Fréttablaðið - 23.11.2002, Blaðsíða 4
4 23. nóvember 2002 LAUGARDAGUR
HITAVEITA Heita vatnið í Hvera-
gerði er komið til lögfræðings
bæjarins. Gerðist það í framhaldi
af umfjöllun bæjarstjórnar á er-
indi Pjeturs Hafsteins Lárusson-
ar, íbúa í Hveragerði, sem telur
að bæjarbúar sitji ekki allir við
sama borð eftir að framkvæmdir
við nýtt dreifikerfi á heitu vatni
hófust í bænum. Hingað til hafa
Hvergerðingar greitt fyrir heita
vatnið eftir flatarmáli húsa sinna
en nú er unnið að því að setja upp
mæla eins og tíðkast annars stað-
ar á landinu. Við það hafa hita-
reikningar bæjarbúar snarhækk-
að í mörgum tilvikum. Nýja
dreifikerfið tekur nú til 40 pró-
sent húsa í bænum en eftir sitja
60 prósent með gamla laginu og
er ekki gert ráð fyrir að þeir
verði komnir með mæla á hita-
kerfi sín fyrr en eftir tíu ár.
„Ég tel að þarna sé verið að
brjóta jafnræðisreglu stjórn-
sýslulaga,“ segir Pjetur Haf-
stein. „Þeir sem eru ekki komnir
með mæla geta notað miklu
meira af heitu vatni en hinir sem
í raun niðurgreiða þá heita vatn-
ið fyrir þá sem eru svo heppnir
að vera ekki enn komnir með
mæla. Menn hafa reiknað út að
ef fólk hérna er með upphitað
bílastæði og sundlaug greiðir
það 25 þúsund krónur á mánuði
fyrir heita vatnið sem til þarf sé
mælirinn notaður. Hinir fá þetta
fyrir næstum ekki neitt,“ segir
Pjetur Hafstein og er ósáttur.
Enda nýkominn með mæli sjálf-
ur. ■
Hveragerði:
Heita vatnið
til lögfræðings
HEITT VATN
Mismunandi
verð í gildi í
Hveragerði.
Bók veiðimannsins!
Stangaveiðihandbókin
svarar öllum helstu
spurningum veiði-
mannsins um veiðiár
og veiðivötn. Bók fyrir
þaulvana veiðimenn
jafnt sem byrjendur
í stangaveiði.
Metsölubók sumarsins!
LEIKSKÓLAR „Það er hart vegið að
stjórnendum og starfsfólki leik-
skóla borgarinnar og ekki ástæða
til þess að þeir sitji undir slíkum
ávirðingum, enda fullyrðingar
borgarfulltrúans með öllu úr lausu
lofti gripnar,“ sagði Ingibjörg Sól-
rún Gísladóttir borgarstjóri.
Í Fréttablaðinu í gær var haft
eftir Birni Bjarnasyni, oddvita D-
listans, að gjaldskrárhækkun leik-
skólanna væri sjúkdómseinkenni
sem sýndi einfaldlega að leikskól-
arnir væru illa reknir. Það væri
ekki reynt að komast að rótum
vandans heldur gjöldin bara hækk-
uð.
Borgarstjóri bendir á að 86%
rekstrarkostnaðar leikskóla sé fólg-
inn í launakostnaði. Hann hafi á
undanförnum tveimur árum aukist
um þriðjung, enda allir sammála
um að laun starfsfólks leikskóla
þyrfti að bæta verulega. Foreldrar
greiði aðeins þriðjung af kostnaðar-
auka sem af þessu hlaust.
„Því fer fjarri að rekstur hafi
farið úr böndum,“ sagði Ingibjörg
Sólrún. Tekist hafi að lækka kostn-
að á hverja dvalarstund barns á
sama tíma og launakostnaður hafi
hækkað um tugi prósenta. Ég leyfi
mér að fullyrða að hjá leikskólun-
um fer saman hagsýni og útsjónar-
semi við erfiðar aðstæður.“ ■
INGIBJÖRG SÓLRÚN GÍSLADÓTTIR
Stjórnendur og starfsfólk leikskólanna eiga
ekki skilið kveðjur Björn Bjarnasonar.
HÉRAÐSDÓMUR REYKJAVÍKUR
Með broti sínu rauf maðurinn skilorð, en í
október í fyrra var hann dæmdur fyrir brot
gegn lögum um ávana- og fíkniefni.
Þriggja mánaða
fangelsisdómur:
Ræktaði
kannabis í
Norðurmýri
DÓMSMÁL Breskur ríkisborgari,
búsettur í Norðurmýri í Reykja-
vík, hefur verið dæmdur í þriggja
mánaða fangelsi í Héraðsdómi
Reykjavíkur fyrir fíkniefnalaga-
brot. Alls fannst 21 kannabis-
planta og 110 grömm af afskorn-
um kannabislaufblöðum við hús-
leit heima hjá manninum.
Með broti sínu rauf maðurinn
skilorð, en í október í fyrra var
hann dæmdur fyrir brot gegn lög-
um um ávana- og fíkniefni. Mað-
urinn viðurkenndi í yfirheyrslu
hjá lögreglu að hann ætti efnið en
breytti framburði sínum fyrir
dómi og sagði að sambýliskona sín
ætti þau. Hún hafði sagt lögregl-
unni að hún ætti ekki efnið, en
fyrir dómi sagðist hún eiga það.
Dómurinn tók orð þeirra fyrir
dómi ekki gild þar sem hann taldi
að með framburði sínum fyrir
dómi væri konan væri fyrst og
fremst að vernda hagsmuni
ákærða, sem var á reynslulausn
og átti yfir höfði sér brottvísun úr
landi. Þá var framburðurinn ekki í
neinu samræmi við framburð
þriggja rannsóknarlögreglu-
manna. ■
Manndrápsmálið á
Klapparstíg:
Fljótlega til
saksóknara
LÖGREGLUMÁL Rannsókn á mann-
drápsmálinu á Klapparstíg er
komin á lokastig. Hörður Jó-
hannesson yfirlögregluþjónn
segir málið fara til saksóknara
innan tíðar.
Steinn Ármann Stefánsson
hefur gengist við því að hafa
veitt Braga Ólafssyni áverka
með hnífi á heimili hans að
Klapparstíg 26. september síð-
astliðinn. Hefur rannsóknin því
ekki beinst að neinum öðrum.
Bragi lést af sárum sínum
fyrrgreinda nótt skömmu eftir
að komið var með hann á sjúkra-
hús. Áður hafði hann náð að gera
nágrönnum sínum viðvart og
segja frá árásinni og hver hefði
veitt honum áverkana. Skömmu
síðar var Steinn Ármann hand-
tekinn. ■
13 ára stúlka:
Svæfingin
minnkuð
SLYS Verið er að minnka svæfingu
stúlkunnar sem varð fyrir bíl á
Vesturlandsvegi í byrjun nóvem-
ber, samkvæmt upplýsingum frá
vakthafandi lækni á gjörgæslu-
deild Landspítalans. Hefur henni
verið haldið sofandi síðan slysið
varð. Enn sem fyrr nýtur hún
stuðnings öndunarvélar og mun
gera enn um sinn. Stúlkan, sem
er þrettán ára, hlaut alvarlega
höfuðáverka og þurfti að gangast
undir skurðaðgerð.
Slysið varð með þeim hætti
að stúlkan var að hlaupa yfir
Vesturlandsveg við Ásland í
Mosfellsbæ þegar hún lenti fyr-
ir bíl. ■
Nýjung í Svíþjóð:
Skattframtal
í síma
STOKKHÓLMUR, AP Á næsta ári verð-
ur auðveldara að telja fram til
skatts í Svíþjóð heldur en í nokkru
öðru landi. Ekki þarf meira en
tveggja mínútna símtal.
Frá því 1995 hafa skattgreiðend-
ur í Svíþjóð fengið sent skattfram-
talið heim næstum því alveg útfyllt.
Þeir sem sækja ekki um sérstakan
frádrátt þurfa nú ekki annað en að
hringja í gjaldfrjálst númer, gera
grein fyrir sér með átta stafa lykil-
tölu, sem prentuð er á skattframtal-
ið, og staðfesta framtalið. Sjálfvirk-
ur símsvari leiðbeinir manni og allt
ferlið ætti ekki að taka meiri tíma
en tvær mínútur. ■
18 framhaldsskólar skulduðu ríkinu samtals um 680 milljónir króna síð-
ustu áramót. Margir skólar hafa rekið undan sér tugi milljóna um nokk-
urra ára skeið. Skólafólk telur þurfa allt að milljarð til að leysa vandann.
SKÓLAR Forsvarsmenn framhalds-
skóla telja að auka þurfi fjárfram-
lög til skólanna um 400 milljónir
króna til að halda rekstri þeirra í
horfinu og annað eins til að greiða
upp skuldahala sem hefur safnast
upp á undanförnum árum.
Um síðustu áramót var
greiðslustaða 18 framhaldsskóla
við ríkissjóð samtals neikvæð um
680 milljónir króna. Það er það fé
sem skólarnir hafa varið umfram
fjárheimildir undanfarin ár. Sá
skóli sem mest skuldaði ríkinu
samkvæmt þessu er Menntaskól-
inn í Kópavogi.
Margrét Friðriksdóttir, skóla-
meistari í MK, segir að vanda
skólans megi rekja til þess að hót-
el- og matvælagreinar voru færð-
ar undir skólann 1996. Rekstrar-
kostnaður skólans hafi aukist
verulega án þess að tekið hafi ver-
ið nægilegt tillit til þess í fjárveit-
ingum. Fyrir breytingu hafi skól-
inn aldrei farið fram úr fjárlög-
um, eftir hana hafi framúrkeyrsl-
an verið 30 til 40 milljónir króna á
ári. Þrátt fyrir að stjórnvöld hafi
fljótlega viðurkennt vandann hafi
dregist að koma með úrbætur.
Það eru einkum skólar með
verkgreinar sem hafa verið rekn-
ir með halla. Menntamálaráðu-
neytið hefur kynnt nýtt reiknilík-
an til sögunnar sem á að færa
skólum með verkgreinar meira
fé, en skólastjórar í bóknámsskól-
um hafa sumir kvartað undan því
að verið sé að seilast í þeirra fjár-
veitingar frekar en að leysa vand-
ann.
Ingibjörg S. Guðmundsdóttir,
formaður Félags íslenskra fram-
haldsskóla, segir þrjár ástæður
fyrir erfiðri stöðu skólanna.
Framlög til þeirra séu skorin nið-
ur um 5% milli ára og sumir skól-
arnir hafi velt undan sér skuldum
árum saman vegna ónógra fjár-
veitinga. Þá sé nemendafjöldi
vanáætlaður um allt að fimm
hundruð manns fyrir skólana í
heild sinni, fyrir þá vanti um 250
milljónir króna í pottinn.
„Skólunum er skipað að halda
sig innan fjárveitinga,“ segir Ingi-
björg. „Aðferðirnar sem við get-
um beitt eru ekki voðalega marg-
ar. Sparnaðurinn er fyrst og
fremst í kennslu af því langmest-
ur kostnaðurinn er í þeim lið.“
Tómas Ingi Olrich mennta-
málaráðherra sagði nýja reikni-
líkaninu ætlað að taka á vanda
skólanna. Menn væru enn að
skoða málið í tengslum við fjár-
lagagerðina og meðan sú vinna
stæði yfir vildi hann ekki tjá sig
frekar um málið.
brynjolfur@frettabladid.is
MENNTASKÓLINN Í KÓPAVOGI
Frá því Menntaskólinn í Kópavogi tók við námi í hótel- og matvælagreinum hefur verið
halli á rekstri skólans. Skólafólk kvartar undan því að reiknilíkan sem notað var við
útreikninga fjárveitinga fram á þetta ár hafi ekki tekið tillit til fjárþarfar skóla með mikið
verknám.
KJÖRKASSINN
Farðu inn á frett.is og segðu
þína skoðun
frétt.is
Á að drífa í að byggja
Sundabraut?
Spurning dagsins í dag:
Þarf að endurskoða refsingar
í sakamálum?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
Já
Nei
BRÚNA STRAX
Netverjar taka undir
með Ólafi Erni Har-
aldssyni og Guð-
mundi Hallvarssyni
og vilja Sundabraut
sem fyrst.
54,3%
39,1%
Veit ekki 6,5%
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir um rekstur leikskóla:
Hagsýni og útsjónarsemi
við erfiðar aðstæður
Skuldugir
framhaldsskólar