Morgunblaðið - 03.09.2003, Side 52
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MIÐVIKUDAGUR 3. SEPTEMBER 2003 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
Áskriftarsími 881 2060
Í FORMI
Næring ekki
refsing
ÍSLANDSBANKI jók hlut sinn í Fjárfestingar-
félaginu Straumi um 7,7% í gær. Meðal seljenda
voru Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins, Lífeyris-
sjóður Vestmannaeyja og Efling stéttarfélag auk
smærri fjárfesta, samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins.
Tilkynnt voru kaup Íslandsbanka á 5,7% til
Kauphallarinnar og var sá hlutur keyptur á
genginu 4,63. Miðað við það verð hefur markaðs-
verð alls hlutarins verið nær 1,5 milljarðar króna.
Bankinn átti fyrir 17,3% í Straumi en á nú
fjórðungshlut í félaginu. Íslandsbanki og tengdir
aðilar eiga nú tæplega 40% hlut líkt og Lands-
bankinn. Til þess að breyta samþykktum félags-
ins þarf 67% atkvæða þannig að hvorugur bank-
inn er nálægt því marki. Stjórnarmenn í Straumi
eru fjórir talsins sem þýðir að 60% atkvæða þarf
til það fá meirihluta í stjórn með þremur mönn-
um.
Bjarni Ármannsson, forstjóri Íslandsbanka,
segir að með kaupum bankans í gær sé verið að
færa eignarhlut bankans í Straumi aftur nokkurn
veginn til þeirrar stærðar sem var fyrr í sumar
áður en hlutafé félagsins þynntist út vegna kaupa
Straums á Framtaki fjárfestingarbanka.
Íslandsbanki kaupir fyrir
1,5 milljarða í Straumi
Alls þarf 60% atkvæða
til að mynda meiri-
hluta í stjórn Straums
Íslandsbanki/26
FYRSTA haustlægðin nálgast suðvestur af
landinu og munu henni fylgja hressilegir haust-
vindar í kvöld. Veðurstofan spáir allt að 18
metrum á sekúndu – hvassast vestanlands.
Helga Ívarsdóttir, veðurfræðingur, segir samt
enga ástæðu til að njörva gasgrillið eða garð-
stólana niður enda Íslendingar vanir vinda-
sömu veðri þegar kemur fram í september.
Ekkert sé merkilegt við þessa lægð, en fáar
systur hennar hafi verið við landið undanfarið
og rólegt í háloftunum. Nú fari að hausta og bú-
ast megi við að fleiri lægðir læðist að landinu.
Konurnar á myndinni létu kaldara veður og
meiri vind ekki aftra sér frá því að fá sér hressi-
legan göngutúr á Seltjarnarnesi í gær. Greini-
legt er þó að útivistarfólk á höfuðborgarsvæð-
inu er farið að búa sig betur og er það fyrsta
vísbendingin um að haustið sé að ganga í garð.
Morgunblaðið/Kristinn
Lægðir læðast að landinu
FARA þarf rúmlega þrjú ár aftur í tímann til þess að
finna dæmi um jafnmiklar hækkanir á húsnæðislið vísi-
tölu neysluverðs og orðið hafa í sumar. Hækkunin í júlí-
mánuði nam 1,2% og í ágúst 1,3% og hefur hækkun hús-
næðiskostnaðar milli mánaða ekki mælst meiri frá því í
maímánuði árið 2000.
Það er fyrst og fremst þessi hækkun á verði húsnæðis
sem valdið hefur verðlagshækkunum síðustu tólf mán-
uðina. Þannig hefur verðbólgan á því tímabili verið 2%,
en að frátöldum verðhækkunum á húsnæði nemur verð-
lagshækkunin undanfarna tólf mánuði 0,4%.
Mikil verðhækkun á húsnæði undanfarin misseri hefur
gert það að verkum að vægi húsnæðisliðar í vísitölu
neysluverðs hefur sífellt aukist á undanförnum árum.
Þannig vó húsnæði 17,3% í útgjöldum heimila í marsmán-
uði 1997, svipað og matarútgjöldin sem þá vógu 17,1%. Í
mars í vor, sex árum síðar, höfðu hlutföllin breyst þannig
að matur vó 15,2% í útgjöldum heimilanna, en húsnæðið
20,3%. Síðan þá hafa hlutföllin enn breyst vegna hækk-
unar húsnæðis umfram aðra liði vísitölunnar og í ágúst
síðastliðnum vógu matarútgjöld 14,9%, en útgjöld fjöl-
skyldna vegna húsnæðis voru orðin 21,1% . Til saman-
burðar eru útgjöld heimilanna vegna ferða og flutninga
þar sem eigin bifreið vegur þyngst mjög svipuð og fyrir
sex árum eða tæp 16%.
Vægi húsnæðis í útgjöldum heimila eykst sífellt
Húsnæði ekki hækk-
að jafnmikið í þrjú ár
!,
!-
' -
""-
'-
" ' -
! ' -
# '-
"!-
'-
" '-
' -
! '(-
! ' -
'-
# ' -
!
. /0,'*,,) %
10,) %$, $) !223+#$
45
$,)
,
. # '*,
,, 0$)% 1#) 25
.5) +,, 0,
(% ,) 5 ., $ / 65 $)
,
$
(0+#$) 735$
)
(
!-
! "-
"#-
"#-
!"-
-
! .,
,8. )%9
Tómas Lemarquis er Nói albínói.
Dagur Kári
og Tómas
tilnefndir
DAGUR Kári Pétursson og Tómas Lem-
arquis hafa verið tilnefndir til Evrópsku
kvikmyndaverðlaunanna fyrir árið 2003.
Dagur Kári er tilnefndur sem besti leik-
stjórinn fyrir mynd sína Nói albínói og
Tómas sem besti leikarinn í aðalhlutverki
fyrir sömu mynd.
Það verður í höndum almennings að
skera úr um hvort þeir hljóta verðlaunin
en á Netinu mun fara fram kosning, þ. á m.
á mbl.is, sem kynnt verður síðar.
Meðal annarra af þeim tíu leikstjórum
sem tilnefndir hafa verið má nefna Dan-
ann Lars von Trier sem tilnefndur er fyrir
Dogville og Bretann Danny Boyle sem er
tilnefndur fyrir 28 dögum síðar. Tómas
mun aftur etja kappi við breska gam-
anleikarann Rowan Atkinson, Spánverj-
ann Javier Bardem og Frakkana Johnny
Halliday og Vincent Perez.
Afhending Evrópsku kvikmyndaverð-
launanna fer fram í Berlín 6. desember.
SIGURBORG Matthíasdóttir,
konrektor Menntaskólans við
Hamrahlíð, segist vera mjög
ánægð með að loksins skuli
Reykjavíkurborg og menntamála-
ráðuneytið hafa komist að sam-
komulagi um byggingu íþróttahúss
við skólann. Stefnt hafi verið að því
frá árinu 1966. „Þetta eru mikil
tímamót. Við erum búin að vera
tilbúin í framkvæmdirnar í mörg
ár,“ segir Sigurborg.
Hún leggur áherslu á að sam-
hliða byggingu nýs íþróttahús
verði að fjölga nemendarýmum.
Í gær undirrituðu borgarstjóri
og menntamálaráðherra sam-
starfsyfirlýsingu um að standa
saman að stækkun framhaldsskóla
í Reykjavík. Á næstu fimm árum
leggur ríkið fram 150 milljónir
króna á hverju ári til nýbygginga
og Reykjavíkurborg 100 milljónir.
Jafnframt verður ráðist í viðhald á
Menntaskólanum í Reykjavík og
að því loknu í nýframkvæmdir.
Undanfarin ár hafa fulltrúar
Reykjavíkurborgar og ríkisstjórn-
arinnar deilt um hver eigi að bera
kostnað af nýframkvæmdum við
framhaldsskólana. Í framhalds-
skólalögunum segir að sveitarfélög
skuli standa undir 40% af kostn-
aðinum og ríkið 60%. Fulltrúar
Reykjavíkurborgar hafa talið sig
óbundna af þessu ákvæði varðandi
eldri skóla, þar sem borgin hafi
ekki tekið þátt í byggingu þeirra á
sínum tíma. Af þeim sökum hafa
margar framkvæmdir, eins og
bygging íþróttahús við MH, verið í
biðstöðu.
Uppbygging framhaldsskóla
Íþróttahús byggt við
MH eftir 37 ára bið
Yfir milljarður/6
SEBASTIAN Peters er ungur Þjóðverji sem
furðar sig á daufri stemmningu íslenskra
áhorfenda á fótboltaleikjum. Hann segir að
það vanti meira líf og fjör í kringum lands-
leiki Íslands og frumkvæðið verði fyrst og
síðast að koma frá fólkinu á áhorfendabekkj-
unum. Þar gegni baráttusöngvar mikilvægu
hlutverki. Þeir leggi grunninn að fjörugri
leik og fjölskrúðugri fótboltamenningu.
„Þetta ætti nefnilega að vera fremur ein-
falt,“ segir hann. „Hér eru allir í kórum og
talað er um að skáld og hagyrðingar séu á
hverju horni. Hér á landi er sterk kvæða- og
sönghefð og ég spyr því bara: Hvar eru
söngvarnir?“
Baráttusöng-
inn vantar
♦ ♦ ♦
Fótboltaáhorfendur daufir
Vill bæta/48