Morgunblaðið - 17.07.2004, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 17.07.2004, Blaðsíða 41
DAGBÓK MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. JÚLÍ 2004 41 Sýningin Sumardagar verður opnuð íListasafni Árnesinga í dag klukkan 16.21 ungur íslenskur listamaður á verk ásýningunni og sumir þeirra fleiri en eitt. Sýningin stendur til 8. ágúst en Listasafn Árnes- inga er opið alla daga nema mánudaga frá 13.30– 17. Sýningarstjóri Sumardaga er Melkorka Huldudóttir. Hvernig sýning er Sumardagar? „Sýningin er fjölbreytt og fjölskylduvæn en á sýningunni er að finna hátt í þrjátíu verk eftir unga, íslenska listamenn sem hafa útskrifast úr skólum hér heima og erlendis upp á síðkastið. Ég reyndi að velja sem fjölbreyttust og eftir- minnilegust verk eftir þessa listamenn. Verk sem ég hafði séð á vinnustofu eða á sýningu og þau einhverra hluta vegna sátu í mér. Ég vildi líka að það væru sem fjölbreyttust verk á sýningunni svo að sem flestir gætu notið þess að koma á sýninguna.“ Er eitthvað sérstakt þema í þessari sýningu? „Sýningin verður mjög fjölbreytt og ég reyndi að velja sem flesta miðla. Þarna eru teiknimynd- ir, „stop-motion“ leirmynd, málverk, skúlptúrar, myndbandsverk sem varpað er á veggina og margt fleira. Sýningin heitir Sumardagur og þetta gæti verið skemmtilegur sumardagur á safninu fyrir alla fjölskylduna. Þarna eru engin gróf, dónaleg eða erfið verk heldur eru til sýnis góð verk sem eru aðgengileg fyrir flesta. Verkin voru þó ekki valin að teknu tilliti til þess að þau væru aðgengileg heldur valdi ég verk sem mér fannst skemmtileg.“ Hefur þú sinnt starfi sýningarstjóra áður? „Þetta er fyrsta sýningin sem ég set upp í op- inberu safni en ég hef áður sett saman sýningar. Ég tók þátt í því að reka Gula húsið á Lindargöt- unni á sínum tíma. Þar var hópur krakka með al- þjóðlegt menningarsetur þar sem haldnir voru fjölmargir tónleikar auk annarra sýninga. Þar fékk ég smjörþefinn af því að setja upp sýningar og mér finnst það mjög skemmtilegt og gæti hugsað mér að fást við það í framtíðinni.“ Þú ert með mörg járn í eldinum, ekki satt? „Ég er myndlistarkona og starfa í Klink& Bank. Þá er ég einnig meðlimur í hljómsveitinni Brúðarbandinu en við erum að fara að gefa út geisladisk. Útgáfutónleikarnir fara fram fimmtu- daginn 22. júlí og diskurinn kemur í búðir mánu- daginn 26. júlí. Brúðarbandið mun einnig leika á Innipúkanum um verslunarmannahelgina og það er fullt af skemmtilegheitum framundan.“ Myndlist | Sýningin Sumardagar í Listasafni Árnesinga Fjölbreytt og fjölskylduvæn  Melkorka Huldudóttir er fædd hinn 9. apríl 1972 í Hafnarfirði. Hún útskrifaðist af mynd- listarbraut í FB og árið 2002 útskrifaðist hún frá fjöltæknideild Listaháskóla Íslands með BA-gráðu. Mel- korka hefur fengist við fjölbreytt störf í gegn- um tíðina en hún hefur sett upp sýningar, verið sýningarstjóri, verið í hljómsveit og leikið í kvikmynd. Hún er mynd- listarkona og starfar í Klink&Bank. Úlfur, úlfur ÉG var að horfa á Kastljós nýlega þar sem ungar konur töluðu um kyn- ferðisofbeldi og velti því fyrir mér hvort það væri ekki orðinn fullmikill áróður í þessum málaflokki, hrópað „úlfur, úlfur“ þegar ekki þarf. Ég lenti í því nýlega að vera að keyra í austurborginni og kom að gangbraut þar sem tvær ungar stelpur (2–4 ára) voru að leika sér á hjólum. Ég stoppa bílinn og ætlaði að leiða þær yfir gangbrautina svo þær færu sér ekki að voða. Kemur þá ekki stökkvandi kona út úr nærliggjandi húsi og öskraði á mig: láttu börnin mín vera, andskotans perrinn þinn. Ég er orðin fullorðin amma og ætlaði börnunum ekkert nema gott. Þetta sló mig illa því þetta var í góðri meiningu gert. Fullorðin amma. Hárið skemmtilegt SÖNGLEIKURINN Hárið hefur fengið leiðinlega gagnrýni í fjöl- miðlum og skil ég ekki þessa slæmu gagnrýni. Ég fór á frumsýninguna, ásamt nokkrum vinkonum, og fannst okkur verkið kraftmikið, sígilt og lögin frá- bær. Skemmtum við okkur hið besta og virtust aðrir í salnum skemmta sér mjög vel. Því skiljum við ekki þessa slæmu gagnrýni. Rósa. Vinnuhópum hrósað UNDANFARIÐ hefur vinnuhópum í Breiðholti verið hrósað fyrir störf sín. Okkur hér í Árbænum langar líka til að hrósa ungmennum í okkar hverfi. Hér fyrir framan Hraunbæ 8– 12a hafa á undanförnum dögum verið vinnuhópar frá borginni að lagfæra grasflöt sem tilheyrir borginni, sett nýjar þökur, slegið og snyrt og þetta unga fólk hefur unnið störf sín af stakri alúð og prýði og eru því færðar bestu þakkir. Ánægðir íbúar. Páfagaukur týndist PÁFAGAUKUR, gulur, rauður, grænn og blár, flaug út um glugga á Holtsgötu 22 sl. fimmtudag. Hann er merktur á fæti með hring. Þeir sem hafa orðið hans varir hafi samband í síma 698 0794. Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is Létt & laggott er viðbit með litlu fituinnihaldi og bragðast líkt og smjör. Nú á 20% afslætti í næstu verslun. N O N N I O G M A N N I I Y D D A • 1 1 2 7 / sia .is 1. e4 e6 2. d4 d5 3. exd5 exd5 4. Bd3 c5 5. dxc5 Bxc5 6. Rf3 Rf6 7. 0–0 0–0 8. Bg5 Db6 9. Rc3 Rbd7 10. Hb1 h6 11. Bh4 Dd6 12. Bf5 g5 13. Bg3 Dc6 14. Bxd7 Bxd7 15. Be5 Had8 16. Bxf6 Dxf6 17. Dxd5 Bc6 18. Dxc5 b6 19. De5 Dg6 20. Dg3 Dxc2 21. Re5 Bb7 22. Rg4 Ba6 23. Hfe1 Kg7 24. He7 Staðan kom upp á meistaramóti Skákskóla Íslands sem lauk fyrir stuttu. Sverrir Þorgeirsson (1.360) hafði svart gegn Gylfa Davíðssyni (1.525). 24. … Dxb1+! og hvítur gafst upp enda mát eftir 25. Rxb1 Hd1+. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is Svartur á leik. HARMONIKUHÁTÍÐ Reykjavíkur verður haldin í fimmta skipti nú um helgina. Helstu atriði hátíðarinnar eru klassískir harm- onikutónleikar í Frí- kirkjunni við Tjörnina í dag. Þeir hefjast með einleikstónleikum Matthíasar Kormáks- sonar kl. 15 og kl. 16 hefjast einleiks- tónleikar Igors Zav- adskys. Að sögn Jón- atans Karlssonar, skipuleggjanda hátíð- arinnar, eru tónleikar Matthíasar kveðju- tónleikar hans á Ís- landi en Matthías er á förum til Bandaríkj- anna þar sem hann hyggur á há- skólanám. „Matthías er einn fremsti einleikari Íslands og Igor er mikill snillingur,“ segir Jónatan og bætir því við að hér verði eflaust um góða tónleika að ræða. „Igor Zavadsky tók þátt í hátíðinni í fyrra og vakti mikla athygli. Hann var kosinn þjóð- arlistarmaður Úkraínu árið 2000 og hefur unnið til margra annarra verð- launa. Hann er mjög eftirsóttur en hann kemur hingað til lands beint frá París,“ segir Jón- atan og tekur það fram að Igor sé mikill hval- reki á fjörur íslenskra áhugamanna um harm- onikuleik. „Í fyrra fór Igor í stutta ferð norður á land og var á Akureyri, Skagafirði og Húsavík. Við ætlum að endurtaka þann leik um næstu helgi og eigum von á því að hann fái hvarvetna góðar viðtökur,“ segir Jónatan en laugardag- inn 24. júlí heldur Igor tónleika í Akureyrarkirkju. Dagskrá Harmonikuhátíðar Reykjavíkur lýkur með harm- onikudegi í Árbæjarsafni á morgun, sunnudaginn 18. júlí. Dagskráin í Árbæjarsafni hefst kl 13 og þar gefst færi á að sjá erlenda og innlenda þátttakendur hátíðarinnar leika út um allt safn, venju samkvæmt. Harmonikuhátíð Reykjavíkur haldin í fimmta skipti Igor Zavadsky FORNLEIFAUPPGRÖFTURINN á Gásum verður skoðaður ásamt leið- sögumanni á morgun, sunnudaginn 18. júlí. Dagskrá miðaldadagsins hefst kl. 14 með því að sóknar- prestur Möðruvallaklausturs- prestakalls messar við kirkjutótt- ina á Gásum ásamt kirkjukór og stjórnanda. Kl. 15 verður leiðsögn um uppgraftarsvæðið. Til að minna á mannlífið á Gásum forðum verður handverksfólk að störfum í tjald- búðum kl. 14–17. Miðaldadagur á Gásum er skipu- lagður af Minjasafninu á Akureyrir og Gásafélaginu. Gásafélagið ætlar að hafa til sölu léttar veitingar við vægu verði á miðaldadaginn. Miðaldadagur á Gásum TVENNIR barnakóratónleikar verða haldnir í Skálholtskirkju í dag þar sem börn frá Evrópu og Kína munu flytja fjölbreytta efnis- skrá sem þau hafa verið að æfa þessa vikuna á Söngviku í Kópa- voginum. Á tónleikum kl. 17 syngja börnin tónverk frá Englandi, Aust- ur-Evrópu og verk eftir Norræn tónskáld. Á tónleikum sem hefjast kl. 20.30 verða flutt tónverk frá Kanada og Nýfundnalandi og al- þekktar söngperlur eftir Schubert, Brahms og fleiri tónskáld róm- antíska tímabilsins. Stjórnendur barnanna eru frá Englandi, Ungverjalandi, Ný- fundnalandi og Sviss, en Jón Stef- ánsson stjórnar hópnum sem hefur æft söngva frá Íslandi og hinum Norðurlöndunum. Auk þess mun hver kór fyrir sig syngja nokkur lög frá sínu heimalandi, en börnin eru frá Baskahéraði Spánar, Þýskalandi, Sviss, Frakklandi og Kína, auk tveggja kóra frá Íslandi. Tónleikar þessir eru liður í Skál- holtshátíð og eru þeir haldnir í samvinnu við Europa Cantat sem eru ein stærstu kórasamtök í heimi. Börnin syngja einnig á tvennum tónleikum í Salnum á sunnudag og hefjast þeir tónleikar kl.16 og 20. 360 syngjandi börn á Skálholtshátíð SÖGUSÝNING í Dalbæ á Snæ- fjallaströnd við Ísafjarðardjúp um Kaldalón og Sigvalda Kaldalóns verður opnuð í dag klukkan 15. Jafnframt verður dagskrá helguð tónskáldinu. Sýningin byggist á tveimur meg- inþáttum; kynningu á gönguleiðum og ýmsum sögnum sem tengjast Kaldalóni við Ísafjarðardjúp og kynningu á tónskáldinu og lækn- inum Sigvalda Kaldalóns, sem kenndi sig við Kaldalón þar sem hann bjó er hann samdi mörg sín þekktustu lög. Kammerkórinn á Ísafirði verður með dagskrá um Sigvalda Kaldalóns við opnun sýn- ingarinnar auk þess sem Gunn- laugur A. Jónsson og Sigvaldi Snær Kaldalóns flytja ávörp og flutt verður lag þess síðarnefnda, Sveit- in mín, við ljóð Torfa Sigurðssonar frá Bæjum. Jafnframt verður kynnt útgáfa Smekkleysu á safni söng- laga Sigvalda Kaldalóns með ýms- um flytjendum. Kaldalón og Kaldalóns

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.