Morgunblaðið - 03.09.2003, Blaðsíða 45
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. SEPTEMBER 2003 45
Skógarhlíð 18, sími 595 1000.
www.heimsferdir.is
Ótrúlegt tilboð á síðustu sætunum til Costa del Sol 17. og 24. sept. Nú getur þú
notið skemmtilegasta tíma ársins á þessum vinsælasta áfangastað Íslendinga í
sólinni og búið við frábæran aðbúnað. Þú bókar núna, og tryggir þér síðustu
sætin, og 4 dögum fyrir brottför hringjum við í þig og
tilkynnum þér hvar þú býrð. Að sjálfsögðu nýtur þú
traustrar þjónustu
fararstjóra
Heimsferða allan
tímann.
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Stökktu til
Costa del Sol
17. eða 24. sept.
frá kr. 39.962
Verð kr. 39.962
M.v. hjón með 2 börn, 2–11 ára.
Flug, gisting, skattar, 24. sept., 7 nætur
Almennt verð, kr. 41.960.
Verð kr. 49.950
M.v. 2 í herbergi/stúdíó, 24. sept.,
7 nætur. Almennt verð, kr. 52.447.
Ferðir til og frá flugvelli, kr. 1.800.
Val um 1 eða 2 vikur.
Síðustu sætin
10. sept. – uppselt
17. sept. – 19 sæti
24. sept. – 23 sæti
1. okt. – 32 sæti
KVIKMYNDIR
Sambíóin
Bandarískt brúðkaup / American Pie? The
Wedding Leikstjórn: Jesse Dylan. Handrit: Adam
Herz. Aðalhlutverk: Jason Biggs, Seann
William Scott, Alyson Hannigan, Eugene
Levy, Eddie Kaye Thomas ofl. Lengd: 96
mín. Bandaríkin, 2003.
AMERÍSKU bökumyndirnar
eru orðnar að fyrirbæri út af fyrir
sig, en helsta framlag þeirra til
gelgjugamanmyndanna er kannski
það að hafa bætt góðum skammti
af kvikindisskap í þá uppskrift sem
þegar var til staðar. Í fyrstu
myndinni, American Pie, átti sér
stað hamingjusamur samruni
gelgjuháttar bandarísku skólagam-
anmyndarinnar og líkamsstarfsem-
ishúmorsins sem vinsæll varð með
kvikmyndum Farrelly-bræða, og
þannig var hægt að velta sér upp
úr klisjum og staðalmyndum
bandarísks miðstéttarveruleika og
gera grín að honum um leið.
Í þriðju myndinni í seríunni,
verður hið dæmigerða bandaríska
brúðkaup vettvangur úrgangs- og
kynlífsbrandara og getur myndin
því vart talist við hæfi þeirra sem
haldnir eru brúðkaupsfóbíum. Eft-
ir að þau Jim og Michelle ákveða
að festa ráð sitt fer nokkurn veg-
inn allt úrskeiðis sem úrskeiðis
getur farið við undirbúning
draumabrúðkaupsins, þrátt fyrir
ítrekaðar tilraunir vinahópsins til
að halda graðnaglanum Stifler
víðsfjarri. Bandarískt brúðkaup er
í raun algjörlega í anda fyrri
myndanna, og reyndar svo mjög að
fyrsta hálftímann eiga aðstandend-
ur í hálfgerðum vandræðum með
að kreista fram frumlega brand-
ara. Leikarahópurinn er þó allur af
vilja gerður, og eru það helst þeir
Eugene Levy, sem leikur hinn
ráðagóða föður Jims, og Seann
William Scott í hlutverki hins
maníska Stiflers, sem ná að stela
senunni og koma gamanframvind-
unni af stað. Eftir það skiptast á
bráðskondin atriði, (líkt og þegar
Stifler háir danseinvígi við gam-
alreyndan diskókonung), og alger-
lega örvæntingarfullar tilraunir til
að fá hina mettuðu gamanmynda-
áhorfendur nútímans til að hlæja,
til dæmis með því að láta persónur
éta hundaskít. Í því sambandi hef-
ur verið bent á hvernig grótesk og
andborgaraleg ögrun kvikmynda
John Waters á borð við Pink
Flamingos, þar sem hundaskítur
var étinn með bestu lyst, hefur al-
gerlega innlimast í miðstreymi
Hollywood-iðnaðarins á þeim
þremur áratugum sem liðnir eru
frá því að Pink Flamingos var
gerð. Og samhliða öllum subbu-
skapnum vindur fram ósköp róm-
antískri gamanmynd, sem á sínar
fyndnu stundir, og endar á besta
veg.
Heiða Jóhannsdóttir
Rjómaterta með
hundaskít
Mikið mæðir á þeim Böku-feðgum að þessu sinni enda sá stutti að ganga út.
NÚ fer hver að verða síðastur til að sjá leikritið Date sem
leikhópurinn Ofleikur hefur sýnt við góðar viðtökur í Iðnó í
sumar.
Einungis tvær sýningar eru nú eftir af þessu frumsamda
íslenska verki eftir Jón Gunnar Þórðarson. Sú næst síðasta
er í kvöld og sú allra síðasta á föstudagskvöld.
Jón Gunnar, sem jafnframt er leikstjóri sýningarinnar,
segir viðtökur hafa verið frábærar, og nú sé markmiðið að
gera framhaldsskólanemum kleift að hópast á sýninguna
áður en hún fer endanlega af fjölunum. Verkið ætti einmitt
að höfða sérstaklega til þessa hóps því það fjallar á gam-
ansaman máta um allt það sem maður á ekki að gera á
stefnumóti – en gerir samt. Þar að auki eru leikendur á
framhaldsskólaaldrinum, 17-20 ára, og hafa flestir fylgt
leikfélaginu frá því þeir voru í grunnskóla.
Morgunblaðið/Arnaldur
Benedikt Karl Gröndal og Elín Vigdís Guðmunds-
dóttir í hlutverkum sínum í Date.
Síðustu stefnumótin
Nánari upplýsingar um Date er að finna á heimasíðunni
www.date.is