar af leiðandi leitt til
þess að evrufylkingin
hefur lagt mikla áherslu
á að beina kosningabar-
áttu sinni til kvenna og
leiða fram konur sem
talsmenn baráttunnar til
að ná betur til eyrna
kvenna.
En það er alls ekki vístað kvennamiðuð
kosningabarátta evru-
sinna hafi áhrif sem
skyldi, því sagan sýnir að
sænskar konur hafa sagt
„nei“ í kosningum í 81 ár,
eða frá því þær sam-
þykktu bann við áfengum
drykkjum árið 1922.
Árið 1955 samþykktueinungis 16% kvenna
að innleiða hægri-umferð
í Svíþjóð, og í kosningum
um kjarnorkuframleiðslu
1980 og um aðild Svíþjóð-
ar að Evrópusambandinu
1994 voru fleiri konur
sem kusu „nei“ heldur en
„já“.
Stjórnmálafræðingarhafa útskýrt þessa til-
hneigingu kvenna með
því að þær hugsi meira
um velferðarkerfið held-
ur en karlmenn gera og
þess vegna neiti þær
möguleikum sem gætu
verið ógnun við það, eins
og Evrópusambandinu og
evrunni.
Þó andstæðingar evr-unnar hafi haft meira
fylgi í allan þennan tíma,
eru samt 15% sem ekki
hafa enn gert upp hug
sinn. Við verðum því að
bíða og sjá hvort tals-
konum evrunnar tekst að
sannfæra sænskar kyn-
systur sínar um að hinu
örláta sænska velferð-
arkerfi verði ekki ógn-
að,“ segir Arna Hauks-
dóttir í pistli sínum á
tikin.is.
STAKSTEINAR
Kastljósið á konur
í Svíþjóð
Víkverji skrifar...
ÞAÐ ÖRVAR andann og nærirsálina að vera lokaður í rútu
fullri af hagyrðingum. Þess vegna
var ljóst að engum gæti leiðst, þótt
nokkur spölur væri frá Reykjavík á
Djúpavog á Landsmót hagyrðinga. Í
þessum árvissu ferðum Kvæða-
mannafélagsins Iðunnar er til siðs
að menn flytji vísur og leggi þær á
standinn. Eitthvað gengu yrking-
arnar hægt framan af og Jói í Stapa
sá ástæðu til að yrkja:
Slíka eymd ég aldrei veit,
ærinn gerist vandinn,
við erum komnir austur í sveit
með enga vísu á standinn.
x x x
TÓKU kvæðamenn við sér, rigndivísum yfir ferðalangana og ekki
stytti upp á Vík í Mýrdal, eins og
kom fram hjá Sigurjóni V. Jónssyni:
Inn til Víkur ók í hlað
og af sjónum beljar Kári.
Það ku rigna á þessum stað
365 daga á ári.
ÞEGAR ekið var framhjá Núps-stað varð Sigurjóni hugsað til
bræðranna Eyjólfs og Filippusar
Hannessona, sem þar búa og eru á
tíræðisaldri.
Góðum stað ég geri skil,
gelta á hlaði rakkarnir
og hundrað ára hér um bil
hérna eru allir krakkarnir.
x x x
JÓI í Stapa er einn fárra eftirlifandiaf gömlu hagyrðingunum sem
gerðu garðinn frægan með Iðunni og
líka upphafsmaður Landsmótsins
ásamt Heiðmari Jónssyni, en það
var fyrst haldið á Skagaströnd árið
1989. Jói í Stapa var með forláta hatt
í rútuferðinni. Ef til vill vegna þess
að það rigndi vísum. Bjargey Arn-
órsdóttir orti:
Á sér væna hattahjörð
hefur af því gaman,
en eftir því sem breikka börð
búkurinn gengur saman.
Síðar bætti hún við elskulegri
braghendu:
Þó að lærin þynnist ögn á þessum manni
þá vil eg sem oftast sjá hann
eins með gleði hlýða á hann.
x x x
EFTIR Landsmótið voru hagyrð-ingarnir heldur þreytulegir og
Helgi Björnsson missti út úr sér:
Fararstjórinn okkur enn
er að telja í bifreiðinni.
Talsvert marga timburmenn
telur hann að þessu sinni.
Segir svo ekki meira af ferðum Ið-
unnar.
Filippus Hannesson á Núpsstað.
Miskunnarleysi
HJARTANLEGA er ég
sammála Gunnari Her-
sveini sem skrifar í Morg-
unblaðið 28. ágúst sl. um
það sem hann kallar fúnar
mælistikur sem notaðar
séu til að reka einstaklinga
eða fjölskyldur úr landi
sem sækja hér um dvalar-
leyfi af pólitískum eða efna-
hagslegum ástæðum. Ég
skora á fólk að lesa þessa
grein sem er á bls. 30.
45 einstaklingar sem
sóttu um hæli á þessu ári,
og 117 árið 2002, var öllum
vísað úr landi. Erum við
kristin þjóð? Hvar er for-
dæmið um miskunnsama
Samverjann?
Hámark grimmdarinnar
sýndi sig um daginn þegar
fjölskylda með tvö yndisleg
börn var flutt nauðug úr
landi. Fjölskyldan hafði að-
lagast íslensku samfélagi
vel og notið bestu meðmæla
og börnin náð frábærum
árangri í grunnskóla. Sér-
fræðingar vöruðu við að
það hefði slæmar andlegar
afleiðingar fyrir fjölskyld-
una, og sérstaklega börnin,
ef henni yrði sundrað einu
sinni enn. Þau voru búin að
vera á landinu í 10 mánuði
og reyndu allt til að sam-
lagast íslensku samfélagi
og börnin bjuggu sig undir
skólaárið en grétu af von-
brigðum.
Þetta er grimmd sem er
mjög ógæfusöm fyrir okkar
þjóðfélag.
Kennarar, vinir og sam-
kennarar þeirra. Látið í
ykkur heyra og krefjist
þess að þau séu beðin fyr-
irgefningar á þessari mis-
kunnarlausu og tilefnis-
lausu meðferð og boðið með
vinsemd að koma aftur.
Þökk sé Gunnari Her-
sveini fyrir greinina. Og ég
segi í lokin eins og hann:
Miskunnsemi en ekki fórn-
ir.
Gott fólk látið í ykkur
heyra, þessu verður að
breyta.
Skömmustulegur
Íslendingur.
Pennasafnari
í Hátúni
PENNASAFNARI einn í
Hátúni í Reykjavík hefur
stundum auglýst eftir
pennum hér í Velvakanda.
Ég er með töluvert af
merktum pennum sem ég
vildi gjarnan koma til þessa
safnara.
Ef hann/hún sendir inn
bréf í Velvakanda aftur,
sendi ég pennana um hæl.
Pálína.
Húfur með nafni
ER einhver sem prjónar
húfur með nafni á? Eða vit-
ið þið um einhvern sem ger-
ir það? Vinsamlega hafið
samband í síma 453 6495
eða 867 3817.
Tapað/fundið
Rauður barnabíll
týndist
FÓTSTIGINN rauður
barnabíll týndist aðfara-
nótt sunnudagsins 24.
ágúst frá Miklubraut 54.
Hans er sárt saknað. Þeir
sem vita um bílinn hafi
samband í síma 588 2344.
Silfurlitað
úr týndist
SILFURLITAÐ hlekkjaúr
með bleikri skífu tapaðist í
eða við Hótel Eddu, Stóru-
tjörnum, í kringum miðjan
júlí. Skilvís finnandi vin-
samlegast hafi samband í
síma 861 3929.
Jakki týndist
á tónleikum
JAKKI týndist á tónleikum
Foo Fighters í Laugardals-
höll 26 ágúst sl.
Þetta er stuttur, ljós-
brúnn rúskinnsjakki sem
er eigandanum mjög kær.
Ef einhver veit hvar jakk-
inn er niðurkominn vinsam-
lega hafið samband í síma
863 3947.
Dýrahald
Læða í óskilum
ÞESSI svarta læða með
hvítan blett á hálsinum hef-
ur valið sér bólstað á Álf-
hólsvegi 101, Kópavogi.
Þetta er greinilega heimil-
isköttur sem villst hefur að
heiman, sennilega er hún
kettlingafull. Þetta er mjög
blíður og barngóður köttur,
ákaflega skemmtilegur og
bráðgáfaður. Tilkynnt hef-
ur verið um hana í Kattholti
og send þangað af henni
mynd. Upplýsingar í síma
554 6228 og á saarv@sim-
net.is
Kanínur
fást gefins
3 ljósbrúnar kanínur, 9, 4
og 2 mánaða, fást gefins.
Upplýsingar í síma:
565 8814 eða 661 6020.
Kötturinn Dúlla
er týndur
DÚLLA er inniköttur, 7
ára, svört með fallegan
glansandi feld.
Hún hefur sennilega
stokkið niður af svölum um
hádegið sl. föstudag í elt-
ingaleik við geitunga.
Hennar er sárt saknað hér
á heimili hennar í Lind-
arsmára í Kópavogi. Við
bíðum eftir hringingu frá
finnanda í síma 554 1815 og
863 0732.
Snotra
er týnd
SNOTRA er þrílit læða
með rauða hálsól. Hún
týndist frá Tómasarhaga
aðfaranótt mánudags. Þeir
sem hafa orðið varir við
hana hafi samband í síma
551 5783 eða 568 1814.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
LÁRÉTT
1 draumóramaður, 8
smá, 9 geta, 10 muldur,
11 dauf ljós, 13 hermdi
eftir, 15 grön, 18 heng-
ilmæna, 21 gyðja, 22
vöggu, 23 fiskar, 24
rétta.
LÓÐRÉTT
2 gáfaður, 3 reiður, 4
koma í veg fyrir, 5 koma
að notum, 6 tólg, 7 skott,
12 ótta, 14 skaut, 15
klippa lítið eitt af, 16
ráfa, 17 grasflöt, 18 uglu,
19 ryskingar, 20 sjá eftir.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 mygla, 4 rúmar, 7 tólin, 8 gætin, 9 sál, 11 róar,
13 lama, 14 ostra, 15 fork, 17 gras, 20 enn, 22 andóf, 23
ístra, 24 neita, 25 arnar.
Lóðrétt: 1 mætur, 2 gelta, 3 agns, 4 rugl, 5 motta, 6
renna, 10 áttan, 12 rok, 13 lag, 15 fóarn, 16 ruddi, 18
rætin, 19 staur, 20 efna, 21 nípa.
Krossgáta 6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16