Morgunblaðið - 03.09.2003, Page 41
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. SEPTEMBER 2003 41
DAVID Beckham missti stjórn á
skapi sínu og ætlaði að ráðast á Sir
Alex Ferguson, knattspyrnustjóra
Manchester United, eftir að Fergu-
son hafði sparkað skó í búningsher-
berginu sem lentu í höfði Beckhams
eftir að United tapaði fyrir Arsenal í
febrúar. Samkvæmt breska götu-
blaðinu Sun segir Beckham að hann
hafi aldrei verið jafnreiður á ævi
sinni og hann greinir frá því að liðs-
félagar hans hafi stöðvað hann við að
ráðast á Ferguson. Beckham þurfti
aðhlynningu sjúkraþjálfara United-
liðsins eftir atvikið en Ferguson
baðst afsökunar og sagði að um slys
hefði verið að ræða. Hermt er að
Ryan Giggs, Gary Neville og Ruud
van Nistelrooy hafi komið í veg fyrir
að Beckham réðist á Ferguson.
Beckham missti
stjórn á skapinu
ÞÓTT rússneski auðkýfingurinn
Roman Abramovich hafi notað um
111 millj. punda, jafnvirði 14,5
milljarða króna, til þess að styrkja
Chelsea á síðustu vikum, herma
fregnir að hann ætli ekki að láta
þar við sitja heldur hafi hann
eyrnamerkt um 100 millj. punda til
viðbótar í bókhaldi sínu til kaupa á
leikmönnum þegar opnað verður
fyrir kaup og sölur á leikmönnum á
næsta ári. Rússinn, sem veit vart
aura sinna tal, hyggst láta einskis
ófreistað til þess að gera Chelsea að
öflugasta félagsliði Evrópu á næstu
misserum og árum, keyptir verði
þeir leikmenn sem þarf til að koma
liðinu í allra fremstu röð.
Claude Makedele, nýjasta stjarn-
an í herbúðum Chelsea, segist telja
að liðið verði á næstunni það besta í
Evrópu, næstu ár verði ár Chelsea í
evrópskri knattspyrnu og það leysi
Real Madrid af hólmi, en það hefur
verið sterkasta félagslið Evrópu á
undanförnum árum. Makelele kom
til Chelsea frá Real Madrid og var
m.a. í sigurliði Real sem vann
Meistaradeild Evrópu í vor og í
fyrra. „Á Spáni var ég í liði sem bar
höfuð og herðar yfir önnur, það
væri ekki ónýtt að endurtaka leik-
inn með Chelsea. Enginn vafi leikur
á að leikmannahópur Chelsea er
einn hinn besti sem völ er á, hann á
möguleika á að vinna allt, bæði í
Englandi og í Evrópukeppninni,“
segir Makelele sem telur jafnframt
að Chelsea sé alls ekki með síðra lið
en Arsenal og Manchester United
sem barist hafa um enska meist-
aratitilinn síðustu ár. „Það er meira
jafnvægi í okkar liði, einkum á
miðjunni,“ segir Makalele.
Abramovich lætur ekki deigan síga
Roman Abramovich
FÓLK
FABIEN Barthez, markvörður
Manchester United og franska
landsliðsins, segist vera sallarólegur
yfir stöðu sinni hjá Manchester-lið-
inu, en hann hefur ekki leikið með
aðalliðinu síðan bandaríski mark-
vörðurinn Tim Howard kom til liðs-
ins í sumar. Barthez segist eiga góð
samskipti við Alex Ferguson, knatt-
spyrnustjóra. „Ég er þolinmóður og
veit af fenginni reynslu að það eru
bæði til góðar stundir og slæmar í
knattspyrnunni,“ segir Barthez. „Ég
er alls ekki á leið frá Manchester.“
STEVEN Gerrard verður ekki
með enska landsliðinu gegn Make-
dóníu í undankeppni EM í knatt-
spyrnu nk. laugardag og sömu sögur
er að segja af Trevor Sinclair. Gerr-
ard er meiddur á ökkla og varð að
draga sig út úr enska landsliðinu í
gær að sögn Svens-Görans Eriks-
sons, landsliðsþjálfara Englendinga.
Áður varð Paul Scholes að afþakka
sæti í landsliðinu vegna meiðsla.
ERIKSSON vonast hins vegar til
að Rio Ferndinand geti teki þátt í
leiknum, en hann glímir við meiðsli.
Eriksson hefur eigi að síður valið
Matthew Upson, varnarmann Birm-
ingham inn í enska hópinn.
REIKNAÐ er með að Michael
Owen setjist niður með forráða-
mönnum Liverpool á næstunni og
ræði við þá um nýjan samning við fé-
lagið. Owen á enn 22 eftir af núver-
andi samningi en Gerard Houllier,
knattspyrnustjóri Liverpool, óttast
mjög að missa Owen frá félaginu og
leggur því mikla áherslu á að drög að
nýjum samningi verði lögð sem fyrst.
PAUL Gascoigne, fyrrverandi
landsliðsmaður Englendinga í knatt-
spyrnu, afþakkaði boð um að gerast
leikmaður og þjálfari hjá Dundee í
Skotlandi. Gascoigne ætlar að leika
áfram með Al Jazira í Sádi-Arabíu
hvar hann hefur verið síðustu vikur.
„ÞAÐ er alltaf hægt að búast
við óvæntum úrslitum í fótbolt-
anum, en Þjóðverjarnir eru
óneitanlega taldir sterkari en
við,“ sagði Ólafur Þórðarson,
þjálfari landsliðs Íslands skip-
aðs leikmönnum 21 árs og
yngri en liðið mætir Þjóð-
verjum á Akranesi í á föstudag
og hefst leikurinn klukkan 17.
Ólafur tilkynnti landsliðshóp
sinn á dögunum og kom val
hans nokkuð á óvart þar sem
sex nýliðar voru í sextán
manna hópnum.
„Það kom upp sú hugmynd,
ef við næðum ekki hagstæðum
úrslitum úr leiknum við Lithá-
en, að stokka þetta aðeins upp
enda ljóst að við komumst ekki
áfram úr riðlinum. Því varð
það niðurstaðan að breyta
nokkuð um lið og sjá hvað
kemur út úr því,“ sagði Ólafur.
Íslenska liðið tapaði 3:0 í
Litháen og hefur tapað öllum
fjórum leikjunum og er með
markatöluna 8:1 þannig að
Ólafur ákvað að gera breyt-
ingar.
Þjóðverjar taldir sterkari
Í dag skýrist hvort Peter Ridsdalekaupir meirihluta í enska 2.
deildarliðinu Barnsley, þar sem
Guðjón Þórðarson er knattspyrnu-
stjóri. Eftir því sem fram kemur á
fréttavef BBC í gær hittast Rich-
dale og Peter Doyle á fundi í dag
til þess að ræða kaupin, en svo
virðist sem ekkert verði af kaupum
Bretans Sean Lewis í samstarfi við
Kenny Moyes eins og til stóð um
mitt sumar. Doyle, sem haldið hef-
ur félaginu á floti síðustu mánuði,
segir að því miður hafi stjórn ensku
deildakeppninnar ekki samþykkt
kaup Lewis á félaginu, kaupin hafi
lent á milli stafs og hurðar hjá
stjórninni af óþekktum ástæðum.
Því verði sennilega ekki af kaupum
Lewis á félaginu og hann hafi sætt
sig við að sú verði niðurstaðan.
Vegna þess að kaup Lewis á
Barnsley hafa ekki hlotið náð fyrir
augum forvígismanna deildarinnar
hefur félaginu verið skorinn afar
þröngur stakkur til þessa og það
m.a. ekki mátt kaupa leikmenn auk
þess sem það fékk ekki keppn-
isleyfi fyrr en nokkrum klukku-
stundum áður en flautað var til
leiks í 2. deild fyrir um mánuði.
Það hefur hins vegar ekki komið í
veg fyrir ágætan árangur til þessa
því liðið er nú í 2. sæti deildarinn-
ar, einu stigi á eftir forystusauðn-
um, Port Vale.
Verði af kaupum Ridsdale og fé-
laga hans, Patrick Cryne, sem eitt
sinn var aðalstyrktaraðili félagsins,
er hermt að þeir ætli að greiða upp
5,2 millj. skuld félagsins og þar
með verði félagið ekki lengur á
„fjárhagslegri gjörgæslu“ eins og
það hefur verið undanfarnar vikur.
Ekki er ljóst hvort hugsanleg eig-
endaskipti hafi áhrif á stöðu Guð-
jóns Þórðarsonar, knattspyrnu-
stjóra.
Allt stefnir í að
Ridsdale kaupi
Barnsley