Morgunblaðið - 03.09.2003, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. SEPTEMBER 2003 39
DAGBÓK
Heilsudrekinn - Kínversk heilsulind
Ármúla 17a , sími 553 8282
www.heilsudrekinn.is
Orka • lækningar • heimspeki
• Kínversk hugræn teygjuleikfimi
• Tai Chi
• Kung Fu fyrir börn, unglinga og fullorðna
Einkatímar og hóptímar.
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
MEYJA
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert hæfileikarík/ur, fjöl-
hæf/ur og mannblendin/n en
fólk á þó til að misskilja þol-
inmæði þína og þægilegt við-
mót. Komandi ár getur orðið
það besta í lífi þínu.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú hefur óvenjumikla yfirsýn
og þér ætti því að verða mikið
úr verki í dag. Vandvirkni
borgar sig.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú ert í aðstöðu til að gefa
þeim sem yngri eru góð ráð.
Leggðu áherslu á samkennd,
heiðarleika og réttsýni og
reyndu að sýna þeim fram á
að það fæst ekki allt fyrir pen-
inga.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Dagurinn hentar vel til lag-
færinga og breytinga á heim-
ilinu og til að aðstoða einhvern
í fjölskyldunni á hagkvæman
hátt.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Farðu með gát í öllu sem þú
tekur þér fyrir hendur í dag.
Verkefni sem krefjast einbeit-
ingar og úthalds liggja vel fyr-
ir þér.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þetta er góður dagur til að
gera framtíðaráform sem
tengjast stjórnsýslunni eða
stórum stofnunum. Þú ert
varkár og ættir því ekki að
hlaupa á þig.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Einhver þér eldri getur gefið
þér góð ráð í dag. Hlustaðu á
það sem þér er sagt og taktu
við því sem að þér er rétt.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú vinnur verk þín af ábyrgð
og alvöru og það mun senni-
lega vekja athygli yfirmanna
þinna.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú ættir að leita ráða hjá ein-
hverjum þér eldri í dag. Þú
hefur sérstakan áhuga á hugs-
unarhætti fólks í framandi
menningarheimum.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þú ert einbeitt/ur og tilbúin/n
til að hella þér út í vinnu í dag.
Notaðu tækifærið á meðan
krafturinn er til staðar og
komdu eins miklu í verk og þú
mögulega getur.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Satúrnus, sem hefur alltaf
mikil áhrif á þig, er í mjög
hagstæðri stöðu gagnvart sól-
inni. Þetta auðveldar þér allar
samræður um stjórnmál, trú-
mál, mennta- og ferðamál.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Dagurinn í dag hentar engan
vegin til að slaka á. Þú lítur
hlutina alvarlegum og hagsýn-
um augum og ættir því að
nýta daginn til vinnu.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þér gengur vel að ræða mál
sem snerta börn og sameig-
inlega ábyrgð við maka þinn.
Fólk er tilbúið að létta undir
með þér. Ef þú gengur út frá
því að þú fáir aðstoð muntu fá
hana.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
ÍSLANDS MINNI
Eldgamla Ísafold,
ástkæra fósturmold,
fjallkonan fríð!
mögum þín muntu kær,
meðan lönd gyrðir sær
og gumar girnast mær,
gljár sól á hlíð
- -
Eldgamla Ísafold,
ástkæra fósturmold,
fjallkonan fríð!
ágætust auðnan þér
upp lyfti, biðjum vér,
meðan að uppi er
öll heimsins tíð.
Bjarni Thorarensen
LJÓÐABROT
ÁRNAÐ HEILLA
100 ÁRA afmæli. Ídag, miðvikudag-
inn 3. september, er 100 ára
Guðný Ethel Vatnsdal,
Anderson Home, 17127
15th Ave, N. East Seattle
98155, U.S.A. Guðný Ethel
fæddist í Duxley, Minne-
sota. Foreldrar hennar voru
Þórður Eggertsson Vatns-
dal og Anna Jónsdóttir
(Johnson). Guðný Ethel hef-
ur komið alls níu sinnum í
heimsókn til Íslands og
heldur miklu og góðu sam-
bandi við ættingja sína og
vini hér.
MÖRG þriggja granda
spil eru barátta um frum-
kvæði – kapphlaup sóknar
og varnar um að fría líflit-
inn. Þetta er eitt af þeim:
Vestur gefur; enginn á
hættu.
Norður
♠ D64
♥ Á3
♦ D5
♣KG10976
Suður
♠ KG7
♥ K108
♦ ÁG1094
♣85
Vestur Norður Austur Suður
1 spaði 2 lauf Pass 3 grönd
Pass Pass Pass
Vestur spilar út smáum
spaða og suður fær fyrsta
slaginn á gosann heima.
Hvernig er best að spila?
Það er rétt hugsanlegt
að austur sé með tíg-
ulkónginn, en svíning þar
er þó ótímabær. Ef vestur
á kónginn, eins og líklegt
má teljast, fríar hann spað-
ann og verður á undan í
kapphlaupinu með lauf-
ásinn í holu. Sagnhafi
verður því að byrja á lauf-
inu: spila litlu að blindum
með þeirri áætlun að
stinga upp kóng ef vestur
dúkkar.
Norður
♠ D64
♥ Á3
♦ D5
♣KG10976
Vestur Austur
♠ Á10852 ♠ 93
♥ D95 ♥ G7642
♦ K63 ♦ 872
♣Á4 ♣D32
Suður
♠ KG7
♥ K108
♦ ÁG1094
♣85
Ef sagnhafi sleppur í
gegn með laufslaginn snýr
hann sér að tíglinum og
fær þannig níu slagi. En ef
vestur kýs að drepa strax
á laufás og fría spaðann
heldur sagnhafi tryggð við
laufið og byggir þar upp
fjóra slagi.
Hann svínar næst gos-
anum og lætur sér í léttu
rúmi liggja þótt austur eigi
drottninguna. Austur á
engan spaða og er því
hættulaus.
BRIDS
Guðmundur
Páll Arnarson
1. Rf3 d5 2. g3 e6 3. Bg2 f5
4. O-O Rf6 5. d3 Be7 6.
Rbd2 O-O 7. b3 c5 8. Bb2
Rc6 9. e3 Bd7 10. De2 Be8
11. c4 Bh5 12. Hfd1 Hc8 13.
Hac1 Da5 14. a3 b5 15. d4
bxc4 16. dxc5 Re4 17. bxc4
Da6 18. Df1 dxc4 19. Dxc4
Dxc4 20. Rxc4 Rxc5 21. Rd6
Bxd6 22. Hxd6 Ra5 23. h3
Rab7 24. Hd2 Hcd8 25.
Hxd8 Hxd8 26. Bc3 Rd3 27.
Hb1 Rbc5 28. Bd4 Hd7 29.
Rg5 Hd8 30. Hb5 Hc8 31.
Bf1 h6
Staðan kom upp í lands-
liðsflokki Skákþings Íslands
sem lýkur í dag í Hafn-
arborg í Hafnarfirði.
Sævar Bjarnason
(2269) hafði hvítt
gegn Ingvari Ás-
mundssyni (2321).
32. Rxe6! Við þetta
vinnur hvítur peð og
þó nokkru síðar
nýtti hann sér það til
sigurs. 32...Rxe6 33.
Bxd3 Hc1+ 34. Kg2
Rxd4 35. exd4 Hc3
36. Hb8+ Kf7 37.
Hb3 Hxb3 38. Bc4+
Ke7 39. Bxb3 g5 40.
f4 gxf4 41. gxf4 Be8
42. Kf2 Kd6 43. Ke3
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
Bc6 44. Bc2 Bd7 45. Kd3
Be6 46. Kc3 Bc8 47. Kc4
Ba6+ 48. Kb4 Bc8 49. Bb3
Bb7 50. Kb5 Bc8 51. Bc4
Bb7 52. Bb3 Bc8 53. h4 Bb7
54. Ba2 Bc8 55. Bc4 Bb7 56.
Bf1 Be4 57. Bc4 Bb7 58. a4
Bc8 59. a5 Bb7 60. Bf1 Be4
61. Ka6 Kd5 62. Kxa7 Kxd4
63. Kb8 Ke3 64. a6 Kxf4 65.
a7 Kg3 66. Ba6 f4 67. Bb7
Bxb7 68. Kxb7 f3 69. a8=D
f2 70. Dg8+ Kh2 71. Df7
Kg1 72. Dg6+ Kh2 73. Df5
Kg2 74. Dg4+ Kh2 75. Df3
Kg1 76. Dg3+ Kf1 77. Kc6
h5 78. Kd5 Ke2 79. Ke4
f1=D 80. Dd3+ og svartur
gafst upp. 11. umferð Skák-
þings Íslands hefst í dag kl.
13.00 í Hafnarborg í Hafn-
arfirði.
HLUTAVELTA
Þessar duglegu stúlkur styrktu Styrktarfélag krabba-
meinssjúkra barna um 9.781 kr. Í efri röð frá vinstri: Hall-
dóra Baldvinsdóttir, Ingunn Ýr Angantýsdóttir og Kristín
Karlsdóttir. Neðri röð frá vinstri: Elín Unnur Guðmunds-
dóttir og Elfa Rós Helgadóttir.
Morgunblaðið/Ragnhildur
Þessir duglegu krakkar héldu tombólu til styrktar Rauða
krossi Íslands og söfnuðu þau kr. 8.615. Þau eru: Veronica
Sjöfn Garcia, Alexis Örn Garcia, Anna Margrét Sverr-
isdóttir og Díana Lind Arnarsdóttir.
FRÉTTIR
GENGIÐ hefur verið frá ráðningu
Arinbjörns Vilhjálmssonar í starf
skipulagsfulltrúa uppsveita Árnes-
sýslu og hóf hann störf hinn 1. sept-
ember sl.
Arinbjörn mun hafa yfirumsjón
með framgangi skipulagsmála og
samræma þau við aðalskipulag sveit-
arfélaganna. Þessi sveitarfélög eru
Bláskógabyggð, Grímsnes- og
Grafningshreppur, Hrunamanna-
hreppur og Skeiða- og Gnúpverja-
hreppur. Arinbjörn lauk háskóla-
gráðu í arkitektúr frá Stutt-
gartháskóla 1993 og hefur rekið
eigin arkitektaþjónustu frá árinu
1995. Hann átti sæti sem varamaður
í byggingarnefnd Reykjavíkur 1998–
2000 og hefur verið varamaður í
skipulags- og byggingarnefnd
Reykjavíkur frá 2000.
Arinbjörn er kvæntur Margréti
Þorsteinsdóttur fiðluleikara og tón-
listarkennara.
Talið frá vinstri: Sigurður Ingi Jóhannsson, oddviti Hrunamannahrepps,
Arinbjörn Vilhjálmsson skipulagsfulltrúi, Hilmar Einarsson bygging-
arfulltrúi, Ingunn Guðmundsdóttir, sveitarstjóri Skeiða- og Gnúpverja-
hrepps, Sveinn Sæland, oddviti Bláskógabyggðar, og Gunnar Þorgeirsson,
oddviti Grímsnes- og Grafningshrepps.
Skipulagsfulltrúi í
uppsveitir Árnessýslu
FLUGMÁLAFÉLAG Íslands efnir
um næstu helgi til hópferðar á 100
ára afmælisflugsýningu í Bretlandi.
Verður hún haldin á flugminjasafni í
Duxford, rétt utan við London.
Flogið verður með Iceland Ex-
press frá Keflavík síðdegis næst-
komandi fimmtudag, 4. september,
og til baka að kvöldi sunnudags.
Gunnar Þorsteinsson hjá Flugmála-
félaginu kveðst sannfærður um að
hér verði um áhugaverða ferð að
ræða enda sé Duxford-flugminja-
safnið það stærsta í Evrópu, með um
140 flugvélar til sýnis auk margs
konar stríðsminja. Segir hann stans-
lausa flugsýningu standa á safninu í
þrjá tíma á laugardag og sunnudag.
Hápunkturinn verði sýning Rauðu
örvanna, listflugsveitar breska flug-
hersins.
Hópferð á
flugsýningu
í Bretlandi LÖGREGLAN í Reykjavík lýsir eft-
ir vitnum að umferðaróhappi á Vest-
urlandsvegi við Suðurlandsveg 31.
ágúst um kl. 19:30. Þar var rauðri
Toyota fólksbifreið ekið á ljósastaur
og er ökumaður á grænni skutbifreið
talinn eiga þátt í óhappinu. Er hann
og þeir sem urður vitni að óhappinu
beðnir að hafa samband við lögregl-
una í Reykjavík.
Þá er lýst eftir vitnum að árekstri
á gatnamótum Sæbrautar og
Kringlumýrarbrautar 28. ágúst kl.
17:10. Þar rákust saman jeppabifreið
og lögreglubifreið.
Þá er lýst eftir vitnum að hörðum
árekstri 28. ágúst kl. 14:29 á gatna-
mótum Snorrabrautar og Bergþóru-
götu. Þar rákust saman hvít Toyota
Corolla og svartur Ford Bronco-
jeppi. Vitað er að nokkur vitni urðu
að árekstrinum og eru þau beðin um
að hafa samband við lögregluna.
Lýst eftir
vitnum
ÁRLEGUR flugdagur var haldinn á
Selfossflugvelli sl. laugardag og um
leið fór fram Íslandsmót í vélflugi.
Keppendur voru tíu og var Björn
Ásbjörnsson flugkennari Íslands-
meistari. Veður dró nokkuð úr fyr-
irhuguðum fjölbreytileika flughá-
tíðarinnar þar sem ekki var hægt
að bjóða upp á listflug, fallhlíf-
arstökk eða svifflug. Margt var þó
að sjá á flugvellinum, einkaflug-
vélar og flugmódel og Flugskóli Ís-
lands kynnti starfsemi sína. Keppn-
in í vélflugi fór hins vegar fram og
var keppt bæði í yfirlandsflugi og
lendingum. Björn Ásbjörnsson
gerði sér lítið fyrir og sigraði í báð-
um greinum.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fjöldi fólks var á Selfossflugvelli á árlegum flugdegi Flugklúbbs Selfoss.
Björn Ásbjörnsson
sigurvegari í vélflugi