Morgunblaðið - 03.09.2003, Blaðsíða 43
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. SEPTEMBER 2003 43
Golfnámskeið
fatlaðra
Nýtt byrjendanámskeið alla miðviku-
daga í september kl. 19.00 hjá
Golfklúbbnum Oddi (Heiðmörk).
Skráning á staðnum.
Kennarar Magnús Birgisson
og John Garner.
Börn og ungmenni sérstaklega boðin.
Golfsamtök fatlaðra á Íslandi.
ÍSLAND og Þýskaland hafa þríveg-
is mæst í knattspyrnulandsleik
karla, síðast í lok maí 1979 á Laug-
ardalsvelli. Þeim leik lauk með 3:1
sigri Þjóðverja en þeir hafa sigrað í
öllum þremur leikjum þjóðanna,
sem allir hafa verið vináttuleikir og
leiknir hér á landi.
Fyrsti leikurinn var 1960 og þá
unnu Þjóðferjar 5:0. Næst var flaut-
að til leiks á Laugardalsvelli 1968
og nú sigruðu Þjóðverjar 3:1 og
gerði Hermann Gunnarsson mark
Íslands. Síðasti leikurinn við Þjóð-
verja var 1979 og aftur endaði hann
3:1 og gerði Atli Eðvaldsson, fyrr-
verandi landsliðsfyrirliði og þjálf-
ari, mark Íslands. Markatalan er
því ekki sérlega glæsileg, 11:2.
Níu mörk
í mínus
JENS Lehmann, markvörðurinn
sem Arsenal keypti frá Dort-
mund í sumar og var kallaður
inn í þýska landsliðshópinn á ný
fyrir leikinn gegn Íslandi eftir
nokkurt hlé, hefur sagt Oliver
Kahn, markverði þýska lands-
liðsins undanfarin ár, stríð á
hendur.
Lehmann lýsti því yfir í gær
að hann sætti sig ekki við að
vera varamarkvörður í landslið-
inu. „Ég er ekki ánægður með
það, ég vil fá að spila. Um þess-
ar mundir er ég betri en sá sem
fyrir er í þýska markinu og ég
sætti mig ekki við að sitja á
bekknum og horfa á hann spila.
Það er ekki borin nægilega mik-
il virðing fyrir mér, alltof marg-
ir hafa ekkert vit á markvörslu,“
sagði Lehmann við enska blaðið
Daily Telegraph.
Lehmann er 33 ára og á að
baki 16 landsleiki fyrir hönd
Þýskalands. Hann lék 329
deildaleiki fyrir Dortmund og
Schalke í Þýskalandi og skoraði
í þeim tvö mörk áður en hann
gekk til liðs við Arsenal í sumar.
Lehmann var varamarkvörður
þýska liðsins í þremur fyrstu
leikjum þess í undankeppninni,
báðum leikjunum gegn Litháen
og heimaleiknum gegn Fær-
eyjum. Í öðrum leikjum í ár hafa
þeir Frank Rost og Jörg Butt
verið teknir framyfir Lehmann.
Lehmann segir Kahn
stríð á hendur
Reuters
Jens Lehmann
SJÖ íslenskir leikmenn eru á
hættusvæði varðandi leikbann í
síðasta leik riðilsins sem verður
við Þjóðverja í Hamborg 11.
október.
Rúnar Kristinsson fékk gult í
leiknum við Skota í október í
fyrra, í leiknum við Litháen hér
heima í sama mánuði fengu þrír
leikmenn gult spjald, Ólafur
Stígsson, Bjarni Guðjónsson og
Arnar Þór Viðarsson. Indriði
Sigurðsson fékk gult í leiknum
við Skota í mars, Jóhannes Karl
Guðjónsson í leiknum við Fær-
eyjar hér heima í júní og Tryggvi
Guðmundsson í leiknum við
Litháa ytra í júní.
Fjórir þessara manna eru í
leikmannahópnum fyrir leikinn á
laugardaginn, Rúnar, Arnar Þór,
Indriði og Jóhannes Karl.
Fjórir á hættusvæði
ÁSGEIR Sigurvinsson og Logi
Ólafsson landsliðsþjálfarar í knatt-
spyrnu eru sammála um að leik-
urinn við Þjóðverja í undankeppni
Evrópukeppninnar í knattspyrnu á
laugardaginn verði bæði spennandi
verkefni og erfitt. Allir þeir leik-
menn sem þeir völdu eru heilir og
tilbúnir í slaginn.
„Við verðum með alla tuttugu
mennina fram að leik en þurfum
síðan að taka tvo út áður en leik-
skýrslan er gerð og þeir fylgjast
með ofan úr stúku. Svona er þetta
víða hjá liðum erlendis og strák-
arnir eru vanir þessu að þeir tveir
sem ekki hugnast þjálfaranum
hverju sinni sitja í stúkunni,“ sagði
Ásgeir spurður um hvort allur
hópurinn yrði með í undirbúningn-
um.
„Þjóðverjar eru einu sinni þann-
ig gerðir að yfirleitt þegar þeir
þurfa að standa sig þá gera þeir
það,“ sagði Ásgeir og Logi bætti
við: „Sálfræðiþátturinn hjá okkur
gæti gengið út á það að þeir þurfa
en við viljum.“
Rætt var um íslenska liðið og
áhyggjur manna vegna þess
hversu margir í landsliðshópnum
leika ekki með sínum félagsliðum.
„Þetta er auðvitað slæmt en svona
hefur þetta verið alla þessa
keppni. Mér telst til að sjö úr
hópnum hafi ekki leikið um
helgina og það er auðvitað æski-
legt að menn leiki með sínum fé-
lagsliðum. Það stendur vonandi til
bóta því Jóhannes Karl er kominn
til Úlfanna, Indriði til Belgíu og
Pétur Marteinsson að fara frá
Stoke. Vonandi fá þessir leikmenn
að spila meira en þeir hafa gert að
undanförnu,“ sagði Ásgeir Sigur-
vinsson, landsliðsþjálfari í knatt-
spyrnu.
Þeir
verða
en við
viljum
FREDI Bobic, hinn reyndi miðherji
þýska landsliðsins í knattspyrnu,
sagði í samtali við blaðið Kicker að
Ísland væri hættulegri andstæðing-
ur en Skotland í baráttunni um sæti
í úrslitum Evrópukeppni landsliða.
„Við getum tryggt okkur sigur-
inn í riðlinum með því að vinna Ís-
land í Reykjavík á laugardaginn og
Skotland í Dortmund miðvikudag-
inn þar á eftir, og við stefnum
ótrauðir að því. Ég vona að við
þurfum ekki að mæta Íslendingum í
hreinum úrslitaleik í Hamborg hinn
11. október. Ísland er erfiðari and-
stæðingur en Skotland í þessari
baráttu, Skotar eru í uppbygging-
arstarfsemi með sitt lið en íslenska
liðið er heilsteypt og samstillt,“
sagði Bobic.
Hann var spurður að því hvort
það væri ekki pínlegt fyrir silf-
urliðið frá HM að þurfa að standa í
svona tvísýnni baráttu um að kom-
ast áfram úr riðli sem fyrirfram var
talinn þýska liðinu auðveldur. „Ís-
land hefur spilað einum leik meira
en við en það sem skilur á milli
þjóðanna í dag er að við misstum
tvö stig í heimaleiknum við Litháen
í Nürnberg,“ sagði Fredi Bobic,
sem gekk til liðs við Herthu Berlín
í sumar, frá Hannover. Hann var
kallaður inn í landsliðið í febrúar
eftir langt hlé og er markahæsti
leikmaður Þjóðverja í ár með fjögur
mörk í sjö landsleikjum.
Reuters
Fredi Bobic fagnar marki gegn Skotum á Hampden Park í vor.
Íslendingar
hættulegri
en Skotar
ÞAÐ tók norska framherjann
Kenneth Eriksen aðeins 177 sekúnd-
ur að skora þrennu í leik með liði
sínu Egersund s.l. mánudag gegn
Varhaug í norsku 3. deildinni þar
sem Egersund hafði betur, 4:2.
Þrátt fyrir að Eriksen hefði verið
röskur að skora mörkin er þetta ekki
met í norsku knattspyrnunni þar
sem Erik Karlsen skoraði þrennu á
150 sekúndum árið 1977 þar sem
Lilleström lagði Mjöndalen 4:0.
KÖRFUKNATTLEIKSMENN frá
Ísafirði munu leika á æfingamóti á
Englandi um næstu helgi en þar eru
á ferð leikmenn úr úrvalsdeildarliði
KFÍ. Með liðinu leika bandarísku
leikmennirnir Anton Collins og Jeb
Ivey en þeir eru nýkomnir til lands-
ins. Þess má geta að KFÍ leikur gegn
London Towers í ferðinni en íslenski
landsliðsmaðurinn Brenton Birm-
ingham leikur með því liði.
PHIL Mickelson sem er í tíunda
sæti á styrkleikalista atvinnumanna
í golfi reyndi fyrir sér á öðrum vett-
vangi í vikunni. Hinn 33 ára gamli
Mickelson hefur átt þann draum að
komast að hjá atvinnumannaliði í
hafnabolta sem kastari og reyndi
Mickelson fyrir sér hjá atvinnu-
mannaliðinu Toledo Mud Hens sem
er í neðri deild í Bandaríkjunum en í
samstarfi við Detroit Tigers sem er
eitt af stærri atvinnumannaliðum.
DAVE Dombrowski fram-
kvæmdastjóri liðsins tók hinsvegar
þá ákvörðun að bjóða Mickelson ekki
samning að þessu sinni en þess ber
að geta að Mickelson kastar með
hægri þrátt fyrir að leika golf með
kylfum fyrir örvhenta.
GLASGOW Rangers varð fyrir
áfalli í gær þegar það kom í ljós að
Ronald de Boer, sóknarmaður liðs-
ins, mun verða frá í allt að sex vikur
vegna meiðsla.
ARSENE Wenger, knattspyrnu-
stjóri Arsenal, telur að Chelsea eigi
ágæta möguleika á að verða enskir
úrvalsdeildarmeistarar næsta vor.
„Chelsea er jafnlíklegt til að sigra í
úrvalsdeildinni og Manchester Unit-
ed og Liverpool. Þeir geta ekki verið
annað en líklegir til afreka miðað við
alla þá leikmenn sem þeir eru búnir
að kaupa,“ sagði Wenger.
FÓLK