Morgunblaðið - 10.07.2004, Qupperneq 14
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
14 LAUGARDAGUR 10. JÚLÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
● FJÁRFESTINGARBANKINN Smith
Barney, sem er hluti af Citigroup-
samstæðunni, telur að Bakkavör
kunni að gera yfirtöku-
tilboð í Geest upp á 650
pens á hlut, að því er
segir í This is Money.
Miðað við þetta verð væri
Geest metið á 64 millj-
arða króna, en Bakkavör á þegar rúm
20% í félaginu.
Hver hlutur kostar nú um 530
pens, en var kominn yfir 560 pens
fyrir nokkrum dögum, áður en félagið
sendi frá sér tilkynningu um lækk-
andi afurðaverð. Við tilkynninguna
fóru bréfin undir 520 en hafa tekið
að hækka á ný.
Telegraph segir að Smith Barney
hafi hækkað ráðgjöf sína um Geest
úr ’halda’ í ’kaupa’ vegna væntinga
um yfirtökutilboð Bakkavarar. Sam-
kvæmt Telegraph fær Smith Barney
út verðmatsgengið 580 pens með
því að gera ráð fyrir að helmingslíkur
séu á yfirtöku.
Geest úr ‘halda’ í
‘kaupa’
VIÐSKIPTI
!"# $ %&
'# $ %&
'%
( )!
$
*
+
,'+
-
+
*
" (
.( & .&
/ 0
/ % %
(+)
1 %
!"#$
!
(2 % *
%(
3 &
3%+ % '
+)
3 4 )5 0
6 +
,+%
,(%
- 7
%
890
/*
/ #
/% 2(/%%
/7&
/% 0 4 0)
:
(
: 4((
(
;
%
5 ) </7+ %!$
$&'
!% % +
=4 -
*
/ :77 ; 4((
(2(*
/ # )# >
>?
>
>
@
> @
>@@
>@
>
>?
>
>
>
>?
?>
?>@
>
>
<
<
>
<
>
>
<
<
<
<
<
<
<
<
<
?>
<
<
<
<
<
<
<
<
' 4
( 4 # )# >
>
<>
>
<
<
>@
>@
>
<
<>
>
>
<
<
<>
>
<
<
>
<
<>
<>@
<
<
<
<
<
<
<
<
<
<
<
<
<
<
<
<
<
<
A>BC
A>
BC
A<>BC
A>@BC
<
<
A>
BC
A>BC
A>
BC
<
A<> BC
A>
BC
A>BC
<
<
A<>BC
A>BC
<
<
A>BC
<
A<>@BC
A<>?BC
<
<
<
<
<
<
<
<
<
<
<
<
<
<
<
<
<
<
3 # & (
:+ ( D
,%&/
?)
)
)
)@
)
@)
@
)
)?
)
)
@
?)
?
)?
)@
)?
@
<
<
)
<
)
<
<
<
<
<
<
<
<
<
@)
<
<
<
<
<
<
<
<
>
>
>
>
@
<
>@@
>@
>
>?
>
>
>@
>
?>
?>
>
>
?>
@>@
>
<
>
>
>@
>@
?>
>?
<
>
@> @
@>@@
<
>
>
>
>@
>
>
>
>
>
>@
>?
>
>
> @
>
?>
> @
@>@
>@
>@
>?
>
?>@
?>@
> @
>
?>
@>
>@
>
>
?>
>
>?
?>
>
>
<
>@
@>@
>
?>
>@
>@
>@
>?
?>?@
>@
>
@
>
; & E ) !:3)F!0%(%
# &
?
@
@
<
<
<
@
<
<
<
<
<
<
<
<
<
<
<
<
<
<
<
<
<
LANDSSÍMANUM er óheimilt að
kynna áskriftartilboðið „Allt sam-
an hjá Símanum“ á nokkurn hátt,
samkvæmt bráðabirgðaákvörðun
Samkeppnisstofnunar sem birt var
í gær. Segir í ákvörðunarorðum að
með því að bjóða og kynna áskrift-
artilboðið hafi Landssíminn brotið
gegn 11. gr. samkeppnislaga. Sím-
anum er jafnframt óheimilt að
skrá nýja viðskiptavini samkvæmt
áðurnefndu áskriftartilboði.
„Langvarandi
brotastarfsemi“
Pétur Pétursson, forstöðumaður
skrifstofu forstjóra Og Vodafone,
segir afstöðu Samkeppnisstofnun-
ar mjög afgerandi í málinu.
„Framsetning Landssímans er tal-
in óhæfileg og villandi fyrir neyt-
endur. Hún er einnig talin sér-
staklega ámælisverð og talin geta
raskað samkeppni á markaðnum,“
segir Pétur. Hann segir það at-
hyglisvert að í hálft annað ár hafi
ekki verið gerð athugasemd við
starfsemi Landssímans, en það sé
nákvæmlega sá tími sem sam-
keppnisyfirvöld hafa ekki getað
sinnt fjarskiptamarkaðnum vegna
anna á öðrum vettvangi. „Nú þeg-
ar yfirvöld taka málefni Landssím-
ans fyrir á ný þá kemur í ljós að
framferði fyrirtækisins hefur ekk-
ert breyst og ekki útlit fyrir að
langvarandi brotastarfsemi Lands-
símans í samkeppnismálum linni.
Ég held að það sé full ástæða til
þess að samkeppnisyfirvöld sýni
meira frumkvæði í málum sem
snúa að fjarskiptamarkaðnum.“
Talsímaþjónusta
ekki skilyrði
Eva Magnúsdóttir, upplýsinga-
fulltrúi Símans, segir að með
áskriftarleiðinni Allt saman hjá
Símanum séu viðskiptavinum Sím-
ans veitt sérstök kjör kjósi þeir að
vera með farsímaþjónustu og
ADSL hjá fyrirtækinu. Hins vegar
séu kaup á talsímaþjónustu ekki
gerð að skilyrði fyrir sérstökum
ívilnandi kjörum. „Í ákvörðuninni
kemur fram að stofnunin telur
framsetningu og kynningu Símans
á áskriftarleiðinni til þess fallna að
skapa misskilning hjá kaupendum
fjarskiptaþjónustu þar sem neyt-
endur séu hvattir til að kaupa alla
fjarskiptaþjónustu hjá Símanum,
þ.m.t. talsímaþjónustu. Bendir
stofnunin m.a. á heitið á áskriftar-
tilboðinu „Allt saman hjá Síman-
um“ í þessu sambandi. Í ljósi fyr-
irmæla Samkeppnisstofnunar mun
Síminn taka til skoðunar með
hvaða hætti unnt er að bæta fram-
setningu og kynningu áskriftar-
leiðar af þessu tagi,“ segir Eva.
Símanum er að mati Samkeppn-
isstofnunar einnig óheimilt að
veita sérstaka afslætti fyrir að
vera með bæði farsíma- og ADSL-
þjónustu hjá fyrirtækinu.
Eva segir að Síminn sé ósam-
mála niðurstöðu stofnunarinnar að
þessu leyti og bendir á að með af-
sláttarkjörunum hafi fyrirtækið
einfaldlega verið að mæta hlið-
stæðum afsláttarkjörum sem tíðk-
ast hafi um nokkurt skeið hjá
helsta samkeppnisaðilanum, Og
Vodafone. „Síminn telur sér heim-
ilt, m.a. með hliðsjón af sterkri
markaðsstöðu beggja fyrirtækj-
anna á markaði fyrir farsímaþjón-
ustu (Síminn 60% Vodafone 40% á
landsvísu), að taka þátt í virkri
samkeppni á fjarskiptamarkaði
með afsláttarkjörum af því tagi
sem um ræðir. Önnur niðurstaða
leiðir til lakari kjara fyrir neyt-
endur og fer þ.a.l. gegn markmiði
og tilgangi samkeppnislaga.“
Samkeppnisstofnun bannar
„Allt saman hjá Símanum“
Óheimilt Hluti af auglýsingaherferð Símans, „Allt saman hjá Símanum“.
Pétur Pétursson Eva Magnúsdóttir
● HAGNAÐUR stærsta álfyrirtækis í
heimi, Alcoa, sem opnar 320 þús-
und tonna álver í Reyðarfirði árið
2007, var nærri tvöfalt meiri á öðr-
um ársfjórðungi þessa árs en á
sama tíma í fyrra. Hagnaðurinn var
þó lægri en sumir markaðsaðilar
höfðu gert ráð fyrir sem varð þess
valdandi að hlutabréf félagsins
lækkuðu lítillega í verði á markaði í
New York.
Hagnaður félagsins á tímabilinu
nam 404 milljónum Bandaríkjadala
samanborið við 216 milljónir á sama
tíma í fyrra. Tekjur félagsins jukust
um 11% á milli ára, eða upp í 6,1
milljarð Bandaríkjadala, rúma 436
milljarða íslenskra króna. Ástæða
tekjuaukningarinnar er samkvæmt
tilkynningu frá félaginu aukin álnotk-
un í heiminum. Á sama tíma hafa
birgðir minnkað og verð hækkað því
samfara.
Alcoa nær
tvöfaldar hagnað
ÓVÍST er hvort þeir lífeyrissjóðir,
sem skertu réttindi sjóðfélaga í
fyrra, muni auka réttindi aftur
þrátt fyrir talsvert betri ávöxtun á
síðasta ári en árið á undan. „Við
höfum enga greiningu á því hvað
einstakir sjóðir munu gera,“ segir
Páll Gunnar Pálsson forstjóri Fjár-
málaeftirlitsins. „Það verður að
horfa til lengri tíma en eins árs í
senn. Þótt árangur flestra sjóða í
fyrra hafi verið góður er eigna-
staða sumra þeirra í veikara lagi og
því eru litlar líkur á að þeir muni
geta aukið greiðslur til rétthafa í
ár.“
Réttindi ekki veitt þegar í stað
Lífeyrissjóður lækna var einn
þeirra lífeyrissjóða sem skertu rétt-
indi í ársbyrjun 2003. Gunnar Bald-
vinsson, forstöðumaður lífeyr-
issjóðsins, segir stöðuna um síðustu
áramót ekki þannig að sjóðurinn
geti veitt þau réttindi aftur þegar í
stað. „Tryggingafræðileg staða
sjóðsins var verulega slæm í árslok
2002, t.d var áunnin staða neikvæð
um 19% og heildarstaðan neikvæð
um tæplega 10%. Strangt til tekið
hefðum við ekki, lögum samkvæmt,
þurft að skerða réttindi í fyrra, en
hins vegar er sjóðurinn með aldurs-
tengd réttindi. Því töldum við óhjá-
kvæmilegt að lækka réttindin og
lagfæra þannig áunna stöðu sjóðs-
ins,“ segir Gunnar. Samþykktum
lífeyrissjóðsins var breytt í lok jan-
úar 2003 og voru áunnin lífeyr-
isréttindi sjóðfélaga lækkuð um 9%
frá og með 1. febrúar 2003.
„Þetta var í fyrsta sinn í sögu
sjóðsins sem réttindi voru skert.
Hins vegar voru þau þrisvar aukin
frá 1997 um alls rúmlega 60%, síð-
ast um 45% árið 2000. Eftir þessar
breytingar var áunnin staða nei-
kvæð um 9,7% og heildarstaða
sjóðsins var neikvæð um 4%.
Tryggingafræðileg staða Lífeyr-
issjóðs lækna batnaði umtalsvert á
árinu 2003 vegna góðrar ávöxtunar
og var áunnin staða í árslok nei-
kvæð um 2,6% en heildarstaða
sjóðsins var jákvæð um 0,4%. Áunn-
in staða sjóðsins batnaði því um 7,1
prósentustig á árinu og heildar-
staðan um 4,5 prósentustig.“
Gunnar segir að þrátt fyrir að
staðan hafi batnað mikið hafi ekki
þótt tímabært um síðustu áramót
að leggja fram tillögu um aukin
réttindi sjóðfélaga, þar sem áunnin
staða var ennþá neikvæð um 2,6%.
Endurmat á miðju ári
„Afkoma sjóðsins hefur verið
mjög góð það sem af er þessu ári og
hefur tryggingafræðileg staða
haldið áfram að batna. Stjórn sjóðs-
ins hefur því ákveðið að meta stöð-
una aftur um mitt ár og skoða í
samráði við tryggingafræðing
sjóðsins hvort sjóðurinn geti hugs-
anlega aukið réttindi sjóðfélaga. Til
þess þarf áunnin staða að vera já-
kvæð um nógu hátt hlutfall til þess
að haldast jákvæð eftir breyt-
ingar.“
Skert réttindi ekki aukin strax aftur
Páll Gunnar
Pálsson
Gunnar
Baldvinsson
● MIKIL viðskipti voru með íbúða-
bréf í Kauphöll Íslands í gær, eða fyr-
ir rúma tíu og hálfan milljarð króna.
Næst mest viðskipti urðu með hluta-
bréf, eða fyrir 1.233 milljónir króna.
Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,38% í
þeim viðskiptum og er nú rétt við
3000 stiga mörkin, eða 2.989,5
stig.
Samanlagt námu viðskipti í Kaup-
höll Íslands í gær 11.932 milljónum
króna.
Mest hlutabréfaviðskipti voru með
bréf KB banka fyrir um 600 milljónir
króna og hækkaði gengi bankans um
0,8% í þeim viðskiptum.
Á Nasdaq hlutabréfamarkaðnum í
Bandaríkjunum hækkaði gengi de-
CODE Genetics í gær um 0,9% á
meðan Nasdaq vísitalan hækkaði
um 0,57%.
Mikil viðskipti með
íbúðabréf
● HÆTTAN á að verðbólgan fari úr
böndunum við núverandi stöðu efna-
hagsmála er óveruleg, að mati grein-
ingardeildar Landsbankans. Í sérriti
hennar um stöðu efnahagsmála segir
að Seðlabankinn hafi með þremur
vaxtahækkunum aukið peningalegt
aðhald og mikilvægt sé að haldið
verði fast við þá stefnu. Þegar upp sé
staðið sé það þó á ábyrgð stjórnvalda
að tryggja áframhaldandi stöðugleika.
Óveruleg hætta
á verðbólgu
8 /HI@
B
B
:/=
J!K
B
B
L!L
.
B
B
,K
8
B
B
ML=K@
JN6
B
B